Alþýðublaðið - 11.05.1944, Síða 2
AtÞYÐUBUflro
FimmtudagÍBn ÍI. maf 1944.
Kjörorð dagsins:
Gangið í Slysavarnafélagið!
Skógrækfarfélagíð boðar
Slysavarnadagurisin s
Fjársöfnun í dag fil kaupa á full-
búnum björgunarbáf fyrir
Reykjavik
tN
l
j!
L.
Efnt er til sýninga á tveimyr sfööum í bænum
landsins, fyrir aukinni ræktun
Landgræðsiusjóður Skógrækfarfélags íslands verður sfofnaður.
Fjársöfnun um land allt sömii daga og þjóð-
aratkvæðagreiðslan veröur.
SKÓGRÆKTARFÉLAG íslands efnir til allsherjarfjár-
söfnunar um land allt sömu daga og þjóðaratkvæða-
greiðslan um skilnaðarmálið fer fram, dagana 20—23. maí.
Um leið verður stofnaður, með því fé, sem safnast, Land-
græðslusjóður Skógræktarfélags íslands, en hann á að hafa
það hlutverk að græða la'ndið, vera vörn gegn ásókn öræf-
anna á gróðurlendið og sameina alla íslenzku þjóðina í
þeirri violeitni að auka gróðurinn og bægja á braut hætt-
unni, sem því stafar af örfoki og niðurníðslu.
LOKADAGURINN er í
dag. Slysavarnadeildir
víða um land efna til fjár-
söfnunar í dag til stuðnings
við starfsemi sína.
Slysavarnadeildin Ingólfur
gengst fyrir starfseminni hér í
Reykjavík og er markmiðiS að
safna nægilegu fé hér í bænum
í dag til þess að hægt sé hið
bráðasta að kaupa fullbúinn,
vélknúinn björgunarbát til þess
að hafa hér í Reykjavík, en
mikill áhugi vaknaði fyrir slík-
nm björgunarbát hér eftir Lax-
fossstrandið í vetur.
Þá efnir deildin til tveggja
sýninga í dag af þessu tilefni. í
Skemmuglugganum verður
sýnd mynd af björgunarbát,
eins og deildin vill eignast og í
gluggum verzlunar Jóns
Björnssonar & Co. verður
sýndur björgunarstóll með öll-
um útbúnaði og jafnframt sýnd
skýrsla um skipshafnir þær,
sem bjargað hefir verið með
þessum tækjum.
í hádegisútvarpinu í dag flyt-
ur Vilhjálmur S. Vilhjálmsson
blaðamaður stutt ávarp af til-
efni dagsins.
Reykvikingar hafa ávallt
verið ríflegir í gjöfum sínum
til slysavarna og svo mun enn
verða. í fyrra aflhenti Ingólfur
Slysavarnafélaginu 30 þúsund-
ir króna, sem söfnuðust á loka-
daginn. í stjórn Ingólfs eiga
sæti: Síra Sigurbjörn Eipars-
son formaður, Þorgrímur Sig-
urðsson skipstjóri, Sæmundur
Ólafsson stýrimaður, Ársæll
Jónasson kafari og Árni Árna-
son. kaupmaður.
herraheimsókn lil
Akureyrar
UTANRÍKISMÁLARÁÐ-
herra fór í heimsókn til
Akureyrar fyrir tæpri viku
ásamt Leland B. Morris sendi-
herra Bandaríkjanna og frú
hans, Krassilnikov sendiherra
Rússlands, Esmarch sendiherra
Noregs og frú hans og Tour-
tellot, hershofðingja flugliðs
Bandaríkjanna hér.
Stjórn Skógræktarfélags ís-
lands boðaði hlaðameiin á fund
sinn í gær og ræddi við þá um
þessi mál.
Hugmyndin að þessari sjóð-
stofnun er koonin frá þjóðarat-
kvæðagreiðslunefndinni og mun
bjarkarlaufið verða notað í fram
tíðinni fyrir merki á fjársöínun
ardögum sjóðsins, en að þessu
sinni verður f jársöfnuninni hag-
að lí'kt og var með fjársöfnun
skólabarnanna, sem nú er nýaf-
staðin. Gefnir 'hafa verið út verð
miðar í fernu lagi: 5 kr., 10 kr.,
50 kr., og 100 krónur og er ætl-
ast til þess að menn gerist þátt
takendur í sjóðnum og starfi
hans með því að kaupa þessa
miða.
Hlutverk sjóðsins er ákaflega
aðkallandi, Hákon Bjarnason
skógræktarstjóri og Valtýr Ste-
fánsson formaður skógræktarfé
lagsins skýrði það nokkuð á
blaðamannafundinum. Hákon
Bjarnasop kvaðst ekki telja ó-
sennilegt að áður fyrr hafi
34.000 ferkílómetrar af landinu
verið gróið land, en það er að-
Hæslaréftardóinur í
húsaleigumáli
HÆSTIRÉTTUR kvað í gær
upp dóm í húsaleigumáli
Vilhjálms Árnasonar gegn Ingi-
bergi Þorvaldssyni.
Niðurstöður og dómur hæsta-
réttar er þannig:
„Hinn áfrýjaða úrskurð hefir
upp kveðið Benedikt Sigurjóns-
son, fulltrúi lögmanns.
Áfrýjandi, sem skotið hefir
Frfa. á 7. sflía.
8Ö úlsvör veröi 30 mililénir
Hækka úr því, setn á$ur var gerl ráð fyrir um
2,5 milljéflir.
Tillaga Aiþýöufl^Scksius um byggiuu íhúöar-
faúsa ©g iækkun á sftofnlkosftnatSi iíESavesí-
unnar var f eid.
A UKABÆJARSTJÓRNARFUNDUR var boðaður og
haldinn í gær. Tilefni fundarins var að ræða um hækk
un á úísvörum bæjarbúa — og var sambykkt, samkvæmt
tillögu frá borgarstjóra að hækka útsvörin um 2,5 milljón-
!
ir kr. og verða þau því á þessu ári 30,1 milljón króna. ^
Tillaga borgarstjóra var svo-
hljóðandi:
„Vegna fyrirsjáanlegra út-
gjaldaauka bæjarsjóðsins á yx-
irstandandi fjárhagsári vegna
hækkaös kaupgjaldJs og hækk-
andi verðlags, ákveður bæjar-
stjórn að útsvör eftir etfnum og
ástæðum skv. tekjiulið VIII í
fjárthagsáætlun b'æjarins árið
1944 verði hækkuð um kr. 2,5
milljónir.“
Þessi tillaga var saflnþykkt
með 8 atkvæðum SjáMstæðis-
flokksins gegn atkvæðum Al-
þýðttflokksins og Sósíalista-
flokksins og ber Sjálfstæðis-
flokksiris því einn ábygð á þess-
ari íhækkun á útsvörum bæjar-
búa, sem að lang mestu leyti
lendir á millistéttarfólki og
öillum almenningi.
( Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks
íns báru fram svoihljóðandi til-
lögu:
,líBæjarstj'órrtin ákveður að
verja af tekjum yfirstandaandi
árs 1,5 milljónum króna, auk
þesis sem þegar hefir verið á-
ætlað til húsbygginga. Skal því
Frh. ó 7. síðu.
eins Vá hluti flatarmáls lands-
ins, sem telja verður að hægt
væri að græða.' Nú eru hins veg
ar aðeins 17 þúsund ferkíló-
xnefrar grónir, eða helmingur-
inn af hinu upphaflega gróna
landi. Þess ber þó að gæta að
þetta gróna land er miklu kosta
rýrara en áður var. Hákon hvað
líklegt að uppundir helmingur-
inn af því landi, sem áður var
gróið, hafi verið skógland. —
Hvað höfum við svo gert á síð-
ustu 40 árum síðan baráttan við
öræfin hófst fyrir alvöru?
spurði Hákon. Og hann svaraði:
Túnin eru um 40 þúsund hekt-
arar, sandgræðslan hefir girt
um 40 þúsund hektara og skóg-
ræktin hefir um 20 þúsund hekt
ara, þetta eru samtals um 1000
ferkílómetrar. Þetta er aðeins
einn seytjándi hluti af gróður-
landi landsins. Á hverju ári höf
um við ekki grætt upp meira
en áður varð örfoka árlega. Ný
allsherjarsókn þarf að hefjast
gegn öræfunum oig í þessari
sókn þarf að sameina hvert ein-
asta mannsbarn á landinu. Það
ætti að verða afmælisgjöf okk-
ar til lýðveldisins að efna til
þessarar sóknar, að sameinast jj
í þessari baráttu. Það væri glæsi |
legur vottur um viðreisn og
framsýni núlifandi kynslóðar.
Skógræktarfélagið biður fólk
um að gerast sjálfboðaliðar við
sókn varðliðana. Snúið ykkur nú
þegar til skrifstofu félagsins að
Laugavegi 3.
Hér er sannarlega verk að
vinna fyrir unga íslendinga.
I
SAMNIN GANEPND
isviðskipta hefir
utanrík-
nýlega
fengið tilkynningu um það, að
hámarksverð á fiski í Englandi
muni lækka frá og með 13. þ.
m.
Á sama verð að gilda á fisk-
inum og var síðastliðið sumar.
Verðið verður því eins og
hér segir: Á hausuðum og
slægðum fiski 7/7, var 8/6, á
flatfiski (lúða, koli o. fl.) verð-
ur lækkunin ekki eins mikil
frá því verði, sem' gilt hefir.
Ýsá og þorskur lækka úr 6/4 í
5/5, flatfiskur með haus, svo
sem koli, lækkar úr 21/5 í 20/6
og lúða úr 21/5 í 20/6.
Náftúrulælmingafclagið
hcldur félagsfund í kvöld í húsi
Guðspekifélagsins við Ingólfsstræti
kl. 8.30. Meðal fundarefnis er er-
indi Jónasar læknis Kristjánsson-
ar er nefnist „Matreiðslusyndir".
Nýjum félögum verður veitt mót-
taka á fundinum.
Mál ríbissfjérnar-
innar úf aí vega-
fyrir félagsdénl.
AlfsýSusambandið
fékk aSeins 2ja
daga frest.
"|\/TÁLSHÖFUN ríkisstjóm-
arinnar gegn Alþýðu-
sambandi Islands végna vega
vinnuverkfallsins var þing-
sett í Félagsdómi í gær, síð-
degis. Fulltrúi Alþýðusam-
bandsins fór fram á viku
frest til þess að geta safnað
gögnum, meðal annars hjá
deildum * sambandsins, víða
úti um land, og til andsvara.
Fulltrúi ríkisstjórnarinnar
neitaði að fallast á svo lang-
an frest og kvaðst hafa
strengilega fyrirmæli um að
fallast ekki á slíkan frest.
Kvaðst hann geta fallist á
eins dags frest. Félagsdóm-
ur kvað síðan upp þann úr-
skurð, að Alþýðusamband-
inu skyldi látinn í té tveggja
daga frestur, eða til kl. 10
ií
fyrir hádegi næstkomandi
laugardag til að tjá sig um
kröfu stefnanda og léggjá
fram
hálfu.
greinargerð af sinni
Fjórir démar kveðnir
SAKADÓMARINN í Reykja-
vík kvað í gær upp fjóra
dóma. Júlíus S. Júlíusson, bif-
reiðastjóri var dæmdur í 60
daga yarðhald og sviptur bif-
reiðastjóraréttindum í 3 ár.
Maður þessi ók bifreið þeirri,
sem Jakob Jónsson frá Galta-
felli varð fyrir og slasaðist til
bana. \
21 árs gömul stúlka var
dæmd, skilorðsbundnum dómi í
30 dága fangelsi og greiðslu 200
kr. í skaðabætur fyrir að stela
200 kr. og peysufötum frá
stúlku, en peysufötunum skil-
aði stúlkan aftur.
Þá var ungur maður dæmd-
ur, skilorðsbundið, í 60 daga
fangelsi og sviptur kosninga-
rétti og kjörgengi fyrir að stela
250 kr. frá starfstúlku á veit-
ingahúsi og fyrir hlutdeild í
öðru auðgunarbroti.
Þá var fjórði maðurinn dæmdi
ur í 300 kr. sekt og gert aö
greiða 430 kr. skaðabætur fyrir
líkamsárás.
1327 kjósendur
höfðu í gærkveldi greitt at-
kvæði. Af þeim voru 801 uíanbæj-
menn en 526 Eeyltvfidngar.