Alþýðublaðið - 15.01.1944, Síða 3
ILaugardagur 15. janúar 1944
ALÞYÐUBLAÐÍÐ
3
Miðvígstöðvarnar í Rússlandi.
Á myndinni sjást ýmsar þær borgir á ausurvígstöðvunum, sem
mest hefir verið barizt um undanfarnar vikur. Á miðri mynd-
inni til vinstri er Sarny í Póllandi Ofarlega til hægri er borgin
Kalinkovichi, sem Rússar hafa nú náð á sitt vald, en rétt hjá
henni, en sést ekki á feortinu er Mosír, sem einnig er á valdi Rússa.
Rússar faka Mosir og Kalin-
kovichi á Pripetsvæðinu.
Þ|éðverjar hörfa undan í Þóllandi, en búast
til varnar viö Bug-fljót.
ENN BERAST miklar sigurfregnir frá Rússlandi. Stalin til-
kynnti í dagskipan í gær, að borgirnar Mosir og Kalinko-
vichi væru nú á valdi Rússa, þrem dögum eftir að þeir hófu sókn-
ina á þessum vígstöðvum. Hersveitir Vatutins halda áfram að reka
flótta Þjóðverja inn í Pólland, vestur af Sarny og stefna til Ko-
wel. Þaðan munu Rússar ætla að sækja til Brest-Litovsk. Við
Vinnitsa geisa harðir hardagar, en sú horg er seinasta varnarstöð
Þjóðverja á þessum slóðum. Við Bug-fljót vinna Þjóðverjar nótt
og nýtan dag að byggingu víggirðinga og draga að sér varalið.
Rússum hefir einnig horizt liðsauki og er húizt við mjög
hörðum átökum, er Rússar reyna að hrjótast yfir fljótið, síðustu
torfæruna, áður en komið er til rúmensku landamæranna.
Að lifa sjálfan sig..
ITTHVERT ömurlegasta
hlutskipti, sem nokkrum
manni getur hlotnast, er að
- lifa sjálfan sig. Þegar gamlir
■ menn, sem eitt sinn voru
dáðir og virtir af þjóð sinni,
höfðu varið öllum kröftum
sínum í þágu ættlands síns
og unnið mikið og gott dags-
verk, hafa eitt af tvennu —
ekki vit á að láta staðar
numið. eða láta ósvífna
þorpara leiða sig í gönur, þá
•er það hryggilegt og oft á-
takanlegt. Þeir lifa sjálfa
sig. Að sama skapi líta
menn í lotningu til hinna
silfurhærðu skörunga, sem
eitt sinn báru hita og þunga
dagsins, en sitja nú á frið-
stóli, virtir af öllum, eftir
eftir langan og erfiðan dag.
Ævidagur þeirra er senn á
enda, en aftanskinið sveipar
þá mildum, hlýjum bjarma.
Á þann veg hlýtur að vera
gott að verða gamall.
THOMAS MASARYK, hinn
glæsilegi forseti hins tékkó-
slóvakíska lýðveldis lifði
ekki sjálfan sig. Þegar hann
féll frá, syrgði hann heil
þjóð, heill heimur. Allir
minntust mannkosta hans, ó-
sérplægni og ötullar baráttu
í þágu þeirrar þjóðar, sem
hann unni svo mjög. Hann
var í sannleika faðir Tékkó-
slóvakíu, tákn hins unga
ríkis, hann byggði það upp,
kom því á framfarabraut og
hlaut aðdáun allra fyrir.
EN HEFÐI HANN nú verið á
lífi og verið ,,forseti“ lands-
ins undir „vernd“ Þjóð-
verja, væri ekki hætt við
því, að ljóminn af fyrri af-
xeksverkum hans myndi
dvína, að blessunarorð þjóð-
ar hans myndu breytast í
bölbænir, ef hann hefði
þegjandi aðhyllzt kenningar
villimannanna? En Thomas
Masaryk lifði ekki sjálfan
sig. Hann situr nú í vitund
þjóðar sinnar við hlið Jó-
hanns Húss, hann er samein-
ingartákn hnípinnar og kúg-
aðrar þjóðar, sem óskaði þess
eins að fá að vera frjáls eftir
ma-rgra alda kúgun.
ELLI PÉTAINS marskálks
verður tæpast talin glæsileg-
asti kaflinn á löngu ævi-
skeiði hans. Vel má vera, og
er það vonandi, að hann
geti kennt ellisljóleik um
það, sem gerzt hefir í
Frakklandi undanfarin þrjú
ár. Hann hefir látið nota sig
til þess að halda verndar-
hendi yfir stigamönnum og
níðingum eins og hinum
skuggalega Laval. Maðurinn,
sem bezt dugði þjóð sinni, er
verst lét, er nú handbendi,
vitandi eða óafvitandi, þess
ógnarvalds, sem nú liggur
eins og mara á nær allri
Evrópu. Hinn hugdjarfi bar-
dagamaður frá Verdun hefir
hlotið skapadóminn að lifa
sjálfan sig. Það verður að
vísu ekki frá Henri Philippe
Pétain tekið, að hann var
eitt sinn dyggur sonur þjóð-
ar sinnar, en yfir elliárum
hans hvíla dökkir skuggar, og
út úr þeim skuggum glittir í
Dagskipan Stalin er stíluð til
Rokossovskys hershöfðingja,
sem stjórnar herjum Rússa á
þessum vígstöðvum. í fyrri
fregnum hafði verið greint frá
því, að Mosir, sem er mikil-
vægasta borgin á Pripet-svæð-
inu, væri umkringd, en sókn
Rússa hefir verið hraðari, en
menn höfðu búizt við.
Þjóðverjar vörðust vasklega,
en urðu að hörfa undan áhlaup
um Rússa og féll margt manna
af liði þeirra. Ekki er enn vit-
að um, hversu mikið herfang
var tekið ,en talið er, að það
muni vera mikið.
Sunnar á vígstöðvunum
sækja hersveitir Vatutins á-
fram inn í Pólland og verður
lítið um varnir af hálfu Þjóð-
andlit svikara og föðurlands-
níðinga.
MERKASTA SKÁLD Norð-
manna, sem enn er á lífi, er
Knut Hamsun. Hann skipar
virðulegt sæti á Bragabekk
með þeim Ibsen og BjÖrnson,
og bækur hans eru til á ná-
lega hverju heimili í Noregi.
Hamsun er maður fjörgam-
all, nær hálfníræður að aldri.
Með öruggri hendi meistar-
ans hefur hann skapað ó-
dauðleg listaverk, skapað
persónur, teknar beint út úr
verja. Við Bug-fljót vinna verk-
fræðingasveitir Þjóðverja að
því, að koma upp víggirðingum
á syðri bakka þess, en talið er,
að Rússum verði auðsótt leiðin
til Rúmeníu, ef þeim tekst að
rjúfa varnir Þjóðverja við
fljótið. Gagnárásir Þjóðverja
þarna bera engan árangur. —
Rússar hafa flutt nýtt og ó-
þreytt lið til vígstöðvanna og
búast menn við miklum átök-
um á næstunni.
‘Þjóðverjar hafa ekki viður-
kennt fall Mosir og Kalinko-
vichi, en segjast hrinda árás-
um Rússa á öllum vígstöðvum
I þar eystra. Þá greina þeir frá
hörðum bardögum norður af
Kerch, en Rússar hafa ekkert
látið uppi um bardaga þar.
lífi hins stritandi almúga-
fólks. Ef — ef Hamsun hefði
ekki snúizt gegn þjóð sinni á
örlagastundu hennar, væri
bjart yfir minningu hans.
KNUT HAMSUN er af fátæku
fólki kominn. í bernsku
dvaldi hann lengst af í N.-
Noregi og þaðan hefir hann
helzt sótt yrkisefni sín. —
Enginn þekkir betur stemn-
inguna í smáþorpum þessa
afskekkta landshluta betur
en hann. Maður sér fyrir sér
Frh. á 7. sSÖu.
Bandamenn eru núaðeins um þrja
kílómetra frá Cassino
Frakkar og Bandaríkjamenn hrinda hörðum
gagnáhlaupum Þjóðverja.
jC1 RAMSVEITIR 5. hersins eru nú aðeins rúma 3 km.
frá Cassino, en Þjóðverjar hafa víggirt borgina mjög
rammlega og komið upp fallbyssustæðum og vélbyssu-
hreiðrum hvarvetna. Franskar og amerískar hersveitir hafa
haft sig mjög í frammi og hrundið þremur gagnáhlaupum
Þjóðverja. Tíðindalaust er af vígstöðvum 8. hersins, og er
þar eingöngu um framvarðaviðureignir að ræða.
*—:----------------------
Á miðnætti í fyrradag gerðu
Þjóðverjar snarpt gagnáhlaup
til þess að reyna að ná aftur
Cervaro á sitt vald, en því var
hrundið. Franskar hersveitir
hafa tekið hæðir norðaustur af
Acquasondata.
Flugher bandamanna hefir
verið athafnasamari undan-
gengið dægur. Amerísk flug-
virki gerðu skæðar árásir á tvo
flugvelli í grennd við Róm.
Mikil spjöll yrðu á báðum flug-
völlunum og flugvélar, sem
sátu á þeim, urðu fyrir sprengj-
um. Flugvellir þessir heita
Guidina og Centocelle. Þá var
ráðist á borgina Perugia, sem
er inni í miðju landi, og árásir
voru einnig gerðar á Collererio
og Formia.
Sprengjum var einnig varpað
á skip Þjóðverja undan strönd-
um Júgóslavíu. í öllum þessum
árásum fórust 5 flugvélar banda
manna, en 10 þýzkar flugvélar
voru skotnar -niður. Hersveitir
Titos eiga mjög í vök að verj-
ast í Bosníu. Skammt frá Bagu
voru tvær þýzkar flugvélar
kotnar niður.
Norska kirkjan er stríð
andi kirkja
segir „Stockholms-
tidningen/
ÆNiSKA blaðið „Stock-
holmstidningen." hefir
foirt tforustugrein, sem fjallar
um baráttu norsku kirkjunnar.
Segir þar meðal annars á þessa
leið: „Norrænar kirkjur eiga nú
mikilsvert hlutverk að inna af
hendi, en norska kirkjan foefir
umfram aðrar verið „stríðandi
kirkja“, og foefir að nokkru
leyti tekið á sig píslarvættisblæ.
Það er eittfovað háleitt í hinni
foetjuilegu baráttu kirkjunnar og
hugprýði hennar, sem líkist
píslarvætti. Barátta norsku
kirkjunnar hefir útheimt marg
ar fómir og þær verða fleiri.
En þær verða ekki árangurlaus-
ar.“ *>
1Q YRIR nokkru bárust þær
*• fregnir frá Þrándheimi, að
þrír þekkir borgarar þar hefðu
verið teknir af lífi. Þetta hefir
ekki verið staðfest hjá norsku
stjórninni í London. Nú herma
Stokkhólmsfregnir, að menn
þessir séu á lífi, en séu í haldi
hjá Þjóðverjum sem gislar og
verði teknir af lífi, ef frekari
brögð verða að skemmdarstarf-
Semi þar í borg.
Dewey og Willkie lík-
leg forsetaefni
EFND Republikana hefir
™ komið saman á fund í
Chicago til þess að athuga,
hverjir séu líklegust forsetaefni
flokksins. Thomas E. Dewey,
fylkisstjóri í New York og
Wendell Willkie reyndust
hæstir, 21 greiddi hvorum um
sig atkvæði, en næstur varð
John Bricker, fylkisstjóri í Ohio
MacArthur fékk eitt atkvæði.
Nýjar handfökur í
Noregl.
fO RÁ Stofckhólmi berast þær
tfregnir, samkvæmt upp-
lýsingum „Skandinavisk Tele-
gramlbyraa“, sem er ó valdi Þjóð
verja, að allmargir menn hafi
verið foandteknir í foæjunum
Drammen, Kristiansand og
Þrándheimi. Sagt er, að hand-
tökurnar í Drammen standi í
sambandi við járnforautarslys,
sem varð skammt frá hænum
nokkru fyrir jól. Flestir hinna
handteknu í Drammen eru
verkamenn, þar á meðal foimað
ur í verkamannafélaginu þar.
Þrír kennarar og margir nem-
endur í menntaskólanum í Krist
iansand hafa verið handteknir.
Loftárái á (alais-
svæðið
JÖLMARGAR flugvélar
fóru til árása á herteknu
löndin handan Ermasunds í
gær. Aðalárásinni var foeint
gegn Calais-svæðinu, en nánarl
fregnir eru enn ekki fyrir hendi
Mosquito-flugvélar flugu inn
yfir Þýzkaland, en ekki er vit-
að, hver skotmörkin voru.
Loftárás á Formosa.
T FREGNUM frá Chungking
■■■ segir, að amerískar Liber-
ator-flugvélar hafi gert árás á
verksmiðjur á suðvesturströnd
Formosa. Þá hafa amerískar
flugvélar einnig farið til árása
á Bangkok í Thailandi. Þar
féllu sprengjur á járnbrautar-
mannvirki. Allar flugvélar
Bandaríkjamaima komust aft-
ur til bækistöðva sinna.