Alþýðublaðið - 11.03.1944, Page 2
a
Laugardagur 11. marz 1944.
Skýrsla sjédéms nú blrt fi bellds
Ótrúlegar misfellur á skipaeftir-
litinu með vélskipinu Þormóði.
AlHingí lýsir jtir vilja sinnm
til norrænnar samvinnn.
♦-------
Þingsályktunartiliagan sampykkt í
gær með 48 samhljóða atkvæðum.
ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA skilnaðarnefndar um þátt
töku íslands í norrænni samvinnu var samþykkt í sam-
einuðu þingi í gær með 48 samhljóða atkvæðum og afgreidd
sem ályktun alþingis.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Um leið og Alþingi gerir ráðstafanir til þess, að alda-
gömul frelsishugsjón þjóðarinnar um stofnun íslenzks lýð-
veldis rætist, ályktar þingið: að senda hinum Norðurlanda-
þjóðunum bróðurkveðjur og óska þeim frelsis og farsældar
og að lýsa yfir því, að það telur sjálfsagt, að íslenzka þjóðin
kappkosti að halda hinum fornu frændsemi- og menningar
böndum, er tengt hafa saman þjóðir Norðurlanda, enda er
það vilji íslendinga að eiga þátt í norrænni samvinnu að ó-
friði loknum.“
Útvarpið í Reykjavík
endurvarpar alheims
úfvarpssendingu.
UTVARPIÐ í Reykjavík mun
í dag klukkan 2 taka þátt
í alheims útvarpssendingu í til
efni af því að þrjú ár eru liðin
frá því að Roosevelt forseti und
irritaði láns og leigulögin. Frá
Washington tala brezki sendi-
herrann í Bandaríkjunum Hali-
fax lávarður; aðstoðar-utanríkis
ráðherra Edward Stettinius fyr
verandi yfirmaður láns og leigu
laganna; Raymond Graham
Swing fréttagagnrýnandi. Frá
London munu tala Sir Stafford
Cripps flugvélaframleiðsluráð
herra og Major General C. H.
Lee aðstoðarmaður Eisenhowers
hershöfðingja. Milton Bracker
fréttaritari New York Times
mun tala frá Algier; og frá
Ástralíu talar Herbert Evatt ut-
anríkisráðherra.
IJtvarpið hefst kl. 2 og mun
verða endurvarpað af næstum
öllum aðalútvarpsstöðvum
heims, sem ekki eru á valdi Þjóð
verja og Japana.
Orðsendtng tii Algýðuflokhs
manna:
Árskátið flokksfélap-
ins verlnr 25. @. m.
A HSHÁTÍÐ Alþýðuflokks
félags Reykjavíkur verð
ur haldin laugardaginn 25.
þ. m. Verður hún haldin í
Iðnó.
Til skemmtunarinnar verð
ur vandað, eins og frekast
eru föng á og geta flokksfé-
lagar nú þegar tryggt sér að-
göngumiða, fyrir sig og gesti
í ískrifstofu félagsins í Al-
þýðuhúsinu,. 6.. hæð,. sími
5020.
Aljringi frestað í dag
Kemur saman að
nýju 10. júní.
FUNDUM alþingis verður
frestað í dag. Hins vegar
verður það kvatt saman til funda
á ný 10. júní.
Forsætisráðherra, Björn Þórð
arson, bar fram svo hljóðandi
tillögu til þingsályktunar um
frestun á fundum alþingis:
„Alþingi ályktar að veita
samþykki sitt til þess, að fund-
um þingsins verði frestað frá
11. marz 1944, enda verði það
kvatt saman aftur eigi síðar en
10. júní næstkomandi.“
Nýr skíðahikar iil að
keppa um á skíða-
; mófi Reykjavíkur.
| i
VÁTRY GGIN GARSKRIF-
STOFA Sigfúsar Sighvats-
sonar hefir gefið silfurbikar, til
þess að keppa um á Skíðamóti
Reykjavíkur, Bikarinn heitir
Laugarhólsbikarinn eftir staðn-
um, þar sem Skíðaskáli íþrótta-
félags kvenna stendur. Verður
keppt um hann í svigi kvenna
og vinnur hann sú félagssveit
með þrem keppendum, er nær
skemmstum rástíma samanlagt.
Verður keppt um bikarinn í
fyrsta sinn á sunnudaginn, en
til þess að vinna bikarinn til
eignar, þarf að vinna hann þris-
var sinnum í röð eða fimm sinn-
um. alls.
Skíðafélag Reykjavíkur
ráðgerir að fara skíðaför upp á
Hellisheiði næstkomandi sunnu-
dagsmorgun. Lagt af stað kl. 9 frá
Austurvelli. Farmiðar seldir hjá
Miiller í dag til kl. 4 til félags-
manna, en 4 til 6 til utanfélags-
mánna, ef afgangs er.
Skipið fnllnægði hvergi nærri
settnm reglnm nm haffæri skipa.
.— .......-—
Þýðingarmesta kaSla skýrslunnar var stnngið
nndir stól i útdrætti dómsmáiaráðnneytisins
Sér dómsmálaráðherrann enga ástæðu
til aðgerða eftir skýrslu sjódóms?
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTEÐ hefir nú loksins til knúið,
birt skýrslu Sjódóms Reykjavíkur um rannsókn Þor-
móðsslyssins í heild, eins og dómsmálaráðherra varð að lofa
við umræður á alþingi fyrir nokkrum dögum, í tilefni af
fyrirspum Finns Jónssonar og Eysteins Jónssonar varðandi
útdrátt hans úr skýrslunni, fyrir rúmum hálfum mánuði
síðan.
Sýnir skýrsla sjódómsins, að öllum veiga mestu atrið-
unum úr henni hefir verið sleppt í útdrætti dómsmálaráðu-
neytisins og að rannsókn sjódómsins hefir leitt í ljós ótrúleg-
ar misfellur á skipaeftirlitinu með vélskipinu Þormóði, með
því að það hafi verið víðs f jarri því að fullnægja settum regl-
um hér á landi um haffæri skipa. Munu margir spyrja hvort
dómsmálaráðherrann sjái, eftir slíkar niðurstöður sjódómsins
ekki ástæðu til einhverra aðgerða á sviði skipaeftirlitisins.
Hér á eftir fer sá hluti af
skýrslu sjódómsins, sem dóms-
málaráðuneytið stakk undir
■stól, þegar það gaf út útdrátt
sinn úr skýrslunni fyrir rúmum
hálfum mánuði. En eins og all-
ir munu sjá, er það merkileg-
asti hluti allrar skýrslunnar.
Leturbreytingarnar í skýrsl-
unni eru gerðar af blaðinu:
„Af því, sem fram hefir komið
við rannsókn þessa, verður eigi
ráðið með neinni vissu, hverjar
hafi verið orsakir þess, að þetta
mikla sjóslys varð. Veðurofsinn
og sjólagið var slíkt, að það hefði
vel getað orðið skipinu að
grandi. Einnig kann skipið
hafa steytt á grunni, og það
hafi verið orsök slyssins. Eftir
því sem ráða má af síðasta
skeytinu frá Þormóði, var
mikill leki korninn að skipinu
seint að kvöldi þess 17. fe-
brúar, og kann skipið að hafa
farizt af þeim sökum einum,] )
en einnig geta þessar ástæður
allar, eða tvær saman, hafa
valdið slysinu. Um hinar tvær
fyrtöldu ástæður, sem kunna
að hafa valdið slysinu, er, eins
og komið var, eigi tilefni til
að fjölyrða. Hins vegar þykir
rétt að fara nokkrum orðum
um hið síðasttalda atriði, þar
sem það snertir það, hvort
skipið hafi verið þannig úr
garði gert, að varhugavert megi
teljast, og þá sérstaklega til
slíkra nota, sem um var að
ræða. Rannsóknin hefir og að
verulegu leyti f jallað um þetta
atriði og önnur í því sam-
bandi, eins og beiðni ráðuneytis
ins til sjó- og verzlunardóms-
ins, svo og meðfylgjandi bréf
Farmanna- og Fiskimannasam-
bands íslands, gáfu tilefni til.
Eius og drepið hefir verið
á hér að framan, var skipið
20 ára gamalt tréskip, þegar
það var keypt hingað til lands
á árinu 1939. Atvinnu- og sam
göngumálaráðuneytið veitti
samþykki sitt til að skipið yrði
keypt til skrásetningar hér á
landi, en að því tilskildu, að
skipaskoðun ríkisins teldi það
fullnægja ákvæðum um öryggi
skipa, enda var og, eins og á
istóð, engin heimild til undan-
þágu í þeim efnum skv. 20. gr.
1) Sbr. orðalagið: „eina vonin
er að hjálpin komi fljótt“.
laga um eftirlit með skipum
frá 11. júní 1938. Eftir þeim
gögnum, er liggja fyrir og öðru
því, er fram hafir komið í mál-
inu, verður ekki séð, að skipa-
skoðun ríkisins hafi frá upp-
hafi hreyft neinum athugasemd
um út af styrkleika skipsins eða
öðru ásigkomulagi þess í veru-
legum atriðum. Er þó ljóst, að
skipið fullnægði m. a. ekki á-
kvæðum íslenzkra reglna í svo
þýðingarmiklum atriðum sem
um styrkleika banda (þar á með
al um samsetningu þeirra), byrð
ings og húfsýja, en lögin um
eftirlit með skipum nr. 78, 1938
verða að teljast gilda um þetta
sltip, eims og áður segir, og þá
einnig þar að lútandi reglu-
gerð um smíði tréskipa (sbr. 2.
gr. roglugerðar nr. 100, 1936,
— isem einnig hefir verið látin
ná til tréskipa af sömu stærð
og Þormóður var, að breyttum
töflum). Fyrsta aðalskoðun á
trébol skipsins og búnaði hans
virðist hafa farið fram 10. jan.
(1940 iog samiskonar skoðun á öðr
um búnaði skipsins 12. s. m.
og eimvél þess 13. s. m. Auka-
skoðun á eimkatli fór fram
sama dag (sjá um þetta dóms-
skj'öl nr. 27—30).
Eins og. rekið er að fram-
an, var skipið í fyrstu að-
eins notað til veiða hér við
land og fi'Skflutninga til Eng-
land!s. Þegar á þessu tímabili
(maí—júnií 1939 til nóv. 1940)
verður vart nokkurs leka í skip
inu (sfor. framburði Árna’ Hin-
rikssonar, Sigurjóns Stefáns-
sonar, Eggerts Jóhannessonar,
Friðfinns Árnasonar og Ólafs
B. Björnssonar), og vegna leka
hætti skipið Englandsferðum í
nóvember 1940 (frambiurður
Ólafs B. Björnssonar).
í janúar 1941 er síðan byrjað
á hinum víðtæku breytinigum
á skipinu, sem að framan er lýst,
og aðallega voru í því fólgnar,
Frh. á 7. síðu.
2) Sbr. framburði Friðfinns
Árnasonar, Ólafs B. Björnssonar,
Eyjólfs Gíslasonar, Daníels Vig-
fússonar, Elíasar Guðmundssonar,
Peter Wigelund, Guðna Helgason-
ar, Erlings Þorkelssonar, Hafliða
J. Hafliðasonar, Flosa Sigurðsson-
ar, Magnúsar Guðmundssonar og
Péturs Ottasonar. — Sbr. og upp-
dráttinn á dómsskjali nr. 23.
Starf milli pinna-
nefndar i skóla-
niálnni.
Bannsahar hennsln og npp-
eldismál pjóðarinnar og
gerir tiilðgnr nm skipnn
peirra.
■p YRIR tæpum þremur
árum var samþykkt á
alþtngi ályktun þess efnis
að fela ríkisstjórninni að
skipa milliþinganefnd skóla-
fróðra manna til þess að rann
saka kenslu og uppeldismál
þjóðarinnar og gera tillögur
um skipun þeirra. Skyldi
stefnt að því að gera skólana
sem hagfeldasta, samræma
skólakerfið og ákveða betur
en nú sé starfssvið hinna
ýmsu skóla og sambandið
þeirra í milli.
Samkvæmt þessari þingsá-
lyktun skipaði kennslumálaráð-
herra sjö manna nefnd 30. júní
f. á. Voru það þessir:
Aðalbjörg Sigurðardóttir frú.
Ármann Halldórsson skóla-
stjóri. Ásmundur Guðmunds-
son prófessor. Ingimar Jónsson,
skólastjóri Jakob Kristinsson
fræðslumálastjóri, formaður.
Kristinn Ármannsson yfirkenn-
ari. Sigfús Sigurhjartarson al-
þingismaður. Ritari nefndarinn
ar var ráðinn Helgi Elíasson
fulltrúi fræðslumálastjóra.
Skömmu eftir skipun nefnd-
innar voru fyrstu fundir haldn-
ir og komið á verkaskiptingu
með nefndarmönríum. Unnu
nefndarmenn síðan um sumar-
ið að viðfangsefnunum hver í
sínu lagi eða tveir saman. En
fyrst um haustið hófust reglu-
bundin fundahöld allrar nefnd-
arinnar tvisvar í viku.
Um miðjan nóvembermánuð
tók Ásmundur Guðmundsson
við formannsstörfum í nefnd-
inni sökum lasleika Jakobs
Kristinssonar og var frá síðustu
áramótum skipaður formaður.
í stað fræðslumálastjóra, er
baðst um þær mundir lausnar
frá nefndarstörfum, var Helgi
Elíasson skipaður. ^
Störf nefndarinnar hafa fram
til þessa einkum verið í því
fólgín, að áthuga núgildandi
lög og reglugerðir um skóla
landsins og ræða breytingar
þær, er nauðsynlegar væru til
bóta. Jafnframt hefir nefndin
ritað þeim, er veita skólunum
forstöðu eða starfa við þá, og
borið undir þá ýmsar vanda-
spurninga,ir. Þá hefir nefndin
varið allmiklum tíma til athug-
unar á því, hvernig skólakerfi
landsins verði haganlegast fyr-
ir komið, hver skuli skóla-
skylduáriri og hvaða kröfur
beri að gera til skyldunámsins.
Of snemmt er þó að gera grein
fyrir niðurstöðum nefndarinn-
ar i þessum efnum, því að enn
geta þær breytzt og margt nýtt
komið til greina.
Allir þeir, sem nefndin hefir
leitað til, hafa brugðizt hið
bezta við tilmælum hennar og
skrifleg svör berast nú að við
ýmsum spurningum hennar.
Væntir nefndin þess að geta
átt sem bezt samstarf við máls-
aðilja, og treystir góðum skiln-
ingi þeirra og samúð, en hvort-
tveggja er mjög nauðsynlegt
skilyrði þess, að störf hennar
fái komið að varanlegum not-
um.
F. U. J.
heldur dansleik í kvöld kl. 9
í húsi Alþýðubrauðgerðarinnar við
Vitastíg. — Nýtt skemmtiatriði kl.
12! — Ný hljómsveit!