Alþýðublaðið - 11.05.1944, Page 3
Fimmtudaginn 11. mai 1944.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Tíu Norðmenn feknir af fífi
Átta þeirra voru Stafangursbúar.
FRÉTTIR frá Stokkhólmi greina frá nýjum hermdar-
verkum Þjóðverja í Noregi. Hafa þeir tekið tíu Norð-
menn af lífi. Átta þessara manna voru frá Stafangri. Hinir
dæmdu voru skotnir eftir að náðun hafði verið neitað.
Nöfn Stafangursbúanna, sem*-------------------------
teknir voru af lífi, eru: Georg
Osnes, Ferdinand Tjemsland,
Arthur Waldemar Emanuelse,
. Knut Haugnaland, Mágnus Nil-
sen, Henry Viktor Larsen, Arnt
Andersen og Georg Hagbart
Nordbö. Martin Johansen frá
Egersund var og dæmdur til
dauða „fyrir þjónustu fyrir ó-
vinaríki“. Einnig var Johan Al-
fred Göranssen dæmdur til
dauða fyrir að hafa hjálpað
norskum hermanni, Fridtjof Ol-
sen að nafni, til þess að flýja
úr hernum árið 1943.
Margir Norðmenn hafa og
verið dæmdir til fangelsisvist-
ar. Hermann Jöhan Dahl, frá
Stafangri, var dæmdur til átta
ára fangelsisvistar, Guttorm
Husvæg, Seveland, til fimm ára
©g Halvor Tjelmeland, Staf-
angri, til fjögurra ára fangels-
isvistar. Öllum var mönnum
þessum fundið sú sök, að þeir
hefðu látið óvinaþjóð þjónustu
i té. Einar Toralf With, Staf-
angri, var dæmdur til tveggja
ára fangelsisvistar fyrir að
„hlusta á útvarp óvinaþjóðar.“
Útvarpið í Osló lætur þess get
ið að vanda, að hinir dauða-
dæmdú hafi annað hvort verið
kommúnistar eða starfað í þjón
uistu Breta. With var fundið það
að sök að hafa hlustað á norsku
' fréttimar frá London og dreift
þeim meðal landa sinna.
(Samkvæmt frétt frá norska
! blaðafulltrúanum).
Jackie Coogan á
Burmavígsföðv-
unum
Jackie Coogan, hinn frægi
litli kvikmyndaleikari, sem
öllum er enn í fersku minni,
er nú flugmaður í her Banda
ríkjanna á Burmavígstöðv-
unum. Nýlega fluttu banda-
menn lið í loft'i aftur fyrir
stöðvar Japana í Norður-
Burma og tók Jackie þátt í
þeim leiðangri. Hans flug-
vél varð fyrst til að lenda
með liðsfarm sinn að baki
Japönum.
Ný loffárás á
Neusiadt í gær.
TT OFTSÓKN bandamanna í
fyrrinótt og gær beindisf
enn sem fyrr einkum að stöðv-
um á Frakklandi og í Belgíu.
Árás var og gerð á Wiener
Noustadt í gær með miklum
árangri. Einnig hafa banda-
menn haldið uppi snarpri loft-
sókn á Ítalíu og við Miðjarðar-
haf.
Mest mun árás bandamanna
í gær hafa verið gegn Wiener
Neustadt og varð mikið tjón af
hennar völdum á verksmiðjum
borgarinnar svo og flugvelli í
grennd hennar. Árásir voru og
gerðar á borgir í Þýzkalandi
með góðum árangri. Loftsókn-
inni gegn stöðvum á Frakk-
landi og í Belgíu var enn sem
fyrr einkum beint gegn sam-
gönguleiðum og flugvöllum.
Bandamenn hafa og hafið harða
loftsókn á Ítalíu, og voru í gær
mestar árásir gerðar á Genua
og Livorno og stöðvar í ná-
grenni þeirra.
Börn og gamalmenni
Huft brott frá Bjðrgvin
BÖRN hafa að undanförnu
verið flutt hundruðum
saman brott frá Björgvin til
nærliggjandi sveitahéraða, og
bændur í fylkjunum vestan-
fjalls hafa tjáð sig reiðubúna
til þess að taka þúsundir
Björgvinjarbarna til dvalar í
sumar. Einnig hafa þeir tjáð
sig fúsa að taka til vistar gamal
mennir og einstaklinga, er
misstu hús og heimili í spreng-
ingunni miklu á dögunum. Á
hverjum degi er fjölmargt fólk
sem slasaðist, brottskráð af
sjúkrahúsum Björgvinjar og er
miklum erfiðieikum háð að
koma þessu fólki fyrir. Mat er
miðlað í ýmsum byggingum
borgarinnar, sem ýmist eru í
einkaeign eða eigu hins opin-
bera. En samkvæmt síðustu
upplýsingum mun tala hins
nauðstadda fólks nema átta til
tíu þúsundum, svo að af því má
ráða erfiðleika þá, sem við er
að etja varðandi mál þetta.
Þjóðverjar hafa til þessa
hindrað það, að nákvæmar
upplýsingar væru gefnar um
tjón það, er varð af völdum
sprengingarinnar. En sam-
kvæmt þeim fréttum, sem kvis-
ast hafa, mun það vera mun
meira en nokkurn grunaði í
upphafi.
(Samkvæmt frétt frá norska
blaðaf uiltrúanum).
Árásin á Tirpilz
Mynd þessi var tekin eftir að brezkar flugvélar höfðu ráðizt til atlögu við þýzka orrustu-
skipið Tirpitz, þar sem það lá inni á Altenfirði í Noregi. Reykjarmökkur sést gjósa upp
á hinu 41000 smálesta stóra skipi.
Sevastopoi fallin:
Nysókn Rússa vænlanleg samtfmis
innrásinni að veslan
O TALIN gaf út dagskipun síðla í fyrrakvöld, þar sem*
^ hann tilkynnti, að 4. úkranski herinn hefði náð Sevasto-
pol, hinni mikilvægu flotahöfn Rússa á Krímskaga, á vald
sitt með harðfengilegu áhlaupi. Fréttin um fall Sevastopol
hefir vakið mikinn fögnuð í Rússlandi og löndum handa-
manna. í Lundúnafréttum í gær var þess getið, að sigur
Rússa við Sevastopol myndi fyrirhoði enn stærri sirga og
myndi 1, 2. og 3. Úkraníuher Rússa hefja mikla og vold-
uga sókn samtímis innrás bandamanna að vestan.
Bardagarnir um Sevafctcpol
höfðu verið mjög harðir og var
lengi barizt í návígi. Áhlaup
Rússa hófust 7. maí, og voru það
hersveitir Tolbukins hershöfð-
ingja, er lögðu til þeirrar orra-
hríðar. Rússar hafa hernumið
Krímskagann að nýju úr hönd-
um Þjóðverja á fjórum vikum,
en hernám hans tók Þjóðverja
tíu mánuði ársins 1942. Voru
það hersveitir von Mannsteins,
sem þá náðu Sevastopol á vald
sitt fyrsta dag júlímánaðar.
Þjóðverjar láta þess getið í
fréttum sínum, að þeir veiti enn
viðnám á vestanverðum Krím-
skaganum, en Rússar telja hann
nú allan á sínu valdi. Fréttinni
um töku Sevastopol var fagnað
mjög í Moskva og gera rúss-
nesku blöðin, svo og blöð ann-
arra landa, hana mjög að um-
ræðuefni. Eitt hinna rússnesku
blaða lét þess getið í gær, að
hér eftir myndu Rússar leggja
megin áherzlu á sókn sína inn
í Rúmeníu og spáði hinum rúss-
nesku hersveitum glæsilegs sig-
urs í þeirri viðureign. Lundúna
fréttir í gær létu þess getið, að
Rússar myndu hefja nýja stór-
sókn á austúrvígstöðvunum
sanitímis innrás bandamanna
að vestan, sem allir virðast
sammála um að skammt muni
að bíða.
Flugher Rússa tók mikinn og
virkan þátt í orrustunni um
Verða Þjóðverjum
bannaöar flugferöir
yfir Svíþjéð fil
Noregi og Flnnlands!
S
AMKVÆMT Stokklhólms-
fréttum er búizt við því,
að Gunther utánríkismálaráð-
herra Svíþjóðar muni í dag
gera grein tfyrir aístöðu sænsku
stjórnarinnar vegna uppdrátta
þeirra af Svíþjóð, sem funduzt
eigi alls fyrir löngu og talið er,
að Þjóðverjar í Danmörku hafi
haf t undir höndum, en mál þetta
'hefir vakið mikla athygli í Sví-
þjóð. Er talið líklegt, að sænska
stjórnin muni leggja bann við
allar flugferðir Þjóðverja yfir
Svíþjóð til Noregs og Finn-
lands.
Sevastopol og er borgin talin í
rústum, enda láta Þjóðverjar
þess getið, að þeir hafi grandað
öllum mannvirkjum þar. Veittu
Þjóðverjar harðfengilegt við-
nám, og voru bardagar einkum
harðir síðustu þrjá sólarhring-
ana. Varð mannfall mikið í liði
Þjóðverja, bæði í orrustunni
um sjálfa borgina og í flutning-
um hersins brott þaðan yfir
Svartahaf til Rúmeníu.
Ný iilskipim
Terbovens
JOSEF TERBOVEN land-
istjóri Þjóðverja í Noregi,
hefir gefið út nýja tilskipun um
það, að tfólki, er ekki teljist til
áhafnar hlutaðeigandi skipa, sé
bannað að fara um borð í skip
er liggi í norskum höfnum.
Undanskildir eru þó verkamenn
er vinni að því að ferma og af-
ferma Bikip, viðgerðarmenn,
hafnsögumenn og aðri slíkir.
Farlþegum, er ferðast með skip-
um, leyfist ekki að fara um
borð fyrr en að fengnu leyfi.
Þegar farþegar, er ferðast með
farþegaskipum, er-u komnir á
ákvörðunarstað, skulu þeir og
yfirgefa skipið þegar í stað.
Sænskir verkamenn
safna fé handa sam-
berjym sfnsim í her-
numdu löndunum
O ÆNSK BLÖÐ hafa nýlega
látið þess getið, að sænsk-
ir jámbrautarverkamenn og
sjómenn hafi safnað fjárhæð, er
nemi 127 000 sænskum krónum
og varið skuli til hjálpar sam-
herjum þeirra í hernumdu.
löndunum. Þess er og getið, að
nokkur hluti fjár þessa hafi
þegar verið sendur járnbraut-
arverkamönnum og sjómönn-
um á Ítalíu, en verkalýðsfélög
hafa þegar tekið til starfa í
þeim héruðum Ítalíu, sem
bandamenn hafa náð á vald
sitt.