Alþýðublaðið - 18.03.1944, Síða 2
WVWSJ>P^P
Laugardagtir 18. nuurx 1944.
Lýðveldisstofnnnin:
Verðlannasamkeppi
nm hátiöamerki on
nýtt ættjaröalióö.
Þjóðhátíðarnefndin
sem ríkisstjórnm skipaði
til að undirbúa há'tíoahöld á
Þingvöllum 1 sambandi við
stofnun lýðveldisins, hefir nú
efnt til tvennskonar verðlauna-
samkeppni. Annars vegar er
samkeppni meðal drattlistar-
manna um hátíðamerki við fyr-
irhuguð hátíðahöld vegna stofn
unar lýðveldisins. Hins vegar
er samkeppni meðal skálda þjóð
arinnar um alþýðlegt og örv-
andi ljóð, er gæti orðið frels-
issöngur íslendinga.
Fyrir bezta uppdrátt að há-
tíðamerkinu er heitið 2000 kr.
verðlaunum. Frestur til að skila
uppdráttum er ákveðinn til 1.
apríl n. k.
Fyrir ljóð það, er telst verð-
launahæft, er heitið 5000 kr.
verðlaunum. Frestur til að skila
ljóðum er veittur til 20. apríl
n. k.
Uppdráttum að merkinu og
Ijóðunum skal skila í skrifstofu
nefndarinnar í alþingishúsinu.
ísleozk
hjálparstarí handa
erleadam börnam.
Samband islenzkra barnakenn-*
ara hefur forustu á hendi.
Bcgebis iifálp til ii@rskra
fiiaraa fljétf ©gg aaði® ©r»
tprðttahvikmynd Árm-
manns sýnd á morgnn.
AMANN ætlar að sýna íþrótta
kvikmynd sína í Tjarnarbíó
á morgun kl. 1.30.
Kvikmynd þessa sýndi Ár-
mann nokkrum sinnum í fyrra
og allt af fyrir troðfullu húsi.
Kjartan Ó. Bjarnason tók þessa
kvikmynd og sýnir hún úrvals-
flokka félagsins í glímu og
sundi.
ISIjENZK barnaskólabörn hafa nú hafið allsherjar und-
irbúning undir að geta veitt bágstöddum erlendum
bömum hjálparhönd.
Samband íslenzkra barnakennara hefir valið 9 skóla-
stjóra og kennara til þess að veita þessu starfi forstöðu.
Verður starfseminni hagað þannig að börn í öllum skól-
um land allt efna til fjársöfnunar, en auk þess leggja þau
fram efni og vinnu við gerð fatnaðar, sem hin bágstöddu
erlendu börn þurfa á að halda.
Ætlast er til að bömin sjálf leggi frain til þessa starfs spari-
skildinga sína eftir því sem þau geta, en auk þess safna þau fé
hjá vinum sínum. Hefir nefndin fengið leyfi dómsmálaráðuneyt-
isins til að gefa út þrennskonar verðmiða, sem gerir kaupendur
þeirra að þátttakendum í starfinu.
í söfnunarnefndinni eru þeir
Arngrímur Kristjánsson, Ár-
mann Halldórsson, Guðjón Guð
jónsson, Guðm. I. Guðmunds-
son, Ingimar Jóhannesson, Jón
Sigurðsson, Jónas B. Jónsson,
Pálmi Jósefsson og Sigurður
Thorlacius.
Reynt verður að koma hjálp
til norskra barna eins fljótt og
auðið er. í ávarpi, sem nefndin
hefir gefið út segir:
„Vér íslendingar munum yf-
irleitt sammála um, að forsjón-
in hafi sýnt oss og börnum vor-
um undursamlega mildi á und-
anförnum stríðsárum, enda
þótt gnýr hins mikla hildarleiks
hljómi stöðugt í eyrum vorum.
Foreldrar í ófriðarlöndum
ffielta vatnið ©r kom
fiö í um 170© IffÉSe .
■■■♦ ..—
faiið ev a© um 900 Més séu eftlr.
Fjórði heitavatnsgeymirinn bráðum
tilbúinn.
VINNA við hitaveituna
heldur stöðugt áfram
og er nú búið að hleypa vatni
á um 1700 hús, en talið er að
alls geti 2500 hús tekið heita
vatnið. Samkvæmt því ættu
um 900 hús að vera eftir.
Næstum daglega er heita
vatninu hleypt á hús, en starfs-
menn hitaveitunnar fara sér
hægt í því, í von um að með
því sé betur tryggð þau húsin,
sem þegar hafa fengið vatnið,
því að alltaf má búast við ein-
hverjum töfum af völdum bil-
ana þegar um svo stórfellt
fyrirtæki og viðkvæmt er að
ræða, eins og hitaveitan er.
Fyrir nokkru síðan var þriðji
heitavatnsggymirinn á Öskju-
hlíð tilbúinn, og var hann þá
strax tekinn í notkun. Fjórði
geymirinn er í smíðum og mun
vinna við hann vera langt kom-
in. Er nú verið að vinna inni
í honum.
Alþýðublaðið spurðist fyrir
um það hjá hitaveitunni, hve-
nær talið væri líklegt að
hægt væri að hleypa heita
vatninu á hús í Þingholtunum,
en íbúarnir þar eru orðnir
nokkuð langeygðir eftir því.
Hafa og götur þar staðið upp-
rifnar óralangan tíma.
Framkvæmdir hafa tafizt
mjög vegna vondra veðra, en
þessa dagana er sem óðast ver-
ið að tengja æðarnar við húsin.
Er lokið við að tengja í sum-
um götum, en aðrar eru langt
komnar. Verður heita vatninu
hleypt á eins fljótt og auðið er,
en ekki hægt að gera neinar á-
kveðnar áætlanir um það að
svo stöddu.
Litlar, sem engar jbilanir
hafa orðið á kerfinu undan-
farið og eru verkfræöinganir
farnir að gera sér góðar vonir
um það.
Bilanir hafa orðið á Lauga-
veitunni. Vatnið hefur að
minnsta kosti minnkað. Til að
reyna að ráða bót á þessu,
hefur Sundlaugunum verið lok-
að. Er nú í ráði að taka Land-
spítalann af Laugaveitunni og
setja hann í samband við hita-
veituna. Er vonandi, að þegar
því er lokið, verði hægt að
opna Sundlaugarnar aftur. Jafn
framt er leitað eftir heitu
vatni til viðbótar.
hafa hins vegar horft á börn
sín særð, hungruð og klæðlítil
án þess að geta úr bætt. Hörmu
legast er þó hlutskipti þeirra
barna, er svipt hafa verið ást-
vinum sínum og eru því ein-
mana og allslaus.
Þessar andstæður liggja til
grundvallar þeirri hjálparvið-
leitni, sem íslenzk skólaböm
hefja nú um land allt, til styrkt
ar bágstöddum börnum í ófrið-
arlöndum og einkum þá á
Norðurlöndum.
Þetta starf íslenzkra skóla-
barna, með drengilegri hjálp
foreldra, kennara og annarra
góðra vina, — verður allt í senn:
þakkarfóm fyrir auðsýnda mildi
forsjónarinnar á þessum neyð-
artímum, — --í er
eykur þroska þátttakenda,
hjálpsemi þeirra, fórnarlund og
samúð, — kærleiksstarf, er
græðir sár, seður 'hungur og
kveikir að nýju trú og von í
döpum hugum sorgmæddra og
þjáðra barna.
Skólabörn á Akureyri undir
forustu skólastjóra og kennara
hafa þegar hafizt handa um fjár
söfnun og orðið vel ágengt.
Samband íslenzkra barnakenn-
ara hefur nú kjörið nefnd
manna til aðstoðar íslenzkum
skólabörnum við þessa hjálp-
arsarfsemi. Safnað verður bæði
| fé og fatnaði. Söfnunin fer fram
£ á þann hátt, að börnin sjálf
í; leggja fram af spariskildingum
| sínum, eftir því sem efni leyfa,
I og safna fé og fjármunum með-
al frænda og vina. Einnig búa
þau til ýmsa muni ýmist heima
eða í skólanum, sem annað
hvort verða seldir eða renna í
fatasöfnunina.
Einnig verður tekið á móti
loforðum um mánaðarlegan
styrk til ákveðinna barna í
Noregi. Þeim styrk er hægt að
koma áleiðis strax fyrir vænt-
anlega milligöngu sænskrar
hjálparstarfsemi. Er það gert
með samþykki þýzkra yfir-
valda, en bundið því skilyrði,
að styrkurinn sé veittur á-
kveðnu norsku barni og sé ekki
hærri en 30 krónur á mánuði.
Svíar í Noregi munu útvega
nöfn slikra fósturbama.
Forstöðumenn barnaskólanna
sjá um söfnun hver í sínu skóla-
hverfi, en framkvæmdanefnd
S. í. B. hefur yfirumsjón og
annast úthlutun. Fræðslumála-
stjóri hefur sýnt máli þessu þá
vinsemd að lofa aðstoð fræðslu-
málaskrifstofunnar við söfnun-
ina úti um land. Skrifstofan
mun einnig hafa á hendi aðal-
bókhald og fjárgeymslu.
Frti. á 7.
Nýr veglepr skiðabikar.
fleíins af Sjévátrygg
iapféiagi ÍslaBds.
HÉR birtist mynd af hinum
nýja fagra skíðabikar, sem
Sjóvátryggingarfélag íslands
gaf fyrir nokkru.
Skal keppa um þennan vand-
aða silfurbikar í svigi karla í
B-flokki.
Síðastliðinn sunnudag var
keppt um þennan bikar í fyrsta
sinni og varð sveit Ármanns
hlutskörpust. En vinna skal
bikarinn 5 sinnum til fullrar
eignar.
Fjénr nýjar flarns-
bækBr frá Isafoidar-
nrentsmlðji.
UM þessar mundir sendir
ísafoldarprentsmiðja h. f.
á 'bókamarkaðinn fjórar nýjar
barnalbækur.
Tvær þeirra, Sigríður Eyja-
fjarðarsól, hin vinsæla útilegu-
mannasaga úr iþjóðsögum Jóns
Árnasonar og drengjasagan
Karl litli eftir Vestur íslend-
ingin Jóhann Magnús Bjarna-
son hafa áður komið út en eru
nú uppseldar fyrir löngu.
ísak Jónsson kennari hefir
endursagt hinar bækurnar tvær
úr sænsku, en þær heita Dug-
legur drengur og Svafti Pét
ur og Sara. Allar eru þessar
bækur hinar prýðÖl|'egfustu að
öllu útliti og frágangi — og
seldar við vægu verði.
17 présðot
kaopshækkHn
Sanðarköki.
Nýlr samnfBoar verkamanna
os atvlnnarelíenda undirrltaðlr
XT ERKAMENN á Sauðár-
¥
króki hafa með nýjum
samningum við atvinnurekend-
ur fengið grunnkaupshækkun
sem nemur 17% af því, sem áð-
ur var. Hækkar tímakaupið á
staðnum úr kr. 1,88 upp í kr.
2,20.
Samningarnir um þetta hafa
þegar verið undirritaðir af
Verkamannafélaginu Fram og
atvinnurekendum.
Vðrobilastðð opnoð í
Hafoarfirðí í dag.
í nýju húsi félags vömhíla-
NÝLOKH) er smíði á húsi
sem félag vörubílaeigenda
hefir átt í smíðum við Vestur-
götu í Hafnarfriði. í húsi þessu
verður opnuð í dag Vörubíla-
stöð, og í sambandi við hana
verður rekinn bensín og smurn-
ingsolíusala. Vörubílastöðin
mun hafa til umráða 50—60
vörubíla og verður símanúmer
hennar 9325.
Á slíkri afgreiðslu hefir ver-
ið mikil þörf í Hafnarfirði og hef
ir félag vörubílaeigenda, auðvit
að fundið greinilagst, hve þessi
þörf hefir verið brýn. Því var
á síðastliðnu sumri hafizt
handa með stöfnun stöðvar-
innar, en þar sem húsnæði var
eigi fáanlegt réðist félagið í að
ibyggja hús fyrir þessa starfsemi
sína.
Húsið stendur, eins og áður
er sagt við Vesturgötú, beint
upp af hafskipabryggjunni, er
það að flatarmáli 6 X 8,5 metrar,
í húsinu er afgreiðslusalur og
skrifstofa og þar að auki fundar-
salur þar sem félagið mun í fram
tíðinni halda fundi sína, en und
anfarið hefir það mjög háð starf
semi félagsins hve erfitt hefir
verið að fá húsnæði til fundar-
halda.
Stjórn félags vöruibílaeigenda
skipa þessir menn: Þórður B.
Þórðarson formaður, Kristján
iSteingrímsson ritari, Bergur
Bjarnason gjaldkeri, Grímur
Kr. Andrésson varaformaður,
Jóhann Magnússon meðstjórn-
andi. ■ j ^
Með opnun vörubílastöðvar
fél. vörubílaeigenda er hafin
starfræksla sem bætir úr að-
kallandi þörf og er ekki að efa
að Hafnfirðingar og aðrir munu
meta að verðleikum þetta mynd
arlega framtak hafnfirzkra vöru
bílstjóra. , :/■]
SkíSafélag Reykjavíkur
ráðgerir að fara skíðaför næst-
komandi sunnudagsmorgun. Lagt
af stað frá Austurvelli kl. 9. Far-
miðar seldir hjá Muller til félags-
manna til kl. 4, en til utanfélags-
manna kl. 4 til 6 ef afgangs er.
SamvmooB íímarit
S. í. S. stæbkar om
helmlDg.
S AMVINNAN, tímarit Sam-
bands íslenzkra samvinnu-
félaga hefir tekið miklum breyt
ingum. Hefir tímaritið stækkað
um helming. Ritstjórn þess
skipa nú: Jónas Jónsson, Guð-
laugur Rósinkranz og Jón Ey-
þórsson. Efni hins fyrsta heftis
hinnar nýju samvinnu er á
þessa leið: Hin nýja samvinna,
Tilbúin hús, Safnið lausavísum,
Kjarnar og kaflar: Svikamyll-
an mikla, Söngur af himnum,
Hlaupið úr Grænalóni 1944, Úr
ferðabók Sveins Pálssonar,
Verkin tala, Um heima og
geyma, Kai Munk, kvæði, Bæk-
ur, Frá Samvinnustarfinu, Milli
fjalls og fjöru, Innan lands og
utan o. fl. Mjög margar ágætar
myndir eru í þessu hefti.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritið „Ég hef komið
hér áður“ annað kvöld og verður
það sennilega næstsíðasta sýning.
Aðgöngumiðasala hefst kl. 4 í dag.
— Óli smaladrengur verður sýnd-
ur á morgun.
Áheit
á Hallgrímskirkju kr. 4.00 fré S.
Hjálp til danskra flóttamanna:
Dúna kr. 35.0Ó. Þór Benedikte-
son kr. 50.00. G. I. kr. 50.00.