Alþýðublaðið - 05.02.1944, Blaðsíða 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Laug’ardagur 5. fefcníar 1544.
Stórskemmdir á skipi
koma í Ijós á sjó úii.
Togarinn „Helgafell“ kemur inn meö
13-14 brofin bönd
TOGAiUNN HELGBFELL kom hingað til Beykjavíkur
á miðvikudagskvöld með 13—14 bönd brotin.
Skipið fór fyrir 12 dögum á veiðar og var þá nýkomið
úr allmikilli viðgerð í Sbpp. Þegar skipið var að veiðum
varð vart við leka í kolaboxi bakborðsmegin. Er farið var
að aðgæta þetta kom í Ijós að 6 bönd þarna voru brotin og
þegar kol voru tekin ur bakborðshliðarboxi reyndust þar
vera 4 bönd brotin. Enn fremur komu 3 eða 4 brotin bönd
í ljós stjómborðsmegin.
Skipverjar á skipinu geta ekki fyllilega gert sér grein
fyrir því, hvenær þessar skemmdir hafa orðið á skipinu, en
talið er líklegast að þær hafi orðið, er skipið lá hér í höfn-
inni? en þá var mikið hvassviðri og mörg skip lágu utan á
því. Er skemmdirnar komu í ljós var undir eins lagt af stað
heim, en farið hægt og gætilega og tók ferðin heim nokk-
uð lengri tíma en venjulegt er.
'
Úthlntnn lanna til skálda
og rithðfnnda lokið
♦.....—
Laununum skipt í tvo flokka aðallaun
og sérstök viðurkenningarlaun.
NEFND RITHÖFUNDAFÉLAGSINS hefur nú lokið
við að úthluta rithöfundalaunum til skálda og rithöf-
Krafa Dagbrúnar:
16°0 grunnkaupshækkun.
Stjérn félagsSns hefir nú lagt
uppkast að nýjum samningi fyr-
ir Vinnuveitendafélagið.
Fer fram á 40 aura hækkun tímakaups
VERKAMANNAFÉLAGEÐ DAGSBRÚN lagði í gær fyr-
ir stjóm Vinnuveitendafélags íslands uppkast að nýj-
um samningi milli félaganna um kaup og kjör verkamanna
í Reykjavík.
Fer Dagsbrún fram á að tímakaup (grunnkaupið) hækki
um 40 aura, eða 16%.
unda.
í nefndinni eiga sæti þeir
Kagnús Ásgeirsson, Barði Guð-
mundsson og Kristinn Andrés-
son.
Það nýmæli hefur nefndin
tekið upp að þessu sinni, að
skipta rithöfundalaununum í
tvo flokka, A- og B-flokk.
Eru í fyrri flokknum þeir,
sem njóta aðalúthlutunarinn-
ar, eri í hinum síðari þeir,
sem njóta launa fyrir sér-
stakar bækur eða sérstök rit-
störf.
Borgarfjörð er ekhi að
leggja!
„Þór“ gekk greiðlega
til og frá Borgarnesi
í gær
]0 REGNIR bárust út um
* bæinn í gær þess efnis,
að ís væri á Borgarfirði, að
Borgarfjörð væri að leggja,
og að hætta væri á að „Þór“,
sem fór til Borgamess í gær
kæmist ekki þaðan.
Samkvæmt símtali, sem Al-
þýðublaðið átti í gær við sýslu-
manninn í Borgarnesi, er ekki
ís á Borgarfirði. í fyrradag
hafði „Óðinn“ orðið var við ís
en .,Þór“ var nýfarinn frá Borg-
arnesi, er Alþýðublaðið átti
símtal við sýslumanninn og
hafði hann ekki orðið var við
ís svo að teljandi væri.
Erfiðleikar eru á samgöng-
um í sveitum Borgarfjarðar
vegna snjóþyngsla.
I gær var að draga úr frost-
inu iþar efra.
Fer hér á eftir úthlutunar-
skrá nefndarinnar:
f A. flokki
Davíð Stefánsson skáld, Ak-
ureyri kr. 4000,00.
Élinborg Lárusdóttir, rith.,
Reykjavík kr. 1500,00.
Friðrik Brekkan, rith., Rvík
kr. 1800,00.
Guðfinna Jónsdóttir, skáld,
Húsavík kr. 1200,00. _
Guðmundur Böðvarss., skáld,.
Kirkjubóli kr. 2400,00.
Guðmundur Daníelsson, rith.,
Eyrarbakka kr. 2400,00.
Guðmundur Friðjónss., skáld,
Sandi kr. 4000,00.
Guðmundur G. Hagalín, rith.,
ísafirði kr. 4000,00.
Guðmundur Kamban, rith.,
Kaupmannahöfn kr. 3600,00.
Gunnar Benediktsson, rith.,
Hveragerði kr. 1500,00.
Halldór Helgason, skáld, Ás-
bjarnarstöðum kr. 600,00.
Halldór Kiljan Laxness, rith.,
Reykjavík kr. 4000,00.
Jakob Thorarensen, skáld,
Reykjavík kr. 2400,00.
Jóhannes úr Kötlum, skáld,
Hveragerði kr. 3600,00.
Jón Magnússon, skáld, Rvík
kr. 1500,00.
Jón Þorstenisson, skáld, Arn-
arvatni kr. 600,00.
Kristín Sigfúsdóttir, rith.,
Akureyri kr. 1200,00.
Kristmann Guðmundsson, rit-
höf., Hveragerði kr. 4000,00.
Magnús Ásgeirsson, skáld,
Hafnarfirði kr. 3600,00.
Ólafur Jóh. Sigurðsson, rith.,
Reykjavík kr. 2400,00.
Sigurður Jónsson, skáld, Arn-
arvatni kr. 1200,00.
Steinn Steinarr, skáld, Rvík
kr. 3000,00.
Theódór Friðriksson, rith,,
Reykjavík kr. 1800,00.
Tómas GuðmundSson, skáld,
Reykjavík kr. 4000,00.
Frh. á 7. síðu,
ibreytingar, sem Dagsbrún fer
fram á að gerðar verði, sjást
kröfur Dagshrúnar í heild, en
þetta yfirlit hefur stjórn Dags-
torúnar látið Alþýðuhlaðinu í
té.
í eftirfarandi samdrætti um
„Samkvæmt uppkasti voru
eru helztu breytingar uppkasts-
ins frá núgildandi samningi
þessar:
Grunnkaup í allri almennri
vinnu hækki upp í kr. 2.50 úr
kr. 2.10.
Sérstakt lágmarkskaup verði
fyrir skipa- og pakkhúsvinnu
og tunnuvinnu á olíustöðvum,
eða kr. 2.70.
Lágmarks grunnkaup verði
kr. 2.90 í kolavinnu, saltvinnu,
saltfisksvinnu, sementsvinnu,
lýsisvinnu, handlöngun hjá
múrurum, tjöruvinnu, bifreiða-
stjórn, vélgæzlu (vegheflar,
þjapparar, hrærivélar o. s. frv.),
hjálparvinnu í vélsmiðjum, ís-
vinnu (útskipun), vgfgæzlu í
togurum í höfn, allfl slipp-
vinnu, kantlagningu og fag-
vinnu, er ófaglærðir verka-
menn stunda.
Grunnkaup í boxa- og katlæ-
vinnu haldist óbreytt, en undir
það kaup falli ryðhreinsun með.
rafmagnsverkfærum, öll vinna
við botnhreinsun innanborðs í
skipum (botntankar, undir vél
o. s. frv.), bifreiðastjórn hjá
kolaverzlununum. Grunnkaup í
boxa- og katlavinnu er nú kr.
3.60.
Nýtt atriði er, að þeir verka-
menn skuli hafa forgangsrétt
til vinnu.á hverjum vinnustað,
er hafa starfað þar lengst.
Sömuleiðis er nákvæmara á-
kvæði um, hvað skuli teljast
kvaðning til vinnu, að verka-
mönnum sé heimilt að vinna af
sér laugardagseftirmiðdag, dllt
árið um kring, að sé nýr maður
tekinn í vinnuflokk, skuli hann
framvísa skuldlausu félagsskír-
teini til trúnaðarmanna Dags-
brúnar, að slasist verkamaður
við vinnu, skuli hann fá kaup
i 12 virka daga í stað sex og
skal hvert slys rannsakað þeg-
ar í stað af verkstjóra og trún-
aðarmanni og skýrsla sendast
til Dagsbrúnar og viðkomandi
fyrirtækis, og að veikist verka-
maður, sem unnið hefir saman-
lagt einn mánuð hjá sama
vinnuveitanda, skal hann halda
óskertu dagkaupi í minnst sex
daga, en í 14 daga, hafi hann
unnið þrjá mánuði.“
Reykjavíkurbæ verður og
afhent samningsuppkastið í
dag.
Bréf Dagsbrúnar fil
Vinnuveifenda-
félagsins
Þá sendi stjórn Dagsbrúnar
stjórn Vinnuveitendafélagsins
eftirfarandi bréf:
,,í framhaldi af uppsögn
Frh. á 7. síðu.
Minnisvarði á gröf
Sveinbj.
Sveinb jörnssona r
Bréf Páls ísólfss.
til alþingis
ÁLLÍSÓLFSSON
hefir vakið athygli alþing
is á því, hvort eigi sé tilhlýði-
legt, að reistur verði sæmileg-
ur minnisvarði á gröf Svein-
bjorns Sveinbjömssonar tón-
skálds.
Bréfið, sem Páll ritaði al-
Iþingi hér að lútandi, er svo
hljóðandi:
„Sveinbjörn Sveinbjörnsson
tónskáld dvaldist erlendis mest
an hluta ævi sinnar, sem kunn-
ugt er, en andaðist hér árið 1927
og er grafinn í kirkjugarðinum
í Reykjavík.
Ég ileyfi mér að vekja at-
hygli hins háa alþingis á því,
sem margir hafa orð á haft, sem
til þekkja, að svo gæti farið,
að leiði hans týndist. Ég tel mig
mæla fyrir margra hönd, er ég
nú leyfi mér að beina því til
ÆSTIRÉTTUR kvað í
gærmorgun upp dóm í
máli milli Alfred Rosenbergs
veitingamanns. og. -Skapta
Sigþórssonar hljóðfæraleik-
ara.
Mál þetta er risið út af því,
að Alfred Bosenberg sagði upp
hljóðfæraleikurunum á Hótel
íslandi, er hann leigði útlend-
ingum danssal hótels síns og
greiddi þeim ekki nema mán-
aðarlaun.
Hljóðfæraleiikararnir töldu sig
eiga rétt til þriggja mánaða
launa og höfðaði Skafti Sig-
þórsson mál gegn veitinga-
manninum.
' Undirréttur tók kröfur hljóð-
færaleikarans til greina og
staðfesti hæstiréttur dóm hans,
en Rosenberg áfrýjaði málinu
til hæstaréttar.
Dómur og niðurstöður hæsta
réttar eru á þessa leið:
„Ár 1944, iöstudaginn 4. fe-
Þingsályktunartiff.:
Höfundarlaun
fil Gunnars
Gunnarssonar
Flutt af tveimur
þingmönnum
VEIR ALÞINGISMENN,
þeir Barði Guðmundsson
og Kristinn E: Andrésson,
sem báðir eiga einnig sæti í
úthlutunarnefnd Rithöfunda
félagsins hafa borið fram í
sameinuðu þingi tillögu til
þingsályktunar um höfund-
arlaun handa Gunnari Gunn
arssyni skáldi á Skriðu-
klaustri.
Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að greiða Gunnari
Gunnarssyni rithöfundi höfund-
arlaun á árinu 1944 og gera
ráð fyrir slíkum launum honum
til handa á 18. gr. fjárlaga-
frumvarps fyrir næsta ár.“
í greinargerð fyrir tillögunni
segja flutningsmenn:
„Gunnar Gunnarsson rithöf-
undur hefur með bréfi til út-
hlutunarnefndar Rithöfundafé-
lags íslands, dagsett 12. jan s.
L, tjáð sig ófúsan að taka við
höfundarlaunum af fé því. sem
nefndin hefur til úthlutunar
handa skáldum og rithöfund-
um fyrir árið 1944. iHefur nefnd
in talið sér skylt að taka synj-
un hans til greina, og er því
þessi tillaga hér fram komin á
alþingi.“
hlýðilegt, eins og á stendur, að
alþingi léti reisa sæmilegan
minnisvarða á gröf tónskálds-
ins, sem gaf okkur þjóðsöng-
inn.“
brúar, var í hæstarétti í málinu
nr. 63/1943: Alfred Rosenberg
gegn Skafta Sigþórssyni upp-
kveðinn svohljóðandi dómur:
Áfrýjandi, sem skotið hefir
máli þessu til hæstaréttar með
stefnu 26. júlí f. á., krefst þess,
að honum verði einungis dæmt
að greiða kr. 283,65 án vaxta.
Svo krefst hann málskostnaðar
úr hendi stefnda bæði í héraði
og fyrir hæstarétti eftir mati
dómsins.
Stefndi krefst staðfestingar
héraðsdóms og málskostnaðar
úr hendi áfrýjanda fyrir hæsta-
rétti eftir mati dómsins.
Samningurinn frá 31. desem-
ber 1940 milli Alþýðusambands
íslands vegna Félags íslenzkra
hljóðfæraleikara annars vegar
og áfrýjanda og tveggja annarra
veitingamanna hins vegar var
bindandi. Var sá samningur enn
í gildi, þegar áfrýjandi sagði
stefnda upp starfanum, og get-
ur verkfall það, er í málinu
greinir, ekki skipt hér máli,
Frh. á 7. síðu.
alþingis. hvort ekki væri til-
Hljóðfæraleiharir vinna
mál fyrlr hæstarétti.
Rosenberg dæmdur til að greilla
hljéðfœraleikurum laun.