Alþýðublaðið - 05.02.1944, Page 3
Jjaugardagur 5. febrúar 1944.
Tómas Guómundsson:
Nordahl Grieg
Intet gay jeg; men pröv mig!
Kræv hvad jeg har og kan!
Kald páfmin ild og ungdom,
vi dem til dig, mit land!
Lad mig fá gi og elske,
; ikke med dÖdé ord,
men livet mitt som en kappe
over din 'nakne jord!
ÞANNIG ORTI Nordahl
Grieg, þegar hann var
milli tvítugs og þrítugs, í einu
af ættjarðarljó&um sínum í hók
inni: „NORGE I VÁRE HJERT
ER“. Nú hefur hinu unga skáldi
orðið að ósk sinni. Ættjörðin
hefur prófað hann og hann
hefur staðizt prófið. Hún krafði
hann alls, sgm hann átti, kall-
aði á allan eldmóð lians og
æsku, og hann kom á móti
henni með þetta allt. Og eins og
hann bað þess ungur, að fá að
sgnna henni úst síng, ekki með
orðum einum, lieldur með lífi
sínu, þannig hefur hann nú
innsiglað hana með. örlögum
sínum og fórnardauða. Svo
bókstaflega vættust óskir hins
unga og glæsilega skálds.
Því Nordahl Grieg er fallinn!
Hetjudauði var hlutskipti hans
eins og margra annarra ungra
og góðra drengja á þessum tím-
um. En er raunar rétt að nefna
dauða Nordahls Griegs hetju-
dauða? Er ekki sá maður mest
hetja, sem velur milli þess að
fórna lífi sínu eða hliðra sér
hjá því? Nordahl Gtieg átti
einSÍcis völ. Maður með hans
skapgerð velur ekki milli þess
að v e r a eða v er a e kki .
Hann spyr sjálfan sig að því
einu, hvað honum beri að gera,
og hvað sé rétt, og hann gengur
út í baráttuna rei&ubúinn til
þess að fórna lífi sínu. Slíkur
maðuv fórnar öllu nema sam-
vizku sinni.
Mér er það sársauki og ham-
ingja, að hafa eignazt vináttu
Nordahl Griegs, hinnar ógleym-
anlegu og yndislegu hetju. Eng-
um manni hef ég kynnzt, sem
hefur átt í ríkari mæli alla þá
eiginleiká, sem ég veit fegursta
í hinum norræna kynstofni. Og
ég hef oft hugsað um það, að
einhvers virði hljóti þær hug-
sjónir að vera, sem ráku þenn-
an bjarta víking, sem ekkert
aumt mátti sjá, út í blóðuga
baráttu með eldi og vopnum.
Mér fannst stundum, þegar tal-
ið barst að ógnum styrjaldar-
innar, eins og ég horfði í augun
á viðkvæmu og gáfuðu barni,
sem stór sorg hefur gert full-
orðið. En þetta stóra og gáfaða
barn, sem virtist borið til allrar
þeirrar hamingju, sem venju-
lega er kallað áhyggjuleysi,
átti sér í hjartanu hryllilegan
ótta. Það var þessi ótti, óttinn
við ófrelsið og ofbeldið, m. ö. o.,
ástin á frelsi og réttlæti, sem
var lykillinn að lífi Nordahls
Griegs og unni honum engrar
hvíldar. Á örlagastund sinni
eignaðist Noregur alla þessa ást
hans og ótta; engin' fórn var
ættjörðinni of stór, engin lífs-
hætta hennar vegna of nálæg.
Og þótt það sé mikið harms-
efni, að örlögin skuli hafa mein
að Nordahl Grieg áð taka þátt
ALÞYPUBLAÐÍÐ
rst í loft-
Wilhelmshaven varS
fyrir 1500 smálesta
sprengjurepi
Op!el$@r tllkyiMMiBgf mm paH var
g@fiii lif i ILosMÍoia i gær ©ftIr
al 111 von war talln útí imi pal,
@1 íímh lieffll Ifjargasst.
NORDAHL GRIEG er látinn. Lengi lék orðrómur á um afdrif
hans, en það var ekki fyrr en í gær, að örugg vitneskja fékkst
um} hvernig hann beið bana. Aðfaranótt 3. desember s. 1. var hann
í sprengjuflugvél í árásarleiðangri yfir Berlín. Var flugvélin
skotin niður, en um tíma var ekki vitað, hvort hann hefði komizt
lífs af. Samkvæmt skeytum frá London í gær, er nú talið full-
víst, að hann er ekki herfangi Þjóðverja, heldur hafi hann far-
izt við þettá tækifæri. — Var hans minnzt í norska útvarpinu í
London í gær.
Fyrst flutti Riiser Larsen að-
míráll, yfirmaður nðrska flug-
hersins ræðu um hið látna skáld
og mæltist afburðavel. Því næst
flutti Öksnevad; forstjóri norska
utvarpsins í London.. ræðu og
las upp tvö kvæði skáldsins. Að
lokum var leikinn þjóðsöngur
Norðmanna, „Ja vi elsker dette
landet.“ Var þessi dagskrárlið-
ur mjög hátíðlegur.
Nordahl Grieg var einn hinna
jþróttmiklu skálda Noregs hin
síðari ár. Hann var, eins og
sagt er á öðrum stað hér í blað-
inu, umdeildur, en hins vegar
efaði enginn( hvað í honum bjó.
Hann var vel ættaður, skyldur
tónsnillingnum Edvard Grieg,
sem borið hefir hróður Noregs
um víða veröld, eins og alkunn-
ugt er. Ungur að aldri tók hann
að ferðast, og þegar hann var
18 ára gamall, hafði hann ferð-
azt um mörg fjarlæg lönd.
Hann var þannig gerður, að
hann átti jafnan skylt við al-
þýðu manna, skildi kjör hennar
og baráttu. Á þessum grund-
velli orti hann flest ljóð sín}
og ritaði skáldsögur og greinar.
Þegar' innrásin var gerð í
Noreg í apríl 1940 var Nordahl
Grieg í herþjónustu í Finn-
mörku í Norður-Noregi, en
hann var staddur í Osló, þegar
Þjóðverjar hertóku borgina.
Hann komst undan og átti
virkan þd^tt í því að bjarga
gullbirgðum Noregsbanka, en
það var erfitt verk og vanda-
samt.
Bandamenn létu af allri bar-
áttu í Suður-Noregi 30. apríl
1940 og þá varð Grieg að hörfa
til Norður-Noregs, ásamt þús-
undum landa sinna. Þá orti
hann kvæðið 17. maí, sem barst
óðfluga út um allan Noreg, á
vegum leynistarfsemi norskra
föðurlandsvinaj Síðan rak að
því, að vopnuð barátta reyndist
ókleif í Noregi og fór Grieg þá
til Bretlands og starfaði sem
blaðamaður á hinum ýmsu víg-
stöðvum. Hann lagði mikla á-
herzlu á að kynna sér starfsemi
: flugmanna, og því var þáð,...að
hann dvaldi hér á ísland um
all-langt skeið og fór í margar
flugferðir með brezkum, arner-
ískum og norskum flugvélum og
hann tók einnig þátt í árásum,
sem gerðar voru á Noreg.
Síðan styrjöldin hófst hefir
Nordahl Grieg ort mörg kvæði,
sem vafalaust hafa hvatt Norð-
menn heima fyrir í þrotlausri
baráttu þeirra gegn quislingum.
Skáldskapur Nordahls Griegs
er þrunginn brennandi hatri á
kúgun nazismans, ást hans á
hinni norsku þjóð og óbifan-
legri trú hans á lokasigur Norð-
manna og annarra bandamanna-
þjóða.
í fregn frá norska blaðafull-
trúanum hér í Reykjavík segir
enn fremur á þessa leið: Nor-
dahl Grieg vár fæddur 2. nóv-
ember 1902. Á þessu styrjaldar-
tímabili gerðist hann eitt mesta
skáld Noregs og innti af hönd-
um mikið starf í þágu þjóðar
sinnar. Hann féll fyrir land sitt.
Alþýðubláðið sneri sér í gær
til Tómasar Guðrnundssonar
skálds og bað hann að rita nokk-
ur orð vegna fráfalls Griegs, en
Tómas var honum vel kunnug-
ur. Grein hans birtist á öðrum
stað hér í blaðinu í dag.
Japanir á undanhaldi
ÞAÐ má heita, að vörn Jap-
ana fyrir austan Saidor
á Nýju Guineu sé búin að vera.
Eins og skýrt var frá í frétt-
um nýlega þóttust bandamenn
sjá þess merki, að vörn Japana
væri að bila, enda eru þeir um-
ferlngdix og eiga sér ekki und-
áhkomu auðiðo
Nordahl Grieg
Mynd þessi er af Nordahl
Grieg, tekin meðan styrjöldin
geisaði í Noregi. Hann komst
þá oft í hann krappan, eins og
sagt .er frá á öðrum stað í blað-
inu í dag.
Vopnasendingar
fii Júgásiava
VOPNASENÐINGAR banda-
manna til herja Júgóslava
hafa verið mjög auknar að und-
anförnu, einkum síðastq mánuð.
Flugvélar eru einkum notað-
ar til þessara flutninga og segja
flugmenn, er stjórna þeim, að
flutningarnir séu eithvert erfið-
asta verk, sem þeir hafi nokkru
sinni fengið. Er erfitt að finna
staði þá, sem varpa á birgðun-
um á ísnæviþöktum fjöllum og
kemur það oft fyrir, að flugvél-
arnar snúa aftur, án þess að
LÖÐIN í LONDON gizka
á, aþ amerísku llugvél-
arnar hafi í gær varpað um
1500 smálestum sprengja á Wil-
helmshaven.
Herstjórnin Hefir ekki látið
neitt uppi Um sprengjumagnið,
en þessi tala þykir líkleg, þegar
tekið er tillit til flugvélafjöld-
ans, sem notaður var. Fregnir
eru enn ókomnar um flugvéla-:
tjónið í árásinni.
í gærkveldi hættu ýmsar
þýzkar útvarpsstöðvar sending-
um. Moskito-vélar voru yfir
Þýzkalandi.
Rússland
Á austurvígstöðvunum eru'
þær fréttir helztar, að Rússar;
halda áfram sókninni viðstöðu-
lítið. Við lítið viðnám Þjóð-
verja sækja Rússar fram við
Leningrad. Þá eru Þjóðverjar
í mjög slæmri klípu. Er talið,
að um 150 þúsund þeirra hafi
verið innikróaðir á þessum
stöðvum.
Fyrir norðan Kirovogrod
hafa Rússar slegið stálhring um
hersveitir Þjóðverja á þessum
slóðum. Þeir Vatutin og Koniev
hafa tekið um 300 þorp og
byggð ból.
Þrír danskir menn hafa verið
dæmdir í dönskum rétti fyrir
til raun til spellvirkja. Þeir ætl
uðu að vinna skemmdarverk í
verksmiðju einni í Kaupmanna
höfn, en lögreglunni tókst að
handsama þá, áður en þeir gátu
komið fyrirætlun sinni í fram-
kvæmd.
Þeir voru dæmdir í 4., 6 og 7
ára fangelsi.
hafa getað skilað flutningi sín-
um.
Bapdamenn telja, að Tito hafi
nú um 300,000 manna her.
I Slóveníu hafa Júgóslavar
hrundið árásum sex þýzkra her-
deilda.
eru að hefjasf á Ifalíu
Bandamenn eru um 25 km. frá Róm
Hör'iS átök væntanleg
JÓÐVERJAR hafa nú byrjað öflug gagnáhlaup á Ítalíu
Hafa bandamenn hrundið 4 skæðum gagnáhlaupum
þeirra, við mikið manntjón í liði þeirra. Samkvæmt síðustu
fregnum eru bandamenn nú aðeins um 25 km. frá Róm, og
sækja þeir fram eftir Appia-brautinni. Þjóðverjar reyna að
verjast eftir föngum, en fá ekki að gert.
í úrslitasókninni um endur-
heimt föðurlandsins, er rauna-
bót að vitneskjunni um það, að
hann mun halda baráttunni á-
fram. Allur heimurinn skal
vita, að þjóð, sem á sér menn,
slíka sem Nordahl Grieg, verð-
ur ekki vopnum vegin og minn-
ingin um hann mun fara
fyrir hinum hugprúða norska
her þann dag, er hann nemur
land sitt að nýju.
Allir Islendingar eru harmi
lostnir við fráfall þessa góða og
glæsilega drengs, hetjuskálds
og víkings. Vér sendum konu
hans, frú Gerd Grieg, og öllum
ættingjum þeirra og vinum,
innilegustu samúð vora í hin-
um sára harmi, og vottum allri
hinni norsku þjóð dýpstu sorg
vora og samhug.
Nordahl Grieg er dáinn!
Lengi lifi Nordahl Grieg og
ættjörð hans!
Tómas Guðmundsson.
Um það bil 80 km norðar eiga
amerískir hermenn í skæðum
bardögum við Þjóðverja í út-
hverfum Cassino. Bandaríkja-
menn njóta nú stuðnings skrið-
drekasveita í sókninni gegnum
Gustav-víglínuna. Frá vígstöðv-
um 8. hersins berast þær fregn-
ir, að borgin Torricello sé nú
á valdi bandamanna. Er sú borg
um 30 km. inni í landi.
Á Eyjahafi réðust flugvélar
ibandamanna á skipakost Þjóð-
verja og var fjórum seglskip-
u msökkt. Þá var haldið uppi
árásum á ílutningaleiðir Þjóð-
verja norður af Róm.