Alþýðublaðið - 09.02.1944, Side 2
2
ALÞVÐUBLAÐIÐ
Miðvikudagur 9. febrúar 1944.
Flárhagsáætlmn Beyb|aviknr
Krafa Alþýðuflokksins: Útsvörin
á hátekjurnar og eignaaukninguna!
500 króna seðlar
ern að boma i nm-
ferð.
Þeir em af somu stærð og
100 br, seðlarnir.
LðgskilBaðarmenn á Aknreyri
mðtmæla hraðsbilnaðarleiðinni
Krefjast þess, að útvarpsumræður
verði látnar fara fram um máiið.
-----------------«------
FORUSTUMENN lögskilnaðarmanna hér á Akureyri
héldu fund í Skjaldborg á mánudagskvöld. Var Sig-
»rður Guðmundsson skólastjóri málshefjeandi. Fundurinn
gerði samþykktir, sem mótmæla hraðskilnaðarleiðinni og
krafðist hann útvarpsumræðna um málið.
Eftirfarandi ályktanir voru
samþykktar á fundinum:
„Fundur lögskilnaðarmanna
á Akureyri, haldinn í Skjald-
borg 7. febrúar 1944 ályktar:
1. að skora á ríkisstjórn og al-
þingi að hvika ekki frá á-
kvæðum danks-íslenzku sam
bandslaganna um aðferðina
við afnám þeirra..
2. að eigi sé heppilegt né sæmi
legt, eins og á stendur, að
ganga að fullu frá lýðveldis-
stofnun. Fundurinn telur
nauðsynlegt að viðræður
fari fram við konung íslands
áður en málinu er ráðið til
lykta.
3. að tjá ríkisstjóra þakkir
fyrir tillögu hans um þjóð-
fund um lýðveldismálið, og
fyrir tilraun hans til mála-
miðlunar milli flokkanna, -
því að eigi er óeðlilegt að
þjóðfundur gæti rætt málið
og íhugað með meiri ró en
nú er títt í opinberum um-
ræðum.
4. að skora á ríkisstjórnina að
gefa út nú þegar í bókar-
forrúi, öll þau skjöl og skil-
ríki, er varða þessi mál, og
þá sérstaklega allar ' orð-
sendingar, sem farið hafa
milli íslenzku ríkisstjórnar-
innar annars vegar, og er-
lendra ríkisstjórna hins veg-
ar, svo að alþjóð gefist kost-
ur á að kynna sér allar stað-
reyndir, áður en gengið yrði
til atkvæðagreiðslu. Fundur
inn lítur svo á, að það stappi
nærri móðgun við hugsandi
menn^ að ætla þeim að
greiða atkvæði um mál,
nema þeir þekki gögn þess
og allar aðstæður.
5. að æskja þess, að fram fari
útvarpsumræður um sam-
bandsmálið og lýðveldismál
ið, milli lögskilnaðarmanna
og hraðskilnaðarmanna, *þar
eð útvarpið hefir til þessa
einungis flutt einhæfan á-
róður um málið.“
Fundinn sátu um 50 manns.
Málshefjandi var Sigurður Guð
mundsson, skólameistari, en
aðrir ræðumenn voru: Þor-
steinn Stefánsson, bæjargjald-
keri, Halldór Friðjónsson, rit-
stjóri, Snorri Sigfússon, skóla-
stjóri, Erlingur Friðjónsson,
kaupfélagsstjóri, dr. Kristinn
Guðmundsson, skattstjóri og
Pétur A. Ólafsson, kaupmaður.
Ályktanir fundarins hafa nú
þegar verið sendar alþingi, rík-
isstjórninni og ríkisútvarpinu.
Hafr.
Haf nfirzkir verkamenn fella
að segja app santningnm.
En þeir hafa haft hærra kaup upp á síð-
kastið en verkameim i Reykjavík.
VERKAMENN í Hafnar-
firði hafa nýlega við
allsher j aratk væðagr eiðslu
fellt að segja upp samningum
við atvinnurekendur.
Verkamenn á Akranesi
'hafa' svo fáir sótt allsherjar-
atkvæðagreiðslu að stjórn
félagsins sér sér ekki fært að
segja samningunum upp þar.
Allsherj aratkvæðagreiðsla er
nýlega afstaðin í Verkamannafé-
laginu Hliff um það, hvort félag
ið skyldi segja upp samningum.
550 félagar höfðu atkvæðisrétt
og greiddu 324 atkvæði. 168
sögðu nei og 156 sögðu já.
Allsherjaratkvæðagreiðsla er
og nýafstaðin í Verkalýðsfélagi
Akraness. 454 félagar höfðu at-
kvæðisrétt, en aðeins 62 greiddu
atkvæði.
Alþýðublaðið hefir snúið sér
til Jóns Sigurðssonar fram-
kvæmdastjóra Alþýðusambands
ins af tilefni þessara úrslita í
þessum tveimur stóru verkalýðs
, félögum.
Hann sagði meðal annars:
„Menn mega ekki bera þessi
úrslit í Hafnarfirði og á Akra-
nesi saman við samþykkt Dags-
brúnarverkamanna um að segja
upp samningunum.
A liðnum árum hafa verka-
menn í Hafnarfirði haft lægra
kaup en verkamenn í Reykjavík
og takmark þeirra hefir aílt af
verið að ná sama kaupi og
Reykjavíkur verkamenn. Þetta
tókst þeim að fá 1940. Árið 1942
settu þeir svo fram hærri kröf-
ur en Dagsbrún gerði og þeir
fengu þeim framgengt með samn
ingum við atvinnurekendur.
Síðan hafa hafnfirskir verka-
menn haft hærra kaup og betri
kjör en reykvískir verkamenn.
Mismunurinn á kjörunum er
allmikill. Raunverulegt tíma-
kaup verkamanna í Hafnarfirði
Frh. á 7. síðu.
TiiBögur ennfremur um margháttaðar ráð-
stafanir tii eflingar atvinmavegunum, þar á
meðal um mikiar endurhætur á höfninni.
Bærinn á að byggja ný fjölbýlishús og taka
rekstur strætisvagnanna
FJÁRHAGSÁÆTLUN REYKJAVÍKUR fyrir árið l944
kemur til 2. umræðu og átkvæðagreiðslu á fundi bæjar
stjórnar á morgun.
Fulltrúar Alþýðuflokksins munu leggja fram veiga-
miklar breytingartillögur við hana, sem flestar miða að efl-
ingu atvinnulífsins í höfuðstaðnum, meðal annars með aukn-
um hafnarmannvirkjum og undirbúningi hinnar fyrirhuguðu
skipasmíðastöðvar við Elliðaárvog. Ennfremur munu þeir
leggja til, að bærinn haldi áfram íbúaðarhúsabyggingum og
taki rekstur strætisvagnanna í sínar hendur.
í sérstakri tillögu Alþýðuflokksins er lögð áherzla á það,
að útsvör verði á þessu ári hægt að leggja á hátekjurnar,
þær sem nema meira en 200 þúsundum króna, svo og á hina
stórkostlegu eignaaukningu í hænum síðan stríðið hófst.
Ályktunartillögur Alþýðu-
flokksins fara hér á eftir:
1. „Bæjarstjórnir samþykkir
að leggja í framkvæmda-
sjóð auk stríðsgróðaskatts
það, sem ónotað kann að
verða af fé því, sem áætlað
er til framleiðslubóta og at-
vinnuaukningar."
2. „Þar sem sýnt er að upphæð
sú, sem taka verður með út-
svörum á þessu ári verður
svo há, að ókleift verður að
jafna þeim réttlátlega nið-
ur, ef bannað er að leggja
útsvör á þann hluta tekna
einstaklinga og fyrirtækja,
sem er yfir 200 þúsund
krónur, skorar bæjarstjórn
á alþingi að nema þetta á-
kvæði úr lögum. Jafnframt
ályktar bæjarstjórn að beina
því til niðurjöfnunarnefnd-
ar, að haga niðurjöfnun út-
svaranna svo, að verulegur
hluti þeirra hvíli á eigna-
aukningu þeirri, sem orðið
hefir síðan stríðið hófst.“
3. „Bæjarstjórnin samþykkir
að fela borgarstjóra að láta
tafarlaust * fram fara athug-
un á því, hvað kosta mundi
að byggja tveggja hæða
steinhús með 50—75 eins og
tveggja herbergja íbúðum
ásamt eldhúsi, er síðar gætu
hentað fyrir eldra fólk, er
minnkað hefir við sig, eða
og einhleypt fólk, er slíkar
íbúðir henta.“
4. „Bæjarstjórn ákveður að
fela bæjarráði að láta nú
þegar fara franv rannsókn á
því, á hvern hátt lóð sú, sem
Hótel ísland stóð á, verði
bezt hagnýtt með tilliti til
framtíðarskipulags bæjar-
ins. M. a. skal athugað
hvort heppilegt myndi vera
að hafa þarna opið svæði
eða taka nokkurn hluta lóð-
arinnar til breikkunar á Að-
alstræti, enn fremur sé
rannsakaðir möguleikarnir
á því, að bærinn fái lóðina
keypta, og að fá lagaheim-
ild til þess að leggja verð-
hækkunargjald á lóðirnar í
nágrenninu vegna þeirra
verðhækkana á þeim, sem
kynnu að verða af völdum
þeirra skipulagsbreytinga,
sem gerðar yrðu á þessum
hluta bæjarins."
5. „Bæjarstjórnin samþykkir
að taka í sínar hendur rekst
ur almenningsvagna í um-
dæmi bæjarins, og felur
FA. á 7. síðu,
22 fulltrúar
9 stéffarfélaga
ræða öryggis-
mál sjómanna
UmræSur stóöu í
4 klukkustuueSir.
C ÍÐASTLIÐINN sunnu-
dag komu 22 fulltrúar
frá 9 stéttarfélögum sjó-
manna í Reykjavík og Hafnar
firði saman á fund í Reykja-
vík að tilhlutun Sjómannafé-
lags Reykjavíkur til að ræða
öryggismál sjómanna.
Að loknum umræðum, sem
stóðu í 4 klukkustundir og sýndu
mikinn áhuga fundarmanna fyr-
ir þessu nauðsynjamáli, voru eft
irtaldir menn kosnir í nefnd til
þess að gera tillögur í því til
fulltrúafundar:
Sigurjón Á Ólafsson, frá Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur, Þor-
varður Björnsson, frá Skip-
stjórafélagi íslands, Guðbjart-
ur Ólafsson, frá Skipstjórafélag
inu Aldan, Jón Axel Pétursson,
frá Stýrimannafélagí Islands,
Þorstei'nn Árnason, frá Vél-
stjórafélagi íslands, Steindór
Árnason, frá Skipstjóra- og
stýrimannafélaginu Ægi„ Jónas
Björnsson, frá Skipstjóra- og
stýrimannafélagi Reykjavíkur,
Halldór Jónsson, frá Félagi ís-
lenzkra loftskeytamanna, Krist
ján Eyfjörð, frá Sjómannafé-
lagi Hafnarfjarðar.
í skrifstofu Alþýðuflokksfélagsins
í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu,
liggur frammi listi yfir þá félaga,
er hverfisstjórar hafa stungið upp
á í stj'órn Alþýðuflokksfélagsins,
fyrir komandi ár. Samkvæmt 9.
gr. félagslaganna skal listinn
liggja frammi eina viku, og er fé-
lagsmönnum heimilt að stinga upp
á fleiri mönnum, sem þeir óska,
að komi til greina, þegar kjörr
nefnd raðar nöfnum á kjörseðil
fyrir aðalfund.
E' IMM hundruð króna seðl
■** ar eru að koma í um-
ferð, en lengi undanfarið hef-
ir verið talin nauðsyn á því
að slíkir seðlar væri teknir
í notkun.
Frá Landsbanka íslands hefir
Alþýðublaðið fengið eftirfar-
andi greinargerð um þessa
nýju seðla:
„Stjórn Landsbanka íslands
hefir samkvæmt lögum nr. 10
frá 15. apríl 1928 gefið út
handa Landsbankanum 500
króna seðla með svofelldri gerð:
Seðlarnix eru jafnir 100
króna seðlum Landsbankans að
stærð, 10 X 15 cm. Framan á
þeim er prentað gildi þeirra, og
er talan tilgreind með bókstöf-
um, í þrem orðum, og fyrir neð-
an þau í tveim línum: „Sam-
kvæmt lögum nr. 10, 15. apríl
1928 Landsbanki Isíands.“ Eru
þessi orð öll með dökkgrænum
lit á marglitum grunnfleti með
brugðnu skrautverki, umhverf-
is. hann eru tvennir grænir
bekkir með skrautgreinum. Fyr
ir ofan er letrað nafn bankans:
Landsbanki íslands, en undir
þeim stendur nafn formanns
bankaráðsins og nafn eins af
bankastjórunum, og eru þau
nöfn með rithönd þeirra.
Vinstra megin við orðin er
prentuð brjóstmynd Jóns Sig-
urðssonar, en hægra megin er
mynd Jóns Eiríkssonar sem
vatnsmerki í 'hvítum, kringlótt-
um reit. Á öll horn er prentuð
talan 500, er táknar gildi þess-
ara seðla, og er hún með ljós-
grænum lit í dökkgrænum, fer-
hyrndum reit. Aftan á seðlun-
um er hinn 'hvíti kringlótti reit-
ur, með mynd Jóns Eiríkssonar
sem vatnsmerki í, vinstra meg-
in er prentuð mynd af alþingis-
staðnum gamla, Þingvelli við
Öxará; er myndin í kringlóttri
umgjörð og upphafsstafir bank-
ans, L og I, skrautlega dregnir,
hvor til sinnar handar. Grunn-
flöturinn umhverfis er með
brugðnu skrautverki, og yzt
umgjörð með skrautgreinum í,
en innan við hana er talán 500
í hverju horni í kringlóttum
skiidi með skrautverki um-
hverfis í ferhyrndum reit. Öll
bakhliðin er prentuð með græn
um lit.“ .. i
Gunnar Gunnarsson
vill engar fjárbeiðnlr
sín vegna á alþingi.
Símskeyti til al-
þingis.
ALÞÍNGI hefir borizt sím-
skeyti frá Gunnari Gunn-
nrssyni skáldi á Skriðuklaustri,
var sem hann lýsir því yfir í til
efni af framkominni þingsálykt-
unartillögu mn skáldalaun hon-
um til handa, að hann óski þess
ekki að alþingi sé ónáðað með
fjárbeiðni sín vegna, enda sé
hann fullkomlega sjálfbjarga.
Þmgsályktunartillagan var
flult fyrir nokkrum dögum af
Kristpi Andréssyni og Barða
Gumundssyni.
Áður hafði Gunnar, sem kunn
ugt er neitað að taka við nokkr-
um skáldalaunum af úthlutunar-
nefnd rithöfundafélagsins.