Alþýðublaðið - 09.02.1944, Page 3
Miðvikudagur 9. febrúar 1944.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
í
Balkanbarónakerfið
Hlutskipti rúmeníu
hafa verið mönnum ær-
ið undrunarefni síðan það
land tók að berjast við hlið
möndulveldanna. Þetta land
hefir frá því, er styrjöldin
hófst, haft á sér einhvern
ævintýrablæ, einhvern dular
fullan ,,balkanbarónablæ“,
sem ekki þefir hvað sízt skap
azt af persónu konungsins,
Carols. Að vísu er hann ekki
konungur lengur en alltaf
setur maður hann samt í
samband við þetta land, e'r
virðist búa yfir ótakmörkuð
um möguleikum á sviði at-
hafnalífs og stjórnmála.
ALLIR VITA um ævintýri
Carols konungs í sambandi
við madame Lupescu. Og út
af fyrir sig skal það ekki last
að í þessum dálkum, en hins
vegar virðist þessi kona hafa
haft allmikil áhrif á gerðir
þessa þjóðhöfðingja, þótt
ekki sé vitað, á þessu stigi
málsins, hver áhrif hún hef
ir haft á hina óheillavænlegu
þróun málsins í þessu landi.
CAROL KONUNGUR verður
landflótta í byrjun þessa
stríðs og lifir í vellystingum
í Mexikó. Þar reynir hann
að skera upp herör fyrir alla
þá Rúmena, sem nú, af ýms-
um ástæðum, eru landflótta,
og reynir að gerast samein-
ingartákn þessarar ógæfu-
sömu þjóðar. Öllum eru
kunnar hinar óskemmtilegu
aðfarir í stjórnmálum Rúm-
eníu undanfarin ár og verð-
ur ekki sagt í bili, hver áhrif
konungurinn kann að hafa
haft á þessi mál.
í HINU AMERÍSKA blaði
„New Leadér“ er nýlega
lýst aðförum þessa þjóðhöfð
ingja og ekki farið mildum
orðum um framferði hans. Er
ekki annað að sjá, en hann
sé mjög viðsjárverð persóna,
sem lítt sé treystandi. Carol
hefir reynt að leika á þá
strengi, að hann sé einhvers
konar sjálfkjörinn leiðtogi
Rúmena, þeirra, sem ekki
vilja styðja Þjóðverja í á-
formum þeirra um nýskipun
Evrópu. Bandamenn hafa
hins vegar ekki viljað viður
kenna hann sem hlutgengan
aðila í viðleitni hinna undir
okuðu þjóða til þess að ná
aftur frelsi sínu og liggja
ýmsar orsakir til þess.
BLAÐAMAÐURINN Matthew
Low bendir á það í grein
sinni í nefndu blaði, að Car-
ol konungur hafi þráfaldlega
lýst yfir andstöðu sinni við
fascismann, en hins vegar
hafi Mussolini orðið til þess
að bjarga honum á landmær
um Júgóslavíu. Sérstök lest
flutti Carol yfir ítalskt land
til Sviss og enginn lagði
stein í götu hans á þeirri
leið.
ÞÁ MINNIR blaðamaðurinn á
það, að Carol tali mikið um
að bjarga Rúmeníu í ávörp-
um sínum, en hafi þó unnið
að því árum saman að fé-
fletta þjóðina á margvísleg-
an hátt. Blaðamaðurinn
Leland Stowe segir á þá
Nýr síórsigur Rússa í Dniepr-bugnum.
Tóku Nikopol eftir harða bardaga.
Um 150 [þúsundir ÞJóSverja innikróaóir á
þessuirs slóðum.
O TALIN hefir enn gefið út dagskipan, þar sem tilkynntur
^ er mikill sigur Rússa. Að þessu sinni hefir borgin
Nikopol fallið í hendur Rússum eftir geypiharða bardaga.
Samtímis þessari fregn var tilkynnt, að enn hefðu þýzk her-
fylki verið innikróuð í Dniepr-bugnum, svo þar eru nú að
minnsta kosti 15 herfylki þýzk, sem tæpast eiga sér undan-
komu auðið. Er hér um minnsta kosti 150 þúsund manna
lið að ræða, sem virðist svipt
Af þessum her eru um 10 her-*
fylki innikróuð í grennd við
Cherkassy. Norðar á vígstöðvun
um hafa Rússar sótt um 160 km.
inn í Pólland. Eru allar horfur
á, að borgin Kovel, sem er um
það bil 65 km. norðvestur af
borgini Luck, sem nýlega féll
Rússum í hendur, gangi Þjóð-
verjum úr greipum innan
skamms.
Með falli Nikopol hafa Þjóð-
verjar enn beðið mikið tjón, þar
sem borgin var mjög mikilvæg
samgögumiðstöð og þar var og
mikill mangan-iðnaður, sem er
einkar þýðingarmikill til styrj-
aldarreksturs.
Enn ráðizl á Frankfuri
IGÆR réðust flugvéar
Bandaríkjamanna, sem
bækistöðvar hafa á Bretlandi,
á ýmsa staði í Norður-Frakk-
landi, svo og í Frankfurt við
Main-fljót, og er talið, að tjón
hafi orðið mikið í þeirri borg. Sú
borg hefir áður orðið afar hart
úti í loftárásum bandamanna,
svo sem kunnugt er.
Nánari fregnir um árás þessa
hafa ekki verið birtar enn sem
komið er.
öllum bjargráðum.
Japanar í fcflpu á Nýju
Guineu.
SÍÐUSTU fregnum frá
Nýju Guineu segir frá því,
að nú sé kreppt að Japönum
frá tveim hliðum, af hálfu her-
sveita Bandaríkjamanna og
Ástralíumanna, einkum í nánd
við Saidor. Er nú um það bil
25 km milli herjanna. Japanar
hafa ekki getað lagt til meiri-
háttar bardaga, en orðið að
sætta sig við bardaga við fram-
varðasveitir bandamanna.
Á Gloucester-höfða hafa varn
ir Japana einkum brugðizt og
var seinast barizt um hæð, sem
í fréttum er nefnd „660“.
Þá hafa flugmenn bandamanna
gert harðar árásir á Rabaul á
Nýja Bretlandi. Japanskt kaup
far, sem var um 2000 smálestir
að stærð, varð fyrir sprengju
og var sökkt, svo og 30 prömm
um. Samtímis voru 12 flugvél-
ar skotnar niður, en banda-
menn misstu 5 flugvélar í þeirri
viðureign.
Á Marshall-eyjum gengur
inrás Bandaríkjamanna að ósk-
um. Hafa þeir brotið mótspyrnu
Japana að fullu á bak aftur á
eyju þeirri, er þeir réðust á.
lund, að í samanburði við
Carol hafi þeir Huey Long
og A1 Capone verið hálfgerð
ir smástrákar. Þetta virðist
sagt með sterkum orðum, en
gera má ráð fyrir, að heims-
kunnir blaðamenn, sem þeir,
sem að framan greinir, viti
hvað þeir syngi.
í GREIN Lows segir ennfrem-
ur frá því, að laun Carols
hafi verið um það bil sex
sinnum hærri en laun Banda
ríkjaforseta og að hann hafi
átt mikið af hlutabréfum í
sykur- og tóbaksjðnaði lands
ins og þótti þetta tæpast
sæma konungi landsins. Að
vísu verða konungar að hafa
sínar tekjur eins og annað
fólk, en ekki er að öðru
jöfnu gert ráð fyrir því, að
þeir hafi þjóð sína að fé-
þúfu.
NÚ LIFA BALKANÞJÓÐIRN-
AR almennt við ærið hörð
kjör og hafa orðið hart úti
í núverandi styrjöld. Þær
hafa ekki átt því láni að
fagna að eiga simvizkusama
og dugandi stjórnendur eins
og tildæmis Danir og Norð-
menn. Iivort sem menn eru
með konungdæmi eða móti,
hljóta sannsýnir menn að við
urkenna, að þeir bræðurnir
Kristján X. og Hákon VII.
hafa staðið sig afburða vel í
hörmungum þeim, sem nú
dynja yfir heiminn.
ÞESSIR TVEIR MENN hafa
sýnt með framistöðu sinni,
að manndómur er enn til
með Norðurlandaþjóðum, er
unna lýðræðisvenjum og
mannréttindum, gagnstætt
hinu feyskna fyrirkomulagi
sumra Balkanþjóðanna, sem
hlýtur að bíða falls vgna
rotnunar innan frá. Þeir
hafa reynst glæsilegt for-
dæmi samlöndum sínum og
raunar öllum heiminum,
gerzt einingartákn þjóða
sinna á verstu tímum, sem
yfir þær hafa gengið. Það
mun vafalaust í heiðri haft,
meðan dönsk tunga og norsk
eru talaðar, hvernig þeir
menn komu fram, sem réðu
málum þeirra á örlaga-
stundu. Og á hinn bóginn
munu þeir, sem í hlut eiga
ekki gleyma afskiptum „balk
anbarónanna“ af málefnum
þeirra.
Bandamenn halda stöðvum sínum á
Ifalíu, þrátf fyrir liðsauka Þjóðverja.
Hér sést mynd af stórri sprengjuflugvél Bandaríkjamanna, svo
nefndu flugvirki. Er verið að flytja sprengjur í hana, áður en lagt
er af stað í árás á Þýzkaland Flugvél þessi hefir bækistöð einhvers
staðar í Bretlandi, að því, er segir í textanum, sem fylgir myndinni.
A undan loftárás.
rxrtrvmnt. *
1800 Þjóðv. teknir síðan iandgangan Biófst.
JÓÐVERJAR flytja enn óhemju liðsauka til Ítalíuvígstöðv-
anna. Er hér bæði um að ræða véla- og bryn-hersveitir,
sem sendar hafa verið frá Frakklandi, og hafa þær gert skæðar
árásir á stöðvar bandamanna að undanförnu. Sér í lagi hafa á-
rásir þessar verið harðar síðan á sunnudagskvöld. Þeim hefir samt
verið hrundið, að því er tilkynningar bandamanna herma.
5 brezkir berfangar
dæmdlr lil dauða
á Ítaiíu.
HIN opinbera þýzka frétta-
stofa, DNB, hefir birt þá
fregn, að fimm af sex brezkum
föngum, sem sloppið hefðu úr
haldi, hefðu verið dæmdir til
dauða. Brezka utanríkisráðu-
neytið hefir ekki fengið neinar
upplýsingar um þetta mál, en
segir, að ef menn þessir hafi
verið dæmdir til dauða fyrir þá
sök eina, að þeir hafi sloppið
úr haldi, sé hér um að ræða
mikið brot á alþjóðarétti.
í hinni þýzku fregn segir, að
hinir fimm fangar hafi verið
meðal sex annarra, sem-flúðu
við uppgjöf ítala og allt var í
uppnámi. Samkvæmt hinni
þýzku fregn voru hinir dæmdu
sakaðir um að þeir væru að
ógnaíbúum landsins.
Cordell Kull
aSvsrar Finna.
CORDELL HULL, utanríkis
ráðherra Bandaríkjanna,
hefir varað Finna við því, að
halda áfram samvinnunni við
Þjóðverja. Tanner, sem nú er
helzti ráðamaður finnsku stjórn
arinnar í veikindaforföllum
forsætisráðherrans, héfir að-
vörun þessa til athugunar.
í tilkynningum bandamanna
er greint frá afarhörðum árás-
um Þjóðverja, sem láta ekkert
tækifæri ónotað til árása á
bandamenn sunnan Rómaborg-
ar, en fá samt ekki að gert.
Hafa Bretar og Bandaríkja-
menn tekið um 1800 Þjóðverja
höndum síðan innrásin sunnan
um Þjóðverja hefir verið beint
gegn vígstöðvum bandamanna
fyrir norðan Carroceto. Sam-
kvæmt síðustu fregnum var
ekki að sjá, að bandamenn létu
neinn bilbug á sér finna og að
áhlaupum Þjóðverja hefði ver-
ið hrundið með stórskotahríð.
Sendiráð Dana í Ar-
gentínu gerisf aðill í
hreyflngu Frjálsra
Dana.
O ENDIRÁÐ Dana í Buenos
Aires hefir tilkynnt, að
það hafi slitið öllu sambandi
við dönsk stjórnarvöld heima-
fyrir, og muni hér eftir starfa í
náinni samvinnu við hreyfingu
Frjálsra Dana. Var sagt í til-
kynningu um þetta, að sendi-
ráðið hafi gripið til þessa ráðs
vegna ákvörðunar Argentínu-
stjórnar um að rjúfa stjórn-
málasamband við Þýzkaland og
vegna þess, að Kristjáni kon-
ungi sé ókleift að fara með völd
og, að engin raunveruleg stjóm
sé starfandi í Danmörku eins
og nú standa sakir.