Alþýðublaðið - 12.01.1944, Blaðsíða 2
i'WfV
ALÞYÐUBLABBB
Miðvikudagur 12. janúar 1814,.
Tvo vélMta vantar, — annan
nr Reykiavíb, hinn fir Esjnm.
Á þeim eru samtals eilefu menn.
TVO VÉLBÁTA með ellefu manna áhöfn vantar. Leit
hefir verið gerð að bátunum, en hún hefur ekki enn
borið árangur.
Bátar þessir eru Austri, héðan úr Keykjavík, 45 smál.
að stærð með sex manna áhöfn. Fór hann í róður aðfaranótt
sunnudags. í gær var flugvél fengin til að leita að bátnum.
Leitarskilyrði voru slæm, enda bar leitin ekki árangur.
Hinn báturinn er „Skúli íógeti“ úr Vestmannaeyjum.
Um klukkan 3 aðfaranótt mánudags fóru ellefu bátar á sjó
úr Vestmannaeyjum og komust nær allir við illan leik að
Eiðinu, þar lágu þeir í fyrrinótt. Um miðjan dag í gær kom-
ust þeir allir inn á höfn, ,
Til „Skúla fógeta“ hefur ekkert spurzt. Á honum eru
fimm menn og er hann 22 smál. að stærð.
Eitt óhappið enn!
EltiðaáfstSðin ekki í sam-
kandi vegna skafrennlngsl
En auk þess er hitaveitunni nú kennt
mu hinn mikla rafmagnsskort!
EITT ÓHAPPIÐ enn hefir komið fyrir Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og Hitaveitu Reykjavíkur. samkvæmt
]>ví, er segir í sameiginlegri yfirlýsingu, sem Alþýðublað-
inu barst í gær frá forstjórum Rafmagnsveitu Reykjavíkur
og Hitaveitu Reykjavíkur.
Alpinai:
forsetar hinir sðmu
og áöar.
KOSNING forseta og fund-
arskrifara fór fram á al-
þingi í gær. Fóru þær kosning-
ar á sömu lund og á síðasta
þingi.
Forseti sameinaðs þings var
kjörinn Gísli Sveinsson, fyrsti
varafors. Finnur Jónsson og ann
ar varaforseti Bjarni Ásgeirs-
son. Fundarskrifarar voru kosn-
ir þeir Signrður Kristjánsson
og Skúli Guðmundssoon.
í efri deild var kjörinn for-
■seti tjteingrímur Aðalsteinsson,
fyrsti varaforseti Þorsteinn Þor-
steinsson og annar faraforseti
Cuðmundur í. Guðmundsson.
Fundarskrifarar voru kjörnir
Eiríkur Einarsson og Páll Her-
mannsson.
Forseti neðri deildar var kjör
ánn Jörundur Brynjólfsson,
fyrsti varaforseti Emil Jónsson
og annar varaforseti Sigfús Sig-
urhjartarson. iSkrifarar voru
kosnir Sigurður Hlíðar og Svein-
kjörn, Högnasson.
Kosning í néfndir fer fram
á morgun. Enn eru ókomnir til
|>ings þingmenn Skagfirðinga
og :mgi‘ Jónasson. Nokkrir
þingmenn eru forfallaðir vegna
veikinda.
* í gær var ekki hægt að hafa
Elliðaárstöðina í sambandi, sam
kvæmt því, sem stendur í þess-
ari yfirlýsingu, vegna þess að
stíflur höfðu orðið í Elliðaár-
vatni vegna skafrennings. Má
því segja að hvert óhappið reki
annað — og fer þetta varla að
verða einleikið. Báðir forstjór-
arnir heita eindregið á bæjar-
búa að spara rafmagnið og að
spara heita vatnið fyrst og
fremst að nóttu til.
Yfirlýsing sú, sem forstjór-
arnir sendu út í gær er næstum
því eins og neyðaróp til fólks
um aðstoð í vandræðum. Vill
Alþýðublaðið vekja athygli á
upphafi yfir-lýsingarinnar, þar
sem segir að erfjðleikar með
rafmagnið stafi af eriiðieikum
með heita vatnið. í gær lásum
við hins vegar að erfíðleikarnir
með heita vatnið væru afleið-
ingar af erfiðleikum með raf-
magnið.
Yfirlýsing forstjóranna er á
þessa leið:
„Undanfarna daga hefir raf-
magnið verið venju fremur
dauft. Byrjaði það á laugardag
inn. Mun orsökin einkum vera
erfiðleikar hjá Hitaveitunni og
svo kuldakastið um helgina. Á
sunnudaginn var svo mikil raf-
magnsnotkun ,að full spenna
komst eigi á fyrr en undir mið
nætti og stafaði það af rafhit-
úri. Mánudaginn var einnig
erfiður og þriðjudagsmorgún-
inn var ekki hægt að hafa Ell-
iðaiárstöðina í sambandi sökum
vatnsþurðar, er stafaði af stífl-
unum í Elliðavátni vegna skaf-
rennings. Hafði vatnið hlaupið
úr árfarveginum út á flatirnar
bæði fyrir ofan Elliðavatn og
Frh. á 7. síðu.
Ekki 'talið vonlaust, að hægt
verði að bjarga Laxfossi.
— ■■■♦ —
,¥ið Musínðam á nær alla kvðMdagskrá
útvarpslns klædd bJSrgunarvestana4
Frásögn Skúla Guðmundssonar
alþingismanns.
ENN HAFA EKKI farið fram sjópróf út af strandi Lax-
foss í fyrra kvöld. Skipstjórinn, Pétur Ingjaldsson, tel-
ur sig því ekki geta, að svo komnu, gefið blöðum skýrslu
um strandið og aðdraganda þess. Skipstjórinn fór í gær
um borð í skipið til að athuga það og gera tilraunir til að
bjarga einhverju af farangri fólks úr því. Skipið er heilt
öðru megin, en ekki verður með vissu sagt, hversu mikið
það er brotið á þeirri hliðinni? sem niður snýr, en vitað er
að það er allmikið laskað, enda er flóð og fjara í því.
.Kunnugir menn, sem athugað hafa allar aðstæður,
telja ekki alveg vonlaust um að takast megi að hjarga skip-
inu af klettunum, þar sem það stendur, en það er komið
undir veðri. Ef veður stillist má telja líldegt að hægt verði
að ná skipinu út, en ef rok verður og slæmt veður er það
talið vonlaust.
Möx'gum ber saman um það,
að það hvernig stóð á sjávar-
föllum hafi ráðið miklu um það
hversu giftusamlega tókst til
um björgun þeirra mörgu
manna, sem í skipinu voru er
það strandaði ,en háfjara var
klukkan 12 á miðnætti og þá
tókst líka að ná nær öllum svo
að segja í einu, þó að nokkrir
hefðu komist til lands áður. En
þessi ágæta björgun mun og
eigi síður að þakka hinni ágætu
framkomu starfmanna Keykja-
víkurhafnar, sem nær allir tóku
þátt í björgunarstarfinu undir
stjórn hafnsögumanna — og að
auki þakka menn ekki síst því
ágæta samstarfi, sem var milli
starfsmanna hafnarinnar og
Slysavarnafélagsins, sem frá
upphafi lagði sig fram við starf
ið. Þess skal getið að Slysa-
varnafélagið á ekki björgunar-
hát hér í Reykjavík. Hins vegar
vekur það athygli hversu mik-
inn hlut hinn erlendi innrásar-
prammi átti í björguninni í
samvinnu við Magna og lóðsbát
inn. Virðist okkur vanta bát,
sem hægt er að beita við slík
slys. Tæki þau sem Slysavarna-
félagið á hér eru ákaflega mik-
ilsvirði og sást það bezt er
bjargað var skipverjunum í
Rauðarárvík í hitteð fyrra.
Þegar farið var út 1 Laxfoss
í gærmorgun náðist lítið af
farangri farþega eða skipshafn-
ar og munu ýmsir hafa orðið
fyrir eignatjóni. Hins vegar mun
skipsskjölum og nauðsynleg-
ustu plöggum hafa verið bjarg-
að.
Meðal farþeganna á Laxfossi
Var Skúli Guðmundsson alþingis
maður. Var hann einn af þeim
stóra hóp er kom að norðan og
tók skipið í Borgarnesi. Alþýðu
blaðið bað Skúla í gærkveldi
að skýra því frá því, hvernig
strandið hefði borið að í augum
farþeganna og sagði hann meðal
annars:
„Klukkan var eitthvað á
: áttunda tímanum Ég var í saln-
um niðri í skipinu og þar var
margt manna. Sumir gengu um
gólf, eða hölluðust upp að
veggjunum, aðrir sátu á bekkj-
um eða á stólum. Á göngunum
var fólk á rjátli, en nokkrir
voru á stjórnpalli, eða þar í
grend. Allt í einu hægði skipið
á sér og við héldum, að nú væri
það að fara inn um hafnarmynn
ið. En allt í einu tók skipið mik-
inn kipp, svo að þeir, sem sátu,
hrukku fram á gólfið og allir
komust á hreyfingu. Um leið
tók skipið töluvert að hallast.
Við hröðuðum okkur þegar í
stað upp, án þess þó, að nokk-
ur felmtur væri að heyra eða
að sjá á fólki. Ég og margt far-
þega lentum inni í reykskálan-
um og fengum við öll tafar-
laust björgunarbelti, en nóg virt
ist vera til af þeim í skipinu.
Menn héldu sig nú einna mest
Framh. á 7. síðu.
Mjólkin sat fist
I Svíiiahraoni.
En setoliðsmenn bofðn
mokað fjallið!
O EYKJAVÍKURBÆR
mjólkurilaus í gær,
var
í gær, ekM
vegna þess að fjallið væri ó-
fært heldur vegna þess að>
Svínahraun var ófært.
Bandarískir setuliðsmenn
höfðu mokað fjallið og gert það
fært, eftir tilmælum vegamála-
stjóra, en þeir mokuðu ekki í
Svínahrauni — og þá varð aillt
stopp! Svona eiga hlutirnir að
vera!
áastarb ^jarsfeólsn-
u lolrð
Inlda!
B
ARNASKÓLA AUSTUR-
BÆJAR hefir verið lokað
í tvo daga vegna kulda — verð-
ur hann að minnsta kosti einnig
lokaður í dag.
Alþýðublaðið spurðist fyrir
um það í Miðbæjarskólaanum
í gær, hvernig ástandið væri
þar og fékk þau svör að þar
væri nægilegur hiti. Hann býr
nefnilega enn við gömlu upphit
unaraðferðina og þarf ékki á
rafmagni að halda.
45 vélskip handa ísleoð
Ingum frá Svlpjói
Tllraiaailr, s©m AlpýðaafiokkiBrlaiiB
kéf9 Isafa ;bor!é igéMsim áraBByrar*
O ÆNSKA RÍKISSTJÓRN-
^ IN hefir veitt íslendingum
leyfi til að láta byggja 45 fiski
skip í Svíþjóð. Það skilyrði
fylgir þó þessu leyfi, að ís-
lenzka ríkisstjórnin verði samn
ingsaðili um smíði þessara
skipa. — Skip þessi verða smíð
uð úr tré.
Um þessar mundir er sendi-
fulltrúi íslands í Stokkhólmi að
reyna að útvega leyfi fyrir
fleiri skipum.
Þessum tíðindum ber að
fagna, því að okkur ríður á
miklu að geta fengið eins fljótt
og unnt er ný skip til fiskveiða
okkar.
En upphaf þessa máls er það
að Alþýðuflokkurinn hó f þessar
tilraunir í fyrra og tókst að fá
fyrir því vilyrði að við gætum
ef til kæmi fengið slík skip
byggð í Svíþjóð. Frá þessu
skýrðu Alþýðuflokksmenn á síð
asta alþingi og lögðu til í sam-
bandi við fjárlögin, að ætlaðar
væru 9,5 milljónir króna til
þessara skipakaupa, en sú til-
laga var felld. Hinsvegar var
samþykkt tillaga frá meirihlutæ
fjárveitinganefndar um að veita
5 milljónir króna til kaupa á
nýjum fiskiskipum og hefir
ríkisstjórnin sjálf snúið sér til
Svíþjóðar og fengið það tryggt
að hægt verði að fá þar smíðuð
45 tréskip handa okkur.
Það er vægast sagt broslegt
að þegar ,,Vísir“ sagði frá þess-
ari fregn, þá lét hann svo sem
'hér væri um nýja uppgötvun að
ræða, þó vissi blaðið vel, að
Alþýðuflokkurinn hóf þetta mál
fyrir löngu og þingmenn flokks
ins upplýstu það á síðasta al-
þingi að hægt væri að fá skipin
í Svíþjóð.
Þetta er þó ekki nema lítii
byrjun á stóru verki. Brýn
nauðsyn er á því að fleiri skip
verði fengin og að gérðir verði
ráðstafanir til þess að hægt
verði að byggja skip í stórum
stíl innanlands.
Leikfclug Reykjavíkur
sýnir Vopn guðanna eftir Davíf
Stefánsson frá Fagraskógi kl. 9
í kvöld. — Aðgöngumiðasalan er
opin frá kl. 2 í dag.