Alþýðublaðið - 15.03.1944, Qupperneq 5
Miðvíkudagux 15. marz 1944
MMmw&umw
Rússnesk
Landamæradeila Rússa og Pólverja.
Kortið sýnir Pólland og Eystrasaltslöndin. Breiða gárótta
línan sýnir landamasri Póllands fyrir stríðið, en brotna
línan Curzonlínuna svonefndu, sem Rússar vilja gera að
landamærum milli sín og Pólverja. Allan þann hluta
Póllands, sem er fyrir austan hana (til hægri á kortinu) vilja
þeir leggja undir Rússland, en það er ásamt svartlituðu
svæðunum tveimur, sá hluti landsins, sem þeir fengu með
samningnum við Hitler 30. sept 1939. Svæðin sem svart-
lituð eru, kveðast þeir vilja sklia Pólverjum til
samkomulags aftur.
RÚSSAR halda áfram sókninni í Suður-Rússlandi og fá Þjóð-
verjar ekki rönd við reist. Hersveitir þær, sem tóku borg-
ina Kherson eiga nú aðeins um 30 km. ófarna til Nikolaev. Raun-
ar eru þeir komnir nær borginni, þar eð sumar hersveitir þeirra,
sem koma úr norðri eru aðeins 23 km. frá henni, en þar mun
um smærri herflokka að ræða. Líklegt er talið, að Rússar muni
taka Nikolaev þá og þegar. Þá sækja Rvissar að borginni Vinnitsa
og voru, er síðast fréttist um það bil 20 km. þar frá.
Finnar verða að senja
frið, segja Svíar.
Þáliur Niðurlanda.
ATHYGLI MANNA hefir,
öðru fremur beinzt að
Noregi og öðrum Norður-
löndum í frelsisbaráttu
þeirra og er það að vonum
Þá hafa menn hér á íslandi
veitt Frökkum athygli, sem
nú hafa verið hlekkjaðir í
fjötra kúgunarinnár og ó-
frelsisins um þriggja ára
skeið. Við höfum ótal hetju-
sögur af frönskum gislum,
sem voru teknir af lífi, án
þess, sem við köllum dóm og
lög. Við höfum dáðzt að
hetjulegri baráttu þeirra
manna, sem áttu vísan dauða
dóm, ef þeir hreyfðu hönd
eða fót. Og endurminningin
um gislana í Nantes mun
lifa meðan frjálsir menn eru
til. Það er vitað mál, að
að Frakkar, þótt þeir nú um
stundarsakir, hafi orðið að
lúta í lægra haldi fyrir villi-
mönnum Himmlers, eru
samt sama menningarþjóðin,
sem heimurinn þekkti áður
fyrr. Vdð íslendingar þekkj-
um þá að góðu einu. Menn
eins og Dr. Charcot og Pierre
Loti munu vafalaust lifa
lengur í endurminningu hinn
ar íslenzku þjóðar en Alfred
Rosenberg, Baldur von
Schirach, sá er átti að alla
upp þýzkan æskulýð sam-
kvæmt fyrirskipunum Hitlers
og annarra forystumanna
nazista.
MINNA HEFIR frétzt um hetju
baráttu Niðurlanda, eða
Hollands og Belgíu. Þar er
sömu sögu að segja: Menn
neita að fallast á „nýskipan"
Hitlers, hvað svo sem í boði
er. Hollendingar börðust af
harðfengi og hreysti gegn
innrásarhernum, meðan unnt
var. Þeir voru þess albúnir
að opna flóðgáttir landsins,
eins og áður hafði verið gert
þegar Spánverjar æddu yfir
landið, blindaðir ofstækis-
fullri trú á hinn kaþólska
óskeikuleika. En þá kom
annað til skjalanna. Þýzkir
hermenn, klæddir hollenzk-
um einkennisbúningum, að
því er sagt er, svifu til jarð-
ar í fallhlífum, og ónýttu
allar varnaraðgerðir Hollend
'inga.
FORNFRÆGAR borgir eins og
Rotterdam og fleiri, sem
geymdu ýmis mestu listaverk
þeirra van Goghs og Rem-
brandts voru lagðar í rústir,
samkvæmt áætlun „bláu
strákanna hans Görings“,
sem skemmtu sér svo mjög,
er logana bar við himin að
afloknu dagsverki. Þjóðverj-
ar ætluðu sér með einni
skyndiárás að sannfæra Hol-
lendinga og Belga um það, að
mótspyrna væri þýðingar-
laus. Þeir væru hlutgengir
menn í hinni „germönsku
þjóðafjölskyldu“, en hins
vegar virtust Hollendingar
ekki bera nægilegt skynbragð
á þessa náðargjöf. Þeir reynd
ust svo skyni skroppnir, að
þeir veittu viðnám, alveg
á sama hátt og Norðmenn og
Pólverjar. Þeim fannst einna
affarasælast að lifa sínu eig-
i FA. é 7. tíðu.
Enn verjast Þjóðverjar í
Tarnopol og virðast þeir verjast
af hinu mesta harðfengi. Fyrir
austan Vinnitsa hafa Þjóðverj-
ar dregið að sér mikið lið og
búast til gagnsóknar til
þess að stöðva flóttann.
Er ekki annað að sjá en að
hersveitir Þjóðverja verði að
hörfa inn í Rúmeníu svo til
alls lausar og er mikill uggur
ríkjandi meðal almennings í
ilandinu vegna þess.
Fregnir hafa borizt um, að
Þjóðverjar flytji nú verksmiðj-
ur sínar frá Lwow (Lemberg)
vegna sóknar Rússa í vesturátt.
Upplýsinigaskrifistoifa Pólverja í
London hefir upplýst það, að
Rússar hafi tekið af lífi fjölda
manns í .Lwow. Samkvæmt
fregnum þessum 'hafa Þjóðverj-
ar tekið af lífi 10,000 manns,
Pólverja, Rússa, Gyðinga og í-
talska hermenn, sem ekki vildi
taka þátt í bardögum með Þjóð-
verjum.
Ankarafregnir herma, að rúm
enskir áhrifamenn hafi setið á
fundi í Ankara í gær. Þá er
talið, að fyrrverandi rúmensk-
ur ráðherra sé væntanlegur til
Kairo og muni hann ræ§a við
fuUtrúa bandamanna um frið-
arskUmála.
Ekkert markvert hefir frézt
af norðurvígstöðvunum í Rúss-
landi og virðist sem 'herirnir
;þar nyrðra bíði átekta og sjái
hvað gerist sunnar, þar sem á-
tökin eru hörðust þessa dagana.
fíSMáwf af ítali.
RÁ ÍTALÍU er fátt frétta,
illviðri hamla hernaðarað-
gerðum. í fréttum segir, að
minnsta kosti þurfi viku þurrk
til þess að hefjast handa, svo
nokkru nemi. Á Orsognavíg-
stöðvunum reyndu Þjóðverjar
að sækja fram, en indverskar
hersveitir hrundu þeim árás-
um. Tiltölulega lítið var um
árásir af hálfu flugvéla banda-
manna.
SfJérBiarEiefeid setf á
Sa££gIrEiar, sem neifar
a3§ hlýða stjórn Pól-
verfa I Lenden-
Segfst inmrá i námi sambandi
viö íióssland m tieíir fallizt
á iandamærakröfHF pess.
NSKA blaðið ,,The Ob-
server“ skýrir frá því,
27. f. m., aS komið hafi verið
á fót einhverskonar stjórn-
arnefnd í Póllandi, að því er
virðist á vegum Kússa, sem.
viðurkenni ekki yfirráð
pólsku stjórnarinnar í Lon-
don. Eitt fyrsta verk þessar-
ar nefndar var að skipa nýj-
an hershöfðingja í blóra við
Sosnkowski yfirhershöfð-
ingja Pólverja í London. Ekki
er vitað «m nafn hins nýja
hershöfðingja, en hann geng-
ur undir dulnafninu „Rola“
bershöfðingi.
Fregn þessi hefir vakið
mikla athygli í Bretlandi og
öðrum löndum bandamanna.
I ávarpi nefndar þessárar er
svo að orði komizt að pólsk-
ar hersveitir, sem berjast á
austurvígstöðvunum og á í-
talíu, eigi að taka skipanir
sínar frá Rola hershöfðingja.
Nefnd þessi hefir einnig gef-
ið út tilkynningu um utanrík-
ismálastefnu sína, þar sem segir
meðal annars, að hún muni
vinna í náinm samvinnu við
Rússland. Nefndin hefir fallizt
á kröfur Rússa um landamæri,
sem byggjast á Curzonlínunni.
Talið er, að pólska stjórnin f
London hafi nú haft fregnir
af þessum málum, en ekkert
hefir verið látið uppi um þau
í útvarpi eða á öðrum opinber-
um vettvangi.
Atburðir þessir gerðust um
sama leyti og Churchill birti
neðri málstofu brezka þingsins
umsögn stjórnar sinnar um
deilumál Pólverja og Rússa.
Churchill sagði við það tæki-
færi, að kröfur Rússa væru
sanngjarnar og réttlátar, en hins
vegar ræddi hann ekki frekar
um landamæramálið.
Ummæli Churchills hafa
fengið hinar beztu viðtökur í
Moskvu. Þó benda sumir frétta
ritarar á, að orð hans gefi ekki
tilefni til of mikillar bjartsýni
hjá Rússum. Þó segja ýmsir,
sem fylgjast með þessum mál-
um að Churchill hafi fallizt á
Curzonlínuna sem landamæri,
en hins vegar gætu Rússar ekki
farið fram á nein lönd vestan
hennar.
Einnig er talið, að þessi lausn
málsins muni því aðeins fást,
að samkomulag náist með Rúss
um og pólsku stjórninni í Lond-
on.
Pólverjar hafa tekið orðum
Churchills næsta fálega. Utan-
ríkisráðherra pólsku stjórnar-
innar í London, Romer, gekk á
fund Edens skömmu eftir að
Churchill hafði flutt ræðu sína
og fullyrti í viðræðu sinni við
hann, að ræða Churchills hefði
orðið mörgum Pólverjum mik-
il vonbrigði.
¥ ÚTVARPI frá Budapest hef-
ir verið skýrt frá því, að
finnska þingið hafi komið sam-
an til þess að ræða svar Rússa
við gagntillögum Finna. Er þar
sagt að sænsk blöð hvetji Finna
til þess að semja frið, áður en
það er um seinan. Segja sum
blöðin, samkvæmt þessum
fregnum, að Finnar verði nú
þegar að taka ákvarðanir um
það, hvort þeir vilji fylgja
Þjóðverjurn á glötunarvegi eða
ekki.
MiINNA var um loftárásir
bandamanna á Þýzkaland.
og herteknu löndin í fyrrinótt
en verið hefir að undanförnu.
T.hunderbolt-orrustuflugvélar
fóru í skyndileiðangra til Norð-
ur-Frakklands og varð lítið um
viðnám. Þá réðust brezkaE’
Lancaster-flugvélar í Le Mans
í Fraldílandi, en Mosquito-flug-
vélar réðust á Frankfurt í
Þýzkalandi. Tundurduflum var
varpað á siglingarleiðir Þjóð-
verja. Alls misstu Bretar 3 flug-
vélar í fyrrinótt.
K N O X, flotamálaráðherra
Bandaríkjanna skýrði frá því í
gær, að undanfarna daga hefðu
Bandaríkj aflugmenn skotið nið
ur um 600 flugvélar yfir Mið-
Kyrrahafi. Sagði hann, að til
nokkurra átaka hefði komið, en
að Japanar hafi jafnan orðið
að láta í minni pokann. Banda-
ríkjamenn misstu 45 flugvélar
í átökum þessum. Þetta voru
flugvélar frá flugstöðvarskip-
um.
í BURMA hefir 14. hernum
brezka orðið vel ágengt. Hafa
hermenn úr honum farið yfir
Chinwin-fljót eftir langa göngu
um frumskóga og torfærur.
Var hersveitum þessum færðar
birgðir loftleiðis.
Málgagn pólsku stjórnarinn-
ar í London hefir einnig farið
þungum orðum um ræðu
Churchills og framkomu Rússa
í landamæradeilunni. En þung-
orðastur var þó Sosnkowski
hershöfðingi í ræðu, er hann
flutti pólskum flugmönnum, er
hafa bækistöð á Bretlandi. Hers
höfðinginn ræddi um beiskjuna
í hugum hinna pólsku flug-
manna og minntist Pólverja
þeirra, sem létu lífið í barátt-
unni, eigi aðeins fyrir endur-
heimt Varsjá, heldur einnig
Lwow og Vilna, er Rússar
krefðust nú. Þá minntist lianA
einnig hetjulegrar baráttu
pólsku flugmannanna í orrust-
unni við Rússa 1939, enda þótt
þeir ættu við ofurefli að etja.
í þessari ræðu sinni hvatti
Sosnkowski skæruliðana pólsku
til þess að hafa samvinnu við
rússneska herinn í framsókn
Póllandi. Er þetta gert í þeim
tilgangi, að sýna vilja Pólverja
til fullrar samvinnu við Rússa
og að ekkert vaki fyrir þeim
annað en það að vilja endur-
heimta land sitt 1 sátt við aðrar
þjóðir, Eden og Romer ræddu
einnig þessi mál í viðræðu
sinni.