Alþýðublaðið - 18.03.1944, Qupperneq 7
ILaugardagur 18. marz 1944.
fœrmn í dag.|
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvtorður er í Lyijabúðinni
Iðunn.
Næturakstur anast Hreyfill,
sími 1633.
ÚTVARPIÐ:
12.10 liádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Úönskukennsla, 2. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 1. flokkur.
19.25 Hljómplötur. Gunnar Ósk-
arsson syngur.
20.00 Fréttir.
20.30 Kórsöngur: Lögreglukórinn
syngur (stjórnandi Matthías
Sveinbjörnsson).
ao.45 Leikrit: Círlagartpurningin
eftir Arthur iSchwitzler.
Brynjólfur Jóhannessön,
Herdís Þorvaldsdóttir, Ind-
riði Waage.
81.25 Upplestur: Um ókunna
stigu, bókakafli (Ragnar
Jóhannesson).
Félagslíf.
Skíðadeildin
Skíðaferð að Kolviðarhóli á
sunnudag kl. 9 f. h. Lagt af
stað frá Varðarhúsinu.
Farmiðar seldir í verzluninni
Pfaff, Skólavörðustíg kl. 12—3
í dag.
HAFNFIRÐINGAR!
. Frá Kristniboðsvikunni í K. F.
U. M. í kvöld verður sýnd kvik-
xnynd frá Kína, II. þáttur.
Aðgangur ókeypis.
Allir velkomnir.
íb ««.* ■»A'«rr€Sc-ci»
Tekið á móti flutningi til Vest-
mannaeyja árdegis á mánuda.
;■ <*■
Bamastúkan TJnnur nr. 38.
Fundur á morgun í G. T.-hús-
inu kl. 10 f. h.
Fjölsækið og komið með nýja
iélaga.
Gæslumenn.
Sextapr í daq:
Jóh Jóhannessoo,
sjómaOer á Htdogðtu
7 f Hafnarfirði.
IDAG er einn af okkar
nýtustu sjómönnum, Jón
Jóhannesson 60 ára gamall að-
árum, en hvorki að útliti né
afturför eins og búast mætti
við af manni á þessum aldri,
sem ekki hefur verið mulið
undir í lífinu.
Fæddur er Jón að Hrauns-
múla í Staðarsveit, sonur Jó-
hannesar Jónssonar og konu
hans Valgerðar Magnúsdóttur
sem þar bjuggu þá. Systkinin
voru 6 og eru 5 þeirra á lífi
öll mjög mannvænleg.
15 ára gamall fór Jón úr for-
eldrahúsum og þá til Ólafsvík-
ur. Gerðist hann þá þegar sjó-
maður á þilskipi og var á því
í tíu sumarvertíðir, og 16 vetr-
arvertíðir réri hann þar á opn-
um bátum, og mun mestur
hluti er hann þá aflaði, hafa
gengið í bú foreldra hans, og
sagt er mér, sem þetta pára, að
alla tíð hafi hann reynzt for-
eldrum sínum hjálplegur og
góður sonur.
19. jan. 1911 fór Jón til Eng-
lands og gerðist þá háseti á
enskum togara og var á honum
þar til í desember 1914 að hann
hvarf heim til íslands aftur.
Byrjaði hann þá þegar sjó-
mennsku á ný á íslenzkum tog-
ara sem hér „Maí“, skipstjóri
Björn Ólafs í Mýrarhúsum. Var
Jón með honum í 9 ár eða þar
til Björn hætti skipstjórn, en
„Maí“ var seldur til Frakk-
lands.
Þegar Hafnarfjarðarbær
keypti sinn togara „Maí“, fór
Jón á hann, og er á honum enn
þann dag í dag, og því nú
þegar þetta er párað einhvers
staðar á hafi úti.
Hann mun því vera búinn að
vera á „Maí“ nær 19—20 ár að
mig minnir; en sjómaður í 45
ár. Jón hefur verið gæfumaður
yfirhöfuð og þá ekki sízt í því
tilliti, að aldrei hefur hann eða
skip þau, er hann hefur -verið
á, lent í sjóslysi, þó æði oft hafi
hann verið á sjó í misjöfnum
og mannskaðaveðrum sem
næhri má geta á jafnlöngum
tíma og hann hefur verið til
sjós.
Jón er léttur í lund og hreyf-
ingum, síglaður og kátur sem
ungur væri. Flestir eða jafnvel
allir, sem unna honum sann-
mælis, munu einum munni
mæla um dugnað hans, stund-
vísi og drengskap.
Slíkir menn sem Jón, eiga
skilið þakklæti alþjóðar, því
slíkir menn færa ekki einung-
is björg í bú, heldur og leggja
sinn skerf til þjóðarbúsins.
Giftur er hann ágætisko^".
Guðrúnu Kristjánsdóttur, ætt-
aðri úr Hafnarfirði. Þau eiga 8
uppkomin börn, mjög mann-
vænleg, yngsta -á 14. ári.
Margir samstarfsmenn Jóns,
vinir, ættingjar og kunningjar,
munu í dag hugsa til hans með
hlýju þakklæti og árnaðarósk-
um, og minnast margra ánægju
legra samverustunda. Kveðju
»’ ’jTOUhi • a»n
Hjðlp til bðgstdðara
baroa erlendis.
Frh.. af 2. síðu.
Fé því, er safnast, verður
varið að nokkru leyti til kaupa
á vörum, er hentugar þykja (t.
d. lýsi og barnafatnaði ), og þær
síðan sendar börnum í ná-
grannalöndum, eftir því sem
leiðir opnast. Miklar likur eru
til þess, að hægt verði að senda
vörur í næsta mánuði með að-
stoð íslenzkra og sænskra yfir-
valda. Þá verður og sennilega
varið nokkru fé til þess að
greiða mánaðarstyrki, eins og
fyrr var greint.
Óvíst er hvernig hjálp verð-
ur komið áleiðis fram yfir það,
sem nú hefur sagt verið. Fram-
kvæmdanefndin stendur í sam-
bandi við íslenzk yfirvöld og
fulltrúa erlendra ríkja hér á
landi um það mál og hefur feng
ið beztu undirtektir um fyrir-
greiðslu.
í nafni Sambands íslenzkra
barnakennara heitum við und-
irritaðir því á foreldra og vini
íslenzkra skólabarna að bregð-
ast nú fljótt og vel við þessari
málaleitun, svo að söfr- - ~
megi verða að liði, ekki sízt þar
sem vissa er fengin fyrir því,
að nokkurt fé kemur strax að
notum. Minnumst þess að
geyma ekki til morguns það,
sem hægt er að gera í dag.
Réttum hjálparhönd strax!“
„Tíðlndalaust af
Ítalíu".
Frh. af 3. síðu.
skothríðin og djúp þögn
ríkti. í fjarska beyrðust ein-
, stakar skotdrunur annars var
allt kyrrt. Þjóðverjar komu
frarn úr skotgröfum sínum,
ofboð varlega. Um nónbil
höfðu þeir borið á brott 143
lík. Þeir báðu um nokkra
farmlengingu vopnahlésins
og var það enn veitt.
ÞEER, SOEM ÞAR VORU stadd-
ir, segja að kyrrðin hafi jafn-
vel verið enn óhugnanlegri
en skothríðin áður. Það var
eins og einhver draugafylk-
ing, þessir menn sem fóru
hljóðlega yfir og söfnuðu
saman líkum félaga sinna.
Engar flugvélar voru á loifti,
skruðningurinn í skriðdrek-
unum var hljóðnaður og eng-
inn hleypti af byssu. Svo
hófst skothríðin af nýju og
Mkin urðu fleiri. Sumir telja,
að bardagar hafi aðeins ver-
ið til málamynda á Ítalíuvíg-
stöðvunum, en þeir, sem bezt
þekkja til þessara hluta, full-
yrða að bardagar hafi verið
mjög harðir þótt þeir séu ef
til vill ekki sambærilegir við
það, sem gerist á gresjum
Suður-Rússlands. Þá má full-
yrða, að bardagarnir á Ítalíu
muni eiga sinn þátt í því að
Ijúka þessu strlði, meðal ann-
ars með því að binda mikinn
þýzkan herafla.
nokkurra þeirra skila ég hér
með einlægri ósk um langa og
gæfuríka framtíð.
Kom heill af hafi heim í dag,
þér heilsar vinaskari
með bæn um allan bættan hag,
er blómgist meir en varir.
Eins og gæfan ei þér frá,
eina stundu víki,
og að lokum landi ná,
ljóss- í föður-ríki.
18. marz 1944.
Fyrrverandi samverkam.
7
Jarðarför dóttur minnar
SsgríSar ICjartansdóttur,
fer fram frá Fríkirkjunni 20. þ. m. bg hefst að heimili hinnar
látnu Sogablett 9 kl. 1¥> e. h. Jarðað verður í Fossvogsgarði.
Fyrir mína hönd og annara vandamanna.
Kjartan Bjamason.
Félag Vörubílaeigenda Hafnarfirði.
opnar í dag
Yörubílasföð
í húsi sínu Vesturgötu 8.
Fljót afgreiðsla. Gððir bílar.
Sími 9325 Sími 9325.
Ný bóh eflir HAGALIN:
í bók þessari gerir höfundurinn
grein fyrir afstöðu sinni til þeirra
mála sem mest hefir verið deilt um
í þessu þjóðfélagi að undanförnu
og má fullyrða að þær deilur minnka
ekki við úfkomu þessa rits
Békin er 15 arkir á vandaðan pappir og
kostar aðeins 25 krónur.
Fyrir 6 krónur
á mánuði fáið þið bezta og læsilegasta dagblað lands-
ins og gildir f>að verð í Reykjavík og nágrenni. Ann-
arstaðar 5 kr. (Ekki 4 kr„ eins og misprentast hafði
í fyrri auglýsingu).
KAUPIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ
YfY?YTYiYTY?Y?YíYTY?Y?YTYTYTYTY?YTY?Y^
AUGLÝSIÐ í ÁLÞÝDUBLADINU