Alþýðublaðið - 23.01.1944, Page 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Suaaudagur 23. janáar 1944.
Persónuleg tillaga rikisstjórans s
Þjóðfundur um skilnaðarmálið
Gunnar Gunnarsson
skáld vill engin laun
frá úlhlulunarnefnd
ftilhöfundafélagsins.
Ritar nef ndinni bréf
*
og biður sig undan-
þeginn
Gunnar gunnarsson
skáld, sem dvalið hefir
hér í bænum undanfarið, hefir
ritað nefnd þeirri, sem á að út-
hluta launum til skálda og rit-
höfunda, bréf, þar sem hann bið
ur sig undanþeginn því að hon-
um sé ætluð nokkur upphæð
við úthlutun launa til skálda og
listamanna.
Mun skáldið hafa látið þau
ummæli falla í bréfi sínu, að
hann teldi sér það ekki neinn
sóma, að taka við launum frá
nefndinni og heldur ekki nefnd
inni né Menntamálaráði, þar
sem hann sjái ekki að um neina
sæmd geti verið að ræða í sam-
bandi við ýmsar fjárhæðir, sem
honum hafi borizt frá ýmsum
aðilum fyrir hönd ríkissjóð á
undanförnum árum (þ. e. frá
Menntamálaráði og úthlutunar-
nefndinni í fyrra).
Gunnar Gunnarsson sagði sig
úr rithöfundafélaginu í fyrra
eins og kunnugt er, nokkru eft-
ir að nefndin hafði skipt laun-
unum til rithöfundanna.
íþrótta- og skeinmtisvæðið
í Laugadalnum. Nefnd, sem
fékk tíl umsagnar tillögurnar um
hið fyrirhugaða íþrótta- og
skemmtisvæði í Laugadalnum,
hefir nú sent álit sitt til bæjarráðs.
Sraýr sér til alpingis og leggur til að“
pað feii þjóðfundi meðferð málsins eða
skjóti sampykktnm sfnum til hans.
Gerir ráð fyrir að þjóðfundur
gæti lokið störfum fyrir mailok
ÞAU STÓRTÍÐINDI hafa nú gerst í skilnaðarmálinu að
ríkisstjórinn hefir snúið sér persónulega til alþingis
og hreyft þeirri tillögu við það hvort ekki væri rétt að kall-
aður yrði saman sérstakur þjóðfundur um málið.
í bréfi, isem ríkisstjórinn hefir skrif að forseta sameinaðs
þings er þessari uppástungu hans hreyft á þann veg, hvort
ekki myndi heppilegt, að nefndir þær, sem alþingi hefir
kosið í málið, athuguðu jafnframt þessa leið í skilnaðar-
málinu, sem fara megi annað hvort þannig:
1). að alþingi feli slíkum þjóðfundi afgreiðslu skiln-
aðarmálsins, þ. e. niðurfellingu sambandslagasáttmálans og
samþykkt lýðveldisstjórnarskrárinnar, án þess að gera áð-
ur nokkrar samþykktir xun þessi mál, eða
2). að alþingi geri samþykktir sínar nú og skjóti þeim
síðan til slíks þjóðfundar til fullnaðarmeðferðar og sam-
þykktar með eða án breytinga á samþykktum alþingis.
í niðurlagi bréfs síns gerir rí'kisstjóri ráð fyrir því, að
þjóðfundur, ef saman yrði kallaður, gæti lokið störfum fyr-
ir lok maímánaðar.
Ríkisstjórinn tekur það fram, að þetta sé persónuleg
uppástunga hans, gerð án samráðs við ráðuneytið og því
ekki á ábyrgð þess eða nokkurs einstaks ráðherra.
Bréf ríkisstjóra til forseta
sameinaðs þings, sem er dag-
sett 21. janúar, hljóðar þannig
orðrétt:
„Til alþingis.
Tillaga til þingsályktunai: um
niðurfelling dansk-íslenzka sam
bandslagasamningsins m. m. og
frumvarp til stjórnskipunarlaga
um stjórnarskrá lýðveldisins
íslands hefir nú hvorttveggja
verið falið sérstökum nefndum
innan alþingis til athugunar.
Ég tel mér því skylt, að vekja
nú athygli á því, hvort ekki
muni heppilegt að nefndir þess-
ar athugi jafnframt, hvort til-
tækilegt þyki, að alþingi það,
sem nú situr, geri ráðstafanir
J til þess, að kvatt verði til SÉR-
STAKS ÞJÓÐFUNDAR um
málið. Mætti þetta verða með
rfá,
Hvað er hægt að gera til
að verjast sjóslysunum?
Dagsbrún heftr skrilað
atvinnurekendum og
tilkynnt nppsögn
samninganna
STJÓRN DAGSBRÚNAR
hefir skrifað Vinnuveit-
endafélagi íslands og tilkynnt
því, að félagið segði upp s'amn-
ingum sínum við atvinnurek-
andi.
Þá hefir Dagsbrún jafnframt
sagt upp samningum sínum við
bæjarsjóð Reykjavíkur.
Félag járniðnaðarmanna
hefir ritað bæjarráði bréf, og
látið í ljós ánægju sína yfir til-
lögum þeim, sem fram eru komn-
ar um byggingu skipasmíðastöðv-
ar við Elliðaárvog — og hvetur
mjög til þess að hafizt verði handa
um þetta mikla mannvirki hið
fyrsta.
Yiðfal wll Signrjén Á. Ólafsson
formBnn Sjémannafélags Rvlkur
AF TILEFNI umræðna, sem orðið hafa síðan síðasta stóra
sjóslysið varð, um útbúnað skipanna> hleðslu þeirra og
öryggi sjómanna, snéri Alþýðublaðið sér til Sigurjóns A.
Ólafssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, en hann
hefir meir en nokkur annar einn maður barizt fyrir auknu
öryggi fyrir sjómannastéttina, eins og alþjóð er fyrir löngu
kunnugt um.
Alþýðublaðið spurði Sigurjón uiii álit hans á þessum málum
og hvað hann teldi fyrst og fremst nauðsynlegt að gera til þess
að reyna að koma í veg fyrir hin tíðu slys.
Hann sagði meðal annrs:
1,-Eins og þér er kunnugt um
hefir Alþýðuflokkurinín á af-
þingi þeitt sér fyrir löggjöf um
aukið öryggi sjómanna. Þarf
ekki að þessu sinni að rekja þá
sögu, en að margra dómi stönd-
um við íslendingar í þessu efni
mjög framarlega meðal þjóð-
anna.
Ein af hinum síðustu umbót-
um sem ,gerð var til aukins
öryggis fyrir sjómannastéttina.
var breytingin á lögunum um
eftirlit með skipum, þar sem
meðal annars voru ákveðin
hleðslumerki á öll skip, sem
sigla milli íslands og útlanda,
svo og öll skip, sem flytja farm
milli innlendra hafna. Sam-
kvæmt þessum lögum kom til
framkvæmda á síðast liðnu ári
reglugerð, iþar sem hleðslu-
merki voru sett á öll þessi skip,
þar með taldir togararnir. Eft-
Frh. á 7. síðu.
Heila valns geyrn-
arnir tæmdusl alveg
í gær
Vegna bilunar á
raftaug að Reykjum
HEITA vatns geymamir
á Öskjuhlíð tæmdust
gersamlega nokkru eftir
miðjan dag í gær og hvarf
þess vegna heita vatnið úr
húsimum, en þó á nokkuð
misjöfnum tíma. Ástæðan var
sú, að bilun hafði orðið á raf-
magnsleiðslunum að Reykj-
um í Mosfellssveit, svo að
ekki var hæg[t að dæla vatni
til bæjarins.
Búið var að gera við raf-
Ieiðslurnar undir kvöld í gær-
kveldi og kom heita vatnið
síðan smátt og smátt.
öðrum hvorum þeirra hátta, er
nú skal nefna.
1. Að alþingi feli slíkum
þjóðfundi meðferð og af-
greiðslu mála þessara, án þess
að alþingi geri áður sam-
þykktir sínar um þau.
2. Að alþingi geri sam-
þykktir sínar nú og skjóti
þeim síðan til slíks þjóð-
fundar til fullnaðarmeðferð-
ar og samþykktar, með eða
án breytinga á samþykktum
alþingis.
Alþingi það, sem nú situr,
mundi þá setja lög um slíkan
þjóðfund, fulltrúatölu hans,
kosningar fulltrúa, samkomu-
tíma, samkomustað o. s. frv.
Geri ég ráð fyrir því, að full-
trúar yrðu kosnir með nokkr-
um öðrum hætti en alþingis-
menn eru kosnir nú. M. a. yrði
ekki um hlutfallskosningar að
ræða, uppbótarsæti o. fl„ sem
er heinlínis miðað við skiptingu
manna i stjórnmálaflokka, eins
og nú er, og eðlilegt hefir þótt,
er um venjuleg löggjafarmál er
að ræða. Enn gæti komið til
mála að nokkrir menn sætu
fundinn sem sjálfkjörnir vegna
stöðu sinnar, svo sem dómarar
hæstaréttar, ráðherrar og laga-
prófessorar háskólans.
Þessi uppástunga frá ríkis-
stjóra mun af mörgum verða
talin óvenjuleg, meðal annars
vegna þess að hún kemur fram
sem persónuleg uppástunga, án
samráðs við ráðuneytið eða á
ábyrgð þess eða nokkurs ein-
staks ráðherra.
Ég mun leiða nokkur rök að
henni án þess að telja annað
en meginástæður hennar.
Hún sprettur ekki af því að
í mínum huga sé nokkur vafi
uní rétt alþingis til þess að
Frh. á 7. síðu.
fflargir ansækjeidar
ddi garðjrrkjarðða-
nantsstarfið hjá
bænnm.
STARF garðyrkjuráðunauts
bæjarins var auglýst laust
til umsóknar fyrir nokkru. Hafa
umsóknirnar nú verið opnaðar
og eru umsækjendur margir.
Þeir eru þessir: Ásgeir Ás-
geirsson, Ásgrímur Jónsson,
Bjarni F. Finnbogason, Jón Arn
finnsson, Jónas S. Jónsson,
Magnús Kristjánsson, Paul V.
Mikkelsen, Sigurður Elíasson
og Sigurður Sveinsson.
Sfórfé dolið í smjör-
líkisgerðinni Smári
| FYRRINÓTT var framið
innbrot í Smjörlíkisgerðina
Smári við Veghúsastíg.
Stolið var á þriðja þúsund
krónum úr læstri skrifborðs-
skúffu, sem brotin hafði verið
upp, en í vörugeymslu verk-
smiðjunnar hafði öllu verið um
turnað. Innbrotið var framið
með þeim hætti, að farið hafði
verið inn um glugga á verk-
smiðjusalnum, en síðan höfðu
verið brotnar upp tvær hurðir.
Sótt nm Ieyfi til
rekstnrs oýs kvik-
myndahiss.
FYRIR bæjarráðsfundi, sem
haldinn var í fyrrakvöld,
lá umsókn um leyfi til reksturs
nýs kvikmyndahúss hér í bæn-
um.
Umsækjendurnir eru Stefán
Guðnason, Jón Þórarinsson og
fleiri, en þeir hafa áður rekið
„Reykjabíó“ að Reykjum í Mos
fellssveit.
Sjómenn og verka-
monn sameinast í eitt
félag á Patreksfirðl
SJÓMANNAFÉLAG Patreks
fjarðar hefir nú gengið
sem heild inn í Verkalýðsfélag-
dð. Starfa sjómennirnir sem
deild í Verkalýðsfélaginu og
sömuleiðis hafa verkamenn og
verkakonur komið á deilda-
skiptingu hjá sér. Erindreki Al-
þýðusambandsins hefir unnið að
þessum málum undánfarið og
mætti hann á aðalfundi Verka-
lýðsfélagsins, þar sem endan-
lega var frá þessum breytingum
gengið.
Á aðalfundinum voru þessir
kosnir i stjórn félagsins: For-
maður: Jóhannes Gíslason. Vara
form.: Ólafur Kristjánsson. Rit-
ari: Gunnlaugur Egilsson. Gjald
keri: Þórarinn Bjarnason. Fjár-
málaritari: Markús Ö. Thorodd-
sen.
Enn fremur var kosið trún-
aðarráð og aiga sæti í því 4 fé-
lagsmenn auk stjórnarinnar.