Alþýðublaðið - 18.03.1944, Side 6
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Iðnó (gengið inn
frá Vonarstrætti) mánudaginn 20. marz kl. 8,30 að kvöMi.
FIJNDAREFNI:
1. Félagsmál.
2. Skýrsla frá formanni, ritara og gjaMkera.
3. Kosningar í stjóm og aðrar trúnaðarstöður.
4. Ákvörðun félagsgjalda.
5. Önnur mál.
Stjómin.
Framhalds-aðalfundur
F. í. H. verður á morgun kl. 6 e. h. á venjulegum stað.
. ' STJÓRNIN
"Iv
Samkeppni um ættjarðarljóð
Þjóðhátíðarnefnd lýðveMisstofnunar á íslandi hefur
ákveðið að stofna til samkeppni meðal skáMa þjóðarinn-
ar um alþýðlegt og örfandi ljóð, er gæti orðið frelsissöngur
íslendinga. -!-■ Heitið er 5000.00 króna verðlaunum fyrir
ljóð það, er telst þess maklegt.
Frestur til þess að skila Ijóðum er ákveðinn til 20.
apríl n. k. kl. 12 á hádegi, og skal þeim skilað á skrifstofu
nefndarinnar í alþingishúsinu.
Alexandra Kollontay.
Frh. aí 5. síðu.
í byltingunni var Alexandra
Kollontay réttur maður á rétt-
um stað. Áhugi hennar fyrri
hinum nýja sið orsakaðist þó
ekki fyrst og fremst af áhuga
fyrir nýskipan á vettvangi fjár-
mála og og stjórnmála. Að
hnnar dómi var mikilsverð-
.asta hlutverk byltingarinnar
það að steypa af stóli fornum
hefðum og siðum í daglegu lífi
sér í 'lagi þó innan vébanda
fjölskyldulífsins. Þegar fyrir
1917 hafði hún gerzt foringi
kvenréttindahreyfingarinnar á
Rússlandi. Nú lýsti hún því yf-
ir, að fjölskyldulífið í sinni
fornu mynd skyMi hverfa og
tími „frjálsra ásta“ hafinn. Frú
Kollontay, er var einhver feg-
ursta kona Rússlands, gerðist
frú Pompadur rússnesku bylt-
ingarinnar.
A byltingarárunum giftist hún
Dybenko, er var einn hinn skáld
legasti og glæsilegasti maður
meðal foringja borgarstyrjald-
arinnar. Dybenko, hinn svart-
skeggjaði risi, hafði verið ó-
breyttur, ómenntaður sæfari.
Hann gerðist foringi uppreisnar
Eystrasaltsflotans árið 1917 og
síðar fyrsti flotamálaráðherra
sovétstjórnarinnar. Hann var
skapmikill, ákaflyndur og orð-
hvass. En hann var einnig mild
ur og næstum því angurvær
draumamaður. Á dögum bylt-
ingarinnar lét Dybenko þau
ummæli falla, að hann myndi
hengja foringjaráð Eystrasalts-
flotans „á ránni“, en nokkrum
mánuðmn síðar sagði hann af i
sér sem flotamálaráðherra í *
mótmælaskyni gegn því, að
bolsevikar höfðu lögleitt dauða
refsingu að nýju. Nafn Dyben-
kos er nú fallið í gleymsku og
fyrnsku. En á árunum um 1920
voru þau Dybenko og Kollon-
tay hetjur hinnar ungu, þjáðu
en vígdjörfu kynslóðar Rúss-
lands.
AÞESSUM ÁRUM var
Kollontay róttækust
allra róttækra, svo að notaður
sé málsháttur, sem Rússar hafa
mikla vélþóknun á. Því fór
f jarri, að fylgi hennar við flokk
inn einkenndist af skilyrðislaus-
um rétttrúnaði. Þegar flokkur-
inn féllst á friðarsamninginn í
Brest-Litovsk, réðist hún vægð-
arlaust á Lenin og fylgismenn
hans og fordæmdi friðinn „sem
svívirðilegt og sviksamlegt
samkomulag við hina þýzku
heimsveldissinna“. Hún sagði
sig meira að segja úr flokknum,
en gekk þó brátt í hann að
nýju. Hún leit einnig með van-
þóknun á skrifstofubákn það,
sem ráðamennirnir komu á fót
eftir byltinguna. Þegar árið
1920 gerðist hún leiðtogi hinn-
ar svonefndu „andstöðu verka-
mannanna", en málsvarar henn
ar kröfðust þess, að verkalýðs-
samtökin og ríkið skyldu vera
eitt og hið sama, og túlkuðu
andstöðu hinna óbreyttu flokks
manna gegn ofurvaldi flokks-
ins. Þetta var áhrifaríkasti á-
greiningurinn innan bolsevika-
flokksins, unz deilan milli Stal-
ins og Trotskys kom til sögu.
En um þessar mundir voru þeir
Lenin, Trotsky og Stalin enn
Laugardagur 18. marz 1944.-
Mnlýðslélðgin hvetja til
eininsar i sjálfstæðismálinn
Ávarp til íslenzku pjóðarÍDnar varð-
andi lýðveldis- og skilnaðarmálið.
tipvmmvAÐm
sameinaðir í baráttunni gegn
„andstöðu verkam,annanna“.
Kollontay beið algeran ósigur
og sætti mikiíli tortryggni. Hún
hætti að láta innra flokksstarf-
ið til sín taka, en ákvað að
vinna í þágu Rússlands bylting
arinnar, þrátt fyrir alla galla
þess.
Árið 1923 fór hún til Nor-
egs sem sendifulltrúi Rússa, og
eftir það hefir hún um tuttugu
og eins árs skeið starfað á veg-
um utanríkisþjónustunnar er-
lendis. Frá Noregi fór hún til
Mexico og þaðan aftur til Nor-
egs. Frá því árið 1930 hefir hún
verið sendiherra Rússa í Sví-
þjóð. Þessi fulltrúi hinna mik-
ilhæfu langþreyttu byltingar-
manna hefir hlotið andlega
hvíld eftir hina stormasömu og
viðburðaríku ævi sína í hinu
hljóðláta og milda andrúms-
lofti Norðurlanda, þar sem
menningarinnar gætir svo
mjög. Hún hefir unnið af trú-
mennsku og dyggð fyrir mál-
stað ættlands síns jafnframt
því, sem hún hefir fengið notið
æðsta unaðar lífsins, er or-
sakast af skilningi á eðli mann-
anna og sögu þeirra.
*
STOKKHÓLMUR varð mjög
þýðingarmikill staður séð
frá sjónarhóli stjórnmála-
mannanna, eigi hvað sízt
þeirra, er störfuðu á vegum
utanríkisþjónustu hinna ýmsu
þjóða, á árum styrjaldarinnar.
Hinn aldurhnigna frú Kollontay
átti þess nú einu sinni enn
kost að njóta félagsskapar mik
ilhæfra stjórnmálamanna og
sendifulltrúa og vinna störf, er
verða næsta mikilvæg talin.
Árið 11940 átti hún mikinn þátt í
því að leiða til lykta hina blóð-
ugu og torleystu deilu Rússa
og Finna. Hún efndi þá til vin-
samlegra samræðna við Paasi-
kivi og vann að friðarsamningi,
er firrti Finna áberandi niður-
lægingu. Síðustu vikurnar hef-
ir hún unnið að sama verkefni.
Þegar Alexandra Makhailovna
vinnur að því að semja vopna-
hlésskilmála, sem hið sigraða
Finnlandi á að samþykkja, væri
ekki úr vegi, að hún minntist
þeirra ára, þegar rússneska
byltingin var skipulögð á
finnskri grund. Ef til vill geng-
ur velvild hennar svo langt, að
hún minnist þeirra daga, er
hún reit bók sína „Verkalýðs-
stéttir Finnlands“, þar sem hún
lætur í ljós hrifni sína á fram-
sóknarhug finnska verkalýðs-
ins. í bókaskáp hennar mun
einnig vera að finna skilríki, er
greina frá samþykktum bolse-
vikaflokksins og sovétríkjanna,
þar sem þáverandi sambands-
lýðveldaráðherra lýsti fjálg-
um oi;ðum rétti Finnlands til
sjálfstæðis og sjálfsstjórnar.
Ráðherra sá var enginn annar
en Jósef Stalin. Ef sögulegar
endurminningar orka nokkru
til þess að móta stjórnmál sam-
tíðarinnar hefðu skilmálar þeir,
er frú Kollontay setti Paasikivi
sannarlega ekki átt að vera allt
of harðir.
Safnaðarfundur Nessóknar . . . .
með fyrirlestri próf, Alexanders
Jóhannessonar um kirkjubygging-
aar, sem auglýstur var í Tjarnar-
bíó sunnudaginn 19. þ. m. verður
frestað til sunnudagsins 26. marz.
kl. 1.15 e. h. á sama stað.
Fríkirkjan.
Messað á morgun kl. 2. Séra
Árni Sigurðsson. Kl. 11 unglinga-
félagsfundur í kirkjunni. Sögð
ferðasaga, framhaldssagan o. fl.
Laugarnesprestakall.
Messað í samkomusal Laugar-
neskirkju á morgun kl. 2. Séra
Garðar Svavarsson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 10.
Hallgrímssókn.
Kl. 2 e. h. messa, séra Sigur-
björn Einarsson. Kl. 11 f. h. barna
guðsþjónusta, séra Jakob Jónsson.
Kl. 10 Sunnudagaskólinn.
Alþýðublaðinu hefir bor-
izt efirfarandi ávarp til ís-
lenzku þjóðarinnar varð-
andi lýðveldis- og skilnað-
armálið.
STJÓRiNHt landssamibands
ungra framsóknarmanna,
ungra jafnaðarmanna, ungra
sósíalista og ungra sjálfstæðis-
manna, stjórn Ungmennaféiags
íslands og stjórn Stúdentafélags
Reykjavíkur hafa átt viðræður
um sameiginlega afstöðu allra
þessara aðila til lýðveldis og
skilnaðarmálsins.
Á sameiginlegum fundi
stjórna fyrrgreindra félagssam-
ibanda og samtaka, er haldinn
var í Reykjavík þann 16. marz
1944, var í einum rómi sam-
þykkt eftirfarandi álitsgjörð
og ávarp til íslenzkrar æsku og
almennings í landinu:
Fundurinn lýsir ánægju sinni
yfir því, að alþingi skuli ein-
róma hafa samþykkt lýðveldis-
stjórnarskrá íslands og þingsá-
lyktun um niðurfellingu dansk
íslenzka sambandalagasáttmál-
ans.
Fundurinn heitir á íslenzka
æsku og alla þjóðina, að fylkja
liði við þjóðaratkvæðagreiðslu
þá, er fram verður látin fara um
bæði málin, og staðfesta einum
rómi þá stefnu, er alþingi hefir
markað í þessum málum og er í
beinu framlhaldi af baráttu og
athöfnum þjóðarinnar í sjálf-
stæðismálum hennar.
Sérstaklega heitir fundurinn
á einstök fólög og meðlimi
greindra félagssamtaka að láta
einskis ófreistað til þess að vinna
sem bezt að undirbúningi þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar og
stuðla með hverju móti öðru að
því, að fram komi sem sterk-
ust heild þjóðarinnar og glæst-
ur áhugi.
Fundurinn lýsir yfir þeim
vilja sínum, að saman megi
fara sambandsslitin og stofnun
lýðveldisins að atkvæðagreiðsl-
unni lokinni, og að stofnun lýð
veldisins megi verða með þeim
hætti og með þeim blæ, er sé-
virðingu þjóðarinnar samþoð-
inn.
Ofangreind félaigssamtök
vilja enn fremur heita á alla
meðlimi sína svo og allan al-
menning í landinu að vinna að
því, að stofnun hins nýja lýð-
veldis megi verða íslendingum
til meiri giftu og auka þjóðlega
einingu og farsæld landsmanna.
Að lokum lætur fundurinn í
ljósi þá ósk sína, að allir lands-
menn sameinist um varðveizlu
þjóðlegra verðmæta um leið og
fundurinn minnir á, að frelsi
og sjálfstæði landsins eru grund
vallarskilyrði fyrir menningar-
lífi með þjóðinni.
F.h. stjórnar iSambands ungra
framsóknarmanna: Þórarinn
Þórarinsson, formaður; f.h.
stjórnar Sambands ungra jafn-
aðarmanna: Friðfinnur Ólafs-
son, forsesti; f.h. stjórnar Sam-
bands ungra sjáifstæðismanna:
Jóhann Hafstein, formaður; f.h.
stjórnar Stúdentafélags Reykja-
víkur: Eiríkur Pálsson, formað
ur; f.h. stjórnar Ungmennafé-
lags íslands: Gísli Andrésson,
varasambandsstjóri; f.h. stjórn-
ar Æskulýðsfylkingarinnar,
Samlbands ungra sósíalista:
Snorri Jónsson, forseti.
Samkeppni m háfíðarmerki
«
Þjóðhátíðarnefnd lýðveldisstofnunar á íslandi hefur
ákveðið að bjóða til samkeppni meðal dráttlistarmanna um
hátíðarmerki við fyrirhuguð hátíðahöld 17. júní n. k.
Heitið er 2000.00 króna verðlaunum fyrir bezta uppdrátt.
Frestur til þess að skila uppdráttum er ákveðinn til
1. apríl n. k„ kl. 12 á hádegi, og skal uppdráttum skilað
fyrir þann tíma á skrifstofu nefndarinnar í alþingishúsinu.
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFNDIN
Tilboð óskast
í mótorskipið Laxfoss
með öllu tilheyrandi, vél og skipi, í því ástandi, sem
skipið er nú í, og þar sem það liggur á fjöru við Ægisgarð
í Reykjavík.
Tilboð óskast send skrifstofu Trolle & Rothe h.f.,
Reykjavík, fyrir kl. 4 e. h. n. k. miðvikudag þ. 22. marz.
Réttur áskilinn til þess að taka hvaða ttilboð sem er,
og til að hafna þeim öllum.
Reykjavík, 16. marz 1944.
/ .
TROLLE & ROTHE H.f.