Alþýðublaðið - 10.06.1944, Page 4
AUÞYÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 10. júní 1944.
m>i|Dpblaðtð
Ritstjóri Stefán Pétursson.
Símar ritsjórnar: 4901 og 4902.
Ritstjórn og afgreiðsla í Al-
I ýðunúsinu vio 22. ~—"*•’
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Símar afgreiðslu: 4900 og 4906.
Verð í lp-sasölu 40 aura.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
ðrligarfkt {tingbald.
ALÞINGI kemur saman til
framhaldsfunda í dag.
Verkefni þiess nú er fyrst og
fremst að taka lokaákvörðun-
ina á skilnaðar- og lýðveldismál
inu.
Ályktun aliþingis um niður-
felling dansk-iíslenzka sambands
lagasáttmálans kemur ekki til
framkvaemda fyrr en þingið hef
ir tekið ákvörðun um það að
undangenginni þj óðaratkvæða-
greiðslu. Og sama gildir um
bráðábirgðastjórnarskrá lýðveld
isins. Hiún tekur ekki gildi fyrr
en aiþingi gerir um það sérstaka
saimþykkt að fengnu jákvæði
þjóðarinnar.
*
Fyirir alllþingi liggur því að
þessu sinni að taka úrslitaá-
kvörðun á stórvægilegustu mál-
um, sem það hefir nokkru sinni
fjallað um: Endanleg riftun
stjórnarfarslegra tengsla við
Danmörku og stofnun lýðveldis
á íslandi.
Á Iþinginu í vetur tók alþingi
ákvarðaniir slínar lí þessum mál-
um með einróma samþykki allra
þingmanna, að einum undan-
skildum, sem ekki gat mætt á
þingfundi sökum langvarandi
vanhieilsu. Þjóðin hefir nú gold-
ið akvörðunum alþingis svo ein
huga og almennt samþykki sitt,
að fullkomin eining þings og
þjóðar ríkir í málinu. Og sama
verður niðurstaðan áreiðanlega
þegar nú kemur aftur til kasta
þingsins. Lokaákvarðanir þess
verða vaíalaust teknar í einu
hljóði af öllum þingheimi. Og
hér eftir þarf ekki um það að
villast, að þjóðin stendur að
baki þinginu í þessu máli svo
að segja sem einn maður.
*
Það er von manna og trú, að
innan fiárra daga rætist lang-
þráður draumur íslendinga um
fullt frelsi og' sjáTfstætt lýðríki
á íslandi, óhiáð erlendum ríkj-
um. Alþingi bar gaafu til að
standa sem einn m%ður við uncT
irbúning þess máls. Og þjóðin
lét ekki sinn hlut eftir liggja.
Núlifandi kynslóð íslendinga hef
ár sýnt, að hún er trú hugsjón-
um feðra sinna á frelsismálun-
um. Þjóðin er einihuga og kraft-
ar hennar samstilltir. Vilji ís-
lendinga er hafinn yfir öll tví-
mæli.
í dag kemur allþingi saman
til funda til þess að taka síðustu
ákvörðunina í örlagaríkasta
máli íslendinga: hvenær skuli
feoma til firamkvæmda sá vilji
þings og þjóðar að rjúfa hin
stjórnailfarslegu tengsl við
Danmörfeu og stofna óháð lýð-
veldi á íslandi. Árnaðaróskir al
þjóðar fylgja alþingi, þegar það
tekur endanlega ákvörðun í
mikilvægasta máli, sem það hef
ir nokkru sinni fjallað um:
frelsismáli íslendinga.
Leiyfélag Reykjavíkur
sýnir Paul Lange og Thora
Parsberg annað -kvöld og hefst
sala aðgöngumiða kl. 4 í dag.
Guðjon B. Baldvinsson: ___
Próf steinn j jaf nréttisins.
EF ÞÚ lesandi góður, ert í
stéttarfélagi innan Álþýðu
sambands íslands eða Fiski- og
farmannasambandsins, þá veiztu
að þú getur í samráði við félaga
þína, sagt upp samningum við
átvinnurekandann, og valið úr
hópi félaga þinna, menn til að
setjast við samningaborð með
atvinnurekendum.
Ef þér og félögum þínum
finnst illa ganga, þá samþykkið
þið vinnustöðvun með lögá-
kveðnum fyrirvara, og loks kem
ur að því að samninganefnd eða
félagsstjórn fær fullt umboð
fyrir ykkar hönd og sámningar
eru undirritaðir.
Ef þú lesandi góður ert í
stéttarfélagi innan Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, þá
er annar gangur á þessum mál-
um. Þú getur í samráði við fé-
laga þína gert samþykktir um
hvað þið teljið rétt að bera fram
við ríkisstjórn og alþingi sem
æskilégar breytingar eða við-
bætur við launalög eða önnur
fyrirmæli. Þú veizt að stjórn
félags þíns og sambands getur
fengið viðtal við ráðherra eða
þingnefnd, en þú veizt líka að
ef málaleitan þinni er illa tekið,
úrlausn óviðunandi, þá átt þú
ekki annars úrkostar en beygja
þig og bíða eða segja lausu
starfi þínu. Þú mátt ekki lýsa
yfir vinnustöðvun hvað þá fram
kvæma. Þú getur jafnvel verið
nefndur kommúnisti — þó að
þú kjósir Sjálfstæðisflokkinn,
og að auki verið bendlaður við
landráð, ef þú hefir gerzt svo
djarfur að nefna nauðsyn á
•hærra kaupi.
Getúm /við félagar á B. S. R.
B. trúað því, að þeir alþing-
ismenn, sem fá þann heiður að
leggja síðasta samþykki á nýju
lýðveldisstjórnarskrána, sjái
ekki hvílíkt óréttlæti það er að
þessir launþegar búa ekki við
sama hlutskipti. Við viljum
ekki trúa því að óreyndu að
ofekur verði synjað þeirrar náð-
ar að búa við lögin um stéttar-
félög og vinnudeilur. En við
skuluim 'vaka yfir því hverjar
undirtektir þetta mannréttinda
mál fær.
*
Ef þér eruð kaupmaður, þá
getið þér ekkert sagt, þó að
búðarfólkið og skrifstofufólkið
Iýsi yfir verkfalli með lögleg-
um fyrirvara, og leggi niður
vinnu ef samkomulag ekki næst
um kaup og kjör. Ef þér væruð
forstjóri ríkiseinkasölu, þá þurf
ið þér ekki að kvíða slíkum at-
burðum, hvernig sem þér hagið
yður.
Ef þér rekið bifreiðastöð eða
stýrið skipafélagi, þá vitið þér
að starfsfólkið á rétt skv. lögum
um stéttairfélög og vinnudeilur.
En ef þér eruð póst- og síma-
málastjóri eð forstjóri einhverr
ar ríkisstofnunar þá vitið þér
að um starfsfólkið gilda lög nr.
33 frá 3. maí 1915.
Geðslag yðar er ef til vill á þá
lund að þér teljið í svipinn jafn-
gott, þó að ekki eigi allir laun-
þegar verkfallsrétt, en ég vona
að þeir séuð eigi fleiri hlutfalls
lega, að lokinni athugun á mál
inu, en neikvæð atkvæði um
sambandsslitin við Danmörku,
sem eru svo gamlir í hugsunar-
hætti, að telja mátulegt, þó að
misjafn sé réttur launþega til
athafna, þegar um kaup og
kjarasamninga er að ræða.
*
Eigi skal draga í efa, að dóm-
greind yðar, lesandi góður, verði
fyrir áreitni eða áleitni af þeirri
hugsun eða talsmönnum henn-
ar, að ríkinu beri sérréttindi,
sem æðsta valdi. Ríkið, hvað er
það? Ekki verzlunarfyrirtæki,
sem svo er nefnt í dagiegu tali,
heldur ríkisvaldið, þ. e. alþingi
og ríkisstjórn, æðsta vald þjóð-
arinnar.
Þessu valdi fylgir ábyrgð,
ekki aðeins réttur heldur og
skyldur. Ef til er löp'viöf. sem
gefur rikisvaldinu rétt til að
skerða réttindi jákveðins hóps
löghlýðinna borgara, þá ber rétt-
réttsýnum valdhöfum að af-
nema slíkt misrétti.
Ekki er úr vegi að rifja hér
upp rödd eins þingmanns um
mál þetta. Hann situr að vísu
ekki á þingi nú, en ekki getum
vér ætlað að réttsýni í þessu
máli hafi týnzt úr sölum alþing-
is við burtför hans.
Við 1. umræðu um frv. til
laga um félagsdóm á 36. fundi
Nd. 12. apríl 1937, — útvarps-
umræðu — fórust Thor Thors
orð m. a. á þessa leið: B-deild
Alþt. bl. 583.
„íslenzk löggjöf er enn bann
dag í dag bæði fáþætt og fá-
tækleg á sviði. vinnulögeiafar.
Þar pru nú í gildi aðeins tvenn
lög. Önnur beirra eru lög nr. 33
frá 1915 um bann gegn verkföll
um opinberra starfsmanná. Þar
er svo ákveðið að hver sá, er
tekúr þátt í verkfalM, þar sem
starfið er unnið samkvæmt
embætisskyldu eða sýslanar í
þarfir landsins, . Landsbanka,
spítala, sveitar, svslu eða kaup-
staðar, skuli sæta sekturn frá
500 til 5000 kr. eða fangelsi
eða embættis- eða sýslanamissi. j
Þetta eru bví rétt hræla-
og tugthúslög og það má merki-
legt heita, að hæstv. atvmrh.
sósíalista, sem verið hefir við
völd, í nærfellt 3 ár, en nú er
að hallast út úr ráðherrastóln-
um, skuli ekki hafa hreyft legg
né lið til að fá þessi ófrelsislög
afnumin* Og enginn kommún-
isti hefir öskrað gegn þessum
lögum. Hvað er um hinn dýr-
mæta verkfallsrétt þessara
manna?“
Og aftur segir hann í sömu
ræðu: ,,Ég geri ráð fyrir, að eng
inn hugsandi maður vilji taka
upp þá stefnu einræðisríkjanna,
Ítalíu, Þýzkalands og Rússlands,
að ríkisvaldið ákveði vinnukjör
og kaupgjaldið að öllu eða
mestu leyti.“
En það er einmitt þetta, sem
á sér stað um ríkisstarfsmenn,
og bæja, og þetta einræðissinn-
aða fyrirkomulag er fram-
kvæmt að svo miklu leyti hjá
ríkinu, að ófullnægjandi launa-
lög hafa ekki fengizt hreyfð
síðan 1919, og ,,ófrelsislögin“,
„þræla- og tugthúslögin“ svo
að notuð séu orð Thor Thors,
eru enn óhreyfð.
Skemtilegt væri að mega full-
yrða að þau yrðu úr gildi numin
*) Undirstrikanir gerðar af
.greinarhöf.
VkÆ ORGUNBLAÐIÐ LÆTUR
mjög vel yfir undírtektum
aðalmálgagns kommúnista varð
andi myndun nýrrar stjórnar,
sem allir flokkar ættu hlut að.
í gær skrifaði Mbl. m. a. á þessa
leið:
„Þjóðinni er að verða það ljóst,
að hún hefir aldrei haft aðra eins
möguleika og nú til þess að skapa
almenna velmegun í landinu og
tryggja framtíð fólksins, ef vitur-
lega er á haldið. Hitt er henni jafn
Ijóst,' að hinir miklu möguleikar
verða ekki hagnýttir, ef þjóðin á
að standa í illdeilum innbyrðis,
með þeim afleiðingum, að rifið er
niður jafnóðum, allt sem upp er
byggt.
En það em ekki aðrir en stjórn-
málamennirnir, sem geta skapað
einingu þjóðarinnar. Þess vegna
ríður nú meira á því en nokkru
sinni fyrr, að stj órnmálamennimir
séu víðsýnir og hafi iþað eina sjón-
armið, að líta eingöngu á alþjóðar-
hag.
Þjóðviljinn, aðalblað Sósíalista-
flokksins, ræðir þessi mál í for-
ystugrein í gær. Margir hafa ver-
ið vantrúaðir á, að þessi flokkur
myndi fáanlegur til samstarfs við
aðra flokka. En ef marka má Sor-
ystugreinina í Þjóðviljanum í gær,
virðist þetta engan veginn útilok-
að. Þar eru þessi mál rædd af vel-
vild og skilningi“
— segir MorgunblaSið!
Vísir ræddi þessi mál einnig
í gær og heldur sem fyrr fast
við það, að slíkt samstarf þing-
flokkanna yrði að byggjast á
málefnagrundvelli. Blaðið skrif-
ar á þessa leið:
„Engin ástæða er til að , amast
við því að þingflokkarnir reyni til
þrautar hvort samstarf geti teþist,
en það samstarf verður að byggj-
ast á málefnagrundvelli. Á öðru
getur það ekki byggst. Einstaka
raddir hafa heyrst um, að eðlilegt
væri að flokkarnir mynduðu
Auglýsingar,
sem birtast eiga I
Alþýðublaðinu,
verða að ver»
komnar til Auglýs-
ingaskrifstofimnar
í Alþýðuhúsinu,
(gengið inn frá
Hverfisgötu)
fyrir kl. 7 að kvöldl.
Mhmingarspjðkl
HVÍTABANDSINS fást í
Bókaverzlun Sigurðar Krist-
jánssonar, Bankastræti 3, hjá
Oddfríði Jóhannsdóttur
Laugavegi 61 og í skrifstofu
Hvítabandsins.
eftir 17. júní n.k. og opinberir
starfsmenn þyrftu ekki lengur
að búa við „þræla- og tugthús-
lög“, sem þeim væru sett, sér-
staklega vegna atvinnunnar.
Guðjón B. Baldvinssoil.
stjórn fyrir hátíðina, er fengi það
hlutverk að undirrita stjórnskipun
arlögin, en sæti því næst fram
eftir sumri án málefnasamnings,
en leysti hvert mál, sem fyrir kynni
að liggja með samningum hverju
sinni. Yrði þá tekinn upp sami hátt
ur og vinnubrögð og alþingi hefir
nú. Þar er engin innbyrðis sam-
vinna milli flokkanna, en samið ér
um hvért mál og kaupslagað, og
liggur þá ávallt sú hætta í lofti, að
málin fái á sig of mikinn svip
þeirrar afgreiðslu, sem þjóðin kann
ekki að meta á sama hótt og sumir
þingflokkarnir. Menn kunna að
hafa sitt hvað við það að athuga,
að utanlþingsstjórn skuli sitja að
viöldum, en menn hafa einnig margt
að athuga við gerðir þingflokkanna.
Fari nú svo að þeir myndi stjórn
og hafi þar sömu vinnubrögð og á
alþingi, myndi itaka út yfir allan
þjófabálk og langlundargeði þjóð-
arinnar vera stórlega misboðið."
*
Tíminn skrifar í gær í tilefni
af skýrslu viðskiptaráðs um
skipti þess við Eimskipafélagið:
„Það verður ekki annað sagt en
þessi frásögn viðskiptaráðs sýni
Eimskipafélagið í talsvert öðru
gervi en ,,óskabarn“. í ársbyrjun
1943 fer það fram á miklu stór-
felldari farmgjaldahækkun en það
hefir nokkra þörf fyrir. Þegar líð-
ur á árið og afkoman fer síbafn-
andi, þjózkast það við að veita við-
skiptaráðinu upplýsingar, sem því
var skylt að gefa lögum samkvæmt,
og svarar að síðustu með slíkum
dólgshætti, að helzt mætti halda,
að það áliti sig hafið yfir lögin.
Þegar viðskiptaráðið loks ákveður
lítilfjörlega farmgjaldalækkun í árs
lokin, mótmælir það henni, þrátt
fyrir tugmilljóna gróðann.
Það er vissulega kominn tími til
þess fyrir þjóðina að fara að at-
huga betur uppeldi þessa „óska-
Framhald á 6. síðu.
Unglingar
óskast til að bera blaðið um
HVERFISGOTU
Alþýðublaðið. — Sími 4900.
l