Alþýðublaðið - 12.01.1944, Qupperneq 7
Miðvikudagur 12. janúar 1944.
ALS»VÐUBLA01B
1 Bœrinm í dag.
3«^<><XXX>03Ki><>0<><><>^<^0*^^^000<^í^
Næturlæknir er í.riótt í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
ÚTVARPIÐ.
20.00 Fréttir.
20.30 Kvöldvaka: a) Gísli Guð-
mundsson tollvörður: Veið-
ar í vötnunum í Manitoba, I.
erindi b) 21.00 Karl ísfeld
blaðamaður: Úr gaman-
kvæðum Jóns Helgasonar.
c) 21.15 Gunnlaug Narfa-
dóttir húsfreyja í Dalbæ:
Frá hellisbúum. Frásaga
(Þulur flytur). d) 21.35
Harmónikuleikur.
20.50 Fréttir.
I*akkir Slysavarnafélagsins.
Guðbjartur Qlafssón forseti bið-
ur blaðið í nafni Slysavarnafélags
íslands að flytja öllum þeim
mörgu, erlendu og innlendu mönn
um, sínar hjartanlegustu þakkir
fyrir framúrskarandi ötula ,og fórn
fúsa hjálp við björgun á farþegum
og skipverjum af m/s Laxfoss í
fyrrinótt.
Fermingarbörn
séra Árna Sigurðssonar eru beð-
in að ltoma til viðtals í Fríkirkjuna
Til Noregssöfnunarinnar
frá G. G. 150 krónur.
Hjónaefni.
Trúlofun sína hafa opinberað
nýlega urigfrú Anna Friðriksdótt-
ir símamær frá Akureyri og Dag-
ur Jónasson starfsmaður hjá amer-
isku fréttastofunni í Reykjavík.
HHaTeitan og raf-
magi
Frh. af 2. síðu.
neðan Elliðavatnsstíf-lurnar.
Varð úr þessu 2 klst. töf, er
olli meðal annars því, að dælu-
stöð Hitaveitunnar gat ekki
starfað. Kom samskonar trufl-
un á rekstrinum frá Elliðaán-
um fyrir 10. febr. 1938, og þá
í fyrsta sinni eftir að Elliða-
vatnsuppistaðan var gerð.
Verður ekki nógsamlega
brýnt fyrir mönnum að spara
rafmagn og nota ekki rafhitun.
Sérstaklega skal á það bent,
að í hitaveituhúsum munar
margfallt, hvað dælustöðin
þarf margfalLt minna af raf-
magni til að dæla heita vatn-
inu svo að nægur hiti fáist
heldur en hitanir með rafmagns
ofnum.
Eins og kunnugt er, hefir
Hitaveitan ekki getað haldið
fullum þrýstingi á vatnsmagn-
inu undanfarna daga, sem staf
a raf því að geymarnir á Öskju-
hlíðinni hafa ekki fengið að
fyllast síðan'á föstudagsmorg-
un. Ástand iþetta hefir enn
versnað vegna stöðvunar þeirr-
ar, sem varð á EHiðaárstöðinni
í gær (þriðjudag). Eina ráðið til
að bæta úr þessu og fá fullan
þrýsting á vatnið aftur, er að
fólk loki sem allra mest fyrir
hitun yfir nóttina. Eru það því
vinsamleg tilmæli til allra
þeirra, sem hitaveitu hafa, að
þeir loki fyrir vatnsrennslið að
næturlagi. Ef almennt er lokað
fyrir vatnið eina eða tvær næt-
ur og síðan dregið hæfilega úr
næturnotkun, mundi allt kom-
ast í eðlilegt horf aftur.
Meðan Hitaveitan er ekki
fullgerð og stækkun Sogsstöðv-
arinnar ekki lokið, er nauðsyn-
legt, að' fólk spari bæði heita
vatnið og rafmagnið.“'
Útbreiðið AlhÝÉblatk
Sklp strandaði við
Lnadejr í fyrrinótt.
Mennirnir blörooðust í eyna
oy biðu imr morouns.
SKIP STRANDAÐI í fyrri-
nótt við Lundey (austur
af Viðey). Mun skipshöfnin
ekki hafa séð inrisiglingaljósin.
Skipshöfnin bjargaðist við
illan leik í land á eynni og beið
þar morgunsins, en þá tókst
dráttarbátnum Magna að bjarga
mönnunum og kom hann með
þá til lands kl. 11.30 í gær.
Daítsbrúnarsíiórnin
Mlsberjaraíkvæðagrölðslaa
hefst á íösiudaoinn.
ÐEINS einn listi kom fram
við stjórnarkosningamar
í Dagsbrún.
Var framboðsfresturinn út-
runninn í fyrradag og kom eng-
inn annar listi fram, en sá, sem
trúnaðarráð félagsins hafði [
lagt fram.
Stjórn félagsins skipa því
þetta nýja starfsár:
Sigurður Guðnason, formað-
ur.
Hannes Stephenssen, vara-
formaður.
Jón Agnarsson, ritari.
Árni Kristjánsson, gjaídkeri.
Edvard Sigurðsson, fjármála-
ritari.
Allsher j aratkvæðagreiðslan
um uppsögn samninganna við
atvinnurekendur hefst á þriðju-
dag og heldur áfram á laugar-
dag og sunnudag.
Frh. af 2. síðu.
á ganginum, sem' öfar var, bak-
borðsmegin, en sumir voru. í
brúnni. Skipið blés ákaflega um
stund, strax og það var etrand-
að, en síðan var flugeldum
skotið. Rétt í saWia mund var
okkur.sagt, að náðst hefoi sam-
band við loftskeytastöðir.a. Við
hlustuðum á útvarp þarna,
klædd í -björgunarvesí'.n, og
gátum víð hlustað á n£.:r alla
kvölddagskrána, en þegar ver-
ið var að. leika síðasta- lagið tók
skipið skyndilega viðbragð og
hallaðist nú enn meira. Litlu
síðar stöðvaðist vélin og ljósiri
slokknuðu.
Þegcr svo var komið klifruð-
um við úr reikskálanum og út
á ganginn bakborðsmegin, en
sumir fóru alla leið upp í brú.
Það var sannarlega þröngt í
ganginum, en það kom ekki að
sök. Þarna höfðumst við svo við
þar til björgunin kom og ég
get ekki sagt að líðan okkar
hafi veríð slæm, og allir voru
rólegir."
— Ykkur var strax ljóst hvar
þið voruð stödd?
„Já, okkur var sagt það
nærri því undir eins.“
Uadirbúaingar aiis
herjaratkvæða-
greiðslannar í
Isgsijroíí.
25 manna oefnd sklpuð.
TJÓRN DAGSBRÚNAR
skipadi á fundi sínum
í gærkveldi 25 menn■ í nefnd
til þess að sjá um þátt-
töku í allsherjaratkvæðagreiðslu
þeirri um uppsögn samninga,
er fram fer dagana 14.—16.
janúar næstkomandi:
1 nefndinni eiga sæti:
Ágúst Eiríkisson, Ari Finns-
son, Árni Kristjánsson, Ástþór
B. Jónsson, Björn Guðmunds-
son, Eðvarð Sigurðsson, Eggert
Guðmundssori, Einar Guðbjarts
son, Emil Ásmundsson, Guð-
bergur Kristinsson, Guðbjörn
Ingvarsson, Guðmundur Guðna
son, Gunnar Danielsson, Indriði
Jóhannsson, Jón Agnarsson,
Jón Sæmundsson, Karl Laxdal,
Ólafur B. Þórðarson, Páll
Bjarnason, Ragnar Jónsson,
Sigurður Ólafsson, Sigurjón
Jónsson, Sveinbjörn Hannesson
Valgeir Magnússon, Vilmar
Thorsteinsson.
Foi-maður nefndarinnar er
Eðvarð Sigurðsson, Nefndinni
til aðstoðar verða allir trúnað-
armenn .félagsins og aðrir á-
hugamenn. Nefndín heldur fund
n. k. fimmtudagskvöld.
Hássar ofl Pólverjar.
Fi-h. af 3. síðu. .
ekki eins hratt yfir og áður. <—
Miklar orustur geisa skammt
frá járnbrautarlínunna, sem
liggur milli Odessa og Varsjá.
Frh. af 6. síðu.
mikill. Kjöt og kartöflur eru ó-
fáanlegar, brauð er sjaldgæft,
en lítið eitt fæst af fiski. Auka-
skammt um jólin fá nokkrir út-
valdir. Samkvæmt blaðinu
„Reveler Zeitung11 fá börn
estneskra SS-manna og
estneskra leynilögreglumanna,
sem eru undir 10 ára aldri, auka
skammt um jólin, 1 kg. af salt-
fiski, eitt pund af kexi, 114 pund
af maltextrakt.
í Noregi er ástandið heldur
skárra. I Bergen, sem fyrir
stríð var ein mesta fiskútflutn-
mgshöfn heimsins, fá allir bæj-
arbúar eitt kg. af fiski milli 15.
og 31. desember, samkvæmt op-
inberri tilkynningu bar í borg
þann 21. desember. Um allan
Noreg berjast quislingar og
norskar SS-sveitir gegn hátíða-
höldum um jólin.
í Danmörku er ekki eins lít-
ið um matvörur og allir Danir
fá auka-jólaskammt, 1 kg. af
sykri, 1 kg. af hveiti. Jólagæsir
og endur eru nú þegar til sölu
í Danmörku, en talið er að þær
nemi aðeins um þriðjungi þess,
sem var fyrir stríð, en heldur
meira en í fyrra. Ferðalög um
jólin eru háð sérstöku lögreglu-
eftirliti, á það sérstaklega við
um farangur, en það hefir vald-
ið röskun á áætlunarferðum.
Póststjórnin danska hefir var-
að menn við því að senda prent-
að mál til útlanda, sér í lagi
jólakort.
í Finnlandi eru flestar jóla-
gjafir ófáanlegar í búðum. Bæk-
ur fást og miklir peningar eru í
umferð. Dýrar útgáfur seljast
meira en hinar ódýru.
Jafnvel í Svíþjóð, sem er hlut
laus og ástandið miklu betra,
eru jólin langt frá því að vera
með eðlilegum hætti. Vinsæl-
ustu jólagjafirnar eru inniskór,
en þeir eru ekki skammtaðir.
Leðurskór eru stranglega
skammtaðir. Konur og karlar
fá 40 vindlinga aukalega um
jólin (venjulegur skammtur er
10 vindlingar á dag), auka
sápustvkki, p> und af sykri. Það
mælist illa fyrir, að auka-áfeng-
isskíftnmtur, sem er einn lítri af
sterku víni, fæst ekki um jólin,
svo sem venja er til. Fólk fær
venjulega 3 lítra á mánuði, hver
fjÖlskylda.
Um gjörvalla Svíþjóð er unn-
ið að því að safna jólabögglum
handa börnum í Noregi, Finn-
Iandí og Leningrad. I þessari
viku borða 30.000 börn í Oslc
eina sænska máltíð á dag. Frara
að þessu hefir safnazt fé í Sví-
1
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
Hariiies Thorarensen,
Laufásvegi 31, andaðist að heimili sínu í morgun.
Reykjavík, 11. jan. 1944.
Frú Louise Thorarensen, synir og tengdadætur.
þjóð fyrir 45.000 jólagjafir, sem
kosta 5 krónur hver. Fé hefir
einnig verið safnað handa börn-
um í Leningrad.
Sic sentpðf tyrannis .
Frh. af 3. síðu.
Öryggið er . með þessum
hætti í þeim löndum, þar
sem „sterkir menn“, ein-
valdar, fá að ráða.
DE BONO, sem varð honum
samferða yfir hið myrka
Styx-fljót, sem enginn á
afturkvænat yfir, var einn
elzti og tryggasti fylgis-
maður Mussolinis. í „göng-
unni til Róm“, sem fræg er
orðin,.gekk hanri fyrstur, á-
samt þeim Bianchi, de Vecchi
og Italo Balbo. Hinn síðast
nefndi hefur einnig látið
lífið með vofeiflegum og
dularfullum hætti. Hann
fórst í flugvél yfir Afríku-
vígstöðvunum og er enn
ekki ljóst, hvað olli því, að
flugvél hans hrapaði til
jarðar. En ekki er ósennilegt,
að sömu öfl, sem nú hafa
grandað þeim Ciano og de
Bono, hafi orðið honum að
fjörtjóni.
HINN FJÓRTÁNDA APRÍL
árið 1865 lét eitt mestá
göfugmenni, sem 19. öldin
ól, lífið á sviplegan hátt.
Abraham Lincoln, forseti
Bandaríkjanna var skotinn
til bana, er hann s@t í stúku
sinni í Fordsleikhúsi í
Washington. —Morðinginn
John Wilkes Booth að nafni,
stökk úr stúkunni niður á
leiksviðið og æpti um leið:
,,Sic semper tyrannis“ —
þannig fer ávallt um harð-
stjórana. Sjaldan hafa meiri
öfugmæli orðið heimsfræg.
Maðurinn, sem unni frelsi
og mannréttindum, dreng-
lyndi og mannúð, var kallað-
ur harðstjóri af morðingja
sínum.
ÞESSI ORÐ hins ógæfusama
Booths eiga betur við nú,
þegar harðstjórar heimsins
sjá fyrir örlög sín.
Eltisr Iðns í pr í
skrifstofom iiafaar-
fjarðar.
■.. .
ELDUR kom upp kl. 12,45
í gær í skrifstofum Hafn-
arfjarðarbæjar, en fyrir snar-
ræði slökkviliðsins tókst fljót-
lega að ráða niðurlögum elds-
ins og forða húsinu og innbúi
frá skepimdum.
Eldurinn kom upp í mið-
stöðvarherbergi hússins, en það
er niðurgrafið í Öðrum enda
þess. Hafði kyndarinn mokað
kolasalla á miðstöðina, áður en
hann fór í mat, en ekki lokað
upp úr lionum, en gas myndast
sem olli sprengingu og fór eld-
urinn þegar í stað upp í vegg-
inn.
Allar bækur og skjöl og
einnig innanstokksmunir var
borið út úr húsinu, en á þeccu
urðu engar skemdir.
Fæddist á herspítala
mmj
:wvsr;
Hin unga ítalska móðir fæddi barnið sitt, litla stúlku, á amerísk-
um herspítala á Ítalíu, en þangað hafði hún verið flutt særð af
sprengjubroti. Tveimur dögurn síðar ól hún barnið. Amerísk
hjúkrunarkona sést á myndinni stumrandi yfir þeim.