Alþýðublaðið - 18.02.1944, Side 5
Fösíudagur 18. febrúar 1944.
«LÞmmuoiö
4
Himmler yfirböðull Hitlers.
Myndin var tekin, þegar Hitler var að óska yfirböðli sínum til
hamingju með hið nýja embætti, innanríkismálaráðherra-
embættið, sem ráunverulega hefir gert hann alvaldan yfir
lífi og öryggi hvers einasta Þjóðverja.
GÍÍEIN ÞESSI, sem er eftir
Alexander Abusch, f jall
ar um Heinrich Himmler,
yfirböðuíl íiitlers. Himmler
hefir eigi alls fyrir löngu ver-
ið skipaður innanríkisráð-
herra Þýzkaiands og hefir
það hlutverk með höndum að
berja niður sérhvert viðnám
gegn einræði nazistanna.
Greinin er hér þýdd úr tíma-
ritinu World Digest.
irbúningi eða þegar hafinn.
Hinn 30. dag júnímánaðar anð
1934, var Ernst Röhm og flestir
leiðtogar SA myrtir. Heinrich
Iiimmler, stjórnaði morð-
sveitum SS-mannanna, til þess
að losa Hitler við hættulega
keppinauta. Á lista þeim, er
hann hafði fyrir framan sig á
skrifborði sínu, gat efst að líta
nafn Gregors Strassers, sem
hann hafði brosað við forðum
daga og nefnt hafði hann ,,Hein
rich prúða“. Þar var einnig von
Schleicher hershöfðingi ofar-
lega á blaði. Báðir guldu i>eir
vanmat sitt á Himmler með lífi
sínu. Þegar hinir fyrri fétagar
TÍU DÖGUM fyrir uppgjöf
ítalíu var foringi þýzku
svartstakkanna og Gestapo,
skipaður innanríkisráðherra
Þýzkalands. Þetta ber þess
glöggt vitni, að Heinrich Himm
ler, sem er frægastur allra
Þjóðverja fyrir grimmd, dýrs-
eðli og blóðsúthellingar, má sín
mikils meðal nazista, ef til vill
flestum öðrum valdhöfum hins
þriðja ríkis fremur. Um tíu ára
skeið hefir maðurinn í svarta
einkennisbúningnum, unnið af
kappi og kostgæfni að því, að
skipuleggja morð og aftökur og
önnur svívírðileg hryðjuverk.
Ógnaverk Gestapo hafa skapað
þýzku þjóðinni slíkan ótta, að
hann mun eiga eigi hvað
minnstan þátt í því, að ekki hef
ir þegar komið til blóðugrar
byltingar í Þýzkalandi gegn
kúgun og harðstjórn Hitlers og
skósveina hans. Þjóðverjum er
um það kunnugt, hvaða örlög
þeim hafa verið búin, sem
hnepptir hafa verið í dýilissur
og fangabúðir nazista. En Ge-
stapo og svartstakkarnir hafa
ekki látið sér nægja ógnaverk
sín heima í Þýzkalandi. Þeir
bafa efnt til jafnvel enn ægi-
legri og svívirðilegri morða og
hermdarverka meðal Rússa,
Pólverja, Tékka, Júgóslava,
Grikkja, Frakka, Belga, Hol-
lendinga, Norðmanna og Gyð-
inga. Valdhafarnir þýzku hafa
látið þess getið, að því fleiri
menn þessara þjóða, sem teknir
væru af lífi, því betra, því að
þjóðflokka þessa ætti að upp-
ræta af jörðunni. En nú er blóð
þessa fólks að koma yíir þýzku
þjóðina í heild.
Nazistunum stendur ógn af
ótta þýzku þjóðarinnar við loft-
árásir bandamanna. Þeir óttast
það, að loftsóknin verði til þess,
að þegnar hins þriðja ríkis rísi
upp í dirfð þeirri, sem örvænt-
ingin skapar, og steypi einræði
nazistanna af stóli. Með illu
skalt illt út reka. Valdhafarair
hyggjast sigra ótta þjóðarinnar
með því, að skapa henni nvian
ótta — óttann við snöruna og
gálgann, ef svo mætti að orði
komast. Það er Heinrich Himm-
ler, sem hefir framvæmd þessa
með höndum. — Því fer þó
fjarri, að hann virðist v ira
grimmdarseggur, en það er
meira en hægt er að segja um
suma skósveina Hitlers. Hann
hefir aldrei vérið til strí'ðshetja
talinn. Iiann var ekki sæmdur
járnkrossinum í heimsstvrjöld-
inni hinni fyrri. Hann gat sér
heldur ekki orðstír sem víga-
garpur í sjálfboðaliðasveitun-
um eftir 1918. Hann tók aldrei
þátt í götubardögum við þýzsa
verkamenn. Himmler beitti öðr
um brögðum til þess að komast
til frama og valda.
Ef dæma skyldi eftir iitiit-
inu, gæti maður ætlaö, að
Himmler væri hinn heiðvirð-
asti sómamaður. Augu hans
dyljast löngum bak við gler-
augu í fornlegri umgerð- Gre-
gor Strasser, sem skipuiagði
flokkinn og varð leiðtogi hans
eftir uppreisnina árið 1923,
gerði Himmler, er hann nefndi
venjulega „Heinrich prúða“,
að einkaritara sínum. Hann
uppgötvaði hæfileika þessa
unga ' manns, sem verið hafði
fánaberi í þýzka hérnum og
síðar háskólastúdent.
ARIÐ 1927 var Himinler
gerður að æ'ðsta manni
SS-sveitanna, og árið 1929 varð
hann yfirmaður þeirra. Um þær 1
mundir voru SS-sveitirnar að- |
eins lífvörður Hitlers, töldu ekki
nema nokkur hundruð menn og
voru aðeins hverfandi híuti
stormsveitanna (SA). Himmler
lagði um þ.essar mundir stund
á alifuglarækt skammt frá
Múnchen, og var alls óþekktur
maður í Þýzkalandi. Hinn raun-
verulegi frami hans hófst ekki
fyrr en árið 1932 og þá í hinu
fræga og íburðarmikla gisti-
húsi, Keiserhof í Berlín, s».-m
Hitler hafði gert að aðaíbæki-
stöð sinni. Názistaflokkuri m
var þá illa á vegi staddur. TTar,n
hafði misst meira en tvær mill-
jónir atkvæða í kosningunum,
sem fram fóru í nóvember oán ■
uði sama ár. Gregor Strasser
vildi að flokkurinn tæki sæti í
ríkistjórn Kurts von Schleich-
ers hershöfðingja, en Hitler vor
því mjög andvígur. Algert cng-
þveiti ríkti, og Hitler vissi
varla, hvað til bragðs skyldi
taka. Þá var það, sem Heinrieh
'Himmlers sveik Strasser og gekk
á mála hjá Hitler og lét honum
í té öll leyndarmál hins fyrra
húsbónda síns, sem hann átti
svo mikið upp að unna. Þannig
varð hann yfirnjósnari flokks-
ins. Það kom í hluta hans að
afla allra leyniblaða og skjala
annarra áhrifamanna hans. Hitl
er hafði eignazt ómetanlegt
verkfæri — mann, sem einskis
sveifst við að reka erindi hans.
Eftir að Hitler hafði broíizt
til valda, varð Himler lögreglu-
stjóri í Múnchen. Þegar Göring
tiinefndi sjálfan , sig yfirmann
leynilögreglunnar í Prússlandi,
gerði Hitler það að skilyrði, að
Himmler yrði yfirmaður Ge-
stapo í Byern, Schwaben, Bad-
en, Hesse og öðrum þýzkum
héruðum. Ernst Röhm, sem um
þessar mundir var yfirmaður
SA og SS, og hafði yfir Himml-
er að segja, studdi að vegsauka
hans, vegna þess að hart’i taldi
sér það ávinning í samkeppn-
inni við Göring. Ari síðar kom
til ’kasta Ilimmlers. Hitler hafði
þá komizt að samkomulagi við
yfirmenn Reichswehr, og mikill
vígbúnaður var þá ýmist í und-
hans og stjórnmálaandstaiðíng-
ar voru rnyrtir, þegar aftök-
úrnar í Stadelheímfangelsinu
og herskólanum í Lichterfelde
fóru fram, hvíldi skuggi Himm-
lers yfir þeirn ógnaverkum.
G ÖRING, sem var önnum
kafinn í skrifstofu flughers-
ins, reyndi árangurslaust að
koma í veg fyrir það, að Him-
ler yrði yfirmaður Gestapo í
gervöllu Þýzkalandi. Árið 1938
töldu SS-sveitir Himmlers alls
270 000 manns. Allt voru þetta
menn, sem voru óðfúsir þess
að hlýðnast þegar í stað sér-
hverri fyrirskipun yfirboðara
síns. Þeirhöfðuhlotiðmiklaþjálf
un í morðun og hryðjuverk-
um við það að hrífa andstæðinga
Hitlers og Gyðinga úr tölu lif-
enda. Atburðir þeir, sem gerzt
höfðu í fangabúðunum í Dachau,
Buchnwalde, Oranienburg,
Fúhlsbúttel og Esterwege báru
þess gleggst vitni, að þeir kunnu
dável til starfs síns. SS-menn
skipuðu helztu tignarstöðurnar
í Gestapo, og sérstök SS-sveit
hafði verið stofnuð til þess að
líta eftir Gestapo sjálfri. Morð-
vargar leynilögreglunnar ganga
þess ekki duldir, að það er haft
strangt eftirlit með þeim daga
og nætur. Hvenær, sem deilur
risu með áhrifamönnum nazista
flokksins, eða skoðanamunar
gætti með Hitler og hershöfðingj
unum, voru hinar vopnuðu sveit
ir Himmlers jafnan reiðubúnar
að ska-kka leikinn foringjanum
í vil. ef með þætti þurfa. Eftir
að styrjöldin hófst hefir nafn
Himmlers verið tengt emhverj-
um ógnlegustu fjöldaaftökum,
sem veraldarsagan kann frá að
greina. Nú eru hinir 700 000 SS-
(Prh. á 6. síííu.)
ANNEf. A
Písaturn og Píslarturn. Þegar turninn hallaðist ekki, en
Pall hallaSist. Tonlistarhöllin — og áhugmennimir. —
Reykingar í frystihúsi. — Símanúmer og ábyrgðarbréf.
PÁLI, ÍSÓLFSSON, skólastjóri
Tónlistarskólans, gaf í fyrra-
dag biaðamönmim ömurlega lýs-
ingu á húsnæðisvandræðum Tón-
listarskólans. Hann er, eins og
skýrt var frá í blöðunum í gær,
til húsa í Hljómskálanum, „sem
enginii vill nú kannast við að
hafa byjíld'S sagði Páil. „Einu
sinni, er ég var að labba í skólann
viríist mér allt í einu að skálinn
væri farinn að hallast, og ég var
farinn að hugsa um, að þá væri
| hann víst á Ieiðinni með að hrynja,
! en svo koni í ljós að þetta var
| rangt. Það hefer víst verið ég sjálf
ur ,sem hallaðist. Ég var farinn að
hugsa um að hann gæti orðið
furðuverk eins og skakki turninn
í Písa, en hann er ekkert slíkt
furðuverk. í stað þess að geta kall-
ast Písaturn, hefur hann reynzt
okkur Pislarturn.“
ÞA0 ER ÖMURLEGT til þess
að hugsa, að eitt tilkomumesta og
bezta menningarstarf, sem nú er
unnið með þjóðinni, skuli þurfa að
búa við önur eins skilyrði og tón-
listarfræðslan gerir nú. Verð ég að
endurtaka það, að eftir að hafa
kynnzt þeim skilyrðum, sem hún á
við að búa, þá undrast ég þann
mikla árangur, sem náðst hefur.
Þar fýrir er að þakka 11 áhuga-
mönnum, sem á undanförnum ár-
um, af einskærri ást á tónlistinni
og ódrepandi áhuga, hafa urniið að
þessum málum.
RAGNAR JÓNSSON sagði við
blaðamennina: „Við höfum ákveð-
ið að byggja Tónlistarhöll." Og ef
ég þekki hann og þá félaga rétt,
þá er það sama sem gert, sem þeir
hafa ákveðið að gera. En þessi
Tónlistarhöll verður að vera mik-
ið og veglegt mannvirki, svo að
hún geti uppfyllt vaxandi þarfir
tónlistarlífsins í framtíðinni, og að
því verðum við líka öll að vinna
' ásamt Tónlistarfélaginu. Bygging
Tónlistarhallarinnar er ekki einka
mál félagsins, heldur sameiginlegt
menningar- og hagsmunamál allr-
ar íslenzku þjóðarinnar.
„KÁRI“ skrifar: „Við erum hér
nokkuð margir karlar, sem vinn-
um hér við frystihús. — Aðgerð,
flökun og frystingu, oft nætur og
daga, —,svo það er ekki að undra
þótt okkur langi stundum í tóbak
— og höfum oft kveikt okkur í
vindling eða pípu. Nú fyrir nokkru
hefur hitzt svo á, að skrifstofu-
maður, sem vinnur við sama fyrir-
tæki, hefur komið og gengið um
vinnusal, og um leið bannað reyk-
ingar, bæði í vinnusal, þar sem
við flökum og pökkun fer fram,
samt í sal þeim, sem frystingin
fer fram og látið er í kassa.“
„NÚ VILJUM VIÐ biðja þig
Hannes minn, að géfa okkur vís-
bendingu um, hvort nokkuð sé til
fyrir því, að við megum ekki fá
okkur reyk, þótt við séum við
þessa vinnu, í stórum sal, og vænt-
um við að fá svar þitt hið fyrsta.“
I
ÉG TEL REYKINGAR i vinnu-
tíma mjög hvimleiðar — og við
vandasaman iðnað eru þær hættu-
legar. Hins vegar er ég ekki svo'
kunnugur þessum iðnaði, að ég
geti dæmt um það, hvort reyking-
ar séu hættulegar fyrir hann.
KUNNINGI MINN skrifaði mér
bréf í gær, og kvartar hann mjög
undan því, að ábyrgðarbréf skuli
ekki vera borin út um bæinn.
Hann heldur því fram, að alls slað-
ar erlendis sé þetta gert, nema hér
í Reykjavík, og telur hann það
mjög miður farið. Sér hann ekki
hvers vegna póstþjónar, sem beri
bréf út, geti ekki haft meðferðis
kvittanabækur, sem viðtakendur
geti kvittað í fyrir móttöku á-
byrgðarbréfa. Ég vil taka undir
þetta, og vænti þess að póststjórn-
in taki þetta til athugunar.
ÞÁ SKRIFAR annar mér bréf,
þar sem hann vill fá því fram-
gengt að slökkvistöðin fái síma-
númer Landssímans: 02, og lög-
reglustöðin, símanúmer ungfrú
klukku: 04. Telur hann þetta
nauðsynlcgt, og hafi meðal annars
komið í ljós við bruna Hótels ís-
lands, að hver sekúhda sé dýrmæt,
þegar voða ber að höndum. Þetta
er rétt athugað, en ekki er mér
kunnugt um, hvort betta er hægt,
af tæknislegum ástæðum.
Haijnes á horninn.
á mánuði fáið þér vinsælasta, læsilegasta ®.g
bráðum útbreiddasta dagblaðið hér á landi sent
heim til yðar hvar sem er í bænum en fyrir 4 kr.
hvar sera er úti á landi.
\
innslaiir
fyrirliggjandi.
Lífsiykkjabúðin h.f.
Hafnarstræti 11. — Sínai 4473.