Alþýðublaðið - 28.06.1944, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 28. Ijúní 1944
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Bœrínn
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
-apóteki.
Næturakstur annast Litlabíla-
stöðin, sími 1380.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hjlómplötur: Óperusöngvar.
20.00 Fréttir.
20.30 Synódus-erindi í Dómkirkj-
unni: Kirkjan og framtíðin
(séra Páll Þorleifsson prest-
ur að Skinnastöðum).
21.05 Hljómpl.: íslenzkir kórar.
21.15 Frá sögusýningunni í Reykja
vík.
21.40 Hljómplötur: íslenzkir ein-
söngvarar.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Eimreiðin,
apríl—júní-heftið, 1944 er ný-
komin út, og er efni hennar þetta:
Einar Jónsson myndhöggvari, sjö-
tugur, eftir ritstj. Fyrstu viðhorf
mín til lífs og listar eftir Einar
Jónsson myndhöggvara. Hebreska
og íslenzka eftir dr. Alexander Jó-
hannesson. Mð þjóðveginn eftir
ritstj. Forsetakosningar í Banda-
ríkjunum og grein um Ballettinn
eða leikdansinn og styrjöldina, með
myndum. Sagan af Valda eftir
Gunnar skáld Gunnarsson, er með-
al efnis þessa heftis. Kvæðið Vor-
nótt eftir Jens Hermannsson, grein
um Pál Ólafsson, skáld, eftir Guð-
mund Jówsson frá Húsey, og smá-
sagan Hún elskaði svo mikið, eftir
Kristmund Bjarnason frá Mælifelli,
enn fremur Raddir, Ritsjá o. m. fl.
TJtfluttar vörur í maí.
Samkvæmt nýútkominni skýrslu
frá Hagstofunni, nam verðmæti
útfluttra íslenzkra afurða í maí
20.680.120 kr. Skiptist það þannig
milli einstakra vörutegunda: Salt-
fiskur, óverkaður, kr. 103.450, ís-
fiskur, kr, 14.647.200, freðfiskur,
kr. 2.810.900, lýsi, kr. 1.426.900,
hrogn söltuð, kr. 9.640, gærur salt-
aðar, kr. 1.558.840, gærur sútaðar,
kr. 28.590, refaskinn, kr. 70.190,
ýmsar vörur, kr. 34.350.
Aðalfundur S. í. S.
Frh. af 2. síðu.
vinnulhreytfiniguna, Ihefði sam-
þykkt að efna til klöfningsstarf
siemi ií isamivinn'uféliöguniuim, far
ið ilítilsvirðandi orðum um
hændastétt landisins í málgögn-
um sínum, deillt fast á atvinnu-
hætti iþeirra og reynt að koma
óorði á framleiðsluvörur þeirra,
heitt sér á aliþingi gegn því, að
bændur ifengju greidda dýrtíð-
anuipptoót á Æramieiðsluvörur
bænda, talið imjög óviðeigandi,
að tmnaðarmenn 'samvinnufélag
anna toafa varið kaupifélögin og
Sambandið gegn iþessum árásum
o. s. frv. ÍNiðurlag tillögu 'þessar
ar er isvohljóðandi: „Fyrir því
lýsir aðalfundur iSamtoands M.
samvinnulfé'laga 1944 megnri
vanlþóknun á framangreindri
klofnings- og skammdarstarlf-
semi iog skorar fast á alla sanna
samvinnumenn að vera vel á
verði gagnivart hvers konar und
irróðri og uppilausnarstarfsemi
frá hendi þessa stjórnmála-
flokks, sem tekið hefir upp ill-
vígan áróður gegn isamvinnu-
félögunum.“
Tveir menn áttu að ganga úr
stjórn Sambandsinis að þessu
sinni, þeir Björn Kristjánsson
kaiupfélagsstjóri á Kópaskeri og
Jón ívarsson iforstjóri. Björn
var endurkoisinn en í stað Jóns
var kjörinn Eysteinn Jónsson al
þingismaður. í varastjórn vom
enidurkoisnir þeir Bjarni Bjarna-
son 'skólastjóri, Skúli Guðmunds
son kaupfélagsstjóri og Þórhall-
ur Sigtryggsson kaupfélags-
stjóri.
Fjölmennf Jónsmessu-
mót að Sfokkseyri
JÓNSMESSUMÓT var hald-
ið að Stokkseyri síðastlið-
inn sunnudag. Sóttu það, autó:
heimamanna, Stokkseyringar
frá Reykjavík, Hafnarfirði,
Keflavik, Vestmannaeyjum og
víðar að. Mikill mannfiöld-'
mót þetta.
Mótið hófst með guðsþjón-
ustu í Stokkseyrarkirkju kl. 11
fyrir hádegi og prédikaði séra
Árelíus Níelsson. Sjálft mótið
fór svo fram við Knararósvita
og í tveim samkomuhúsum á
Stokkseyri. Ræður fluttu: Stur-
laugur Jónsson, stórkaupm.,
Kjartan Ólafsson, bæjarfulltrúi,
Hróbjartur Bjarnason, stór-
kaupm., Ásgeir Eiríksson, oddv.,
Helgi Sæmundsson, blaðam.,
Þórður Jónsson, skrifstofum.,
Ingimundur Jónsson, kauþm.,
Guðmundur Jónsson, skósmið-
ur og Grímur Bjarnason, lagn-
ingam. Sigurður Ingimundar-
son, veggfóðrarameistari, flutti
frumort kvæði og Páll ísólfsson,
tónskáld, stjórnaði fjöldasöng.
Jónsmassumót þetta fór hið
bezta fram.
Frá aðalfundi sam-
bandsráðs UMFÍ.
Frh. af 2. síðu
anda ungmennafélaganna
um örnefnasöfnun.
3. Sambandsráðið leit svo á,
að forsetaheitið eigi ein-
göngu að vera fyrir forseta
Islands og alþingisforsetana
og skorar á öll félög og fé-
lagasambönd er notað hafa
þetta heiti á forstöðumönn-
um sínum að fella það nið-
ur.
4. Sambandsráðið mótmælir, að
gefnu tilefni og með tilvísun
til brautryðjendastarfs UMF
og starfsemi þeirra fyrr og
síðar fyrir íþróttamálin,
hverri tilraun til að skerða
þann rétt sambandsins, sem
viðurkenndur er með íþrótta
lögunum.
5. Samþykkt að landsmót U.
M. F. I. í íþróttum verði
haldið að Laugum í S.-
Þingeyjarsýslu eða öðrum
hentugum stað Norðanlands
vorið 1946. Kosin var nefnd
til þess að taka ákvarðanir
um íþróttagreinar og fyrir-
komulag mótsins fyrir
næsta haust. Iþróttafulltrúi
ríkisins starfar með nefnd-
inni.
6. Skorað var á öll ungmenna-
félög að vinna ötullega að út
breiðslu Skinfaxa, tímarits
U. M. F. I., en breytingar á
sölufyrirkomulagi hans
hafa staðið yfir undanfarið
og virðast ætla að gefast
vel.
Sambandið sendi forseta ís-
lands að Bessastöðum. kveðjur.
Ungmennafélag íslands telur
nú 158 sambandsfélög með
8500 félagsmönnum.
Þann 17. júní var U. M. F.
í. sent eftirfarandi skeyti frá
Ungmennafélagi Færeyja:
,,Á þessum mesta hátíðisdegi
í sögu íslenzku þjóðarinnar
sendum við bróðurþjóðinni
hjartans kveðjur okkar með
innilegustu óskum um ham-
ingjuríka framtíð. ísland lifi.
Fyrir hönd Ungmennafélags
Fáereyja.
Páll Patursson, Kirkjubæ.“
Ungmennafélag íslands hef-
ur svarað með sérstöku heilla-
skeyti.
Fyrsfa kvikmyndafé-
lagið á íslandi
Frh. af 2. síðu.
Enn fremur ætlar félagið að
starfrækja ferðabíó til sýninga
á þeim stöðum landsins, þar
sem erfiðast er að koma við
föstum kvikmynidasýningum.
í sambandi við þær erlendu
kvikmyndir, sem féíagið ætlar
að flytja inn, má geta þess, að
meðal þeirra verða kirkjulegar,
eða trúarlegar myndir, sem lítið
hafa verið sýndar hér enn þá,
en hinis vegar alil útibreididar er-
lendis.
Kostnaðinn við þessar írain-
kvæmdir, bæði við myndakaup
og myndatökurnar, sem verða
meginstarf félagsins, hugsa
stolfnendur sér að vinna smiám
saman upp með þvi, að fá kvik-
myndasýningaleyfi og reka sam-
hliða myndatökunum, kvik-
myndahús hér í Reykjavík.
Félagið hefir þegar gert ráð-
stafanir til að fá nauðsynleg-
ustu tæki til starfsemi sinnar,
og ætlar að taka til starfa svo
fljótt sem tök verða á.
Sören Sörensen er fram-
kvæmdastjóri félagsins, en
stjórn þess skipa:
Haraldur Á. Sigurðsson, leik-
ari, formaður, Helgi Elíasson,
fræðslumálastj., Hákon Bjarna-
son, skógræktarstjóri, Jóhannes
B. Jónsson fræðslufulltrúi, og
Sören Sörensen, lyfsölustjóri.
Má segja, að hér sé um at-
hyglisverða nýjung að ræða í
íslenzkum menningarmálum,
með stofnun þessa félags, og er
þess að vænta, að það nái til-
gangi sínum, svo margir góðir
menn, sem að því standa.
Frá aðalfundi Presfa-
félags íslands
T FYRRADAG var aðal-
fundur Prestafélags ís-
lands 'haldinn í kennslustofu
(guðfræðideildar Háskólans.
Hóifist fundurinn kll. 9-30 ár-
degiís með guðræknisstund í
kapellliu Hiáskólams.
Prúfessor Ásmundur Guð-
mundslslon, isem er ifiormaður
Prestafiélagsinis setti fundinn og
var jafnframt fiundarstjóri.
Bauð hann þvínæst biskup og
presta velkomna og minntist
tveggja presta, sem látizt höfðu
á árinu, Iþeirra séra Jóns Árna-
sonar og siéra Jóhannesar Þor-
kelssonar. iFundarmenn risu alll-
ir 'úr Isætum sínum til þess að
votta þes'sum merkismönnum
virðingu sína. iÞessu naast filutti
prófieis'sor Ásmunidur ávarp og
ræddi uim istörf og skyldur kirkj
unnar á þessuim merk-u tímamót-
um i lífi þjóðarinnar og lagði
álherzlu á að íslenzka kirkjan
verði þjóðleg, víðfieðm, frjáls og
samtaka kirkja undir ikonungs-
stjórn Jesús 'Krists.
Fundurinn sendi Æorseta ís-
lands svoh'ljóðanidi heiillaóskir:
„Aðalfundur Prelstafðlags ís-
landls sendir yður, herra forseti,
beztu heil'laóiskir og ibiður yður
blieisisunar 'Guðs til gifturíkra
starfa ilandi og þjóð.“
Enn fremur sendi fiundurinn
Maróiu Helgason þiskupsfrú,
kveðju og lárnaðaróskir.
Meðal annars sem Prestafé-
lagið, hefir beitt sér fyrir, er út-
gálfa bilblíulsagna og eru þegar
komin út 2 Ihefti, en þau eiga
að iverða þrjú. Enn fremur er
fiélagið að igefa út barnasálma,
og prestaihugvekj ur, og munu
þær koma út ffyrir n. k. jól.
Þá var og aiuik útgátfustarffs-
ins rætt um starfskjiör presta og
fjárhagsmál Prestafélagsins. Eft
infarandi ályktun var gerð 'í sam
bandi við þau mál:
Nýlf líkneski af Leifi heppna.
Myndin sýnir ameríska myndhöggvarann Gilbert Riis-
wold við vinnu að nýju líkneski af Leifi heppna, sem fé-
lagsskapur norrænna manna í San Francisco ætlar að gefa
bcrgkmi. Maðurinn, sem myndhöggvarinn hefur valið sér
til fyrirmyndar fyrir Leifslíkneski sitt, og sést til hægri á
myndinni, er danski söngvarinn Carl Brisson.
Á fundinum síðar um daginn,
mætti dr. med. Helgi Tómasson,
yfirlæknir, og flutti hann erindi
um „Sálgæzlú*. Urðu miklar
umræður um þetta mál, auk dr.
Helga hafði Guðbrandur Björns
son, prófastur, framsögu í þessu
máli.
í sambandi við þetta stór-
merka mál, samþykkti fundur-
inn eftirfarandi ályktun:
„Fundurinn telur það nauð-
synlegt, að guðfræðinemar fái
sem ítarlegasta fræðslu í sálar-
fræði og sálsýkisfræði, og sé
þeim gefinn kostur á að kynnt"^
reynslu þjónandi presta í sál-
gæzlustarfi. Enn> fremur vill
fundurinn leggja áherzlu á það,
að samvinna presta og lækna
sé æskileg, hvar sem henni
verður viðkomið.1
Þá útbýtti séra Jakob Jóns-
son á fundinum og gerði grein
fyrir nýrri námsbók í kristnum
fræðum, sem hann hefir sam^
og notast skal til undirbúnings
fermingar.
Stjórn Prestafélagsins var
endurkosin, en hana skipa:
Prófessor Ásmundur Guðmu^ds
son, síra Friðrik Hallgrímsson,
síra Árni Sigurðsson, síra Guð-
mundur Einarsson og síra Jakob
Jónsson.
Fundinum lauk með því, að
síra Jón Skagan á. Bpvt.bót-c-
hvoli flutti bæn í 'háskólakap-
ellunni.
„Aðalfiundur Prestafélags ís-
landls iskorar á alþingi og ríkis-
stjórn að vinna að því, að hér
verði ákveðin launalög i landi
og þannig foætt úr Iþví óifremdar
ástandi og glundroða, sem ríkt
hefir um ihrfð undantfarið í þess
um imálum. Leggur fundurinn á-
herzlu lá jþað, að þær stéttir, sem
einkum eiga að vinna að up.p-
eldi þjóðarinnar og andlegri
menningu, fiái betri aðstöðu en
þær haffa hatft til þess að geta
geffið isig óskiptar að störfum
sínum“.
Aukafundur
í hlutafélaginu Eimskipafélag
íslands, hefir verið auglýstur 18.
nóvember, næstkomandi. Þeir einir
geta sótt fundinn, sem hafa að-
göngumiða, og verða þeir afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum
þeirra í skrifstofu félagsins í
Reykjavík, dagana 15. og 16. nóv-
ember.
Prestastef nan:
Tveir dagar eftir.
D RESTASTEFNAN hófst í
gær, eins og áðúr er getið,
og stendur hún áfram í dag og
á morgun. Fer hér á eftir dag-
skrá hennar þá tvo daga, sem
prestastefnan á eftir að starfa:
Miðvikudag 28. júní:
Kl. 9V2 f. h. Morgunbænir. Séra
Árelíus Níelsson, Stokkseyri.
Kl. 10 f. h. Lagðar fram messu-
skýrslur og skýrslur um út-
folutun styrks til uppgjafa
pre,s(ta og prestsekkna.
Kl. IÓV2 f. h. Kirkjan og lýð-
veldishugsjónin. Próf. Magnús
Jónsson og séra Björn Magnús-
son, próf., Borg.
Kl. 1V2 e. h. Prestssetrin. Sigur-
geir Sigurðsson biskup.
Kl. 2 V2 e. h. Prófessor Richard
Beck ávarpar prestastefnuna.
Kl. 3 e. h. Sameiginleg kaffi-
drykkja.
Kl. 4Vá e. h. Fundarsköp presta-
stefnunnar.
Kl. 8V2 e. h. Opinbert erindi í
Dómkirkjunni. Séra Páll Þor-
leifsson, Skinnastað. (Erindinu
útvarpað.)
Fimmtudaq 29. júní:
Kl. 9V2 f. h. Morgunbænir. Séra
Ingólfur Ástmarsson, Stað.
Kl. 10 f. h. Bifolíufélagið Sigur- ,
geir Sigurðsson biskup.
Kl. 11 f. h. Skýrslur Barnfhnirv!-
ilisnefndar. Séra Hálfdán
Helgason, prófastur, Mosfelli.
Kl. 11 ¥2 f. h. Prófastafundur.
Kl. IV2 e. h. Kirkjan og lýðveld-
ishugsjónin. (Framhaldsum-
ræður.)
Kl. 5 e. h. Prestssetrin (fram-
haldsumræður.)
Kl. 6 e. h. Önnur mál.
Kl. 6V2 e. h. Synodunni slitið.
Kl. 9 e. h. Heima hjá' biskuoi.
BALDVIN JÓNSSON
VESTUROÖTU 17 SÍMI 5545
HÉRAeSDÓMSLÖGMABUR
Faseignasala — VERCBRÉFASALA