Alþýðublaðið - 14.04.1944, Síða 2
■IPTqMBlftPlS
Ole Kiilerich Jalar í
hvöld í Norræna-
Q KEMMTIFUNDUR Nor-
^ rænafélagsins er í kvöld
að Hótel Borg. Allir félagar
í dönsku félögunum eru vel-
komnir á fundinn.
Ole Kiilerich fyrrverandi
ritstjóri danska leyniblaðsins
„Frit Danmark“ flytur er-
indi á fundinum um leyni-
starfsemina í Danmörku eft-
ir hernám Þjóðverja, er ekki
að efa að það verður athýgl-
isvert og fróðlegt erindi.
ia lil aS
En vilja fresta stofnnn 8ý$veBdisins þar tií
talai hefir verifi yi® konnnginn.
Samþykkt á fuodi á þriðjudagskvöSd.
illiénir frá 1. marz
1943 til 1. ntarz s. I.
SAMKVÆMT yfirliti Hag-
stofunnar námu inneignir
bankanna erlendis í lok febrú-
armánaðar kr. 458 milljónum
570 þúsundum króna og höfðu
aukizt frá þvi um áramót um
11,9 milljónir króna.
I lok febrúarmánaðar 1943
áttu bamkarnir inni erlendis
265,7 milljónir króna og nem-
ur aukningin á árinu því tæp-
um 193 milljónum króna.
Seðlaveltan minnkaði í fe-
brúar og sýnir það að sjálf-
Bögðu minnkandi viðskipti.
Seðlar í umferð námu í lok fe-
brúar kr. 132 millj. 870 þús. og
minnikaði seðlaveltan í mánuð-
inum um 2,8 milljónir króna.
BarnablaSið Æskan,
3.—4. hefti þessa árs er komið
og flytur margar barnasögur og
ýmislegt barnagaman.
Lögskilnaðarmenn I
boðuðu til fundar síð-
astliðinn þriðjudag og ræddu
afstöðu sína til þjóðarat-
kvæðagreislunnar 20.—23.
maí næstkomandi og stofn-
unar lýðveldisins.
Gerðu þeir ályktanir í þess-
um málum og fara þær hér á
eftir:
„Fundur lögskilnaðarmannia,
haldinn í Kaupþingssalnum í
Reykjavík, þiðjudaginn 11. apríl
1944, gerir eftirfarandi álykt-
anir:
I. Lögskilnaðarmenn telja, að
réttara hefði verið, að formlegu
afnámi sambandslagasamnings-
ins við Danmörku væri frestað,
þar til viðræður gætu farið
fram milli sambandsþjóðanna.
En með því að Alþingi hefir
nú horfið frá þeim hættulegu
áformum, að samningurinn yrði
felldur niður fyrir þann tíma,
er lögmætur getur talizt sam-
kvæmt ákvæðum hans, en fall-
izt í reyndinni á það mikilvæga
atriði í rökum lögskilnaðar-
manna, að 3 ár skyldu líða frá
því að ályktanir Alþingis 17.
mai 1941 bárust dönsku ríkis-
stjórninni þangað til endanleg
niðurfelling samningsins færi
fram af hálfu þings og þjóðar,
telur fundurinn einsætt að
hvetja Islendinga til að sam-
þykkja niðurfellingu samnings-
ins við þjóðaratkvæðagreiðslu
20.—23. maí næstkomandi, til
þess að sú þjóðareining, sem á-
vallt hefir ríkt um sjálft loka-
takmarkið, komi sem skýrast í
ljós. Hins vegar telur fundurinn
meðferð Alþingis á málinu
mjög gallaða og vítir sérstak-
lega það, að ekki hefir fengizt
Molasykurinn er svo líli að
haieei fer ekki i beéðimar.
Hinsvegar er vitSfoótarsesiding vænfanSeg i
næsfu vikia.
viðurkennt, að niðurfelling
sámningsins skuli 'hlíta fyrir-
mælum 18. gr. hans.
II. Lögskilnaðarmenn lýsa
en sem fyrr yfir þeim eindregna
vilja sínum, að lýðveldi verði
stofnað á íslandi, en telja hins
vegar nauðsynlegt, að stofn-
dagur þess verði ekki ákveð-
inn, fyrr en viðræður hafa far-
ið fram við konung og hann
talið sé fært að gefa endanlegt
svar. Jafnframt verði tekið fullt
tillit til aðstöðu landsins og
tryggt, að stjórnskipulagsbreyt-
ihigin hljóti viðurkenningu
þeirra ríkja, er íslendingar eiga
skipti við. Lögskilnaðarmenn
leggja áherzlu á, að þessara at-
riða verði gætt sérstaklega,
eigi sízt fyrir þá sök, að alþingi
hefir ekki treyst sér til að bera
ákveðinn stofndag lýðveldisins
undir þjóðaratkvæði, sökum
þeirrar andstöðu, sem málsmeð-
ferð þess sætti.“
áfkoman fvo fyrsiu mánuðina,
ÓhagdæSur verzl-
unarjöfnuður um
7,5 milljénir.
Bráðabirgðayfirlit
Hagstofunnar um tvo
fyrstu mánuði ársins sýnir að
verzlunarjöfnuðurinn er óhag-
stæður um 7,5 milljónir króna.
Innflutningurinn nam á þess-
um mánuðum kr. 31 milljón
421 þúsundum króna, en út-
flutningurinn nam á sama tíma
kr. 23 milljónum 932 þús. kr.
Innflutningurinn skiptist
þannig á viðskiptalöndin:
Bretland 5 millj. 398 þús. kr.
írland 2 — —
Portúgal 21 — —
Spánn 73 — —
Sviss 273 — •—
Bandar. 17 — 830 — —
Kanada 6 — 448 — —
Ósundurl. 1 — 376 — —
Útflutningurinn skiptist
þannig eftir lpndum:
FramsóknarþingiS:
iénas gefur skýrslu
sína á fsingínu í dag.
»0g á eífir er húfzf vé$ miklum
, umræðum.
AÞINGI Framsóknarmanna
í gærmorgun flutti Ólafur
Jóhannesson lögfræðingur er-
indi um stjórnarskrármálið.
Síðari hluta dagsins voru
engir þingfundir og var tíminn
notaður til nefndastarfa.
I dag gerist sá viðburður á
þinginu að formaður flokksins
Jónas Jónsson flytur þingheimi
skýrslu sína um stjórnmála-
starfið og stjórnmálaviðhorfið
— og er þá búist við miklum
umræðum á eftir. — Þá munu
og ritari flokksins og gjaldkeri
einnig flytja sínar skýrslur.
TWÍ OLASYKURINN, sem
A kominn er til landsins
og húsmæðurnar hafa liald-
ið að þær myndu geta fengið
í dag fæst ekki. Hann verður
ekki látinn í verzlanimar.
Arent Claessen, formaður
Innflytjendasambandsins skýrði
Alþýðublaðinu frá í gær, að
sykurinn væri svo lítill, að ekki
væri hægt að skpta honum;
treysti Innflytj endasambandið
sér ekki að skipta svo litlu
magni milli matvörukaupmann-
anna og matvörukaupmennirn-
ir treysta sér heldur ekki til að
geta skipt því, sem þeir fengju
milli viðskiptamanna sinna.
Alls eru komnar hingað 65
smálestir af molasykri, en á
ieiðinni mun vera skip með um
135 smálestir og er það jafnvel
væntanlegt í næstu viku. Er því
ákveðið að geyma þessár 65
smálestir, sem komnar eru, þar
til 135 smálestimar koma, og
úthluta þá sykrinum.
Geta húsmæðumar bví vænzt
þess, að fá þessa langþráðu
vöru í næstu viku — en ekki
fyrr.
Þá eru og komnar 100 smá-
Bretland 21 millj. 407 þús. kr.
írland 88
Bandar. 2 — 366
Kanada 71
Hæstu liðir útflutningsins
eru: ísfiskur fyrir 12,2 millj.
kr., freðfiskur 6,7 millj. kr.,‘
söltuð síld 2,3 millj. kr. og síld-
amrjöl fyrir 1,4 millj. kr.
Sumarfagnaður
síúdenfa síðasla
velrardag.
STÚDENTARÁ£) Háskólans
og stúdentafélag Reykja-
víkur efna til sumarfagnaðar
fyrir stúdenta að Hótel Borg
síðasta vetrardag.
Hefst skemmtunin kl. 10 og
verður þar ræður, söngur upp-
lestur og dans.
lestir af eplum, og munu þær
koma í verzlanir í dag eða á
rnorgun. . . ^
Föstudagnr 14. apríl 1944.
Fréfflr írá I. S. I.
Ársþhtg íþróttasam-
bandsins í júní.
Margþæfif starfsemi I. S. f. í
undirbúningi.
ARSÞING I. S. I. verður hald
ið sdðari hluta júnímánaðar
Dómaranámskeið I. S. I.: sam
íbandsstjórnin hefir falið íþrótta
ráði Reykjavíkur að undirbúa
dómaranámskeið fyrir dómara í
frjálsum íþróttum. Verður nám
sbeiðið um næstu mánðarmót.
Getur verið ef næg þátttaka
fæst, að námskeiðið verði í
fleiri greinUm. Verður þetta
auglýst bráðlega.
Skíðadómari: Gísli Ólafsson
hefir nýlega v-erið viðxxrkennd-
ur af I. S. I. sem sldðadómari.
Staðfestar reglugerðir: I marz
h-efir I. S. I. staðfest eftirtaldar
reglug-erðir: Fyrir bikar í svig-
keppni A-fl. Reykjavíkurmóts
gefinn af Alm-enna byggingar-
félagin-u, bikar í svigkeppni C-
fl. gefinn af Chemia h.-f. og um
Geirfinnsibikarinn gefinn af Guð
mundi S. Hofdal til glímu-
-keppni í Mývatnssveit.
Sendikennarar I. S. I.: Kjart-
an Bergmann hefir að undan-
'fömu verið við glímukennslu á
Vestfjörðum. Hefir haldið tvö
námskeið nú síðast á ísafirði
og Bolungarvík. Er Kjartan ný-
farinn norður til „Þingeyings"
og verður þar um tíma.
Axel Andrésson er sem stend-
ur í Reykholti, en Óskar Ágústs
son í Norð-ur-Þingeyjarsýslu.
Staðfest met: 29. þ. m. stað-
festi stjórn I. S. I. met á 4x50
m. bringu-boðsundi kvenna sett
af K.R. Tími 3,07,5 Keppendur:
Unnur Ágústsdóttir, Erla Gísla-
dóttir, Sigríður Jónsdóttir og
Jakobína Finnbogadóttir.
Ævifélagar: Þessir hafa gerst
ævifélagar I. S. I. í marz: Brynj
jólfur Sveinsson, kaupm., Ól-
afsfirði, Guðmundur H. Gísla-
son, múr-ari, Rvík, Óskar Gísla-
son, gullsmíðameistari, Rvík,
Bj-arni Guðmun-dsson, blaðam.
Rvík, og er hann nr. 279.
Ný samibandsfélög: I marz
hafa tvö félög gengið í samband
ið þau: U. M. F. Kári, Dyrhóla-
hreppi, Mýrdal. Form. Erlingur
Sigurjónsson. Félagatala 11 og
U M. F. Reykjavíkur, Rey-kja-
vík. Form. Stef-án Runólfsson.
Félagatala 220.
Úrsögn: Eitt félag hefir sagt
sig úr sambandinu, en það er
íþrótta-félag Kjósarsýslu, en
starfsemi þess fellur undir vænt
anlegt héraðssamband.
Skíðadagur: Sambandsstjórn-
in hefir sent áskorun til flestra
skíðafél-aga sinna og ráða og
ibeita sér fyrir skíðadegi, þar
sem seld v-erða merki til ágóða
fyrir skíðak-aup barnaskólanna.
Gerir hún sér vonir um, að ef
ekki takizt að koma honum á
núna í vetur, verði málið full-
undirbúið fyrir næsta vet-ur.
Væntir samibandið sér stuðnings
-kennara og skóla í þessu máli.
EFTIRTALDAR minningar-
gjafir hafa, síðustu daga,
borizt til vinnuheimilissjóðs
Sambands ísl. breklasjúklinga:
Hr. Daníel Ólafsson, stór-
kaupmaður, hefur gefið í minn-
in-gu móður sinnar frú Ólafar
Sveinsdóttur, kr. 5 þúsund.
Hr. Kristvarður Þorvarðsson,
Rvík, gaf í gær kr. 2 þúsund.
til virmuhéimilisins í minningu
konu sinnar, frú Ragnheiðar
Gestsdóttur frá Tungu í Hörðu-
d<al, Dalasýslu, er dó 14. des.
1915.
Hnefaleikakeppni á
i sunnudaginn.
i — [
Hnefdleikaskóii Nrsfeini Gíslasonar
Þorsteinn Gíslason.
HNEFALEIKASKÓLI Þor-
steins Gíslasonar efnir til
hnefaleikakeppni í húsi Jóns
Þorsteinssonar á sun-nudaginn
kemur kl. 8.30.
I Fjórtán til sextán hnefaleika-
menn taka þátt í keponinni,
sem búizt er víð að verði mjög
skemmtileg.
Þorsteinn Gíslason er einn
kunnasti hnefaleikakennari
landsins. Hefir hann starfrækt
skóla sirm í vetur með fjölda
nemenda, en auk þess hefir
hann kennt l.R.-ingum hnefa-
leika.
Gjafir lil Slfsavarna-
félagslns.
JC* FTIRTALDAR gjafir hafa
borizt til Slysavarnadeild-
arinnar „Irigólfúr“ í Reykja-
vík: Eru þær frá skipshöfninni
á „Arinbirni hersi“, samtals
, 1110 krónur:
Guðmundur Guðmundsson,
Miðstræti 10, kr. 100,00. Jón
Sigurðsson, Urðarstíg 11, 25,00.
Karl O. Jónsson, Bræðraborg-
arstig 20, 100,00. Ágnar Jörgen-
sen, Sogabletti 11, 25,00. Ás-
mundur S. Guðmundsson, Þórs-
götu 2, 25,00. Helgi Á. Ársæls-
son, Óðinsgötu 25, 25,00. Bjarni
Á. Helgason, Barónsstíg 30,
25,00. Jónatan Sigurbiörnsson,
Garði, 25,00. Jón Ólafsson,
Laugavegi 101, 25,00. Mikael
Guðmundsson, Reynimel 45,
25,00. Magnús Snæbjörrisson,
Ficherssundi 1, 25,00. H. Jóns-
| son, Njálsgötu 33Á, 25,00. Sig-
; urður Jóhannesson, Hverfisa.
104, 25,00. Ketill Pétursson,
Reynimel 51, 50,00. Guðni Sig-
urðsson, Freyjugötu 32, 50,00.
Lárus H. Eggertsson, Klanpar-
istíg 11, 25,00. Sigfús B. Árna-
son, Miðtúni 34, 25,00. Torfi
Ólafsson, Nýlendugötu 7, 50,00.
Björgvin Gunnarsson, Bakka-
stíg 4, 50,00. Valdimar Krist-
jánsson, Þórsgötu 10, 30,00.
Sigurður Kristjánsson, Hofs-
vallagötu 19, 25,00. Tryggve
Andrésson, Barónsstíg 78,
100,00. Ágúst Gissurarson,
Meðalholti 21, 50,00. Lárus
Magnússon, Reynimel 53, 25,00.
Gísli Þorleifsson, Bragagötu
30, 25,00. Jón Halldórsson,
Laugavegi 71, 25,00. Guðmund-
ur Helgason, Ölduffötu 28,
25,00. Rögnvaldur Kristjáns-
son, Njálsgötu 106, 30,00. Sig-
mundur Pálmason, Þverhoiti 5,
50,00.
Þá hafa Slysavarnafélagi ís-
lands nýlega borizt gjafir og
áheit að upphæð kr. 2981,00
frá éftirtöldu fólki:
Kvenfélagið „Keðjan“, Rvík
kr. 500,00. Samskot í Borgar-
hreppi, að Brunnastöðum kr.
226,00. Þormóður Eyjólfsson,
Siglufirði, til björgu.narb,
1000,00. Ingimar In-gimarsson,
Hverfisgötu 16A 10,00. Bjöm
(Frh. á 7. síðu.)