Alþýðublaðið - 18.05.1944, Side 3
Fimmtudagur 18. maí 1944.
AU>VÐUBUÐIÐ
Líkaböngin í Bérlíit
TW|EÐAN ÍSKÝGGILEGAST
■■ horfði fyrir bandamönn-
um og orraistan um Atlants-
hafið, sem svo hefir verið
nefnd, stóð sem hæst, var það
einn liður í áróðri þýzka út- S
varpsins að hriiagja klukku,
þegar sagt var frá, að skip- j
um hefði verið sökkt. Heyrð- ;
ist eitt högg fyrir hvert skip,
sem átti að hafa verið sökkt.
Uppátæki þetta höfðu Þjóð-
verjar eftir brezkri fyrir-
mynd. Svo er nefnilega mál
með vexti, að hið heimskunna
vátryggingarfirma, Lloyds í
London, hafði það fyrir sið,
að minnsta kosti hér áður
■ fyrr, að hringja klukku, sem
komið hafði verið fyrir í
aðalafgreiðslu fyrirtækisins,
þegar fréttir bárust um, að
skip, sem þar var vátryggt, 1
hefði farizt. Er siður þessi
mjög gamall og flestir könn- '
uðust við klukkuna hjá
Lloyds.
NÚ HUGÐUST Þjóðverjar
nota þetta í áróðri sínum.
Þeir bjuggu til sína eigin
„Lloyds-klukku“, sem átti
að glymja í hvert sinn, er
svalar öldur Atlandshafsins
lukust yfir einhverju skipi -
bandamanna. Þetta var einn
liður í „Angstkrieg" þeirra,
þetta átti að vekja undarleg
ar tilfinningar í brjóstum sjó
manna á höfum úti, að heyra
klukknahljóminn, sem tákh-
aði dauða félaga þeirra og
markaði ný spor á leið banda
manna til ósigursins. Stund-
um mátti heyra þýzka þulinn
segja drungalegri röddu, að
í gær hefðu þýzkir kafbátar
sökkt t. d. 8 skipum á
Atlantshafi, samtals 68.000
smálestir að stærð, og síðan
sló klukkan hægt og drunga
lega höggin, sem áttu að læða
óhugnan og vonleysi í sálir
sjómanna í löndum banda-
manna. Raust klukkunnar
átti að tákna: Hvenær kem-
ur rÖðin að þér? Þú færð
ekki umfiúið örlög þín. Gröf-
in vota bíður þín einnig.
NORDAHL GRIEG, sem oft fór
í svaðilfarir með norskum
skipum, lýsir þessu í einni
frásögn sinni, er hann situr
hjá loftskeytamanninum á
norsku skipi, sem er í mik-
illi skipalest, og vitað er, að
kafbátar eru allt í kring.
Þeir heyra Berlínarútvarpið
segja frá gífurlegu skipa-
tjóni, og að margir menn hafi
farizt, og þeir heyra drunga-
legan hljóminn í líkaböng-
inni í Berlín. En þetta missir
marks. Loftskeytamaðurinn
ypptir öxlum, hann skilur
ekkert í því, að Þjóðverjar
láti sér detta í hug, að þeir
geti skelft Norðmenn, hrætt
þá til þess að hætta að vinna
föðurlandi sínu.
NÚ ER ÖLÐIN ÖNNUR. Líka-
böngin í Berlín er hljóðnuð.
Kafbátar Þjóðverja megna
ekki lengur að vekja hræðslu
eða óvissu um úrslitin. Ef
einhvers staðar ómar í líka-
böng, þá táknar það frekar,
að enn einum kafbáti hafi ver
ið sökkt, og að skip banda-
rnanna sigli óáreitt áfram,
Orsognöí
.ono
iufoiaco
Marim
Álíedena
Veilctri
Frosinome
k 1 - ’■> 'S'ys,
íiarcAssNoj
'
TrjmonsueiLV-s
■. Ztc
raona
sr^-'-ure v.:.£b
Svarta línan til hægri sýnir herstöðvar bandamanna áður en sóknin hófst. Liridalurinn, sem
mikið er talað um í fréttunum, sést á miðju kortinu. Þaðan og niður til sjávar hafa banda-
menn rofið Gutsavlínuna. Cassino er þó enn á valdi Þjóðverja. Rómaborg (Rome) sést á kort-
inu lengst til vinstri. Örvarnar þar fyrir neðan sýna Anzio-svæðið þar sem bandamenn settu
fyrir alllöngu lið á land og berjast að baki aðalstöðvum Þjóðverja.
iuf rn as bandantenn muni taka Cassino
|á oi pipr
Ítölsk sklp i sp©nsk“
íshi höfnum Bátin laos
fSx AÐ var tilkynnt opinber-
®T íega í Madrid í gær, að
ræðismannsskrifstofu Þjóðverja
í Tangier, sem slendur við Gí-
braltarsund Afríku megin, gengt
hinu fræga herskipalægi Breta,
HIN mikla sókm bandamamna á Ítalíu hefir nú náð fyrsta
takmarki sínu: Hin sterka varnarlína Þjóðverja, Gust-
avlínan, hefir verið rofin á öllu svæðinu frá Liridalnum uppi
í Appemninafjölkmum til sjávar og Þjóðverjar á þessum
suðvesturhluía vígstöðvanna orðið að hörfa til næstu varn-
arlínu sinnar, Adolf Hitlerlínunnar. Hersveitir bandamanna
eru komnar fram hjá Cassino, sem mest hefir verið barizt
um undanfarna mánuði og setulið Þjóðverja þar í þann veg-
inn að verða innikróað.
hefði verið lokað. Ilafa Bretar
leyft starfsliðinu, að fara um
Gíbraltar til Spánar.
Það er einni'g talið ólíklegt, að Þjóðverjar fái varið hinn
austari og nyrðri hluta Gustavlínunnar eftir að hinn syðri
Kröfur um lokun þessarar
ræðismannsskrifstofu hafa í
einni tíð verið háværar af
hálfu bandamanna.
Það var einnig tilkynnt í gær
í London, af Anthony Eden, að
spánska stjórnin liefði fyrir-
skipað að láta laus öll ítölsk
skip, sem leitað hefðu í höfn á
Spáni, þegar Þjóðverjar lögðu
undir sig flestar hafnarborgir
Ítalíu í fyrrasumar.
Þessar tvær £>íðustu ákvarð-
anir spönsku stjórnarinnar
þykja bera vott um, að Franco
geri sér nú vaxandi far um
það, að þóknast bandamönnum.
hlaðin gögnum,' sem notuð
verða í frelsisbaráttu hinna
kúguðu þjóða í Evrópu.
og vestari er kominn á vald bandamanna.
Það eru amerískar og fransk-
ar hersveitir úr 5. hernum, sem
rofið hafa suðvesturhluta Gust-
av-línunnar, frá Liriánni til
sjávar og er sigur þeirra talinn
hið mesta þrekvirki. En her-
sveitir úr 8. her Breta sækja
fram hjá Cassino; eru þær
komnar norður fyrir borgina og
sækja hart að hinum svokall-
aða 6. þjóðvegi til Rómaborgar,
en hann er nú eina leiðin, sem
setulið Þjóðverja í Cassino á
opna til undanh^lds. Þjóðverjar
verjast þar þó enn af hörku og
hafa gert mörg gagnáhlaup til
að halda leiðinni opinni; en
þeim heíir öllum verið hrundið.
Þjóðverjar skýra svo frá, aði
gífurlegir bardagar séu háðir á
Ítalíuvígstöðvunum á 35 km.
löngu svæði og sé þar beitt
flugvélum, skriðdrekum og stór-
skotaliði jöfnum höndum. En í
fréttum þeirra er reynt að
breiða yfir undanhaldið með
því að tala um „tilfærslur á
liði Þjóðverja samkvæmt áætl-
un“.
Þá er í þýzkum frettum einn-
ig getið um ægilega stórskota-
hríð bandamanna á landgöngu-
svæðinu við Anzio, norðar á
vesturströnd Ítalíu, að baki
Gustavlínunni, og þess getið til,
að stórsókn bandamanna þar sé
nnig í aðsigi.
. 3
.
Virðuleg hálíðahöld
Norðmanna I
Loirdon í gær \
— 'W
IPí VAHVETNA um hekri
utan Noregs héldu Norá
menn þjóðhátíðadeg sinn há-
tíðlegan í gær og bárust Há-
koni konungi óteljandi heilla
óskaskeyti; en miðstöð hátíða
haldanna var London, eins og
öll árin síðan norska stjórn-
in leitaði aðseturs þar.
Um morguninn var hátíða-
guðþjónusta í St. Páls
kirkjunni. Um kvöldið var hátíð
í norsku sjómannakirkjunni og
flutti Nygaardsvold forsætisráð
herra ræðu við það tækifæri.
Síðan var hóf í Tavistock House,
aðalsamkomustað Norðmanna.
í borginni. Þar talaði Trygve
Lie utanríkisráðherra. Samtím-
is var haldinn fundur í Norsk-
brezka félaginu og hlýddu menn
þar á ræðu Hákonar konungs,
sem útvarpað var til Norðmanna
heima og erlendis. Þar talaði
og Smith-Kielland sendiherra,
en hin kunna norska söngkona,
Soffi Schönning, söng einsöng.
Athöfnin í St. Pálskirkjunni
var mjög hátíðleg. Norsk hörn
gengu fylktu liði eftir kirkju-
gólfinu með fána sína, en norsk
ir hermenn stóðu heiðursvörð
fyrir utan kirkjuna. Söngflokk-
ur kirkjunnar söng á norsku og
hafði hann sérstaklega verið
æfður í þessu skyni.
í ræðu sinni í norsku sjó-
mannakirkj unni sagði Nygaards
vold forsætisráðherra meðal
annars:
„Vér höfum alltaf treyst á sig
ur rétitarins og réttlætiisins yfir
ofbeldi og dýrslegri grimmd,
en vér höfum aldrei getað sagt
hvenær sá sigur yrði unninn,
og það getum vér heldur ekki
ságt '' nífeð'■ néiiiiii óiálívæinni 'í
dag; en vér vitum, að sá dagur
nálgast nú bæði öruggt og fljótt.
Og þá verður það hlutverk
norsku þjóðiarinnar, sameigin-
lega og á lýðræðisleg-
Frh. á 7. síðu.
Japanir nú í vörn við
landamæri Ind-
iands og iurm
JAPANIR eru nú greinilega
í vörn í landamærahéruð-
um Indlands þar sem þeir gerðu
innrásina frá Burma í vor. Þeir
hafa verið reknir burt af Ko-
liimasvæðinu, en verjast í skot-
gröfum í héraðinu umhverfis
Imphal.
í Nórður-Burma sækja hinar
amerísku hersveitir Stillwells
hægt, en jafnt og þétt fram frá
kínversku landamærunum. Kín-
verskar hersveitir sækja fram
suður á bóginn nokkru vestar
og er takmax-k þeirra auðsýni-
lega að opna herflutningaleið
frá Indlandi til Kína.
Harðir bardagar halda áfram
á Peiping-Hankowsvæðinu í
Kína og hafa, Kínverjar náð
aftur um 35 km. svæði af járn-
brautinni milli þessara borga.
En Japanir hafa í annað sinn
brotizt inn í borgina Loyens.