Alþýðublaðið - 02.04.1944, Page 5

Alþýðublaðið - 02.04.1944, Page 5
Sunnudagur 2. apríl 1944. 5 Kýikmyndaleikarl í loftárás. Á mynd þessari sést kvikmyndaleikarinn James Stewart (þriðji maður frá vinstri), sem nú hefir á hendi stjórn hóps Liberator-flugvéla á Englandi. Stewart er hér a3 ræða við þrjá aðstoðarmenn sína eftir' að hann hafði stjórnað loftárás á borgina Frankfurt í Þýzlialandi. Myndinni var útvarpað frá Lundúnum til New York. ANNARRI hættu hefði og verið þægt brott, því að síð asta loftárásin var gerð á Lundúni hinn 20. maí. Ungt fólk gefur oft í skyn, að loft- árásarhætta hafi engin verið í fyrri heimsstyrjöld. Ungur mað ur skýrði mér frá því eigi alls fyrir löngu, að hann hefði fyrir skömmu kornist yfir mynd af loftárás á járnbrautarstöð í Lundúnum frá fyrri styrjöld eftir Walter Bayes og kvaðst hafa orðið meira en lítið undr- andi. En ég þekki af eiginraun þessi viðhorf, sem myndin lýs- ir, og endurminningarnar frá 1918 eru mér ríkar í minni. — Tjón af völdum loftárásanna var þá að sönnu hverf- andi í líkingu við það, sem varð í þessari styrjöld, en þó ollu þær miklum þrengingum á sín- um tíma. Aðfaranótt hins 20. maí 1918 féllu og særðust tvö hundruð marins af völdum loftárásarinn ar á Lundúni. Ég minnist þess glögglega, er ég sá Zeppelins- loftfarið sigla yfir sjúkrasúsinu í Lundúnum, þar sem ég lá, árið 1915. Ég lá þar særður, og það orkaði mjög á hug minn, er hjúkrunarkonurnar tilkynntu okkur, að hættan væri liðin hjá. Ég minnist þess einnig, er ég sá fyrstu dagárásina á Gotha verksmiðjurnar í júnímánuði árið 1917. Sumarið 1918 hafði gömul vinnukona okkar það fyrir sið að taka sér stöðu á tröppunum og vera reiðubúin að hlaupa í þessa áttina eða hina eftir því hvar sprengjurnar féllu. Mér er ríkt í minni, hvaða áhrif loft- árásirnar 1918 höfðu á börnin í Lundúnum og varð því meira en lítið undrandi yfir frásögn ungrar stúlku eigi alls fyrir löngu. Sú endurminning frá loftárásunum árið 1918, sem henni var ríkust í minni, var sú, að móðir hennar hefði tekið hana upp úr vöggunni og sett hana undir slaghörpuna og það an hefði hún horft á — ekki flugvélarnar eða sprengjuregnið — heldur móður sína, sem var að skreyta ný jan hatt til pásk- anna. * OFLUN MATVÆLA var þó efalaust mesta áhyggjuefni Siferi grems SÍÐARI HLUTI greinar Sir Stephens Tallents um viðhorfin, er dró að úr- úrslitum lieimsstyrjaldarinn- ar fyrri, fjallar um það, að Bretar hafi ekki faríð var- hluta a£ loftárásum þá, þótt smávægilegar væru í líkingu við það, sem varð í þessari styrjöld. Einnig ræðir hann viðreisnarhug Breta og það, hversu svartsýnir hershöfð- ingjar þeirra hafi verið á það, að úrslita stríðsins myndi skammt að bíða. fólks á Bretlandi um þessar mundir. Styrjaldarárin hafði það orðið að skipa sér í raðir utan við verzlanirnar — bið- raöirnar — eins og The Times komst að orði, og bíða eftir af- greiðslu. Fólkið skipaði sér í raðir þessar snemma sérhvers morguns og voru þar venjulega hundruð manns saman komnir. í ársbyrjun 1918 var þetta á- stand orðið óþolandi, en í fe- brúarmánuði var svo tekin upp matarskömmtun í Lundúnum. Sir William Beveridge hefir lýst á áhrifaríka»hátt gerbreyt ingu þeirri, er varð í þessum efnum um helgina '25. febrúar það ár. Á laugardeginum háfði nær hálf niilljón manns skipað sér í biðraðirnar, en á mánu- deginum voru þær gersamlega horfnar. Matarskömmtun var svo tekin upp um land allt í júlímánuði það ár, enda var ástandið var þá orðið svo ískyggi legt, að sumir spáðu því að draga kynni til byltingar, ef ekki væri einhver haldkvæm lausn fundin. Viðhorf öll höfðu breytzt til hins betra, þegar hér var kom- ið málurn, og menn og konur dreymdi um auðnuríkari frarn- tíð. Orðið ,,viðreisn“ var þá sem nú á hvers manns vörum og gætti mjög í blöðum lands- ins. Mikilvægt spor var stigið á viðreisnarbrautinni á hinum myrku mánuðum ársins 1918, með fræðslumálafrumvarpi því, sem H. A. L. Fisher hafði lagt fram í janúarmánuði og neðri málstofa brezka þingsins tók til þriðju umræðu í júnímánuði dagana þegar Þjóðverjar þrey ttu fastast sókn sína,er heitið var til Parísar. Á öorum vettvöng- um gætti þó óþreyju og svart- sýni, eins og bezt sést af ræðu, er Hughes, forsætisráðherra Astralíu hélt í júnímánuði. Húsnæðisskortur var þá mik- ill eins og nú, og var það vanda mál mjög á dagskrá. Hayes Fisher kvað þannig að orði að reisa þyrfti verkamannabústaði yfir þrjú hundruð þúsundir fjölskyldna í Lundúnum eftir stríð. A.lþýðuflokkurinn bar fram þá kröfu í séptembermán- uði, að lekið yrði fyllsta tillit til óska húsmæðranna um fyrir- komulag, bústaða þessara svo og ekkna, sem vinna yrðu fyrir heimilum sínum. Þessi voru mál þau, er voru efst á dagskrá meöal brezku þjóuarinnar, þegar hugur henn ar beindist frá hinu mikla manntjóni, sem skýrslur blað- anna greindu frá svo að segja daglega. En sú spurn, sem var þó efst í allra hugum, var sú hvenær styrjöldinni myndi ljúka. Hvaða ummæli létu foí- ustumenn þjóðarinnar falla um það mál? * tLOK septembermánaðar kornst Bonar Law þannig að orði: — „Ég fullyrði ekki, að úrslitastund styrjaldarinnar sé runnin upp, en ég fuliyrði, að hennar muni skammt að bíða“. Churchill var engan vegin eins bjartsýnn, sem kann að hafa orsakazt af þrjózku þeirri, er gætti meðal verkamanna, sem unnu að hergagnaframíeiðsl- unni. í ræðu, sem hann hélt í Glasgow hinn 7. október, komst hann þannig að orði: „Ég fæ ekki skilið, þegar tillit er tek- ið til þess tíma, en líður áður en bregður til vetrarveðráttu í Frakklandi og Flandern, að þar sé skjótra úrslita að vænta. Það kann að vera, að stríðsgæf- an verði okkur hliðhollari en hér er ráð íyrir gert, en við höf- ■um engan rétt til þess að vona eða gera okkur í hugarlund, að sú verði raunin.“ — Þess ber að geta, að það hefði verið örðugt fyrir ráðherrana að haga orð- um sínum á aðra lund, þegar Frh. 6 7. eíSu. Ósíundvísi og óreglusemi — Skíðamót Norðmanna og undrunarsvipur á andiitum beirra — Bréf frá litlum dreng um atvinnu hans — Málleitun til blaðalcaupenda. STUNDVÍSI os óreglusemi er þjóðarlöstur okkar íslend- inga. Því miður liefur íþrótta- mönnum okkar enn ekki íekizt að taka upp fasta og ákveðna reglu um það að mót þeirra og sam- komur bvrji alltaf á mínútunni. Knatíspyrnumenn hafa þó gert lcfsamlegar tilraunir í þessa átt, en það hefur alltaf aftur sótt í sama liorfið. Sömu sögu er til dæmis að segja af skíðamótum og er þetta allt mjög slæmur blettur á íbróttalífi okkar. ÞEGAR ÉG LAS fregnina um það, að Norðmenn myndu efna til fikí5astökkmóta hér, datt mér í hug, að ef til vill myndum við læra margt af þessum frændum okkar, þó að til móts þeirra væri efnt í skýndi, og þeir ættu við allt aðrar aðstæður að búa en við sjálfir, þegar við efnum til móta. Nú hef ég fengið ágætt bréf, sem staðfestir þennan grun minn, og fer það hér á eftir. ÍÞRÓTTAMAÐUR SEGIR: „Mig langar til að segja þér, Hannes minn, frá þremur atriðum, sem sérstaklega vöktu athygli mína, á skíðamóti Norðmanna þ. 26. þ. m. Þegar þeir drógu fána sinn að hún, við Kolviðarhól, þá gekk sá sem það gerði að fánastönginni, tók þar ofan og gætti þess vandlega, að fáninn snerti ekki jörðina, er hann dró fánann að hún.“ . „VIÐ NAFNAKALUIÐ, sem fram fór rétt áður en keppni átti að hefjast, voru allir norsku kepp- endurnir viðstaddir og tóku á móti númerum sínum, en aðeins einn ís- lenzltur keppandi (frá stúdentum). íslenzki stökkdómari mótsins tók á móti númerum hinna. Það var ekki sérsíaklega skemmtilegt að isjá undrimarsvipinn á andlitum norsku íþróttamannanna.“ „ÞEIR IIQFÐU AUGLÝST, að mótið byrjaði kl. 2 og á mínútunrii tvö stökk fyrsti keppandinn! Þetta mót ættu íslenzku íþróttamenn- irnir að taka sér til fyrirmyndar, því það vill oft brenna við hjá okkur, að stundvísin verði á eftir áætlun.“ ÉG TEK EINBREGIÐ undir þessi orð. Við veröum að taka upp nýjan sið í þessum efnum. íþrótta- menn eiga að gánga á undan með góðu eftirdæmi. HAFA KAUPENDITR blaða at- hugað það, hversu oft þeir skapa börnum érfiðleika með því að greiða ekki leikninga sína reglu- lega? Fyrir nokkrum árum skrif- aði ég um þetta mál og hvatti blaða kaupendur lil þess að greiða börn- unum reikningana strax og þau koma með þá. Reikningana verður hvort sem er að borga og þlöðin eru ekki seld svo dýru verði, að ekki sé hægt að greiða reikning- ana nokkum veginn reglulega. ÉG FÉKK fyrir nokkrum dög- um dálítið bréf frá „Útburðar- dreng“ um þetta efni, og er það í raun og veru bón til blaða- kaupenda, sem ég vona að þeir taki til greina. Starf barnanna, sem bera út blöðin, er svo erfitt, að kaupendurnir ættu að gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til þess að létfa þeim það. ÚTBURÐARDRENGUR SEGIR: „Mig langar til að biðja þig fyr- ir nokkur orð til kaupanda blaða í þessum bæ. Ég er einn af þeim mörgu drengjum, sem bera út blcð á morgnana, áður en ég fer í skólann á daginn. Þetta geri ég til að vinna mér inn nokkrar krón- ur á mánuði.“ „EN NÚ KEM ÉG að því, sem ég ætla að segja, og það er, hvort fullorðna fólkið, sem kaupir blöð- in, hafi nokkurn tíma athugað það, hvað langur tími fer í rukkunar- starfið hjá okkur. Það kemur nú ekki ósjaldan fyrir, þegar ég kem til að rukka, þá eru engir pen- ingar til, og mér er sagt að koma á morgun, og svo hinn daginn, og svo í 3ja sinn, um næstu helgi, og svo er borgað inn á, og svo safnast alltaf meiri og meiri upphæð. Sem betur fer, eru margar undantekn- ingar frá þessu, en svona er það að oftast fer allur mánuðurinn í innheimtuna.“ , „NÚ VILDI ÉG mælast til þess, að fólk breyti nú til og leggi allt- af til hliðar aura í hverri viku, svo það geti borgað reikninginn strax og hann kemur, og aðrir, sem eru sjaldan heima, bæðu fólk fyrir peningana. Þetta þykir nú kannske til nokkuð mikils mælzt, en það finnst mér nú bara ekki.“ ÉG ER ALVEG á sömu skoðun og þú, vinur minn, og ég skil ekki í öðru, en fólk vilji hjálpa þér með þetta. Það er virðingarvert af þér að vilja hjálpa pabba og mömmu með því að vinna þér inn nokkra aura — og það er ekki til of mikils mælzt, að fólk verðlauni dugnað þinn með því, að gera þér starfið eins létt og auðið er. Hannes á horninu. vantar okkur frá næstu mánaðamótum til að bera blaðði um Framnesveg, HÁTT KAUP * Alþýðublaðið. — Simi 4900.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.