Alþýðublaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 14
14
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
17. juní 1344
Vindrafstöðin KÁRi
gerir híbýli yðar björt og vistleg
Eykur vellíðan og vinnuafköst
PAÖL S M I T H
Hafnarhúsinu . Sími 1320 . Reykjavík
Skrifst©fur, afgreiðsla ©g tófoaks-
gerS ¥©r verÓa lokaóar frá 3LCL til 24.
fúlð næsikontandi vegna sumarleyfa
ViSskiptamönnum vorum er hér
meö bent á aö birgfa sig nægilega
ypp í tæka tíö með vörur þær, sem
tóbakseinkasalan selur, svo þeir
þurf i ekki að veröa fyrir óþægindum
áf lokuninni.
Tóbakseinkasala ríkisins
Cerebos Borðsalt
er salt jaröar
Það er alltaf jafn hreint og fínt og;|
ekki fer eitt korn til ónýtís
Húsmóðirin má aldrei láta það vanta
á borðið
Fæst í öllum verzlunum
Höfum ffririiiiJandi:
Rafmagnsmótora 220 Volta
frá 1—15 hestafla
Ljósaskálar, margar gerðir
Forstofulampa, eldhúslampa, loftfali o. fl.
Rafmagnsperur
Rðftækjaverzl. Ljósafoss
Laugavegi 27
Annáll mennfaþréunarinnar
1816:
1818:
1835:
1841:
1846:
1847:
1863:
1869:
1874:
1876:
1877:
1880:
1884:
1889:
1891:
1904:
1905:
1907:
1908:
1911:
.1912:
1918:
1919:
1928:
1929:
1930:
1931:
1935:
1936:
1936:
1941:
1944:
\
Hið íslenzka bókmenntafélag stofnað.
Landsbókasafnið stofnað.
Fjöbiir byrjar að koma út.
Ný félagsrit byrja að koma út.
Bessastaðaskóli fluttur til Reykjavíkur.
Prestaskólinn stofnaður.
Fomgripasafnið (Þjóðminjasafnið) stofnað
Hið íslenzka þjóðvinafélag stofnað.
Kvennaskólinn í Reykjavík stofnaður.
Læknaskólinn stofnaður.
Fyrstu gagnfræðaskólamir: Flensborgarskólmn og
Möðruvallaskólinn stofnaðir.
Fyrsti bændaskólinn stofnaður í Ólafsdal.
Tímaritið Verðandi kemur út.
Þjóðskjalasafnið stofnað.
Stýrimannaskólinn stofna(Sur.
Iðnskóiinn stofnaður. Latínuskólanum í Reykjavík
breytt í menntaskóla. Möðmvallaskólinn fluttur til Akur-
eyrar.
Verzlunarskólinn stofnaður.
Fræðslulögin: Skólaskylda lögleidd frá 10—14 ára aldri.
Safnahúsið í Reykjavík fullgert.
Kennaraskólinn og Lagaskólinn stofnaðir.
Háskóli íslands stofnaður.
íþróttasamband íslands stoí'nað.
Samvinnuskólinn stofnaður.
Fyrsti alþýðuskólinn, á Eiðum.
Menningarsjóður og Menntamálaráð stofnað. Fomritafé-
lag íslands stofnað.
Lögin um héraðsskóla.
Útvarp hefst í Reykjavík. Menntaskóli á Akureyri.
Hljómlistarskóíinn stofnaður.
Atvinnudeild háskólans stofnuð.
Ný fræðslulög: Skólaskyldan lengd um þrjú ár, niður
til 7 ára aldurs.
Þjóðleikhúsið fullbyggt hið ytra.
Háskólabyggingin fullgerð.
Nýr sjómannaskóli reistur í Reykjavík.
um licftð og lifeð, það sem við
höfum skapað af verðmætum,
það sem við höfum fyllstu á-
stæðu til að ætla að við getum
gert og reynist okkur gulli verð-
mætara í framtíðinni? Sú að-
stöðubreyting, sem orðið hefir og
verður nú með stofnun lýðveldis
á Islandi og eigin fyrirgreiðslu
og forræði í hinum miklu menn-
ingarlöndum heims, gefur tæki-
færi til aukins vegs og vaxandi
gengis, ef rétt er á haldið — eins
í menningarlegum efnum sem í
fjármálalegum og atvinnulegum.
Við fáum nú tækifæri til að
kynná út um heiminn íslenzk
menningarafrek, bókmenntir,
myndlist og hvað annað, sem við
getum talið okkur til gildis,
tækifæri, sem okkur hafa aldrei
áður veitzt, Og við þurfum sann-
arlega ekki að bera í brjósti
neina minnimáttarkennd gagn-
vart öðrum þjóðum. Við höfum
gefið öllum germönskum þjóð-
um ævarandi verðmæti, getum
sýnt öllum heiminum, að lítil
þjóð getur skapað stórbrotna
menningu. Við getum bent á
það, að öldum saman höfum við
íslendingar varðveitt við hin
erfiðustu kjör ekki aðeins gömul
handrit, heldur anda þeirrar
máttugu menningar, sem hefir
endurnýjunarþróttinn í sér fólg-
inn. Við getum sýnt, að við höf-
um af eigin rammleik rétt við og
átt okkur nýtt blómaskeið í
menningarlegum efnum, auk
þess sem við höfum reist úr
rústum atvinnulegt og fjárhags-
legt sjálfstæði þjóðarinnar. Við
getum sagt og sýnt það flestum
öðrum fremur, að gildi þjóðar
fyrir menningu veraldar fer ekki
eftir stærð hennar, héldur eftir
gildi hvers einstaklings, að miklu
sprottið af þeirri rækt, sem þjóð-
félagið leggur við hann — og af
þeim áhrifum, sem hann verður
fyrir af til afreka og menningar-
legs metnaðar. Og við getum
meira að segja notað okkur, án
þess að gefa á okkur fangastað,
væntanlega afbrýði mikilla þjóða
gagnvart hverri annarri okkur til
aukinnar velmegunar og menn-
ingarlegs þroska — ef við höfum
vit á að hugsa fyrst og fremst
um það, að þetta land er okkar
land, vígt blóði og hörmungum
kynslóðanna og helgað andleg-
um afrekum íslenzkra afburða-
manna, og að ef við getum ekki
vænzt þess af okkur sjálfum, að
við gætum þjóðfélagslegra og
menningarlegra hagsmuna okkar
og séum þess megnugir, með
hliðsjón af þróun umheimsins,
♦.........................——
að skapa okkur þau menningar-
og stjórnarform, sem okkur
henti bezt, þá getiun við ekki
vænzt þess af öðrum
Hví ekki, íslenzk æska, að láta
hinn 17. júní 1944, þann dag,
sem Island verður lýðveldi,
verða dag þeirra tímamóta í ís-
lenzkum menningarmálum, að
engum tjái framar að bera fyrir
borð aldagömul verðmæti ís-
lenzkrar menningar og virða að
vettugi eða vanmeta möguleika
íslendinga til nýsköpunar,
þeirra tímamóta, að öllum skilj-
ist, að í ríki framtíðarinnar verði
fyrst og fremst menningin mátt-
ur og aðalsmerki þjóðanna.
-------------------------------
Nýjustu verkamannabústððirnir í Reykjavík.
Myndin er af nýjustu verkamannabústöðunum í Austurbænum, sem byggðir hafa verið síðustu árin
af Byggingarfélagi verkamanna.