Alþýðublaðið - 11.03.1944, Síða 6
AU>YOMBLACI£*
Laugardagur 11. marE 1944«-
Þýzk rakettubyssa.
Rakettubyssurnar eru eitt af ,,leynivopnum“ Hitlers, sem öllu
hafa átt að snúa aftur til hins betra fyrir hann í stríðinu, en
ekki hafa megnað það. Myndin var tekin, þegar verið var að
hleýpa af þýzkri rakettubyssu.
vísitölunnar.
Grundvöllur
Frh. af 4. síðu.
Rökstyður meiri hluti nefnd-
arinnar þessa tillögu með
þeirri niðurstöðu sinni (sbr yf-
irlitið) „að launþegar teknir
sem heild fái ekki fullar bætur
fyrir raunverulega húsaleigu-
hækkun með þeirri hækkun á
húsaleigu, sem nú er reiknað
með í framfærsluvísitölunni,“
Hins vegar telur meiri hluti
nefndarinnar „að óframkvæm-
anlegt er að leysa málið viðun-
anlega með ákvörðun einnar og
sömu vísitölu fyrir alla laun-
þega.“
Kauplagsnefnd er samrhála
meiri hluta nefndarinnar um
aðalniðurstöður herinar viðvíkj
andi húsaleigunni, að ekki verði
bætt úr því misrétti, er þeir eiga
við að búa, sem verða að leigja í
nýjum íbúðum með háa húsa-
leigu, með því að endurskoða
eða breyta grundvelli vísitöl-
unnar. (í þessu sambandi vill
Kauplagsnefnd geta þess, að
hún hefir þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir, mjög litlar upplýsing
ar getað fengið hjá húsaleigu-
nefnd um húsaleigu í nýjum
húsum). Hins vegar telur
lagsnefnd það fyrir utan verka-
hring sinn, að bera fram tillög-
ur til úrbóta í þessu efni. Meiri
hlutinn bendir á ákveðna leið,
en telur þó ekki sitt verkefni,
að bera fram tillögur um nán-
ari tilhögun um það efni. Auk
þess getur hann um grein eftir
Gylfa Þ. Gíslason dósent í
Kaupsýslutíðindum 1942 um
þetta mál, og mætti að lokum
benda á frumvarp, sem fram
hefir komið á alþingi um miðl-
unarsjóð húsaleigu. Kauplags-
nefnd sér ekki ástæðu til að
taka afstöðu til þessara til-
lagna, en vill fyrir sitt leyti
benda á, að búast megi við all-
mikilli óánægju ýmissa laun-
þega, sem búa við háa húsa-
leigu, með vísitöluna, á meðan
ekkert er gert til þess að leið-
rétta það misræmi, sem skap-
ast við hina háu húsaleigu í
nýjum húsum.
Að lokum vill Kauplags-
nefnd taka það fram, vegna
þess sem meiri hlutinn segir
(bls. 6—7) um grundvallar-
tímabil vísitölunnar, þ. e. fyrsta
ársfjórðung 1939, að hún telur
ákvæði 2. greinar gengislag-
anna frá 4. apr. 1939 um þetta
efni alveg ótvíræð, þar sem
beinlínis er tekið fram í grein-
inni, að Kauplagsnefnd skuli
„gera yfirlit yfir framfærslu-
kostnað í Reykjavík 1. dag
hvers mánaðar frá ársbyrjun
1939“. Þær efasemdir, sem
meiri hluti nefndarinnar lætur
þar í ljós um það, að ekki hafi
verið byggt þar á réttum grund
velli, eru því ekki á rökum
reistar, enda viðurkennir meiri
hlutinn sjálfur, að þetta atriði
sé umdeilanlegt. Skekkja sú,
sem meiri hlutinn telur að af
þessu geti hlotizt er % úr stigi,
sem vísitaTan ætti að lækka af
þessum ástæðum, ef réttar
væru, svo að hér er ekki um
þýðingarmikið atriði að ræða.
Reykjavík, 28. jan. 1944.
KAUPLAGSNEFND
(sign) Björn E. Árnason,
(sign) Eggert Claessen,
(sign) Jón Blöndal.
Samkvæmt ósk Kauplags-
nefndar hefi ég verið með við
samning framanritaðrar álits-
gerðar, og er ’henni því algjör-
lega samþykkur.
d. u. s.
(sign) Þorst. Þorsteinsson.
rí^AÐ SEGJ.A HIN BLÖÐTO7
Frh. af 4. síðu
um. Menn hafa spurt: Hvers vegna
hafa sjómennirnir, er sigla skip-
unum, ekki kvartað fyrri? En það
er ekki siður sjómanna að kvarta
fyrr en í fulla hnefana. Vökurnar
á togurunum höfðu valdið mörg-
um hraustum dreng heilsuleysi
eða tjóni og dauða, fyrir aldur
fram, áður en sjómenn fóru að
kvarta. Og löggjöfin varð loks að
skerast í leikinn. Samtök sjó-
manna eru miklu sterkari nú en
þá, en þrátt fyrir það verður varla
leyst úr þessum málum á viðun-
andi hátt, nema með öflugu sam-
starfi löggjafans, stéttarfélags sjó-
manna og löggæzlunnar eða skipa-
eftirliti ríkisins. Sjómenn eru van-
ir að fylgja fast vinsælum og dug-
legum skipstjóra, en fari svo að
kappið og vinsældirnar beri fyrir-
hyggjuna ofurliði, verður rögg-
samt skipaeftirlit að kveða upp
óhlutdrægan úrskurð, með öryggi
skipshafnar og hag þjóðfélagsins
fyrir augum.“
Hér er í sannleika orðið um
svo alvarlegt mál að ræða fyr-
ir þjóð okkar alla eftir hin
mörgu og tíðu sjóslys, að engin
vetlingatök mega þolast lengur.
Hollendingar bafa lært að hata.
Frh. af 5. sí&u.
að minnast, að bæði í Hollandi
og Noregi hafa Þjóðverjar kom
ið á borgaralegri stjórn sjálfra
þéirra auk hernámsins, en sú
hefir raunin hvorki orðið í
Frakklandi né Belgíu. Og sú
stjórn mun oss lengi rík í
minni. Hefðu Þjóðverjar farið
öðru vísi að, kynni svo að hafa
farið, að hernumdu löndin
myndu ekki hafa efnt til við-
náms gegn þeim, enda þótt
Þjóðverjum hefði aldrei tekizt
að fá þjóðir þeirra til þess að
játast hina þýzku trú. Og mér
er næst að ætla,, ,úð þeir hafi
hvarvetna freistað þess. Þeir
freistuðu þess að minnsta kosti
í Hollandi, og ég' tel mig hafa
ástæðu til þess að ætla, að þeir
hafi reynt slíkt hið sama meðal
allra annarra hernumdra þjóða,
að Rússum og Pólverjum und-
anskildum. En þegar það brást
að Hollendingar viðurkenndu
Þjóðverja sem ofurmenni, en
fyrirlitu þá og báru hinn
þyngsta hug til þeirra, urðu
þeir æfir. En ég hygg, að Þjóð-
verjar fái ekki að þessu gert.
Tilraunir þessar voru vonlaus-
ar vegna lasta þeirra og óhæfni
til þess að skilja aðrar þjóðir.
Hollendingar óskuðu þess
mjög, að Bretar og aðrar þjóðir
hefðu fylgzt betur með viðnámi
þeirra en raun var á lengi vel.
Það er stðareynd, að hvork i
fólk né fréttir komst þaðan
auðveldlega af landi brott. Við
hörmuðum það, að allsherjar-
verkfallinu í Hollandi í
aprílmánuði í fyrra skyldi ekki
meiri athygli veitt en raun bar
vitni. Það varð þó til þess, að
Þjóðverjar höfðu hamskipti,
enda þótt það kostaði það, að
meira en tólf hundruð Hol-
lendingar voru teknir af lífi.
❖
EG HEFI mjög orðið þess
var, að orðið „hatur“ nýt-
ur lítilla vinsælda á Bretlandi.
Bretum er ósýnt um að hata,
Það er alkunna um gervállan
heim. Brezka þjóðin er umburð
arlynd. Henni er skapi næst
að gleyma jafnan og fyrirgefa
hið versta og trúa hinu bezta.
Ég tel mér einnig óhætt að full-
yrða það, að hollenzku þjóð-
inni hafi verið ósýnt um að hata
fyrir styrjöldina. Hún hataði
alls engan. En nú hefir hún
lært að hata. Hún hatar hina
þýzku kúgara. Þegar úrslit
hildarleiksins hafa verið ráðin,
mun hún ekki láta það henda
sig að vaða í villu meðaumkun-
arinnar. Hún veit, að Þjóðverj-
ar myndu líta á það sem van-
mátt eða heimsku. Hollending-
ar telja Þjóðverja verðskulda
allt annað fremur en meðaumk-
un. Það er öðru nær en Þjóð-
verjar hafi reynzt Hollending-
um miskunnsamir. Mér er næst
að ætla, að fangar þeir, sem
horfið hafa frá Þýzkalandi
heim til Bretlands muni orka
miklu í því efni, að Bretum sé
enn skapi næst að auðsýna
Þjóðverjum nokkurt umburðar
lyndi. Sumir þeirra kveða jafn-
vel svo að orði, að Þjóðverjar
séu engan veginn eins bölvaðir
og þeir skéu sagðir vera. Því
verður heldur ekki neitað, að
það er mikils um það vert hvaða
dóma þeir menn fella um
Þjóðverja, sem hafa alið þar
aldur sinn og orðið að lúta
boði þeirra og banni. En þess
er skylt að minnast, að Þjóð-
verjar taka allt með í reikning-
inn. Þeir muriu telja sér það
mikils virði, að þeir brezkir
þegnar, er hverfa heim frá
Þýzkalndi, beri þeim sem
skásta göguna, ekki hvað sízt
stríðsfangarnir. En ég fullvissa
tilheyrendu mína um það, að
ég er forlögpnum innilega þakk
látur fyrri það að hafa ekki
þurft að dveljast sem rússnesk-
ur eða pólskur fangi í Þýzka-
landi. Bretar skyldu minnast
þess, að sú var tíðin, að Þjóð-
verjar æsktu þess mjög að ger-
ast samherjar þeirra. Ef dæma
skal eftir síðustu ræðu Hitlers,
virðist hann ekki enn vera úr-
kula vonar um það, að til þessa
kunni að koma. En mjög hlýtur
maðurinn þó að vera orðinn
vonsvikinn.
Hollendingar munu engan
veginn telja styrjöldinni lokið,
þótt þýzki herinn gefist upp,
fremur en Bretar. Við viljum
endurheimta jsiðvenjur okkar,
frelsi okkar og hennar hátign,
drottninguna, sem er tákn alls
þess, er við dáum og berjumst
fyrir. Þá bíður okkar og að
endurheimta hollenzku Austur-
Indíur og sigrast á Japönum.
Og að lokum setla ég að segja
sögu, sem ég hygg, að Bretar
kunni vel. Árið 1940, þegar
Frakkland hafði gefizt upp og
allt virtist leika í lyndi fyrir
Hitler, en Bretar fóru hvar-
vetna hrakfarir og áttu fárra
nótta næði, var fjölmörgum há-
tölurum komið fyrir á friðar-
höllinni í Hag. Við gátum ekki
varizt þess að minnast járn-
brautarvagns Fochs. Hitler og
Göbbels eru mjög gefnir fyrir
það að vanda leiksviðsbúnað
allan svo sem alkunna er. Þess-
ir hátalarar Þjóðverja voru svo
þarna langa hríð, En svo hurfu
þeir eina nóttina með mikilli
leynd. Það færði okkur heim
sanninn um það, að Bretar létu
ekki bjóða sér allt.
HANNES Á HORNINU
(Frh. af 5. síðu.)
„EN HVORT sem þarna hefir
verið um að ræða „sniðugheit hjá
fátækrastj. til að koma stúlkunni
af sér, brá svo við að eftir þetta
1 ár hefir stúlkan engar örorku-
bætur fengið, þótt hún hafi sótt
um þær. Heilsan betri en áður?
Öðru nær. Um það mun hjálpar-
stöð Líknar, sem hún er undir
stöðugu eftirliti hjá og læknir sá,
er á sínum tíma framkvæmdi á
henni uppskurðinn og reynst hefir
henni hjálplegastur síðan, getað
borið vitni um. Svo og fólk það,
sem oftast hefir skotið yfir hana
skjólshúsi, þegar hún stundum
hefir orðið að liggja svo vikum
og jafn\/el mánuðum skiptir, með
háan hita.“
„ÞAÐ SIÍAL tekið fram, að
stúlkan hefir margoft reynt að
vinna á þessum árum, en ávallt
með þeim afleii'íingum, að hún
hefir að skammri stundu liðinni
orðið lémagna og veikari en áður.“
„KEM ÉG ÞA AÐ kjarna máls-
ins„ og hann er þessi: Hverjum
bera örorkubætur ef ekki svona
fólki? Getur það skeð að Trygg-
ingarstofnun ríkisins (eða trúnað-
arlæknir hennar) hafi einræði um
veitingu örorkubóta? Væri það
ekki hliðstætt því, að brunatrygg
ingafélag t. d. metti sjálft tjónið
eftir eldsvoða, í stað þess að
kveða til þess fleiri en 1 óvilhalla,
sérfróða menn? Hvernig mætti það
ske, að 1 læknir (þótt óvilhallur
væri) væri að afstaðinni skyndi-
rannsókn, dómbærari um styrk-
hæfni sjúklings en læknar þeir,
sem stöðugt fylgjast með líðan
hans? Væri ekki verið að ómerkja
læknastétt landsins með því að
slá slíku föstu? Hvert eiga óstarfs-
hæfir sjúklingar, sem synjun hafa
fengið hjá T. R., að snúa sér með
kvartanir sxnar? Til heilbrigðis-
málaráðuneytisins e. t. v.“
INNRAMMANIR
Getum aftur tefcið að
okkur mynda- og mál-
verkainnrammanir.
Fljót afgreiðsla.
Vönduð vinna.
Héðinshöföi h.f.
Aðalstræti 6 B.
Sími 4958.
Ullarkjólaefni
og silkiefni í mörgum litum.
Unnur
(homi Grettisgötu og
Barónsstígs).
Dregfð var í L flokkf
happdrættlsios í gær
DHappdrættis Háskólans I)
REGIÐ var í fyrsta flokkí
gær og voru dregnir út 35®
vinningar.
- Kr. 15000.00
3321.
Kr. 5000.00
4728 og 19157 (aukavinningur).
Kr. 2000.00
8858.
Kr. 1000.00
679 2638 5560 6076 8981
11046 12228 12512. 17008 23873
Kr. 500.00
4162 4424 7996 11072 13471
13686 14718 15833 19091 20064
20823 22837
Kr. 320.00
450 545 718 1054 1061
1701 2375 2490 2493 2666
2801 3900 4042 4176 4182
4528 4653 4894 5229 5387
5645 5785 6000 6007 6087
6237 6268 6290 6330 6708
6920 7078 7122 7928 8023
8167 8603 8676 9200 9910
10872 11855 12474 12484 12925
12994 13443 13537 13931 14214
14580 14842 15224 15651 15726
15901 16014 16589 16727 16759
16765 17432 17621 17811 18343
18663 18736 18860 19157 19191
19257 19302 19589 19899 19901.
20050 20758 21163 21596 21601
21613 21861 21946 22581 23130
23216 23436 23773 23806 23850
23906 24223 24269 24516 24938:
Kr. 200.00
117 149 168 332 402
713 936 943 947 1209
1256 1480 1579 1600 1660
1889 1938 1965 2081 2127
2132 2190 2234 2261 2455
2587 2603 2664 2754 3082
3170 3554 3636 3667 3772:
3811 3864 3899 4147 4253
4707 4782 4889 4926 5235
5252 5323 5392 5596 5597
5759 6084 6545 6559 6598
6619 6731 7098 7216 7423
7438 7522 7723 7866 7924
8108 8245 8344 8438 8524
8548 8656 8743 8915 8961
9320 9863 9990 10067 10106
10190 10274 10394 10838 10982
11100 11443 11455 11594 11665
11720 11847 11906 12087 12461
12463 12760 13007 13013 13097
13282 13371 13559 13828 13966
13982 14015 14144 14281 14445
14678 14802 14888 14934 15103
15155 15297 15345 15508 15649
15663 15776 15881 16146 16190
16251 16314 16332 16351 16426 .
16505 16536 16564 16575 16578
16658 Í6713 16766 16783 17388
17762 17958 17962 17974 17999
18020 18072 18265 18357 18420
18542 18564 18825 19061 19071
19073 19543 19555 19560 19605
19658 19878 20021 20168 20174
20258 20364 20381 20467 20533
20634 20662 20848 20886 20945
20956 20959 20971 20989 21030
21046 21333 21391 21563 21688
21917 22001 22080 22088 22306
21760 21765 21804 21832 21898
22386 22471 22806 22852 22970
23020 23062 23272 23332 23338
23367 23388 23403 23464 23504
23549 23640 23730 23572 23882
23938 23982 24065 24117 24148
24266 24276 24281 24615 24929
Aukavinningar á 1 þús kr.
féllu á nr. 3320 3322 og 23850..
(Birt án ábyrgðar.)