Alþýðublaðið - 24.03.1944, Side 3
liwr
INS OG ÁÐUR hefur verið
getið í fréttum, hafa Þjóð-
erjar nú hertekið Ungverja-
r»' *f i
verjar nu
land, að vísu þannig, að því
er Berlínarfréttir segja, að
það sé gert með fullu sam-
þykki Ungverja, enda mun
Horthy halda áfram að vera
ríkisstjóri landsiiis. Hver er
svo þessi Horthy?
MORTHY HEFUR einhverja
skringilegustu stöðu eða
nafnbót, sem hugsazt getur:
Hann er flotaforingi, aðmír-
áll og gengur venjulega í
slíkum einkennisbúningi,
enda þótt landið liggi hvergi
að sjó og eigi eðlilega ekki
eitt einasta herskip. En svo er
mál með vexti, að í heims-
styrjöldinni fyrri var hann
flotaforingi Franz Jqsefs
Austurríkiskeisara. Meðal
annars tók hann þátt í sjó-
orustunni við Otranto. Eftir
ófriðinn gaus upp mikil og
grimmileg borgarastyrjöld í
Ungverjalandi, er kommún-
istar, undir stjórn Bela Kun,
hófu, en henni lauk með
sigri Hortys.
HANN ER 78 ára að aldri,
fæddur árið 1868. Árið 1920
var hann kjörinn ríkisstjóri
Ungverjalands og hefur gegnt
því embætti síðan. Hann hef-
ur haft mjög mikil völd og
beitt þeim til þess að auka
samvinnu við Þýzkaland,
enda átti hann vingott við
Hitler og hafði oft gaman að
því, að láta taka af sér ljós-
myndir við hlið der Fuhrer
við liðskönnun og slík tæki-
færi.
ITIÐ friðarsamningana í Trianon
árið 1920 urðu Ungverjar að
ganga að hörðum kostum.
Urðu þeir að láta af hendi um
2/3 hluta lands síns, sem féll
í hlut Rúmena, Júgóslava og
Tékka. íbúatala landsins mun
nú vera nálægt 15 milljónum.
Síðan hafa Ungverjar fengið
aftur allmikið landssvæði frá
Eúmenum, fyrir tilstilli
Þjóðverja og ítala. 20.. nóv-
ember 1940 gerðust þeir aðil-
ar að þríveldasáttmála mönd-
ulveldanna. Um 2/3 íbúanna
játa rómversk-kaþólska trú,
þar næst eru Kalvínistar, en
hinir eru Lútherstrúar, Gyð-
ingar og grísk-kaþólskir.
Á SLÉTTUM Ungverjalands
hafa oft verið háðir skæðir
bardagar, sem markað hafa
djúp spor í sögu Evrópu. Þar
voru háðar grimmilegar or-
ustur við Tyrki, þegar tókst
að hefta útþcnnslu Osmanna-
ríkisins í Evrópu fyrr á dög-
um. Landið hefur, legu sinn-
ar vegna verulegt hernaðar-
gildi og má því vænta þess, að
hörð átök verði um það, áður
en lýkur.
AÐALATVINNUVEGUR Ung-
verja er akuryrkja. Aðalút-
flutningsvörur landsins eru
hveiti, rúgur, bygg, hafrar,
kartöflur og sykurrófur. Þá
er og mikil vínrækt í landniu
svo og töbaksrækt. í landinu
Frh. á 6. síðu.
fin
: rw ■ r
á
i
Á myndinni sést nokkur hinna frægu flugvirkja bandaman-na í árás-arferð yfir Þýzkalandi.
Þarna eru þær að varpa sprengjum á flugvélasmiðju í Marienburg í Austur-Prússlandi, þar
sem framleiddar eru Focke-Wulf fiugvélar. Frá flugstöðvum í Bretlandi til Marienburg
eru a. m. k. 2300 km. leið fram ög aftur.
Bretar vörpaiðu suiáSestum spresigna
á bergina ©g ollu þar hiíiis gífurSegasia tfénL
Sférárásir á Braunschweig eg EViiinster.
TILKYNNT var í London í gær, að í fyrrakvöld hefði
mesta loftárás styrjaldarinnar verið gerð á borgina
Frankfurt við Main-fljót í Þýzkalandi. Alls munu um eða
yiir 1000 brezkar sprengjuflugvélar hafa tekið þátt í árásinni
og vörpuðu þær niður um 3000 smálestum sprengna. Skömmu
síðar flugu Mosquito-flugvélar inn yfir borgina og vörpuðu
niður mörgum tveggja smálesta sprengjum.
í gær réðust svo um 500 flugvirki Bandaríkjamanna og
Liberator-vélar varðar mörg hundruð orrustuflugvélum á
borgina Braunschweig og flugvelli við Munster. 33 flugvélar
Breta sneru ekki aftur til bækistöðva sinna.
Það voru brezkar Lancaster-
og Halifax-flugvélar, sem
gerðu stórárásina á Frankfurt.
Árásin hófst kl. laust fyrir 10
um kveldið, var stutt, en feyki-
lega hörð. Fjölmargir eldar
komu upp víða í borginni og
samkvæmt frásögn könnunar-
flugmanna loguðu sumir þeirra
en- í gær. Lítið varð vart við
orrustuflugvélar Þjóðverja, en
skothríð úr laftvarnabyssum
var sögð mjög hörð. Sumar
flugvélar bandamanna vörp-
uðu einnig sprengjum á Berlín.
Þjóðverjar útvörpuðu fregn-
um um, að loftárás væri í nánd.
Þrisvar sinnum milli kl. 9 og
10, og útvarpsstöðin í Stuttgart
hætti útsendingum.
Þá var og ráðizt á ýmsar
stöðvar Þjóðverja í Frakklandi,
einkum á stöðvar norðvestur
af París. Brezkar flugvélar af
Boston-gerð réðust á skip und-
an Noregsströndum og sökktu
einu. Tundurdufl voru lögð á
siglingaleiðir Þjóðverja. Þjóð-
verjar gerðu árás á nokkra
staði í Bretlandi, þar á meðal
á London. Nokkurt eignatjón
varð, ériginn mun hafa farizt.
1 þýzk flugvél var skotin niður.
Það þykir tíðindum sæta,
hversu miklu sprengjumagni
var varpað í éinu á Frankfurt
og telja sumir, að eftir árás
þessa, hafi engin þýzk borg
orðið jafn hart úti, jafnvel
ekki Berlín.
Samtals munu um 1500 amer-
ískar flugvélar hafa tekið þátt
í árásunum á Múnster og Brauns
chweig.
Lokaáfökín nm iko-
laev cru aö hefjasl.
RÚSlSAR kreppa nú æ meira
að setuliði.Þjóðverja í Ni-
kolaev og áttu í gær um 9 km.
ófarna til borgarinnar. Stórskota
'lið -Rússa getur nú haldið uppi
skothríð á skip á höfninni þar,
-en borgin er sem kunnugt er við
ósa Bug-fljóts, sem r-ennur í
Svartahaf. Er talið hæpið, að
Þjóðverjar korni setuliði sínu
undan sjóleiðina. í London var
talið í gærkvöldi, að hersveitir
Malinovskys væru 1 þann veginn
<að hefja lokaárásina á borgina.
-Þjóðverjar játa nú, að Rúss-
um hafi tekizt að brjótast yfir
Dniestr og í Póllandi er sagt, að
Zhukov hershöfðingi hefir
enn hafið sókn á Tarnopol-
Japanar komnlr 11
km. írh í Indland.
JAPANAR halda enn áfr-am
sókninni inn í I-ndland og
eru nú komnir um 11 km. inn
fyrir landamærin. í Lundúna-
ifregnum er talið, að Japanar
munu enn sækja nokkurn spöl
inn -fyrir landamærin, áður en
til meginlátak-a komi við -brezka
herinn. Framsveitir Breta eiga
nú í höggi við Japana,
Á Arakansvæðinu í Burma
fer mótspyrna Japana harðnandi
og í Norður-Burma eiga ktn-
verskar hersveitir í hörðum bar
dögum við Japana.
U' AMKVÆMT fregnum frá
kJ Löndori til norska blaða-
fulltrúans hér, hefir komizt
upp um yfirgripsmikið njósna-
mál í Stokkhólmi. Hafa nokkr-
menn verið handteknir. Eru
ien þessir sakaðir um bæði
henmála- og stj órnmálanj ósnir.
Meðal hinna handteknu er stú-
dent, Wilhelm Linholm, 25 ára
að aldri. Harin er nazisti og
vann við þýzku sendisvéitina í
Stokkhómli. Enn fremur var
handtekinn þýzkur ríkisborgari,
Friederich Gustav Gúnther, 42
ára að aldri og Bertel Rutgers-
son, 28 ára að aldri. Sá síðast-
nefndi er sakaður um að hafa
gefið Gúnther upplýsingar um
ýmisleg vörukaup til handa
norskum flóttamönnum. Annar
maður, sem ekki er nafngreind
ur, hefir játað að hafa fengið
1700 sænskar krónur fyrir að
hafa gefið Gúnther upplýs-
ingar um norska flóttamenn í'
Svíþjóð.
í sænskum blöðum er skýrt
frá því, að meðal hinna hand-
teknu, sé allmargt fólk, sem
hafi verið sérstaklega leikið £
því að komast í vinfengi við
flóttafólkið, einkulm tvær
stdÉkur.
Blaðið ,,Aftohbladet“ segir
frá því, að nazistar hafi haft
hinar glæfralegustu fyrirætl-
anir á prjónunum um að út-
vega Norðmönnum heima fyrir
ónothæf vopn er til innrásar
kæmi. Stóð til að koma sprengi-
efni fyrir i byssuskeftunum,
sem niyndu granda þeim, sem
þeim beittu.
Proskmar-svæðinu og tekið um
200 byggð ból.
þann veginn að brjótast inn í
Kowel, en sú fregn hefir ekki
verið staðfest opinberlega.
Fregnin um, að Antonescu
forsætisráðherra Rúmena, væri
farinn til fundar við Hitler í
bækistöð hans, hefir ekki verið
staðfest. Útvarpsstöðin í Vichy
skýrði frá þessu, samkvæmt
fregn frá Búkarest.
Errn geisa harðir bardagar í
! hefur hvorugur betur
Bandamenn gerðu margar Seffárásir á
ífalskar bergir, sem eru á valdi ÞJóðverja
ENN VIRÐIST óvíst um úrslitin í átökunum um Cassino-borg.
Hinar nýsjálenzku hersveitir Freyburgs hershöfðihgja eiga
í afarhörðum bardögum við Þjóðverja og verður lítið sem ekkert
ágengt. Sumar herdeildir bandamanna á þessum slóðum eru ein-
angraðar, en fá vistir og hergögn loftleiðis. Franskar hersveitir
hrundu nokkrum gagnáhlaupum Þjóðverja. Flugvélar banda-
manna fóru í f jölmarga árásarleiðangra á stöðvar Þjóðverja og ollu
miklmn spjöllum.
Engin breyting virðist á af-
stöðunni í Cassino, að því, er
Lundúnafregnir hermdu í gær.
Á götum borgarinnar er barizt
í návígi. Þjóðverjar ‘hafa enn
Continental-gistihúsið á valdi
sínu, eða öllu heldur rústir
þess og hafa þar 4 skriðdreka
til varnar. \
Við Anzio og á stöðvum 8.
hersins, ber fátt til tíðinda,
nema hvað könnunarflugvélar
hafa átzt við. Stórar sprengju-
flugvélar bandamanna hafa
gert harða hríð að ýmsum
ítölskum borgum, sem eru á
valdi Þjóðverja, m. a. Verona,
Bologna, Rimini og Padua. Þá
var og ráðizt á þýzkar stoðvar
norður af Róm, í Júgóslavíu
og í Vestur-Grikklandi. 7 þýzk-
ar flugvélar voru skotnar nið-
ur en bandamenn misstu 4.
/