Alþýðublaðið - 15.06.1944, Side 7
Fimmíudagur 15. .jimi 1*44.
iBœrinn í áag.í
-símuivO v:v' ,<.«d .xivsgnu
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki.
Næturakstur , annast Bifröst,
sími 1503.
ÚTVAKPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Þingfréttir.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20.00 Fréttir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar):
a) Franskur forleikur eftir
Kéler-Bela. b) Draumur erig
ilsins eftir Rubinstein. c)
Vals eftir Popy. d) Toreador
et Andalouse eftir Rubin-
stein. e) Mars eftir Urbach.
20.50 Frá útlöndum (Axel Thor-
steinson).
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á
cello.
21.15 Ýmsar upplýsingar vegna
þjóðhátíðarinnar (Guðlaug-
ur Rósinkrans yfirkennari).
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Nýi Bandaríkjasendi-
herrann hjá ríkis-
stjóra.
Frh. af 2. síðu.
tjá yður ánægju Islendinga með
þessa auknu og gagnkvæmu
jaekkingu beggja þjóða. Vér höf-
um lært að meta skilning hinnar
miklu Bandaríkjaþjóðar á okkar
fámennu þjóð og högum hennar,
sem hefir komið fram jafnt frá
stjórnarvöldum Bandaríkjanna og
fulltrúum þeirra hér og frá her-
liði Bandaríkjanna, því, er dval-
izt hefir hér samkvæmt samning-
um, nú í nærfellt 3 ár. Ég hygg,
að ekki sé ofmælt, að hér sé um
fyrirmynd að ræða, fyrirmynd,
sem á rætur sínar m. a. í fölskva-
lausri frelsisást Bandaríkjaþjóðar-
innar, sem er sama eðlis sem
frelsisást vor íslendinga.
Ég þakka yður innilega fyrir þá
sérstöku kveðju, sem þér fluttuð
mér frá forseta Bandaríkjanna,
og óskir þær, er henni fylgdu, mér
og íslandi til handa. Ég bið yður
að tjá hæstvirtum forsetanum, að
mér hafi þótt mjög vænt um
kveðju þessa eins og alla þá vin-
semd, sem hann hefir sýnt ís-
lenzku þjóðinni og mér, nú og
áður.
Mér þætti mjög vænt um, ef
þér vilduð færa hæstvirtum for-
setanum hjartanlegustu óskir
mínar um gæfu og gengi honum
til handa og Bandaríkjaþjóðinni.“
SyfcHrseðlamálið.
Frh. af 2. síðu.
hæstaértti, Sigurðar Ólasonar
hæstaréttarlögmanns, kr. 1000.00.
Alllur annar áfrýjunarkostnað-
ur sakarinnar, þar með talin mál-
flutningslaun skipaðs sækjanda í
hæstarétti, Ragnars' Ólafssonar,
cand. juris, greiðist af hinum á-
kærða in solidum.
Dóminum ber að fullnægja
með aðför að Iögum.“
Frh. af 2. síðu
ir fimleikaúrvalsflokkar, karla
og kvenna, og fimleikahópsýning,
karla. Var þetta samþykkt. Og
liggur nú Þingvallar-dagsskráin
fyrir þannig, að íþróttaþáttur há-
tíðahaldanna verður nú sem hér
segir:
Klukkan 5,25 hefst fimleika-
hópsýning, karla, undir stjóm
Vignis Andréssonar. Fimleika-
mennirnir verða 160 að tölu, auk
11 fánabera í fararbroddi, sem
mynda eins konar fánaborg.
Ganga þeir fylktu liði inn á sýn-
ingarpallinn, frá tjaldbúðunum,
og heilsa með fánanum. Fimleika
sýningin byrjar, og standa fim-
leikamennirnir í tuttugu röðum,
og snúa að Fangbrekku. Fim-
leikasýningin stendur yfir í 15
mínútur. Samæfingar fimleika-
mannanna hafa að undanförnu
verið í Austur-Bæjarskólaport-
inu, vegna þess, að ekkert fim-
leikahús er svo stórt, að það
rúmi allan þennan fjölda. Elsti
þátttakandinn í fimleikasýning-
unni er 43 ára, en sá yngsti 14
ára.
Klukkan 6 hefst Islandsglíman.
Keppendur verða tólf. Fyrri hluti
kappglímunnar var í gærkvöld
hér í Rvík; vegna þess, að eigi er
hægt að ætla Íslandsglímunni
meiri tíma á Þingvöllum en V2
klukkustund. Gert er ráð fyrir
að hver keppandi eigi eftir að
glíma 2 til 3 glímur á Þingvelli.
Sérstök glímuskrá verður prent-
uð fyrir Þingvallarglímuna, svo
að allir geti séð hvernig fyrri
hlutinn hefir farið (vinningar
hvers glímumanns). Tvær 3ja
manna dómnéfndir, hafa verið
skiþaðar (falldómarar og fegurð-
ardómarar); en stjómandi Is-
landsglímunnar er Jón Þorsteins-
son, íþróttakennari.
Ríkisstjórnin hefir ákveðið, að
gefa vandaðan silfurbikar, sigur-
vegaranum, en auk þess fær hann
Glímubelti í. S. í. og sæmd-
arheitið: Glímukappi íslands.
Fyrsta Íslandsglíman fór fram
norður á Akureyri árið 1906, og
var háð þar fjögur árin næstu
eða til 1909; en síðan hefir hún
verið háð hér í höfuðstaðnum,
nema fyrri heimsstyrjaldarárin.
Á Alþingishátíðinni 1930, var ís-
landsglíman háð á Þingvelli,
og svo nú 17. júní n.k. Silfur-
skildirnir á Glímubeltinu skýra
frá því, hver hefir hlotið það og
sæmdarheitið: Glímukappi ís-
lands.
Fyrsta Þingvallarglíman var háð
þjóðhátíðarárið 1874. Næsta Þing
vallarglíma er háð 1907; þriðja
Þingvallarglíman fer fram 1921 og
fjórða glíman á Alþingishátíð-
inni, eins og áður er sagt. Er því
þessi Íslandsglíma, fimmta Þing-
vallarglíman. Og hafa þær allar
þótt merkilegar, þótt eigi væru
þeir nema tveir, sem glímdu árið
1874. Vér gerum ráð fyrir, að
hljóðnemi verði á eða við sýn-
ingarpallinn, svo að allir geti
heyrt hvernig glímukapparnir
standa sig. Enda mun öllu verða
víðvarpar (útvarpað), sem fram
fer á Þingvelli, svo að allir
landsmenn geti fylgzt sem bezt
með, hvar sem þeir eru staddir
á íslandi, þennan sögulega há-
tíðardag þjóðarinnar.
Klukkan 6,45 gengur inn á sýn-
ingarpallinn úrvals-fimleikaflokk-
ur kvenna, undir stjórn Jóns Þor-
steinssonar, og sýnir listir sínar
í 15 mínútur. Eftir að fánaberi
þeirra, sem er kvenmaður (allir
aðrir fánaberar flokkanna eru
karlmenn) hefir heilsað, byrjar
fimleikasýningin. Fyrst staðæf-
ingar, en síðan haldæfingar á
hárri slá. Eru það svipmiklar æf-
ingar og tilkomumiklar ef vel
takast. En til þess þarf veður að
vera ' gott, sem við allir vorium
að verði þennan hátíðardag.
Stúlkurnar verða 24 sem sýna,
og eru þær úr Glímufélaginu Ár-
mann og íþróttafél. Rvíkur.
Gömlum og góðum íþróttafélög-
um.
Klukkan 9 um kvöldið hefst
svo fimleikasýning karla, úrvals-
flokkur, 18 fimleikamenn. Fim-
leikamennirnir eru úr Ármanni,
Í.R. og K.R., þessum góðkunnu
félögum, sem svo oft hafa skemmt
höfuðstaðarbúum með íþróttum
sínum. Eítir að fánaberi flokks-
ins hefir heilsað, byrja staðæf-
ingar, en síðan áhaldaæfingar á
Jiestum, kistu og fimleikadýnu,
er þeir sýna alls konar fimleika- ,
stökk, sem áhorfendur munu hafa
mikið gaman af. Stjórnandi
flokksins er Davíð Sigurðsson,
fimleikakennari, og er sýningar-
tími flokksins 15 mínútur eins
og hinna fimleikaflokkanna. Er
flokkurinn hefir lokið sýningu
sinni, kveður fánaberinn, og fim-
leikamennirnir og halda til tjald-
búða sinna. Þar með er lokið
íþróttasýningum dagsins.
Gert er ráð fyrir, að fimleika-
mennirnir og glímukapparnir fari
austur á Þingvöll þann 16. júní,
og búi í tjöldum um nóttina; fim-
leikastúlkurnar fara austur um
morguninn, 17. júní.
Þjóðhátíðarnfendin, og þá sér-
stakléga formaður hennar, dr.
Alexander Jóhannesson, próf-
essor, hefir verið mjög' samvinnu-
þýð, og hefir þó verið í mörg
horn að hta fyrir nefndina, sem
hefir haft svo skamman tíma til
stefnu.
Leikvangur og sundlaug. Það
er eitt af áhugamálum okkar I.
S. í.-manna, að byggður verði
leikvangur á Þingvelli, undan
Fangbrekku. Við viljum ekki
láta raska neinu, aðeins slétta
vellina og láta búa til venjulega
hring-hlaupabraut um sjálfan
leikvöllinn. Skammt frá sjálfum .
leikvanginum, er ákjósanlegur
staður fyrir sundlaug'. Hefir
stjórn í. S. í. þegar valið staðinn
í samráði við íþróttafulltrúa rík-
isins. Þingvallanefndin er þessu
vinveitt. En þegar við hittumst á
Þingvelli, skal ég sýna ykkur
staðinn.
Á Þingvelli á íþróttaæska
landsins að hittast, a. m. k. á
fimm ára fresti, og „treysta sín
heit“, að fornum sið. Og bezt
.treysti ég hinni þjóðlegu íþrótta-
hreyfingu til þess, undir forystu
I. S. í.“
Er þýzfca SieraaSar-
vélln ai bllal
Frh. af 3. síðu.
þess að“ styrkja varnir sínar
á Ermarsundsströndum.
Þjóðverjar þurfa nú að berj-
ast á þrem vígstöðvum og
þeir þurfa því að halda á
spöðunum.
EN EINN HLUTUR er senni-
legastur: Því mun fara
fjarri, að Þjóðverjar séu
komnir á heljarþrömina, að
ástandið í Þýzkalandi sé
eitthvað svipað og seint á j
hausti 1918. Meginátökin eru
eftir og næstu dagar eða vik-
ur múnu ráða úrslitunum.
Sundtaugarnar
verða lekaðar frá kl. I® f. h. á
fösfudag til mánudagsmorguns
næstkomandi.
G L U R
um akstur einkahifreiða mílli Reykja-
víkur og Þingvalla 16.-18. júní 1944
I. IVIosfellsheiðarvegir:
1. Leiðin, sem ekið er 16. júní allan daginn og 17.
júní til kl. 16.
A. Til Þingvalla nýja Þingvallaveginn.
B. Frá Þingvöllum gamla Þingvallaveginn.
Leiðin, sem ekið er 17. júní frá kl. 16 og 18. júní
v,, állan daginn.
A. Frá Þingvöllum nýja Þingvallaveginn.
B. Til Þingvalla gamla Þingvallaveginn.
2. Tímatakmarkanir á framangreindum leiðum:
ý'l. A. Frá Reykjavík mega einkabílar ekki fara þann
:ú 17. júní frá kl. 7 til 8,30 árdegis og ekki eftir
kl. 10 árdegis.
B. Frá Þingvöllum mega einkabílar ekki fara þann
17. júní frá kl. 8,30 um morguninn fram til kl
20,15 um kvöldið og ekki frá kí. 21.30 til kl.
22,30.
81. Hellisheiði og Sogsvegur.
Aka má fram og aftur óhindrað nema.
Frá Þingvöllum frá kl. 12,30 til 15.30 þann
17. júní og frá kl. 16,30 til kl. 20,15 sama dag.
III. Stæði fyrir einkabíla.
Einkabílar fá stæði á Leirunum og er óheimilt
að geyma einkabíla annarsstaðar á Þingvöllum
þann 17. júní.
IV. Almannagjá er lokuð
fyrir umferð einkabíla frá kl. 12.30 til kl. 20.15
þann 17. júní
t
I
i V@fia
þjóðhátfðarinnar
falla niður ferðir á leiðunum:
Lækjartorg — Njálsgata, Gunnarsbraut
Lækjartorg — Sólvellir, sem hér segir:
Föstudaginn 16. júní frá kl. 15.
Laugardaginn 17. júní allan daginn
Sunnudaginn 18. júní allan daginn
Enn fremur verður akstri á öllum leiðum félags
ins hætt laugardaginn 17. júní frá kl. 11—20.
Ath. Laugardaginn 17. júní fara engir vagnar
kl. 11 eða síðar frá Lækjartorgi.
Siræiisvagnar Reykjavíkur hf.
17
Lokað allan daginn.
HressiBigarskáliim
og Höll
%