Alþýðublaðið - 04.07.1944, Síða 6
ALÞYQUBLmSSÐ
3
Þríðjudagur 4. júlí 1944.
Afengisverzlun ríkisins
aðvarar hérmeð viðskiptavini sína
um það, að aðaflskrifstofa liennar
verður Iokuð vegna sumarleyfa
dagana 10.—23. júlí.
Á sama tíma verður Lyfjaverzlwn
ríkisins, ásamt iðnaðar- ©g lyfja-
deiSd lokað af sömu ástæðum.
Viðskiptamenn eru hérmeð góðfús-
lega aðvaraðir um að haga kaupum
með hliðsjón á þessari háífsmánað-
/
ar lokun.
Áfengisverziun ríkisins
Leyniherinn franski
Frh. af 5. síöu.
þessi var gerð af bankamönn-
um, 6r unnu að næturlagi.
Leyniherinft kom sér upp
flokki manna í hverju byggðar-
lagi Frakklands. Skýrslur voru
gerðar, þar sem greint var frá
öllum járnbrautarjarðgöngum,
öllum þeim stöðum, þar sem
járnbrautarlestir yrðu að hægja
ferðina, öllum verksmiðjum, bif
reiðarstöðvum og skipasmíða-
stöðvum. Leyniblöðin voru fyrst
fjölrituð, en síðar voru þau
prentuð. Þau voru prentuð uppi
á hánabjálkum eða niðri í kjöll
urum einkum að næturlagi, og
enda þótt útgáfa þeirra væri
miklum erfiðleikum háð, voru
þau næsta þýðingarmikil, því
að þau gerðu yfirmönnum leyni
hersins unnt að koma skoðun-
um sínum á framfæri við þjóð-
ina og láta henni nauðsynlegar
upplýsingar í té. Nú munu leyni
blöðin á Frakklandi vera að
minnsta kosti fjörutíu að tölu,
og þau hafa náð mikilli út-
breiðslu.
Leyniherinn sendi full-
trúa sína um gervallt landið
til þess að hlusta á mál fólksins,
hrekja áróður Þjóðverja og ráða
nýja menn í þjónustu hans. Það
varð að þjálfa þær þúsundir
manna, sem gengu leynihernum
á hönd. Sérstakir menn, sem
annast skyldu þann starfa, voru
sendir heim til þeirra. Menn
þeir voru mestmegnis fyrrver-
andi málaflutningsmenn, skóla-
kennarar og hermenn. Þeir ferð
uðust einkum að næturlagi og
mestmegnis fótgangándi til þess
að komast hjá vörðum þeim,
sem Þjóðverjar hafa á öllum
vegum.
Menn þessir höfðu námskeið
með tveim mönnum í senn.
Mesta áherzlu lögðu þeir á það,
hversu vinna skyldi hverskonar
skemmdaverk. Einnig kenndu
þeir hvers konar. vopnaburð,
sem ástæða var til að ætla að
koma kynni hlutaðeigendum að
notum.
*
Leyniherinn franski er geró-
líkur öllum öðrum herjum
heimsins. — Hann nýtur for-
ustu mikilhæfra manna, sem
margir hverjir voru, áður fyrr
herforingjar í her Frakka. Her-
foringjaráð hans hefir sér til að
stoðar tuttugu héraðaráð, en yf-
irstjórn þéirra hvers um sig er
í höndum liðsforingja, sem
dveljast aldrei lengur en átta
til tíu daga á hverjum stað í
það og það skiptið. Tíu stundum
áður en einhver þessara liðsfor
ingja kemur í heimsókn til ein-
hvers-staðar, sendir hann full-
trúa sinn á undan sér til þess að
sannfærast um, að engin hætta
sé á ferðum. Leyniherinn þarf
ekki að kvarta yfir því, að
franska þjóðin veiti honum
ekki hverja þá aðstoð, er hún
má, þótt það sé raunar dauða-
sök samkvæmt þeim lögum,
sem Þjóðverjar og handbendi
þeirra hafa á komið.
Hinir raunverulegu hermenn
eru ungir menn og hraustir,
flestir þeirra innan við
fertugt. Starf þeirra krefst
taugastyrks og viljafestu. Þetta
Vigfús Guómimdsson frá Engey:
Fyrsta forsetakjörið.
SÍÐAN kosinn var lýðveldis-
forseti íslands, er kjör
þetta almennt umtalsefni. í við
tali við ýmsa mæta menn, hefi
ég engan heyrt mæla bætur ó-
samkomulagi þingmannanna.
Flestir telja það nýtt hneyksli
þessa þings og núverandi þing-
manna, að opinbera svo greini-
lega sundrungaranda sinn og
ráðríkishneigð, frammi fyrir
allri þjóðinni — útlendum gest-
um og öðrum þjóðum — á mesta
hrifningar- og hátíðisdegi henn-
ar.
Eigi spáir það góðu um sam-
komulag flokka og afrek nú-
verandi alþingis til alþjóðar-
heilla, að slík kosning: 15 þing-
menn kjósa engan forseta og 5
kjósa mann, sem efast má um
að nokkrum manni utan þings
hafi komið til hugar að kosinn
yrði í forsetastöðu. Jafnt fjnrir
því, þó að hann sé vel þekktur
maður, góður og gegn í stöðu
, sinni.
Ef þjóð vor ætti völ á nokkr-
um mönnum, sem væru jafn
hæfir, vinsælir og þekktir út á
við, þá væri ekkert við því að
segja þó að atkvæði dreifðust
milli þeirra. Eðlilegt væri þá og
sjálfsagt, að hver þingmaður
færi eftir sannfæringu sinni.
En ég hygg, að nú sé enginn
maður hér á landi jafn fjölhæf-
ur til forsetastöðu og sá, sem
kosinn var. Að því leyti má
þjóðin öll fagna kjörinu og
þakka þeim, er þannig kusu.
Fagna því og þakka það, að í
þetta sinn varð þjóðárheill
hlutskarpari en sérdrægni og
flokkafjötrar.
Enginn annar en forsetinn,
hr. Sveinn Björnsson, hefir ver-
ið jafn lengi sendiherra íslands
í -öðrum löndum. Enginn annar
íslendingur, sem nú er uppi,
kynnzt í slíkri stöðu jafnmörg-
um þjóðum og þjóðhöfðingjum,
bæði á Norðurlöndum, Suður-
löndum (ítalíu, Spáni og Þýzka
landi) og Vesturlöndum Eng-
landi og Bandaríkjunum),
Jafnframt því að læra
störf, siði og kurteisi, sem hæf-
ir svo hágöfugu embætti, hefir
forsetinn hvarvetna unnið sér
og þjóð vorri hylli og vinfengi
með gaumgæfni sinni, hyggind-
um og prúðmennsku. Og svo
eigi siður út á við í ríkisstjóra-
embættinu.
Hvað heldur þjóð vor nú, að
aðrar þjóðir og þjóðhöfðingjar
hefðu hugsað, ef þingið hefði
frákastað þessum ágæta og al-
kunna manni og tekið í staðinn
mann, sem fáir hefðu V-1-’
sinni að nafni? Heldur þjóðin
að það hefði orðið til þess að
bæta samkomulagið við aðrar
þjóðir, eða auka álitið á voru
nýja lýðveídi? Ég segi nei og
aftur nei.
Vonandi verður það þjóð
vorri líka til hamingju, að á
næsta vori á hún sjálf að kjósa
forseta sinn, óháð duttlungum
þingsins í því efni.
En vanræksla og misnotkun
eru menn, sem láta sér hvorki
bregða við sár né bana.
Skemmdaverkamennirnir
eru hins, vegar oft aldraðir
menn, konur og unglingar.
Starf þeirra er mjög mikilvægt,
og miklar hættur ægja þeim.
En við starfa þeirra skiptir út-
sjónasemi og kænska meira máli
en kraftar og líkamsburðir. Sér
hvert skemmdaverkanna , er
vendilega undirbúið og skipur
lagt, og iðulega hafa liðsmenn
leynihersins og skemmdaverka-
mennirnir samstarf með sér við
framkvæmdir, sem krefjast
margra manna.
atkvæða við forsetakjörið nú, á
heilagri stundu og stað, svo að
segja frammi fyrir víðri veröld,
er sá blettur í þingsögu vorri,
sem aldrei verður þveginn
hreinn. Og tilefnið? Engan veit
ég hafa borið sakir á fyrrver-
andi ríkisstjóra. Enda mun að-
alorsökin vera einkabréf hans
til alþingis, með yfirlætislaus-
um og lýðræðislegum tillögum,
sem ekki áttu samleið með
stefnu og kröfum þingsins. Til-
lagan gekk að vísu — eftir því
er sumum skildist — í áttina til
samkomulags við Dani um sam
bandsslitin. En var það nokkur
goðgá eða efni til þykkju og
langrækni eða lítilsvirðingar,
þó að hann, sem áratugum sam-
an sat í vinsamlegu samneyti
við Dani, vildi líka aðskilnaðinr.
vinsamlegan á báðar hliðar?
Þar að auki er kona hans, for-
setafrúin, dönsk að ætt og báð-
um þjóðunum jafnt til heiðurs
og sóma.
H'eyrt hefi ég það hjá mörg-
um, að þeim — eins og mér —
finnist meira vert um góðan
undirbúning og öruggan grund-
völl lýðræðisins, en um sam-
þykktardaginn. Meira vert um
virk samtök og viturleg ráð út
úr ógöngum dýrtíðar og fjár-
glæfra en virðulegar veizlur,
glaum og gleði út í óvissuna og
sundrungina. Meira vert en að
fljóta sofandi að feigðarósi, að
sameinast á öflugum verði gegn
rússneska einveldinu, sem kom-
múnistar hafa alltaf verið að
gróðursetja hér og nú opinber-
lega auglýst í þinginu, með nýju
þ j óðarhneyksli: fyrirlitning
stjórnar og þjóðar Bandaríkj-
anna, styrkustu stoð og hjálpar-
hellu þjóðar vorrar.
V. G.
Söng Smávina var vel
fangað hér í bænum.
O ARNAKÖRINN „Smávin-
ir“ frá Vestmannaeyjum,
sem hér hefir"dvalið að undan-
förnu, hélt söngskemmtun í
Tjarnarbíó á laugardaginn var,
og í Gamla Bíó á sunnudaginn
kl. 1.30.
Var kórnum tekið mjög vel
af áheyrendum, og varð að
endurtaka mörg lögin.
Söngstjóri kórsins er Helgi
Þorláksson.
Síðastliðið föstudagskvöld
sat kórinn boð hjá „Sólskins-
deildinni11 i Tjarnarkaffi, þar
sem kórarnir skiptust á söng.
í þessu samsæti útbýtti Guð-
jón Bjarnason, sörjgstjóri Sól-
skinsdeildarinnar verðlaunum
til þeirra barna, sem starfað
hafa samfleytt í Sólskinsdeild-
inni í þrjú ár, og ennfremur,
til þeirra, sem bezt hafa sótt
söngæfingar í vetur. Þá var og
happadrætti um 2 gítara, sem
meðlimir Sólskinsdeildarinnar
drógu um, og hlutu þá, tvær
litlar stúlkur úr kórnum.
Munu „Smávinir“ nú vera á
förúm héðan úr bænum ein-
hvern næstu daga.
Bifreið veltur.
Á sunnudaginn var valt vörubif-
reið út af veginum frá Grindavík
og mölbrotnaði. Tveir menn voru í
bifreiðinni, og sluppu þeir að
mestu ómeiddir. Þó var farið með
bifreiðarstjórann til læknis í
Keflavík, en meiðsli hans voru
samt sem áður ekkert hættuleg.
Um dagimog
veginn
Framhald af 4. síðu.
undanfarið einnig boðið okkur
fegurð og list skálda og lista-
manna — leikrit góðskálda. Það
er að vísu ekki nóg að leikstjórn
og leikur sé prýðilegt, þegar á-
horfendur eru að týnast inn um
dyrnar með sælgætispokana
skrjáfandi, fram eftir allri sýn-
ingu, eða þegar áhorfendur hlæja
á sorglegustu stöðum sorgleiksins.
Það kemur upp um okkur og
truflar sýninguna. Það er fróð-
legt að athuga aðstöðu kvenna til
lífsins í leikritum beztu skálda
um aldamót. Lífsmyndir Ibsens
eru glöggar og sígildar. Björnson
er öðruvísi, erfiðara að greina
manngildið bak við glæsileik
formsins. Hann lýsir Paul Lange
sem göfugum manni, sem tekur
sér þá hvíld, sem umhverfið
virðist ekki skilja að hann þarfn-
ast. Líkt og Stefan Zweig, senni-
lega of óþolinmóður að bíða þess
eina, sem alvég er , víst að kem-
ur. En áhorfanda ,,verður á að
spyrja: Hver er geðhilaður, heim-
urinn í gær eða Stefan Zweig,
Paul Lange eða hans heimur.
Maður trúir ekki á ástina í leikn-
um, eins og skáldið íslenzka seg-
ir: „Báðir þrá hið eina, bágt eiga
þeir, báðir erú blekking . .
Hann sendi bréf og vænti bréfs.
Ur því að hún þekkti hann svona
vel, hvers vegna kom hún þá —
eins og herforingi í ofsókn? Sól-
veig er öðruvísi í Pétri Gaut.
„Kemurðu,“ segir hún, þegar hún
er alkomin með allt sitt, sjálfa sig
og smápinkil í klút. Óttinn er lát-
inn buga Paul Lange, en Pétur
Gautur sígrar beyginn — konur
stóðu bak við hann — ólíkar
konur og ólíkir menn.
Sálarlífslýsingar skálda eins óg
Bjömsons, Ibsens og Tolstojs
hafa verið einn þáttur í undir-
stöðu nútíma sálarfræði beztu
sálarfræðinga. Fyrir nítján öld-
um var hið góða og göfuga kross-
fest, en í dag erum við skírð,
fermd, gift og grafin í nafni þess
og hið góða og göfuga kvalið eins
og fyrr. Af sálgreiningaryfir-
heyrslu og sundurgreining Thoru
Parsberg í I. þætti mættu ungu
barnasálarfræðingarnir læra mik-
ið, sérstaklega mætti það minna
á, hve hættuleg sálgreiningin er í
höndum óvita, sem leika sér með
viðkvæm tilfinningamál við-
kvæms aldurs enn í dag, í nafni
réttlætis, hjálpfýsi og góðsemi.
Til eru yfirsjónir, sem þögnin ein
og gleymskan lækna bezt.
María Hallgrímsdóttir.
HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN
Frh. af 4. síðu.
komnu. Situr illa á íslenzkum þegnúm
aS vera með ástæðulausar ýfingar við
þá stórþjóð, sem sýnt hefir okkur
mestu vinsemd frá upphafi og gerir
enn.“
Þannig farast Vísi orð. Og
vissulega er það ekki til þess
fallið að bæta sambúðina við
neina nágrannaþjóð okkar, að
vera með sífelldar dylgjur og
, getsakir í hennar garð eins og
Þjóðviljinn svo að segja daglega
í garð hins vinveitta, stóra lýð-
veldis í Vesturheimi.