Alþýðublaðið - 04.07.1944, Qupperneq 4
ALÞYÐUBLAÐIft
Þriðjudagur 4. júlí 1944.
I
Ritstj óri Stefán Féturssen.
Símar ritsjórnar: 4901 og 4902.
Ritstjóm og afgreiðsla í Al-
þ/ðunúsinu vio I-. 1
títgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Símar afgreiðslu: 4900 og 4906.
Verð í lausasölu 40 aura.
AlþýSuprentsmiðjan h.f.
Hin vonda samvizha
eftir anða seðlana.
MORGUNBLAÐIÐ hefur nú
tekið höndum saman við
Þjóðviljann í því skyni að reyna
á einhvem hátt að klóra yfir
framferði þpirra þingmanna,
sem skiluðu auðum seðlum við
forsetakjörið á Þingvelli 17.
júní. Kemur mönnum það að
vísu ekki með öllu á óvart, með
því að augljóst var, að það voru
sjáLfstæðismenn, sem fylltu þann
hóp ásamt kommúnistum. Hingað
til hefur þó enginn þeirra þorað
að kannast við það opinberlega,
að hafa skorizt úr leik á svo
furðulegan hátt við fyrsta for-
setakjörið, á sjálfum stofndegi
lýðveldisins. En af yfirklóri
Morgunblaðsins má máske þrátt
fyrir það nokkuð í það ráða,
hvar þeirra manna í Sjálfstæðis-
flokknum sé helzt að leita.
Það er ógnar vesaldarleg til-
raun, sem Morgunblaðið gerir í
Reykjavíkurbréfi sínu á sunnu-
daginn til þess að bera blak af
þessum þingmönnum. Það er að
tala um það, eins og Þjóðviljinn,
að það sitji ekki á Alþýðuflokkn
um, eða blaði hans, að vera að'
fetta fingur út í auðu seðlana við
forsetakjörið, því að hann hafi
ekki sýnt þann áhuga fyrir ein-
ingu þjóðarinnar við undirbún-
ing lýðveldisstofnunarinnar, að
honum farizt, að hneykslast á ó-
einingunni við forsetakjörið.
Slíkum ummælum Morgun-
blaðsins skal með því einu svar-
að, að Alþýðuflokkurinn hefur
ekkert aðhafzt við undirbúning
lýðveldisstofnunarinnar eða við
sjálfa stofnun þess, sem hann
ekki þorir að kannast við. Hann
barðist fyrir því ásamt hundruð-
um og þúsundum góðra Islend-
inga úr öllum flokkum, að við
lausn sjálfstæðismálsins yrði
löglega og sómasamlega að öllu
farið til þess að sem bezt vin-
átta mætti haldazt eftir sem áð-
ur við hina dönsku bræðraþjóð
okkar og álit íslenzku þjóðarinn-
ar engan hnekki bíða út á við.
Og eftir að það var tryggt með
samkomulaginu um að fresta
sambandsslitum þar til þau væru
tieimil samkvæmt sambandslaga-
sáttmálanum, sýndi Alþýðu-
fiokkurinn, að honum var skiln-
aðurinn og endurreisn lýðveldis-
ins engu minna hjartans mál en
hinum, sem hærra höfðu haft og
minna sézt fyrir.
Hitt er svo annað mál, hvort
sambandsslitin og lýðveldis-
stofnunin hefðu farið fram með
þeim virðuleik og í þeirri vin-
semd við hina gömlu sambands-
þjóð okkar og konung hennar,
sem raun varð á, ef áhrif Al-
þýðuflokksins og fjölda annarra
góðra Islendinga úr öðrum flokk-
um, sem sömu afstöðu tóku,
hefðu ekki komið til; en vel
þorir hann fyrir sitt leyti að
leggja það mál undir dóm þjóð-
arinnar.
■ *
Allt öðru máli virðist gegna
um samvizku þeirra þingmanna,
sem hæst höfðu galað um þjóð-
areiningu, tafarlausan skilnað og
lýðveldisstofnun löngu áður en
María Hallgrímsdóttðrs
Um
og veginn.
ISLENZK ÞJÓÐ LIFIR NÚ
merkileg og sérstæð tíma-
mót, sem fróðlegt er að fylgjast
með. Margar konur hafa senni-
lega fylgst með aðstöðu kvenna
til þessara tímamóta. Varla er
hægt að verjast þeirri húgsun, að
enn í dag er konan knúin í skugga
hinnar glæsilegu manntegundar,
sem einhverjir Islendingar krefj-
ast að sé nefnd karl, til auðkenn-
ingar frá konu (og skepnu?), að
minnsta kosti, ef konan verður
fyrir þeirri náð að tala í íslenzkt
útvarp. Mörg fögur orð hafa ver-
ið endurtekin dag eftir dag, en
það eru einkenni íslenzku þjóð-
arinnar í dag, að minna er um
framkvæmdir. í þessum bæ eru
3385 konur umfram menn. Fróðir
menn segja offjölgun kvenna í
frumstæðum þjóðfélögum valdi
leti, framtaksleysi og úrkynjun
karla; konurnar verði ötular og
framtakssamar. Til þessa skal
engin afstaða tekin hér. Frum-
stæðar þjóðir hafa líka mjög
margt sér til afsökunar, svo
sem alvald, örlög og alls feonar
fyrirfram ákvarðanir hins óskilj-
anlega. Skynsemi, þekking og
vísindi lúta í lægra haldi og þykja
köld.
Reykjavíkurbær hefur haft
ýmislegt á boðstólum, sem var
þess vert að sjá og heyra, t. d.
listsýningu, sögusýningu, lands-
fund kvenna o. m. ffe
Sögusýningin var fróðleg á
ýmsan hátt. Eftirtektarvert er
hvers konar fulltrúi konunni er
valinn í „upphafi!“ Konum þykir
dálítið broslegt að heyra svona
leiðsögn: „Hér er svo málverkið,
konan og kvígan, kvígan er tvæ-
vetur, vel ílits“ o. s. frv. Ungir
menn leiðbeindu með mikilli
prýði, þeir sem beztir voru. Ungir
stúdentar höfðu húfuna á höfði,
sennilega til aðgreiningar.
Stúdent, — einnig með húfu
á höfði, sat á stóli og iðkaði
„manicure,“ hægri hæll á vinstra
hné. Ekki er vitað hvort þetta var
einn liður í frelsi háskólastúd-
enta.
Meðfram veggjum voru hand-
rit til sýnis. í einni stofunni lá op-
in nýútkomin bók um Jörund
hundadagakonung. — Ein hús-
freyja þessa bæjar spurði: „Hvar
er Hallveig?“ „Hvaða Hallveig?“
spurði leiðbeinandinn. ' „Fyrsta
húsmóðirin á Islandi.11 Fleiri
spyrja: Hvar eru konur þessarar
sögu- og menningarþjóðar, t. d.
Þóra Melsted, Torfh. Hólm, Ingi-
bj. H. Bjarnason, Guðrún Lárusd.,
Kristín V. Jacobson, svo aðeins
nokkur nöfn séu nefnd, vonandi
ekki í hópi „þegna þagnarinnar,“
sem voru hengdir hærra á vegg
en mannlegt auga eygði. Þær
þorðu að framkvæma og tala.
Það eru lítil afrek að yrkja í skjóli
góðra manna við vögguljóð með-
almennskunnar, söngurinn verð-
ur eftir því. Annað er að standa
einn í eldlínu og vera skotspónn
siðblindrar karlmennskunnar ís-
lenzku, sem aldrei hefur sýnt sig
betur en við hina fyrstu forseta-
kosningu hins íslenzka ríkis. Þá
voru konur enn einu sinni mrnnt-
ar á, að mikill hluti þingmanna
er ekki úrval, — heldur allt
annað. Grandvör og heiðar-
leg smáþjóð sameinast um áhuga-
mál, sem léiðtogarnir hafa að
spotti.
En á 6. landsfundi kvenna var
friðsamlegt og skemmtilegt að
heyra málefni borin fram af þörf
og áhuga einstakra kvenna. Aðr-
ar virtust frekar til uppfyllingar,
eins og norska menntakonan,
sem minnti okkur á, að íslenzkar
konur kæmust ekki í virðingar-
stöður. Á íslandi fer virðing og
álit stöðunnar eftir manngildi
þeirrar persónu, sem gegnir stöð-
unni. Stpða þjónsins getur verið
eins mikil virðingarstaða og yfir-
mannsins, allt eftir manngildi og
því, hvernig starfið er rækt —
kostum einstaklingsins. Lögfræð-
ings-, læknis- og prests-störf geta
verið virðingarstörf, allt eftir því
hvernig á er haldið, stundum eru
þau allt annað. íslenzk þjóð er
einstaklingar, sem vita, sem betur
fer, að embætti og manngildi er
sitt hvað, og að eiginkonan ís-
lenzka er annað en virðingar-
staða sú, er maður hennar kann
að hafa skapað, eða álit hans.
Slíkt er að sjálfsögðu gagnkvæmt.
Fróðlegt að heyra, að konur voru
æðstu prestar á íslandi við hlið
mannanna áður fyrr! Síðustu árin
hafa nú rifjað upp harmasögur
íslendingasagna. Hallgerður, dótt-
ir Tungu-Odds, lét lífið, af því að
hún vildi ekki fylgja bónda sín-
um, heldur sat — og þagði. Þetta
rifjast upp fyrir okkur nú, af
skiljanlegum orsökum. Islending-
ar eru hættir að sneiða höfuðið
af konunni, eins og maður Hall-
gerðar Tungu-Odds gerði. Þeir
bera ekki vopn framar. Aðferðir
þeirra eru nú á tímum með öðrum
hætti. En hinar efnismiklu ís-
lendingasögur sýna betur en nú-
tíma sálarfræðingar skaplyndi
manna og háttu, harðfengi og
metnað kvenna ekki síður en
karla.
Dálítið er skrýtið að heyra
konu segja: „Mín stétt er ekki að
keppa við manninn um stöðu.“
M. ö. o.: Við erum ekki eins og
hinar konurnar! Þetta gæti vak-
ið öfund hiiina! Þegnskapur er
nauðsynlegur hverjum borgara.
Við erum ekki að keppa. Aðeins
væntum þess, að skipa sess sam-
boðinn sæmd okkar. Það lét Hall-
heimilt var samkvæmt sam-
bandslagasáttmálanum, en skár-
ust svo úr leik, strax og lýðveld-
ið hafði verið stofnað, og skiluðu
auðum seðlum, þegar kjósa átti
fyrsta forsetann. Því að þeir þora
bersýnilega ekki að standa fyrir
sínu máli frammi fyrir þjóðinni.
Og það er skiljanlegt; því að
hver tekur þvaður þeirra um
þjóðareiningu og ástarjátningar
til lýðveldisins alvarlega eftir að
þeir hafa gert sig bera að því, að
svíkjast undan merkjum þjóðar-
einingarinnar á sjálfri stund lýð-
veldisstofnunarinnar og sýna
hinu nýstofnaða lýðveldi það til-
ræði, að kjósa því engan forseta
með því að skila auðum seðlum
við fyrsta forsetakjörið?
Hvað, ef aðrir þingmenn hefðu
hegðað sér eins?! ''
gerður Tungu-Oddsdóttir, senni-
lega lífið fyrir.
Samband ísl. barnakennara
hefur haldið sitt 8. þing. Fróðlegt
væri að vita, hve margar konur
hafa staðið að ályktunum þess.
Konur eru fjölmennar innan
kennarastéttarinnar, í skugga að
íslenzkum sið. Fáar eru' skóla-
stjórar, yfirkennarar, eða gegna
öðrum léttustu og bezt launuðu
stöðum þeirrar stéttar. En vitað
ér, að þeim eru ætluð ýmis erfið
útistörf, sem betur ættu við karl-
menn, eins og eftirlit utandyra í
frímínútum, sem sérstakir verðir
raunar ættu að gegna, jafnvel
lögregluþj ónar. Af öllu væmnu
tóku yfirlýsingar S.Í.B. öllu fram.
Stundum erum við áminnt um
málvendni, en nútíma svokallaðir
menntamenn eru í fáu jafnleiknir
og umvefja hverir aðra í orða-
gjálfri, sem óbreittur almúginn
finnur enga raunhæfa eða heil-
hrigða hugsun í. En það er í
samræmi við þetta, að störfum
þjóðfélagsins er ekki skipt jafnt
áuglýsingar,
sem birtast eiga f
Alþýðublaðicu,
verða að Fera
komnar til Auglýs-
ju a askrif stoftmnar
í Alþýðuhúsinn,
(gengið ii—. frá
Hverfisgötu)
fyrir kl. 7 aS kvöML
Sími 49Q6
niður milli allra þegnanna, eftir-
hæfni og getu, heldur eftir króka-
leiðum frændsemi, kunnings-
skapar og siðblindrar stjórnmála-
mennskunnar íslenzku. Karlmað-
urinn gín yfir mörgum léttum
störfum, sem hann rækir þannig,
að eitt gleymist aldrei, að hirða
launin. Konan er sett hjá, senni-
lega af því að siðspillingarhæfn-
ina vantar.
Dagurinn og vegurinn hefur
Framhald á 6. síðu.
ff SAMBANDI við frestun þing-
funda til 15. september í
haust minnist Morgunblaðið í
aðalritstjórnargrein sinni síðast-
liðinn laugardag á þau vandamál,
sem þá bíða alþingis, fyrst og
fremst dýrtíðarmálin, og þykir
horfurnar ekki sem bjartastar.
Morgunblaðið skrifar:
„Svo sem kunnugt er, var alþingi
hinn 20. júní s.l. frestað til 15. sept.,
þ. e. a. s. að ekki má kveðja þingið
saman síðar en þann dag. Margir
þingmenn voru því fylgjandi, að
þingið yrði kvatt fyrr saman, eða 2.
sept., en meiri hlutimi vildi fresta til
15. sept.
Vafalaust hefði það verið hyggilegra,
að láta þingið koma saman í byrjun
september, ekki sízt þar sem stjórn-
málaflokkarnir gátu ekki náð sam-
komulagi um að yfirtaka stjórnar-
taumana í sínar hendur og þannig
unnið sameiginlega að lausn þeirra
vandamála, sem framundan eru.
Svo sem kunnugt er gildir landbún-
aðarvísitala sú, sem samkomulag
varð um í sex manna nefndinni síð-
astliðið sumar, til 15. sept. n.k. Frá
þeim tíma kemur ný vísitala, sem
gildir heilt. ár, eða til 15. september
1945. A þessu stigi málsins verður að
sjálfsögðu ekkert um það sagt, hver
verður næsta vísitala landbúnaðar-
ins. En þeir, sem kunnugastir eru
þeim málum, munu ekki vera í vafa
um, að vísitalan muni hækka.
Ollum má ljóst vera, hverjar verða
afleiðingar nýrrar verðhækkunar
landbúnaðarvaranna. Fyrsta afleið-
ingin verður að framfærsluvísitalan
hækkar og í kjölfar hennar fylgir ný,
allsherjar kauphækkun. Með öðrum
orðum: Ný verðhækkunaralda skellur
yfir og ný flóðbylgja dýrtíðar fylgir í
hennar kjölfar.
Þannig verður viðhorfið þegar al-
þingi kemur saman 15. sept., ef ekki
hafa verið gerðar sérstakar ráðstafanir
til' þess að afstýra skriðunni. Ríkis-
stjórnin heldur að vísu enn áfram að
„greiða níður“ verð ýmissa landbún-
aðarvara á innlendum markaði, með
framlagi úr ríkissjóði, en vafasamt er
hvort hún getur haldið þeim greiðslum
áfram, eftir að ný verðhækkun er
skollin á, enda öllum ljóst, að þetta er
engin varanleg lækning á dýrtíðinni.
Af því, sem nú hefir sagt verið, má
öllum ljóst vera, að aðkoma alþingis
15. sept. verður síður en svo glæsileg.“
Þannig lýsir Morgunblaðið nú
horfunum í haust og má vel vera,
að í ummælum þess sé sízt of
dökkt málað þaS, sem fram und-
an er. En var það ekki einmitt
þetta, sem SjálfstæSisflokkurinn,
Kommúnistaflokkurinn og Fram
sóknarflokkurinn komu sér sam-
an um í sex manna nefndinni
sællar minningar og þá var prís-
að fyrir þjóðinni sem hin einu
sönnu bjargráð?
*
Vísir minnist í aðalritstjórnar-
grein sinni í gær á þann stöðuga
áróður, sem rekinn er af komm-
únistum hér á landi gegn Banda-
ríkjunum í þeim tilgangi, að gera
þau tortryggileg í augum þjóðar-
innar. Vísir skrifar um þetta
meðal annars:
„Er samið var við Bandaríkin um
hervernd íslands, var af þeirra hálfu
gefin skilyrðislaus yfirlýsing um, að
þau myndu hverfa héðan með allan
herafla sinn strax að stríðinu loknu.
íslenzka þjóðin sætti sig vel við þessa
yfirlýsingu og hefir aldrei efast um
að henni yrði framfylgt til hins ýtr-
asta að ófriði loknum. Ekkert það
hefir gerzt frá því er yfirlýsingin var
gefin, sem réttlætt gæti fullyrðingar,
sem ganga í aðra átt. Stjórn Banda-
ríkjanna og herstjórnin hér á landi
hafa á allan hátt virt gerða samninga
og gefnar yfirlýsingar og blöð, sem
fullyrða annað gera það gegn betri
vitund, til þess eins ið vekja hér óróa
eða tortryggni í garð Bandaríkjanna,
en slíkt er mjög varhugavert frá hvaða
sjónarmiði, sem séð er. Kommúnistar
hafa gert þetta til að reyna að leiða
athygli aímennings frá eigin yfirsjón-
um, — í trausti þess að málið verði
látið kyrrt liggja, með því að ekki sé
heppilegt eða yfirleitt unnt að ræða
það í einstökum atriðum að svo
Framh. á 6. síSu.