Alþýðublaðið - 11.03.1944, Page 3
Laugardagur 11. marz , 19#4.
AUÞYÐUaLAPJO
Norska kirkjan.
M SKEIÐ hefir verið til-
tölulega fátt tíðinda frá
Noregi. Svo hefir virzt, sem
Terboven, hinn illræmdi er-
indreki Hitlers og ,Gauleiter‘
í Noregi, svo og Réiess, lög-
regluforingi, umboðsmaður
Himmlers hafi tekið sér
nokkra hvíld frá ofsóknar-
störfunum og böðulshandverk
inu. Þetta er og eðlilegt,
menn þurfa hvíldar og hress-
ingar við eftir „vel unnin
störf“. Það hlýtur að reyna
eitthvað á taugarnar að of-
sækja menn og drepa, jafnvel
þótt nokkur leikni hafi þeg-
ar náðzt í þeirri iðju. Svo er
það og alkunna, að nístings-
kuldinn, sem þessi leiguþý
verða varir við, hvar sem þeir
fara, er lýjandi, og það er jafn
an erfitt að vi'nna verk, sem
vitað er, að unnið er fyrir
gýg-
EN NÚ virðast þessir dánumenn
haf fengið nóga hvíld og nú
hafa þeir enn farið á stúfana
til þess að gera enn eina til-
raunina til þss að lama mót-
stöðukraft menntastéttar
landsins, en að þessu sinni
hafa þeir þó ekki beitt eins
harðfengilegum ráðum og
böðlar þeirra virðast atvinnu
lausir í bili.
FYRIR ÖRFÁUM dögum bárust
fréttir um það, að Þjóðverj-
ar hefðu enn tekið til óspiltra
málanna, þar sem frá var
horfið síðast og beina þeir enn
spjótum sínum að klerkastétt
inni norsku, sem einna djarf-
ast hefir barizt gegn myrkra
öflunum. í Noregi voru 7
biskupar, sem allir höfðu lát-
ið af embætti, eins og al-
kunna er, en þár af var for-
ystumaður þeirra Berggrav í
haldi í húsi sínu, skammt frá
Osló, umsetinn lögreglu-
mönnum og öðrum sporhund-
um nazista. Þrír aðrir bisk-
upar hafa um langt skeið ver
ið hundeltir af flugumönnum
nazista, flæmdir hús úr húsi
og bannað að dvelja í biskups
dæmum sínum.
NÚ SÍÐAST barst fregn um það,
að biskupinn í Kristjánssands
biskupsdæmi, Maroni, hefði
verið komið fyrir á „örugg-
um“ stað, honum var gert að
setjast að í afskekktri byggð
í Vest-Agder-fylki. Þá hefir
þótt hlýða, að koma Skage-
stad, Stafangurbiskupi fyrir
á álíka afviknum stað í Roga-
landi. Báðir þessir biskupar
urðu að flýja biskupsdæmi sín
með mjög skömmum fyrir-
vara. Aðeins einn biskup,
Fleischer, hefir fengið að
dvelja heima í Bergen, en
hins vegar er honum strang-
lega bannað að flytja ræður
eða hafa hátt um sig.
AUK ÞESSARA manna hefir
þýzka leynilögreglan tekið
höndum prestinn Alex Jons-
son í Oslo, hvers vegna, vita
menn ekki. Þá hefir annar
prestur, Kvaase að nafni ver-
ið dæmdur í hálfs árs fang-
elsi fyrir að hafa farið lítils-
virðingarorðum um quislinga.
Má af þessu marka, hvernig
umhorfs er í kirkjumálum
i Noregs um þessar mundir. En
Hý sðkn Rðssa i
Hafa tebið samgðnga
Komnir norðar inn í útiiverfi
Tarnopol
RÉTTIR frá austurvígstöðv
unum í gær greindu frá
nýrri sókn og sigrum Rússa.
Hafa þeir náð á vald sitt hinrii
nikilvægu samgöngumiðstöð
Uman suðaustur af Kristinovka.
Stalin gaf út dagskipan í gær
og lét þess getið, að hersveitir
Konievs hershöfðingja hefðu
rofið varnir Þjóðverja á 180 km.
víglínu í Vestur-Úkraníu, sptt
fram nær 50 km. og hertekið
nær þrjú hundruð bæi og þorp.
Sókn Rússa við Krivoi-Rog held
ur áfram og barizt er af miklu
harðfengi á götunum í Tarnopol
Póllandi.
Hin nýja sókn Rússa í Vest-
ur-Úkraínu er í senn hröð og
hörð eins og bezt sést af því,
að þeir hafa þegar sótt þar
fram um 50 km. á um 180 km.
breiðri víglínu og náð á vald
sitt um 300 bæjum og þorpum
þar á meðal Uman, sem er mjög
vel víggirtur bær og mikilvæg
samgöngumiðstöð. Hafa Þjóð-
verjar goldið mikið afhroð í
bardögum þessum, og hefir
mikið herfang fallið í hendur
Rússum, meðal annars um 500
skriðdrekar.
Sókn hersveita Malinovskys
heldur áfram á vígstöðvunum
við Krivoi Rog. Eru hersveitir
Þjóðverja í Nikolaev og Kher-
son taldar í mikilli hættu.
Hafa Rússar unnið þýðingar-
mikla sigra á þessum vígstöðv-
um síðustu dægur og áttu í gær
kvöldi um 65 km ófarna til Ni-
kolaev. Miklar aurbleytur valda
því, að her Malinovskys á við
tilfinnanlega flutningaerfið-
leika að etja.
Rússar sækja einnig fast
fram vestast á hinni löngu víg-
línu í Suður-Rússlandi. Harð-
fengilegir bardagar eru háðir
á götunum í Tarnopol, og er
aðstaða Þjóðverja þar talin
næsta vonlaus. Einnig er talið,
að þess muni skammt að bíða,
að Proskurov og fleiri mikil-
vægar samgöngumiðstöðvar og
herstöðvar falli Rússum í hend-
ur. Rússar hafa uiftkringt borg-
ina Smerinka, sem er suður af
Winnitza.
Sóknin í Vestur-Ukrainu
Vígstaðan á suðurvígstöðvunum í Rússlandi áður en Rússar hófu
sókn sína í Vestur-Ukrainu á tveimur stöðum — í vesturátt til
Tamopol, sem er lítið eitt austur af Lwow (lengst til vinstri á
kortinu neðarlega) og í suðurátt til Uman (neðst á kortinu til
hægri).
Verður sendisvettar-
sbrtfsfofum S>jóð-
verja og Japana í
CORDELL HULL, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna,
átti í gær viðræðu við blaða-
menn. Staðfesti hann þar þá
fregn, að sendiherra Bandaríkj
anna í Dublin hefði farið þess
á leit við stjórn fríríkisins írska,
að sendisveitarskrifstofum Þjóð
verja og Japana í Dublin yrði
lokað. Þessi tilmæli Bandaríkj-
anna eru fram komin vegna ör-
yggis amerískra herflutninga.
Kvaðst Cordell Hull vona, að
hann gæti birt yfirlýsingu um
mál þetta í dag.
Ólafur ríbiiarii
Noregs á ferð
í Bandaríkjunum.
¥ ITLAR fréttir bárust frá
vígstöðvunum á Ítalíu í
gær. Var þó blíðviðri og sól-
skin, en Þjóðverjar gerðu eng-
O T OKKHÓLMSFRÉTTIR
^ greindu frá því í gær, að
mikil loftárás hafi verið gerð á
Tallinn, höfuðborg Eistlands, í
fyrrinótt. Komu flugvélarnar í
hópum inn yfir borgina og sá-
ust eldarnir, sem upp komu í
árásinni, alla leið til Helsing-
fors.
ar tilraunir til gagnárása.
Bandamenn hafa látið þess
getið, að þeir hafi skotið niður
115 þýzkar flugvélar og senni-
lega 58 að auki eftir að þeir
gengu á land við Anzio.
allt þetta, ofsóknir og eigna-
missir, lítilsvirðing og hrak-
yrði, hefir einungis orðið til
þess að skipa kirkjunnar-
mönnum enn þéttar saman í
baráttunni gegn ofbeldinu og
stigamennskunni, enda er vit-
að, að hefðu norskir þrestar
ekki tekið þá afstöðu, sem
raun hefir á orðið, hefði veg-
ur kirkjunnar ekki staðið með
þeim blóma sem nú. Kirkjan
hefir sennilega aldrei staðið
fastari fótum í Noregi en í
dag, aldrei verið í eins nánu
og innilegu sambandi við
hina stríðandi líðandi norsku
þjóð.
ANDI Kai Munks og Berggravs
lifir enn í Noregi og það bál
trúar og sannfæringar, sem
þeir hafa tendrað með hetju-
skap sínum, verður ekki
slökkt, þótt hrakmenni fari
nú með völd um stundarsakir.
^feLAFUR ríkisarfi Noregs er
um þessar mundir stadd-
ur í Bandaríkjunum. Þetta er
í þriðja sinni, sem hann sækir
Bandaríkin heim eftir að Nor-
egur varð styrjaldaraðili. Hann
hefir, ásamt Mörtu konu sinni,
dvalizt vikulangt í hafnarborg-
unum New Orleans og Mobile,
en er nú kominn aftur til Was-
hington. Ríkisarfahjónin heim-
sóttu hafnirnar og skipasmíða-
stöðvarnar þar, og í Deltaskipa
smíðastöðinni flutti Ólafur
ræðu, er átján þúsundir verka-
manna hlýddu á. Gerði hann
þeim grein fyrir þætti Noregs
sem einna hinna sameinuðu
þjóða í styrjöldinni, svo og
baráttu Norðmanna heima fyr-
ir. Hann flutti og ræður á
tveim öðrum skipasmíðastöðv-
um, sem þúsundir verkamanna
hlýddu á. Ríkisarfahjónin heim
sóttu þau norsk skip, er lágu á
höfninni, svo og norska sjúkl-
inga í sjúkrahúsum.
Ríkisstjórinn í Louisiana og
borgarstjórinn í New Orleans,
Vörn Finnlands von-
laus fyrir Hitler, ef
Rússar
Segja finnskSr her-
far5ng|ar.
LUNDÚNAFRÉTTIR í gær
'hermdu, að fréttir hefðu
borizt af þvþ að háttsettir
finnskir herforíngjar hafi gert
Hitleúgrein fyrir þeirri skoðun
sinni, að hernaðaraðstaðan í
Finnlandi væri með öllu von-
laus, éf Rússum tækist að ná
Narva á vald sitt.
í útvarpi á finnsku frá Lenin
grad hefir verið þannig að orði
komizt; að því fari alls fjarri,
að Finnar séu frjálsir meðan
þýzkur her dveljist þar í landi.
Einnig var þar fullyrt, að allt'
það, sem sagt hefði verið um
hætíu þá, er Fínnum stafaði af
Rússum, væri einber áróður,
sem hefði við engin rök að
styðjast.
"S3 REZKAR Lancasterflugvél-
ar gerðu í fyrrinótt harða
Ioftárás á flugvélaverksmiðjur
skammt frá Marseille í Suður-
Frakklandi. Brezkar Mosquito-
sprengjuflugvélar réðust og á
stöðvar í Vestur-Þýzkalandi.
Ástæðan fyrir því, að banda-
menn leggja nú svo mikla á-
herzlu á að gera loftárásir á
flugvélaverksmiðjur í Frakk-
landi og raun ber vitni, er aug-
Ijóslega sú, að Þjóðverjar þurfa
nú meira á þeim að halda eri
nokkru sinni fyrr eftir spjöll
þau, sem loftárásir banda-
manna á flugvélaverksmiðjur
í Þýzkalandi hafa valdið. í flug-
vélaverksmiðjunum, sem ráðizt
var á í fyrrinótt, voru fram-
leiddir sexhreyfla flugbátar,
svo og varahlutir í flugvélar.
Tunglskin var á, er árás þessi
var gerð, og flugu hinar brezku
flugvélar lágt inn yfir árásar-
svæðið. Engrar flugvélar er
saknað úr árásarleiðangri þess-
um.
ákváðu að halda hinn 29. febrú
ar hátíðlegan sem Dag Noregs.
Var borgin skrýdd fánum til
heiðurs hinum norsku ríkis-
arfahjónum.
Lðndganga bandamanna á eyjunni
Lizza úíi fyrir Júgóslavíu.
ÞJÓÐVERJAR létu þess getið í fréttmn sínum í gær, að
fimmtán hundruð manna hrezkt og amerískt landgöngu
lið væri komið til eyjarinnar Lizza úti fyrir ströndmn Júgó-
slavíu og heiti yfirmaður þess Churchill. Létu þeir þess og
getið, að þess myndi mega vænta, að lið þetta efndi til árása
á aðrar eyjar áður en langt um liði. Spá ýmsir því, að yfirmað
ur liðs þessa sé ef til vill Randolph Churchill kapteinn, sonur
Churchills forsætisráðherra, en hann var fyrir skemmstu
staddur í Júgóslavíu og átti þá m. a. viðræður við Tito hers-
liöfðingja.