Alþýðublaðið - 04.03.1944, Page 5
4LPYÐMBUOW
5
l*angardagur 4. marz 1944.
Menn, sem ætlað er mikið hlutverk í stríðslok.
Myndin sýnir Herbert H. Lehman, forstjóra hjálpar- og viðreisnarstofnunar hinna samein-
uðu þjóða (lengst til vinstri), sem ætlað er mikið hlutverk í ófriðarlok. Með honum sjást
á myndinni amerísku stjórnmálamennirnir Sol Bolom ( í miðið) og Charles A. Eaton (til
hægri), sem báðir eiga sæti í utanríkismálanefnd fulltrúadeildarinnar á þingi Bandaríkja-
manna.
Siðari greín:
stríðsmisserið.
Köld og dimm borg, hálfsoltið, skapvont og hóstandi
fólk — Þekking á rafmagnsfræði — Niður með sólgler-
augun — Skrök um hlaupársdaginn og svar til stúlku,
sem vantar hlýju.
Níunda
EF VÉR nú víkjum aftur til
Evrópu og athugum hlut
lausu löndin, kemur í ljós, að
aðstaða þeirra hefir lítið
breytzt á yfirborðinu. Nýlega
var gerð loftárás á .ísland.
Manntjón varð þó ekki. Að-
staða Danmerkur, sem að vísu
var hernumið land, en þó hlut-
laust samkvæmt alþjóðalögum,
hefir stórversnað. Þjóðverjar
meðhöndla nú Dani sem her-
numda óvinaþjóð. Morðið á Kaj
Munk og fleiri Dönum sýna, að
Danir hafa misst allt frelsi og
sjálfstæði í innanlandsmálum,
því- að morðingjunum hefir
ekki verið refsað. Svíþjóð og
Sviss hafa haldið sjálfstæði
sínu, en verða að hafa öflugt
lið undir vopnum til að verja
landamæri sín. Spánn er einnig
hlutlaus, en Spánverjar hafa
hjálpað Þjóðverjum eftir
megni. Portúgalsmenn hafa aft
ur á móti hallazt að banda-
mönnum og látið þeim í té bæki
stöðvar á Azoreyjum, svo sem
fyrr er getið. Tyrkir er einnig
vinveittir bandamönnum. Þeir
geta þó tæplega horfið frá hlut
leysi síriu, meðan Þjóðverjar
hafa fjölda eyja við strendur
landsins á valdi sínu, og Búlgar
ar ógna landamærum þeirra í
Evrópu. Búlgaría er einnig að
nokkru leyti hlutlaus. Búlgar-
ar hafa engan her sent til Rúss
lands, eins og hinar leppþjóðir
Hitlers. En þar sem Búlgarar
hafa tekið þátt í hernámi Grikk
ands og Júgóslavíu, og ríkið er
raunverulega stríðsaðili, hafa
bandamenn hvað eftir annað
gért loftárásir á höfuðborg
landsins. Á næstu mánuðum
mun koma í ljós, hvorn hern-
aðaraðilann Búlgarar styðja í
úrslitaátökunum.
Ef litið er á ástandið í heild,
v^rður ljóst, að aðstaða banda-
manna hefir batnað á síðasta
misseri, en aðstaða möndulveld
anna versnað. „Möndullinn“
hefir brotnað við uppgjöf ítala.
Þjóðverajr standa nær einir í
Evrópu. Smáþjóðirnar, sem eru
bandamenn þeirra, eru orðnar
dauðþreyttar á stríðinu. Japan-
ir eru langt í burtú og geta
enga beina hjálp veitt Þjóð-
verjum. Það er nú enn ósenni-
legra en áður, að þeir hefji
stríð gegn Rússum í Síberíu.
Aðstaða Þýzkalands virðist því
vonlaus, og margir hafa talið,
að Evrópustyrjöldinni myndi
verða lokið á árinu 1944. Höf-
undur þessarar greinar getur
ekki fallizt á þá skoðun.
Þýzka hernaðarvélin er sem
sé enn ákaflega öflug. Þetta
kom m. a. í ljós, er ítalir gáfust
upp. Þjóðverjar hernámu þá á
fáum dögum öll þau svæði á
ílalíu og Balkanskaga, j;ar sem
ítalir voru áður til varnar og
halda enn flestum þessara
svæða örugglega. Og það kom
í ljós í innikróunarorrustunni
við Tsjerkassi, að baráttuþrek
þýzkra hermanna er enn óbil-
að. Hin tíu innikróuðu herfylki
höfnuðu tilboði Rússa um upp-
gjöf með sæmd og börðust til
hinzta manns. Fangar þeir, sem
Rússar tóku þar, munu flestir
hafa verið særðir.
En hvers vegna halda Þjóð-
verjar áfram vonlausri baráttu?
Þannig spyr margur. Fyrir
misseri síðan ræddi greinarhöf.
þessi mál rækilega og er litlu
við það að bæta. Þjóðverjar
vonast eftir kraftaverki, nýju
leynivopni, stríðsþreytu og
sundurlyndi bandamanna.
Þjóðverjar hafa tekið í notk
un nýtt' leynivopn, sem sé
„ragettusprengjurnar", sem
einkum koma að haldi í loft-
bardögum. En hvorki þetta
vopn né aðrar nýjungar hafa
valdið neinum straumhvörfum
í styrjöldinni. Segja má jafn-
vel, að baráttuaðferðirnar lík-
ist nú meir því, sem var í fyrri
heimsstyrjöldinni heldur en
því, sem tíðkaðist 1939—1940.
Steypiflugvélar og skriðdrekar
hafa ekki lengur úrslitaáhrif
eins og í bardögunum í Pól-
landi og Frakklandi, því að
menn hafa fundið upp áhrifa-
mikil varnartæki gegn þeim.
Árangur þann, sem Rússar hafa
náð í sókn sinni, eiga þeir mest
að þakka stórskotaliði sínu,
sem ryður fótgönguliðinu braut
með ákafri skothríð. Bardagarn
ir milli Neapel og Rómaborgar
líkjast að ýmsu leyti kyrrstöðu
hernaöinum í fyrri heimsstyrj-
öldinni. Mjög er hæpið, að gera
ráð fyrir nýjum vopnum eða
hernaðaraðferðum, er ráði úr-
slitum.
Þá er aðeins eftir vonin um
stríðsþreytu og sundurlyndi
meðal bandamanna. Deila
Rússa og Pólverja, sem enn er
óútkljáð, gefur þessum vonum
byr undir báða vængi. Þjóðverj
ar búast ef til vill við því, að
Rússar taki aftur svæði þau, er
þeir tóku af Pólverjum 1939 og
hætti þá styrjöldinni eða hætti
að beita sér í henni, og láti vest
urveldin ein um að berjast,
gegn Þjóðverjum. Þetta myndi
gera Þjóðverjum kleift að
safna miklu liði á vesturströnd
Evrópu, svo að innrás væri ó-
gerleg. Úrslit styrjaldarinnar
yrði þá jafntefli.
*
Áreiðanlegt er, að banda-
menn munu skapa nýjar víg-
síöðvar í Vestur-Evrópu. For-
ustumenn vesturveldanna hafa
einum rómi lagt áherzlu á það,
að ráðizt verði á Þýzkaland að
vestan, austan og sunnan. Enn
þá vantar vesturvígstöðvarnar.
Menn eru að brjóta heilann um,
hvar og hvenær þær verði
myndaðar. Iiér verður ekki
drepið á hinar ýmsu tilgátur
um þetta efni. Aðeins skal þetta
tekið fram: Árás á norðurströnd
Frakklands virðist liggja næst.
Vesturveldin eru þar alls ráð-
andi á sjó og í lofti. Flotar og
flugherir bandamanna eiga svo
stutt að fara frá meginstöðvum
sínum, að þeir gætu veitt inn-
rásarhernum injög öflugan
stuðning. Á hinn bóginn eru
auðvitað varnir Þjóðverja lang
öflugastar á Ermarsundsströnd
Frakklands. Þjóðverjar hafa
víggirt alla vesturströnd Ev-
rópu frá Nordkap til landa-
mæra Spánar. Það er hinn svo-
nefndi ,Atlantshafsvarnaveggur‘
Þessi veggur er auðvitað ekki
jafn sterkur alls staðar. Hann
er auðvitað traustastur, þar
sem innrósarhættan er mest, þ.
e. a. s. á norðurströnd Frakk-
lands. Ekki er allt unnið, þó að
bandamenn nái „brúarsporði“
á meginlandinu, eins og reynsl-
an frá Salerno og Anzio sýnir.
Á bak við varnarlínuna á
ströndinni eru aðrar varnar-
línur, sem hægt er að hefja
gagnárásir frá.
Öðru máli er að gegna, ef
bandamenn setja um líkt leyti
lið á land á mörgum stöðum
og neyða þýzku herstjórnina til
áð dreifa kröftum sfnum. Marg
Framhald á 6. síðu.
VITANLEGA er ég fyrir löngu
örðinn alveg grallaralaus,
eins og þið, yfir rafmagnsvand-
ræðunum. Fyrr má líka rota en
dauðrota. Borgin var köld og
dimm, fólkið var úrillt í skapi, hálf
soltið og hóstandi í stybbunni af
olíuvélunum og primusunum, og
hrósuðu þeir þó liappi, er áttu slík
apparöt til þess að hita sér kaffi-
sopa eða velgja mjólkursopann
ofan í börnin, því að varla var
hægt að stinga upp í þau mjólk-
urmola, en svo frosin var mjólk-
in, þar sem hún var geymd yfir
nóttina í kæliskápum.
ÉG HELD að allir hafi tapað á
rafmagnsskortinum, nema Ríkið.
Menn leiddust út í það að fá sér
neðan í því, enda voru einkenni-
lega margir fullir þessa dimmu og
köldu plágudaga. Þið vitið líka, að
menn verða stundum ótrúlega upp
fyndingasamir, þegar þeir fá sér
neðan í því, enda bar nú sérstak-
lega mikið á slúðursögum og
flúgufregnum. Innrás var gerð í
Frakkland og önnur í Noreg — og
Finnar sömdu frið. Þetta var al-
talað — og ekki gátu blöðin leið-
rétt, því að þau voru bundin við
kaldar prentsmiðjurnar.
ÉG HELD að þrátt fyrir illt skap
manna og allmikinn drykkjuskap,
hafi ég aldrei orðið var við jafn-
mikla þekkingu á rafmagnsfræði,
og þessa hræðilegu tvo daga. All-
ir vissu ráð — og í munnum
manna var rafmagnsstjóri og allir
aðstoðarmenn hans mestu aularn-
ir í þessum rafmagnsmálum. Ég
heyrði ákaflega mörg ráð og ætti
eiginlega að skrifa þau upp og
spyrja Helga Hermann, hvort
ekki væri hægt að fá þau gefin
út sem handbók Iðnsambandsins
í rafmagnsfræði. Það er svo sem
von, að menn reyni að gera sér
grein fyrir ástæðunum og leggi
höfuðin í bleyti til að finna leið
út úr vandræðunum, þegar önnur
eins ósköp dynja yfir.
BLESSAÐUR SKKIFAÐU, sögðu
allir —■ og ég er að skrifa. En ef
ég ætti að skrifa allt, sem við mig
var sagt, þá yrði það allt of langur
pistill, en líkast til skemmtilegur.
Ég nenni þó ekki að skrifa það
allt upp, því að ég er enn vondur
í skapi og mér er enn kalt.
ÉG SÉ að bæjarstjórnin hefur
verið að samþykkja að láta sér-
fræðinga rannsaka þessar plágur
okkar. Hvaða sérfræðinga? Standa
ekki sérfræðingar við hvert ein-
asta apparat í rafmagninu — og
hvernig er reynslan? Ætli að það
sé ekki bezt að láta allt veltast
og kútveltast. Við skulum hugga
okkur við það, að við verðum þá
áreiðanlega við og við ofaná!
EF TIL VILL undrist þið yfir
því, að ekki séu sagðar fréttir sem
ef til vill gerast og telja verður
til tíðinda jafnvel hér — og þó að
þau hafi ekki verið talin nein sér-
stök tíðindi hér fyrrum, en svona
er allt öfugsnúið hér um þessar
mundir — og allt verður maður
að sætta sig við.
ÞEGAR ÉG FEKK tilkynning-
una um það, að við ættum að fara
að breyta klukkunni, fannst mér
einhvern veginn að það væri farið
að vora, ég fór því að leita að sól-
gleraugunum mínum, sem búin
eru að liggja niðri í skrifborðs-
skúffunni minni í ólund og svarta
myrkri síðan i fyrra sumar. Ég
fann þau og lagði þau á skrif-
borðið mitt og leit hlýlega til
þeirra við og við. Nú hef ég
stungið þeim aftur niður — og
guð má vita, hvort ég tek þau
aftur fram næstu þrjá mánuðina.
Á HVERJU sem gengur er mann
leg náttúra allt af eins. Ég fekk
í miðju rafmagnsleysinu, bréf frá
ógiftri stúlku, sem er skrifað af
fullri og blákaldri — og saklausri
alvöru. Það er svona: „í dag er
hlaupársdagur. Mig langar til að
spyrja þig um svolítið, góði Hann-
es minn, og ég vona að þú sért
ekki eins merkilegur með þig og
Víkverji, þó að bréfið sé kannske
illa samið. í allan dag hef ég heyrt
fólk vera að segja, að þetta sé eini
dagurinn, sem stúlkur hafi rétt til
að biðja sér manns. Það er sagt
að þetta sé eini dagurinn sem þetta
sé leyfilegt samkvæmt lögum. Ef
við notum ekki tækifærið nú, þá
komi það ekki aftur fyrr en eítir
5 ár.“
„MÉR FINNST ÞETTA vera ó-
réttlæti — og ég skil ekkert í því
að hafa lögin svona. Ég hélt líka
að það væru kvenréttindi. En
hvaða jafnrétti er svona lagað?
Piltarnir mega alltaf vera að biðja
sér stúlku, en við megum ekkert
gera nema bíða, bara þennan eina
dag á 5 ára fresti. Mér finnst satt
að segja, að við ættum að hafa
rétt til að biðja okkur hvaða
manns sem er og hvenær sem er.
Góði Hannes minn segðu mér
hvort lögin eru svona vitlaus."
ÞÚ ERT SAKLAUS og góð
stúlka, væna mín — og það er
sjálfsagt að svara þér. Lögin eru
alls ekki svona-. Þetta er bara plat.
Þú mátt biðja þér hvaða stiáks
sem er og hvenær sem er — og
láttu ekkert aftra þér í því. En
reyndu bara að velja vel, því að
margir strákar eru svoddan gal-
gopar — og ekkert að marka þá.
Það er von að þú sért gröm yfir
þessum skröksögum um hlaupárs-
daginn. Hann er annars fjórða
hvert ár, elskan, en ekki fimmta
hvert ár. Það er von að þú sért
kvíðin í kuldanum og rafmaghs-
leysinu. Það er engin furða, þó að
þú viljir reyna að útvega þér
hlýju og yl einhvers staðar — og
hlýjan er miklu meiri þegar við
erum tvö. Svona er nú það — og
Hannes skrökvar ekki að þér.
Hannes á horninw.
Fyrir 6 krónur
á mánuði fáið þið bezta og læsilegasta dagblað lands-
ins og gildir það verð í Reykjavík og págrenni. Ann-
arstaðar 5 kr. (Ekki 4 kr., eins og misprentast hafði
í fyrri auglýsingu).
KAIIPIÐ ALÞÝÐUBLAÐH)