Alþýðublaðið - 18.02.1944, Qupperneq 3
Rússar eiga 30 km. ófarna
í séknfnni tii Pskov.
" ' J
flngvélar rééiist á Mel@isaki
i
ÚSSAR halda áfram sókn sinni í áttina til Pskov, sem
er mikilvægur járnbrautarbær á leiðinni til Lettlands.
Eiga þeir nú um 30 km. ófarna til borgarinnar og sækja
að henni úr tveim áttum. Er unnið að því að umkringja
varnarstöðvar Þjóðverja í grennd við borgina. Þá berast
fregnir um, að rússneskar fallhlífarhersveitir hafi svifið til
jarðar eigi all-langt frá Narva í Eistlandi, að baki víglínu
Þjóðverja. Rússnesk herskip á Finnlandsflóa hafa skotið
á Narva úr fallbyssum sínum. í einni fregn, sem ekki hefir
verið staðfest segir, að Rússar hafi sett lið á land í Vaivara,
sem er um 25 km. norðvestur af borginni.
“ * í fyrradag var enn ráðizt á
Helsinki og tóku um 400 flug-
vélar þátt í árásunum. Aðrar
árárir vor einnig gerðar á ýmsa
staði í Suður-Finnlandi. Talið
er, að árásir þessar séu gerðar
til þess að knýja Finna til sér-
friðar sem allra fyrst. Samn-
ingaumleitanir munu standa
yfir í Stokkhólmi, en ekkert
hefir verið látið uppi um þær,
enn sem komið er. Sumar
heimildri herma, að Finnar
séu ákveðnir í því að hætta
þátttöku í styrjöldinni, þrátt
fyrir hótanir um gagnráðstaf-
anir Þjóðverja.
rveim skipum sökkt
undan Krisfjánssundi.
P LOTAMÁLARÁÐUNEYT-
IÐ brezka hefir birt til-
kynningu, þar sem greint er
frá því, að brezk hreskip hafi
ráðizt á þýzka skipalest undan
Noregsströndum. Fyrir utan
Kristjánssund var tveim kaup-
skipum sökkt. Feykilegar
sprengingar urðu í skipunum,
svo gert er ráð fyrir, að þau
hafi hafa skotfæri innanborðs.
Útvarpið í Oslo greinir frá
því, að annað skipanna, sem
sökkt var, hafi verið ,,Irma“,
eign Bergenska gufuskipafé-
lagsins og að um 50 Norðmenn
hafi farizt. Er á þáð bent í
London, að Þjóðverjar sýni
mikla óvarkárni um flutning
skotfæra og sprengiefna og
flytji oft farþega með skipum,
sem hafa svo hættulegan farm
innanborðs. Þá hefir það viljað
brenna við, segir í Lundúna-
fregn, að Þjóðverjar hafi bjarg-
að sjálfum sér, er skipum hefir
verið sökkt en skilið Norðmenn
eftir.
Á miðhluta vígstöðvann
reyna Þjóðverjar öll möguleg
ráð til þess að koma hinum
innikróuðu hersveitum við
Cherkassy til hjálpar. Mann-
stein hershöfðingi hefir teflt
fram brynsveitum til þess að
reyna að brjóta hinum inni-
króaða her braut út úr hringn-
um. Er hér um 50 þúsund
menn að ræða, en alls voru
Þjóðverjar um 100 þúsund á
þessum slóðum. í fregnum frá
Moskva segir, á árásum bryn-
sveitanna hafi verið hrundið
jafnharðan. Eru taldar litlar
líkur til að hinn þýzki her
komist undan.
9
MacArthur.
Undanfarið hefir verið heldur tíðindalítið af Kyrrahafs-
vígstöðvunum, að minnsia kosti samanborið við bardagana
á Ítalíu og á Austurvígstöðvunum. Hér sést MacArthur,
hinn vinsæli yfirmaður herafla bandamanna á Suðvestur-
Kyrrahafssvæðinu.
Þjóðverjar hafa Lyrjað nýjar
árásir á Adzío - vígstððvnnnm.
Ees peÍMi er fiirancllð Off varnar-
llraa banslaananna er éroffin.
ÞJÓÐVERJUM hafa enn byrjað nýjar árásir við Anzio, en
samkvæmt fréttum frá London í gær, hefir þeim hvergi tek-
izt að rjúfa varnarlínu bandamanna. Einkum er mikið barizt
við Carocetto og Aprilia. Bardagar eru jafn heiftarlegir við Cass-
ino, og eru nú rústir einar eftir af klaustrinu á Cassino-fjalli, þar
sem Þjóðverjar höfðu búizt fyrir. Flugvélar bandamanna eru at-
hafnarsamar enn sem fyrr og hafa gert árásir á ýmsar stöðvar
Þjóðverja og samgön^uleiðir, svo sem járnbrautir í grennd viS
Róm. í fyrradag misstu Þjóðverjar 9 flugvélar yfir Ítalíu-víg-
stöðvunum, en bandamenn 4.
Sðfefandagur 18. febrúar 1944.
Póiska sfjórnin í
London.
VIÐSJÁR Rússa og Pólverja
eru enn sem fyrr eitt að-
alumræðu efni blaða víða
um heim. Blöð kommúnista
halda víðast hvar upptekn-
uin hætti og svívirða eftir
föngum pólsku stjórnina í
London og staæfsemi henn-
ar, en liggja hins vegar flöt
fyrir öllum áróðri Rússa um
aukið land á kostnað Pól-
verja. Eru pólsku stjórninni
ralin hán hraklegustu n^fn
og reynt að spilla áliti henn-
ar og gera hana tortryggi-
lega í augum annarra banda-
mannaþjóða, en forystu-
mönnum í Kreml hælt á
hvert reipi. Málgagn komm-
únista hér í Reykjavík hefir
lagt orð í belg, svo sem við
var að búast. í grein, sem
birtist í „Þjóðviljanum“ í
gær, og nefnist: Hvað er að
gerast úti í heimi?, með und-
irfyrirsögninni: Hvenær verð
ur pólsku fasistaklíkunni í
London sparkað? er enn
þyrlað upp óhróðri um for-
vígismenn Pólverja og mál-
flutningur ekki sem drengi-
legastur.
IFÆSTIR munu verða til þess
að trúa því, sem þar er á
borð borið, en engu að síður
er réttara og næsta fróðlegt
að athuga staðhæfingar blaðs
ins nokkru nánar. í fyrsta
lagi: Er pólska stjórnin í
London ,,fasistaklíka“, eins
og ,,Þjóðviljinn“ vill vera
láta? Fróðleg grein um
þetta efni birtist nýlega í
blaðinu „New Leader“ í
New York, eftir blaðamann-
inn Liston M. Oak. Þar segir
m. a. svo:„Pólska stjórnin í
London er fulltrúi pólsku
þjóðarinnar og þeirra, sem
reka leynistarfsemi gegn
Þjóðverjum heima fyrir.
Meiri hluti stjórnarinnar er
skipaður fulltrúum lýðræðis
afla, frjálslyndra manna og
framfarasinna. Forysta
stjómarinnar er í höndum
fulltrúa bændaflokksins,
flokks jafnaðarmanna og
verklýðssamtakanna. Auk
þeirra eiga þar sæti íhalds-
menn og þjóðernissinnaðir
menn, en þeir eru í minni-
hluta. Allir þessir menn
vinna saman gegn Þjóðverj-
um.“
TIÐ SKULUM NÚ ATHUGA,
hvaða menn það eru, sem
„Þjóðviljinn“ stimplar sem
„fasistaklíku“. Forsætisráð-
herra er Mikolajczyk. Hann
er foringi foændaflokksins og
samvinnuhreyfingar hans.
Hann hefir alla æfi barizt
gegn pólsku afturhaldi. Vara
forsætisráðherra er Jan
Kwapinski, forseti verkalýðs
félaganna. Hann var dæmd-
ur til dauða af zar-stjórninni
1907 fyrir sósíalistíska starf-
semi ,en dómnum var breytt
í æfilangt fangelsi. Bylting-
in 1917 færði honum frelsi.
Þegar Rússar réðust inn í
Pólland 1939 tók GPU-lög-
regla Rússa hann fastan og
flutti til Síberíu, en honum
Norðmefln hafa
grandað 150 flug-
vélum Þjóðverja.
RISTIAN ÖSTBY, flug-
málaráðunautur við norsku
sendisveitina í Washington hef
ur látið svo um mælt, að
var síðan sleppt tveim árum
síðar, samkvæmt samningi
Rússa og Pólverja. Aðrir
forystumenn pólsku stjóm-
arinnar eru: Jan Stanjcyk,
atvinnumálaráðherra, jafn-
aðarmaður og aðalritari sam-
foands . . námuverkamanna
Ludwig Grossfelt, fjármála-
ráðherra. Hann er lögfræð-
ingur og hann varði kommún
ista, jafnaðarmenn og bænda
leiðtoga, sem stjórn Pilsud-
skis ofsótti. Banaczek, innan-
ríkisráðherra bændaleiðtogi,
er sat 6 ár í fangelsi á valda-
tíma Pilsudskis. Stanislaw
Kot, upplýsingamálaráðherra
Mann er foændaflokksmaður,
ALÞYÐUBLAOIÐ
norski flugherinn hafi skotið
niður fjórar þýzkar flugvélar
fyrir hverja eina norksa flug-
vél, sem farizt hafi
„Nýlega hefur mér borizt til-
kynning þess efnis, sagði
Östby, að flugvélar þær, sem
við nú höfum skotið niður fyr-
ir Þjóðverjum, sé orðnar 150
að tölu.
sagnfræðingur að mennt,
sem missti háskólakennara-
embætti sitt vegna þess, að
hann skipulagði verkföll á
dögum Pilsudskis. Henry K.
Strassburger, óháður og Gyð-
ingur. Af öðrum ráðherrum
má nefna Tadensz Rommer,
utanríkisráðherra. Hann
var áður sendiherra í Moskva
og vann jafnan að vinsam-
legri sambúð við Rússa.
ÞETTA ERU ÞÁ MENNIRNIR
sem „Þjóðviljinn“ kallar
,,fasistaklíku“. Menn, sem
meiri hluta æfi sinnar hafa
barizt þrotlausri baráttu
gegn afturhaldi og kúgun.
Ftam. á 6. síðu.
Eins og við var búizt hafa
Þjóðverjar byrjað nýjar árásir
á landgönguher bandamanna
við Anzio, eftir að hafa dregið
að sér liðsauka. Eru bardagar
harðir, en Þjóðverjum virðist
ekki hafa orðið neitt ágengt.
Manntjón er sagt mikið í liði
Þjóðverja. Við Cassino hafa
litlar breytingar orðið. Heldur
hefir dregið úr bardögum í ná-
vígi, en stórskotalið beggja
aðila látði til sín taka. Am-
erískar steypiflugvélar hafa
ráðizt á klaustrið á Cassino-
fjalli og má það heita í rúst-
um. Þjóðverjar segja í fregn-
um sínum, að enginn þýzkur
hermaður hafi verið í klaustr-
inu og sé hér því um hermdar-
árásir bandamanna að ræða.
Hins vegar segja bandamenn,
að enn hafist vélbyssuskyttur
Þjóðverja við í rústum klaust-
ursins og hafi ekki verið um
annað að gera en að gera á
það loftárásir, svo sem fyrr
getur.
í fyrradag fóru flugvélar
bandamanna í 1200 árásarferð-
ir á ýmsar stöðvar Þjóðverja,
en flugvélar Þjóðverja í um
300 árásir. Má af því marka
yfirburði bandamanna í lofti
yfir Ítalíu-vígstöðvunum. Aðr-
ar fregnir eru fáar frá Ítalíu.
Tilkynnt er, að pólsk hersveit
berjist nú með bandamönnum
á Ítalíu. Herdeild þessi gat sér
frægðarorð í orrustunum um
Tobruk á sínum tíma.
Fyrsli norski slúdenl-
Ini látinn í þýzkum
fangabúðum.
REGNIR hafa nú borizt
•E- London, að fyrsti stúdent-
inn, af þeim, sem Þjóðverjar
handtóku í Noregi, sé nú lát-
inn í þýzkum fangabúðum.
Blaðið „Aftenposten“ í Oslo
skýrir frá því, að læknaneminn
Gunnar Thorbjörn Larsen hafi
látiza 8. þ. m. í fangabúðum í
Mulhausen í Elsass. Var sagt,
að banameinið hafi verið
lungnabólga, en það er alvana-
legt, er Norðmenn hafa látizt
í fangabúðum.