Alþýðublaðið - 23.01.1944, Side 3
AUÞYPUBLAÐÍÐ
3
. Simnudagur 23. janúar 1044.
■ i : ' ■ i
Mikil loHárás á Mag-
deburg. Hefndarárás
Þjóðverja á England
Bandamenn
Þjöðverjum
ganga® ál land|lað|baki
T yf»BWTL--—-- X^'ry^'-FgrqgBHn
sunnanl við Rómaborg.
Hafa teklO hafnarbæinn
Nettuno og sækja fram í
áttina til borgarinnar.
BANDAMENN efndu til nýrrar landgöngu á Ítalíu um
dagmál í gær. Var landganga þesái gerð á vesturströnd
landsins um fimmtíu km. isuður af Róm og um níutíu km.
norður af vígstöðvunum við Gariliganofljót. Hafa banda-
menn náð á vald sitt hafnarborginni Nettuno og sækja fast
fram í áttina til Rómaborgar. Það er Harold Alexander, sem
stjórnar landgöngu þessari, og virðist hún hafa verið mjög
vel skipulögð. Flotinn, landherinn og flugherinn hafa allir
tekið mikinn og öruggan þátt í landgöngu þessari.
•-——---------------
LOFTSÓKN bandamanna
gegn meginlandinu held-
ur sífellt áfram. f fyrrinótt var
aðalárásinni beint gegn Magde
burg, sem er mjög mikilvæg
iðnaðarborg í Mið-Þýzkalandi.
Var meira en 2000 smálestum
sprengiefnis varpað á borgina.
Þjóðverjar hafa efnt til hefnd-
arárásar á Éngland, en með litl-
um árangri, að því er talið er.
Tjón af völdum árásarinnar
á Magdeburg varð mjög mikið,
og ioguðu éldar víða í borginni.
Minni árásir voru gerðar á Ber-
lin og stöðvar Þjóðverja í
Frakklandi. Bandamenn misstu
alls 52 flugvélar í árásarleið-
angrum sínum gegn meginland-
inu í fyrrinótt, og er það eitt-
hvert mesta. tjón; sem þeir hafa
orðið fyrir í árásum sínum
langa hríð.
Þjóðverjar gerðu í fyrrinótt
tilraun til hefndgrárásar fyrir
hina miklu loftárás bandamanna
á Berlín á fimmtudagsnóttina.
Flugu níutíu flugvélar þeirra
inn yfir Suður-England, og
komust um þrjátíu þeirra inn
yfir Lundúni eða nágrenni
þeirra. Sprengjum var varpað
á nokkra staði og ollu þær
nokkru tjóni. Átta hinna þýzku
flugvéla voru skotnar niður.
Þetta er mesta árás Þjóðverja
á England í marga mánuði, en
yfirburðir bandamanna í loftv
inu sjást bezt á því, að Þjóð-
verjar senda aðeins níutíu flug-
vélar til árása á England um
sama leyti og bandamenn senda
meira en þúsund flugvélar til
árásar á Berlín. Sprengjumagn
það, er hinar þýzku flugvélar
vörpuðu á England; mun vart
hafa numið 60 smálestum, en
flugmenn bandamanna vörp-
uðu hins vegar 2300 smálestum
sprengiefnis á Berlín í síðustu
árás sinni. Manntjón varð lítið
af völdum hefndarárásar Þjóð-
verja. Þó vörpuðu hinar þýzku
flugvélar sprengjum á sjúkra-
hús eitt og biðu nokkrir sjúfcl-
ingar bana.
Harryman
Bandaríkin skiptu um sendi-
herra í Moskva í haust, sem
leið. Sfandley aðmíráll lét af
starfi þessu, en við tók Averill
Harryman, einn af nánustu
samstarfsmönnum Roosevelts
forseta.
Hið ameríska og brezka land-
göngulið naut öruggs fulltingis
flotans og flughersins. Er aug-
ljóst, að ætlun bandamanna er
sú að leggja ofurkapp á að ná
Rómaborg sem fyrst á vald sitt
og er þessi nýja landganga
þeirra mikill og merkur þáttur
í þeirri viðleitni, sem gefur að
skilja. Bandamenn hafa verið
fáorðir um landgönguna til
þessa, og frá aðalbækistöð
þeirra á Ítalíu hefir aðeins ver-
ið tilkynnt, að hin nýja sókn í
áttina til Rómaborgar gengi að
óskum. Þýzkar fréttir láta þess
getið, að miklir bardagar geisi
á hinum nýju vígstöðvum. Tíð-
indin um landgöngu þessa vekja
hvarvetna geysilega athygli, og
er þetta talið með mestu við-
burðum styrjaldarinnar. Spá
ýmsir því, að mikilla tíðinda sé
von frá vígstöðvunum á Ítalíu á
næstunni og muni þess ef til vill
verða skammt að þíða, að Þjóð-
verjar hafi verið hraktir þaðan
brott eða algerlega ofurliði
bornir.
Fréttir hafa og borizt af því,
að amerískar hersveitir hafi
brotizt yfir Rapidoána á San
Angelovígstöðvunum um fimm
km. suður af Cassino. Er áin á
þeim slóðum um 125 fet á
breidd.
Hinar amerísku hersveitir
áttu harðfengilegu viðnámi að
mæta, og gera Þjóðverjar sífellt
grimmilegar gagnárásir á þess-
um slóðum. Þjóðverjar hugðust
hefja nýja gagnsókn á Castle-
fortevígstöðvunum í gær, og
tefldu þar fram skriðdrekaher-
sveitum, en voru ofurliði born- i
ir. Brezkar stórskotaliðssveitir
hafa hrundið nokkrum harð-
fengilegum gagnárásum Þjóð-
verja norðaustur af Tufo. Einn-
ig hafa brezkar hersveitir náð
bænum Triminsuoli eftir að
hafa haldið uppi mikilli stór-
skotahríð á hann nokkra hríð.
Flugfloti bandamanna hefir
verið mjög athafnasamur á ít-
alíu og við Miðjarðarhaf. Voru
harðar árásir gerðar á flugvelli
í Suður-Frakklandi svo og sam-
göngumiðstöðvar. Var það einn
þátturinn í framkvæmd land-
göngunnar sunnan Rómaborg-
ar, því að með árásum þessum
hafa bandamenn hindrað það,
að Þjóðverjar efndu til loftá-
rása á flotann og landgöngulið-
ið frá flugvöllum í Suður-
Frakklandi.
Flugmenn bandamanna hafa
einnig gert árásir á skip óvin-
Júgósiavar enn í sókn
HERSVEITIR Júgóslava í
Vestur-Bosníu halda áfram
að ná að nýju á vald sitt land-
svæðum þeim, sem Þjóðverjar
höfðu tekið. Var þessa getið í
útvarpi frjálsra Júgóslava í
gær. Miklir bardagar eru enn
háðir í Tuzla.
Hersveitir Þjóðverja, sem
hugðust sækja fram til Nosara-
fjallanna, hafa verið hraktar
aftur til Banjaluka-Gradiska. í
Austur-Króatíu eiga hersveitir
Titos í hörðum bardögum við
Þjóðverja við Prusie, sem Þjóð-
verjar náðu á vald sitt fyrir
skemmstu. Öllum gagnárásum
Þjóðverja hefir verið hrundið á
þessum slóðum og miðar her-
sveitum Júgóslava örugglega á-
fram. Popovo-Ploye járnbraut-
in hefir verið rofin á stóru
svæði og milli bæjanna Bosan-
ka, Krupa og Bonsakimove hafa
þrjár járnbrautarlestir Þjóð-
verja verið sprengdar í loft upp.
Járnbrautarbrú hefir og verið
sprengd í loft upp skammt frá
Joritz í Slóvakíu og mikil spjöll
gerð á járnbrautarstöð nokkurri.
Hungursneyð í Griík-
landi
FREGNIR frá Grikklandi
greina frá því, að hungurs-
neyð mikil sé nú þar í landi. Er
ástandið þar talið mjög alvar-
legt og fer versnandi eftir því,
sem fram líða stundir. Andúðin
gegn Þjóðverjum er mjög mik-
il, og vinna Þjóðverjar ýmis
óhæfuverk á grísku þjóðinni.
Þjóðverjar leggja ægiþungar
refsingar við hvers konar
skemmdarstarfsemi, en af
Grikkjum er sömu sögu að
segja og öllum öðrum undirok-
uðum þjóðum. Þeir vaxa við
hverja raun og eru óðfúsir þess
að brjóta ok kúgaranna af hálsi
sínum.
anna úti fyrir ströndum Júgó-
slavíu og á Genúaflóa með
miklum þrangri. Misstu banda-
menn fimm flugvélar í leið-
angrum þessum og öðrum hern-
aðaraðgerðum á Ítalíu, en Þjóð-
verjar hins vegar tuttugu.
Vígstöðvarnar á Ítalíu.
Staðurinn þar sem bandamenn hafa nú gengið á land að baki
herlínu Þjóðverja, liggur á milli Terracina og Anzio (neðar-
lega til vinstri á kortinu). Rómaborg (Rome) sést yzt til
vinstri á kortinu, en þangað er sókninni nú heitið. Uppi í
landi er barizt um Cassino. Á austurströndinni er barizt milli
Ortona og Pescara (efst til hægri á kortinu).
Rússar hafa hrakið Þjóðverja að
Peipusvatni við landamæri Eistlands
Hý sókn lalin í vændum við Kieff og Vinnifsa
T T NDANHALD hersveita von Kiichlers suður af Lenin-
grad heldur áfram og reka Rússar fast flótta þeirra.
Er aðstaða Þjóðverja talin hin alvarlegasta á gervöllu svæð-
inu frá Leningrad til Staraya Russa.
Ekkert lát verður á hinni*
harðfengilegu sókn rússnesku
hersveitanna suður af Lenin-
grad. Hafa þær nú hrakið her-
sveitir von Kúchlers alla leið
að Peipusvatni við landamæri
Eistlands og verður Þjóðverjum
lítt viðnáms auðið. Rússar ógna
Þjóðverjum með ægilegri sókn
skriðdreka og vélahersveita á
gervöllu svæðinu frá Leningrad
til Staraya Russa. Takist Rúss-
um að framkvæma þessa ætlun
sína, er sambandið milli norður-
og suðurhers Þjóðverja rofið.
Frétt frá Stokkhólmi greinir
frá því, að herstjórnin þýzka bú-
ist við því, að Rússar muni hef ja
á hverri stundu nýja sókn á
Vinnitsavígstöðvunum. Einnig
eru Rússar sagðir draga að sér
mikjð af skriðdrekum og stór-
skotaliði suðvestur of Kieff í
því skyni að hefja þar nýja
sókn. Þjóðverjar. láta einnig
getið nýrrar framsóknar Rússa
á Prietmýrunum.
Pólska fréttastofan greinir
frá því, að pólskar skæruliða-
sveitir haldi uppi markvissum
hernaðaraðgerðum gegn Þjóð-
verjum og hafi einkum orðið
vel ágengt í baráttunni við þá
á Bamlessvæðinu síðustu daga.
Einnig hafa pólskir skæruiiðar
sprengt í loft upp járnbrautar-
teina á stóru svæði skammt frá
Varsjá.
Spánn iil fyrirmyndar!
T3 LÖÐIN í Madrid á Spáni
hafa samtímis birt rit-
stj órnargreinar, þar sem borið
er eindregið á móti því, að hið
núverandi stjórnskipulag Spán-
ar sé eftirlíking stjórnskipulags
nokkurrar annarrar þjóðar.
Blöðin hafa fullyrt, að stjórn-
skipulagi Spánar verði hvorki
líkt við kommúnisma né fas-
isma. Blaðið ,,Ya“ hefir komizt
þannig að orði, að því fari ekki
einungis fjarri, að stjórnskipu-
lagi Spánar verði líkt við
stjórnskipulag nokkurs annars
ríkis, heldur mætti það þvert á
móti verða öðrum þjóðum Rl
fyrirmyndar.
Petain kveður ráð-
herra sína iil fundar
T> ARÍSARÚTVARPIÐ lét
þess getið í gær, að Petain
marskálkur hefði kvatt ráð-
herra sína saman til fundar þá
um daginn. Fundur þessi hófst
klukkan ellefu árdegis, sam-
kvæmt frásögn útvarpsins. Ekki
var þess getið, hvaða mál lægju
fyrir fundinum.