Alþýðublaðið - 15.03.1944, Blaðsíða 7
JMiðvikudagrur 15. mar* 1944
B’-ðTOUK - aw
*
mrmm i
<*«* iKarlakoi íðnaðanaanaa.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Iðurmarapó-
leki.
Næturakstur annast Aðalstöðin,
,8Ími 1383.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenzkukennsla, 1. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 2. fl.
19.25 Hljómplötur: Söngvar úr
óperum.
:20.00 Fréttir.
.20.30 Kvöldvaka: a) Sigurður
Nordal prófessor: Upplestur
úr Flateyjarbók. b) 21.00
Kvæði kvöldvökunnar. c)
21.10 Jón Skagan prestur:
Fyrir Landeyjasandi. Er-
indi. d) 21.35 Sigvaldi Ind-
riðason: Kvæðalög.
:21.50 Fréttir.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritið „Ég hef kómið
hér áður annað kvöld og hefst sala
aðgöngumiða kl. 4 í dag, Vegna
brottfarar frk. Arndísar Bjíörns-
dóttur til Akureyrar verður þetta
leikrit aðeins sýnt tvisvar hér eftir.
Fríkirk jan.
Föstumessa í kvöld kl. 8.15, sr.
Árni Sigurðsson.
Ræjarstjórn Hafnarfjarðar
hefir kosið Friðjón Skarphéðins
3on bæjarstjóra í rannsóknamefnd
mjólkurmála.
IGÆRKVELDI fóru leikar
svo, að í kvenflokki vann
K. R. í. R. með 16:15, í 1. flokki
vann F. H. í. R. með 12:9 og
fer í úrslit gegn Ármanni, og
:í meistaraflokki unnu Haukar
K. R. með 20:17 í mest spenn-
andi leik mótsins.
í kvöld fara fram úrslit í 2.
flokki milli Hauka og Ármanns
lleikur milli K. R. og Ármanns
ií kvenflokki.
Amerískir hermenn eru alvar-
lega skotnir í leikkonunni
Gloria De Haven, sem þessi
mynd er af. Á þremur mánuð-
um hafa hermenn úr ýmsum
hersveitum veitt henni hvorki
meira né minna en 68 nafnbæt-
ur eða gælunöfn.
UM NOKKURRA ára skeið
hefi ég hlustað á sam-
söng Karlakórs iðnaðarmanna,
og dáðst að þeim framfaraskref
um, sem kórinn hefur stígið
með ári hverju, þrátt fyrir
mikla örðugleika hans á ýms-
um sviðum; en hann hefur sigr-
azt á þeim öllum og haldið ó-
trauður áfram að því marki,
sem söngstjóri hans og eðlilega
söngmennirnir sjálfir hafa sett
sér. En nú hefur orðið sú breyt-
ing á högum Karlakórs iðn-
aðarmanna, að söngstjóraskipti
hafa orðjð síðan kórinn lét
heyra til sín síðast.
Ég hlustaði á samsöng kórs-
ins 3. þ. m. — ekki af gömlum
vana eingöngu — heldur með-
fram vegna þess, hversu einn
af beztu tónlistarmönnum okk-
ar (E. T.), skrifaði glæsilega um
söng kórsins nú, en einkanlega
þó um nýja söngstjórann, hr.
Robert Abraham.
Af grein E. Th. er svo að sjá,
sem Karlakór iðnaðarmanna
hafi umskapazt við söngstjóra-
skiptin — jafnvel raddir söng-
mannanna hafi nú tekið á sig
„menningarbrag“, sem kórinn,
að áliti E. Th., virðist ekki hafa
haft fyrr .en hr. Robert Abra-
ham tók við söngstjórninni.
Að minni hyggju býst ég við,
að „menningarbragur“ kórsins
sé eingöngu fólginn í því, að
nú syngur kórinn svo „demp-
að“, að naumast heyrist hvort
raddirnar eru hreinar eða ekki.
Og ef slíkt er talinn „menning-
arbragur,“ þá gef ég lítið fyrir
hann.
Samsöngur kórsins 1. þ. m.
fór vel fram og hefur eflaust
verið eftir listarinnar reglum,
enda er ekki við öðru að búast,
þar sem söngstjórinn hefur not-
ið „alhliða“ menntunar á tón-
listarsviðinu. — — —
Ég leyfi mér virðingarfyllst
að birta hér kafla úr grein E.
Th., sem kom í Mbl. 2. þ. m.
Kaflinn var svohljóðandi:
. . „Samsönguminn á sunnu-
daginn ber vott um afburða
kórstjórnarhæfileika Róberts
Abrahams, því að honum hefur
tekizt á skömmum tíma að gera
úr Karlakór iðnaðarmanna kór,
sem er fær um að leysa hin erf-
iðustu verkefni af hendi með
mestu prýði, og yar þetta þó
áður kór, sem virtist ekki hafa
nema miðlungsþróunarmögu-
leika. En nú kom áhorfendun-
um raunar hvortveggja í senn
gleðilega á óvart, hvgrsu góð
stjórnin var og hversu söng-
Imönnunum sjálfum virðist
hafa vaxið ásmegin síðan kór-
inn lét heyra til sín síðast .
Og í niðurlagi greinarinnar
ritar E. Th.:
„Það má óska Karlakór iðn-
aðarmanna til hamingju með
‘þær gleðilegu framfarir, sem
hann hefur tekið undir nýja
söngstjóranum.“
Hér er markalína milli for-
tíðar og nútíðar Karlakórs iðn-
aðarmanna svo greinilega dreg-
in, að eigi verður um villzt.
Lof er gott, en hollast er það
hverjum og einum í hófi. Of
stór skammtur af slíku getur
valdið kyrrstöðu, og þá er verr
farið en heima setið.
Ég vil taka það fram, áður
en ég dæmi um söng og söng-
j skrárverk K. I. að þessu sinni,
ag ég er ekki dómbær á slíkt
sem skyldi. Ég tala því máli
mínu sem leikmaður beint „út
úr pokanum.“
Áð mínu áliti var söngskráin
ekki aðgengileg fyrir álmenn-
ing. — Þrátt fyrir það þótt E.
Th. teldi það „loftvert, að, flest
lögin á söngskránni voru ný í
eyrum reykvískra hlustenda",
þá hefði að skaðlausu einnig
mátt ha,fa þar þekkt sönglög,
því að meðferð kórsins á þeim
hefði eflaust orðið ágæt, fyrst
hann á annað borð gat sýnt eitt
af því „bezta, sem hér hefur
Hér með tilkynnist vinum og vandamönnnum að
iCrisf|ási Sigurðsson
Bergstaðastræti 28 B.
hefir lagst til hinstu hvíldar, 14. marz.
Ingveldur Magnúsdóttir og böns.
Má sendast ófrímerkt.
Ég undirrit..... gerist hér með áskrifandi að
HEIMSKRINGLU .....................'................
Box 2000 — Reykjavík.
heyrzt af karlakórssöng“.
Það er ekki nema gleðilegt
að vita til þess, að K. I. hafi
á söngskrá sinni fjögur kórverk,
en til þess að allur almenning-
ur gæti notið þeirra, hefði þurft
að skýra þau í söngskránni.
Sú söngskrá, sem hefur mörg
og stórbrotin ,,verk“ er einungis
samin fyrir þá menn, sem notið
hafa ,,alhliða“ menntunar í tón-
list, en ekki fvrir hina, sem eru
lítið eða jafnvel ekkert mennt-
aðir á því sviði.
En það er ekki gott að gera
öllum til hæfis — jafnt í þess-
um efnum sem öðrum.
Svo að ég snúi mér að sam-
söng Karlakórs iðnaðarmanna
að þessu sinni, þá fannst mér
,,prýðileikinn“ í söngnum í
engu frexnri því sem ég hafði
svo oft heyrt áður hjá kórnum
meðan Páll Halldórsson var
stjórnandi hans.
Einna bezt líkaði mér með-
ferð kórsins á tveim smálögum
og einu kórverki, þ. e.: „Ég
þreyti horn“ eftir Brahms,
„Hornbjarg“ eftir Pál Halldórs-
son og Söngur fanganna úr
óperunni „Fidelio" eftir Beet-
hoven.
Um leið og ég óska Karlakór
iðnaðarmanna til hamingju
með nýja söngstjórann, vil ég
mælast til þess, næst þegar
kórinn syngur opinberlega, að
á söngskránni verði a. m. k.
2—3 lög, sem eru sígildir vinir
almennings, en þyrftu á engan
hátt að skerða virðingu kórs-
ins né stjórnanda hans; því að
einnig í „húsgöngunum“ svo-
kölluðu er hægt að sýna list,
ef vel er með farið, ekki síður
en í hinum stærri og erfiðari
„verkum“, sem eru sjálfsögð á
söngskrám allra karlakóra.
Okkur væri ekki síður gagn-
legt að heyra alþýðulögin okk-
ar — eða „húsgangana“ sem
ég kalla — sungin af þeim ísl.
kór., sem að áliti E. Th. lætur
okkur nú „hiklaust" heyra. það
„bezta, sem hér hefur heyrzt
af karlakórsöng.“
Það hefði farið betur á því,
iþar sem E. T. lofar svo mjög 1
grein sinni frammistöðu Karla-
kórs iðnaðarmanna „undir nýja
söngstjóranum,“ og talar í því
sambandi um „gleðilegar fram-
farir,“ að gleyma ekki alger-
lega fyrrv. söngstjóra kórsins,
— einmitt þeim manninum, sem
borið hefir hita og þunga dags-
ins í því starfi, að koma Karla-
kór iðnaðarmanna til vegs og
virðingar og gera hann sam-
bærilegan öðrum hérlendum
karlakórum. Enda var svo kom-
ið, að K. I. undir stjórn Páls
Halldórssonar, hafði oftsinnis
sýnt, að hann var fær um að
leýsa erfið verkefni af hendi
með snilld.
Páll Halldórsson á miklar
þakkir skyldar fyrir starf sitt
'sem söngstjóri Karlakórs iðn-
armanna á undanfömum árum.
Vonandi á hann eftir að ryðja
söngmálajarðveginn enn á ný
og skila honum með sama gró-
anda, sem hann skilaði Karlakór
iðnaðarmanna í hendur hr. Ró-
'berl's Aibráhams.
Reykjavík, 7. febrúar 1944.
Oliver Guðmundsson.
\
Maður sá,
er var vitni að ökuslysi hinn 29.
nóveniber síðastliðinn, milli bif-
reiðarinnár R. 2438 og amerískrar
herbifreiðar á Hringbraut og til-
kynnti lögreglunni slysið símleið-
is frá háskólanum er vinsamlega
beðinn að gefa sig fram við rann-
sóknarlögregluna, Fríkirkjuvegi
11.
Föstumessa
í Austurbæj arskóla í kvöld kl.
3.15. Séra Jakob Jónsson.
IfBRigigarðFð m:
Haríði Saaalaags-
dóttnr.
IDAG verður til moldár bor-
in ekkjan Þuríður Gunn-
laugsdóttir, sem lengi bjó á
Grettisgötu 36, en hún lézt í
Elliheimilinu Grund 6. þ. m. 84
ára að aldri.
Þuríður var gift Þóroddi Guð-
mundssyni verkamanni. Bjuggu
þau allan sinn búskap á Grett-
isgötu 36. Þóroddur lézt árið
1925. Þeim varð ekki barna
auðið.
Þuríður var hin mesta dugn-
aðar kona og samhent manni
sínum. Hún var þingeysk og
þrátt fyrir margra ára dvöl hér
í Keykjavík bar hún allt áf svip
sveitamenningarinnar. Þau
Þuríður og Þóroddur voru frá
fyrstu tíð mjög áhugasöm fyrir
málefnum Alþýðuflokksins og
léðu flokki sínum allan þann
stuðning er þau máttu.
Kærar þakkir og hinztu
kveðjur fylgja þessari ágætu
alþýðukonu héðan frá fjölda
vina.
VINUR.
itnonnmál Hafoar-
fjorðar.
Frh. af 2. síðu.
framHögum eða öðru slíku, en
þetta er nú til sérstaklegrar at-
hugunar.
Hér í Hafnarfirði hefir jafn-
an verið lítið um mótorbátaút-
gerð, einkum nú í seinni tíð mið
að við aðra útgerðarstaði hér
við Faxaflóa. Nú hefir á aj^ra
síðustu árium aukizt lítilsþ^ftar
þessi útgerð héðan, og er rh%ill
hugur í mörgum að auka
starfsemi þessa. Nefndin er
þessu sérstaklega meðmælt og
mun heita sér fyrir að haldin
verði námskeið næsta haust
fyrir unga menn i bænum, þar
isem kennd yrði lóðabeiting, að-
gerð á fiski, netabætingar o. fl.
þ. h. Þá mun nefndin beita sér
fyrir því að aðbúð þessara báta
í landi verði bætt frá því sem
nú er, t. d. löndunarskilyrði,
byggðar verbúðir, aðgerðar- og
beitingarpláss o. s. frv. Þá kem-
ur og til aíhugunar hvort til-
tækilegt þyki að auka við hrað-
frysti'húsin hér þar sem um auk
inn afla yrði að ræða vegna
stækkunar mótorbátaflotans
hér. Einnig er nefndinni ljóst
að það ber brýn nauðsyn til að
hér komi beinamjölsverksmiðja
ilýsisbræðsla og hráólíugeymir.
Eins og kunnugt er, hefir
Hafnarfjarðarbær fest kaup á
nokkrum hluta af Krísuvíkur-
landi, en land þetta liggur að-
eiras um 20 km. frá Hafnarfirði.
Er hér um að ræða mikið land
til stórfeldrar ræktunar. Líka
er þarna jarðhitasvæði mikið
og sérlega vel fallið til igróður-
hiúsa — og vermireitarstarfsemi
auk þess sem kæmi til athugun-
ar, hvort ekki mætti virkja
stærsta gufuhverinn þar, sem
geymir ómælda orku í fórum
sínum. Er það því höfuðnauð-
syn, að hinn svonefndi Krísu-
víkurvegur komi sem allra fyrst
þangað suður, enda ekki nemá
herzlumunur að koma veginum
þangað, sem ræktunarmöguleik
ar eru fyrir hendi.
Nefndin 'hefir nú beitt sér
fyrir við háttvirtan atvinnu-
málaráðherra að nú þegar verði
hafizt handa að vinna að veg-
arlagningu fram með Kleifar-
vatni, með allt að 40 hafnfirsk-
um verkamönnum.
Þau verkefni, sem hér hafa
verið nefnd, telur nefndin í
raun og veru mest aðkallandi,
en hinsvegar er henni ljóst að
ýms fleiri verkefni bíða úr-
lausnar í framtíðinni, sem og
hinar venjulegu framkvæmdir
'bæjarsjóðsins, svo isem gatna-
igerð, holræsagerð, lagfæring
vatnsveitunnar o. s. frv. Loks
vill nefndin geta þess að á þessa
árs fjárhagsáætlun Hafnarfjarð
arbæjar, er lagt fram fé til í-
'þróttavallargerðar, og er nú ver
ið að finna því hentugan stað
hér í bæ. Að iokinni þeirri at-
hugun og igerð skipulags svæð-
isins, má gera ráð fyrir að haf-
izt verða handa að búa þar í
•haginn fyrir áhugasamt íþrótta-
fólk bæjarins.“
Um leið og vér sendum yður
framanritaðar áætlanir vorar
og greinargerð, viljum vér að
lokum vænta vinsamlegrar
samvinnu og ábendinga yðar.
Virðingarfyllst.
Atvmnumálanefnd Hafnar-
fjarðar.
Ásgeir G. Stefánsson
Loftur Bjarnason
Björn Jóhannesson
derum iireinar
skrifstofur yðar og íbúðir.
Sími 4129.
Tek að mér
heingerningar
fljótt og vel.
Sími 4947 kl. 6—8.
Gunnar Halldórsson.
Útbreiðið Alþýðtibtaðið.