Alþýðublaðið - 08.07.1944, Side 2
íslenzkf námsfólk i Minneapolis.
Myndin hér að ofan er af íslenzku námsfólki í Minneapolis, og
er hún tekin í brúðkaupi Þóru Helgadóttur og Þórhalls Halldórs-
sonar 22. jan. s. 1. að heimili Eirickson-hjónanna í Minneapolis.
Á myndinni sést eftirtalið fólk (talið frá hægri): Fremsta röð:
Guðm. Sveinsson (vélsmiður), Eiríkur Árgeirsson (hagfræði,
heima á íslandi nú), Hörður Gunnarsson (hagfræði, nú í Univer-
sity of Chicago. — Önnur röð: Dóra Kristins (nú í Kaliforníu),
Ása Jónsdóttir (sálarfræði), Kristbjörg Einarsdóttir (kona Benja-
míns Eiríkssonar), Oddný Stefánsdóttir (nú í Kaliforníu), Dóra
Eiríckson (dóttir húsráðanda), Esther Björnsson (röntgengeisla-
fræði). — Þriðja röð: Jón Friðriksson (nú í Kaliforníu), Sigur-
björn Þorbjörnsson (hagfræði), Benjamín Eiríksson (nú í Harward
University, lauk meistararaprófi í hagfræði í Minneapolis í marz J
s. 1., Björn Halldórsson (hagfræði), Hannes Þórarinsson (læknir á
University Hospital), Guðm. Friðriksson (rafmagnsfræði, lauk
námi í maí s. I). —- Aftasta röð: Haraldur Bragi Magnússon
(íþróttamenning: Physical Education), Jón Hannesson (heima á i
íslandi nú), Jóhann Jakobsson (efnaverkfræði), Edward Friðriks-
son (mjólkurfræði), Þorsteinn Thorsteinsson (námuverkfræðj,
lauk námi 10. júní s. 1.). — Á myndina vantar Jón Raignar Guð-
jónsson (hagfræði), Jónas Árnason ílblaðamenniska), Halldór Sig-
urðsson (blaðamennska) og Jón Metusalemsson (búfræði).
LfMiéíÍÉ isleiiinia i.
Minnespolis 17. júní
16 námsmen&i hé6an sS hehnan ©g yfir 10®
Vestur-lsiendingar tókis þátt i
SLENZKIR námsmenn
•og Vestur-íslendingar í
Minneapolis og nágrenni
feomu saman í skemmtigarð-
inum Lake Nokomies eftir há
degi 17. júní til að fagna stofn
un íslenzka lýðveldisins. Kom
þangað 16. námsmenn og
meira en 100 Vestur-íslend-
ingar.
Björn Halldónsson, formaður
félags íslenzkra námsmanna í
Minnesota setti samkoimuna, en
aif hiálifu námismanna talaði Sig-
urbjöm Þorlkelsson fyrir minni
íslands.
Hjiálmar Björnsson ritstjóri,
vaxaræðismaður íislands, lais upp
orðsendrngar íslenzku ríkis-
stjórnariimar til Vjestur-íslend-
iniga og itiil íslendinga utanlands,
en af talplötu var flutt árvarp
Tlhor Tlhors sendiherra íslands,
er hann hafði isent samkomunni
fná Wasihington.
Gunnar ÍBjörnsson skattstjóri
mælti af hálfu Vestur-íslend-
inga og minntisL sjálfstæðipbar
áttunnar.
Tveir íislenzJkir stúdentar, þeir
Haraldur Bragi Magnússon frá
Akureyri og Sigurbjörn Þor-
björnsson úr Reykjavík sýndu
íslenzka gl'ímu og var rnjög vel
fagnað. Stundar Haraldur nám
í fþróttamenningu en Siigurbjörn
hagfræði.
Að skemimtiskrá lo'kinni var
matasit undir beru lofti, og istóð
samkoman til kl. 8 um kvöldið.
Uim kivöldið var áslenzka náms
fólkið gestir vestur-iíislenzku
hjúnanna Eiritíkson í Minneapol
is.
Dagsins var rækilega minnzt í
blöðuim iborgarinnar, myndar-
legast ,í „Minnieapolis Morning
Tribune“, sem Hjálmar Björns-
son stjórnar. Daginn áður ihafði
WLOLnútvarpsstöðin í Minnea-
polis helgað íislandi háMtíma dag
skrá.
Fregnirnar um stofnun lýð-
veldis að Lögbergi og kjöri for-
setans voru komnar :í síðdegis-
blöðium Minneapolis þann 17.
júní.
Kariakór Inaðar-
manna spgar á Síglu-
KARLAKÓR Iðnaðarmanna
feom hingað til Sigluf jarð-
ar á óttunda tiímanum í gær-
kveldi.
Vkh. 6 1. tíShi
ALÞYÐUBLAÐIÐ
. .-V- ' ••'ó ;'-:U , ; • ... ;■>
Laugardagur 8. júlí 1944.
Allsherjarmóf I.S.I. hefst á mánu-
dagskvöldið.
Þáfftalcesidur I méfinu frá fisram félög-
um9 79 mansis aSls.
Enll Thoroddsen
EMIL THORODDSEN tón-
skáld lézt í Landakotsspítal-
anum í fyrrinótt. Hann hafði legiS
þar sjúkur skamma hríð.
AMÁNUDAGINN kemur
kl. 8.30 hefst allsherj-
armót í. S. í. hér á íþrótta-
vellinum og stendur það yfir
í fjóra daga; eða þar til á
fimmtudagskvöld.
Framkvæmdarnefnd K. R.
mun sjá um þetta mót.
Er þetta eitt hið f jöimenn-
asta íþróttamót, sem hér hef-
ir verið haldið, munu 79
manns taka þátt í því; það
eru keppendur frá fimm fé- |
lögum, Ármanni, K.R., I.R.,
F.H. og U.M.F. Skallagrími í
Borgarnesi.
Má búast við skemimtilegri
keppni í jeinstölkuim íþróttagrein
urn á Iþessu allsherjarmóti og
væntanlega góðuim íþróttaafrek
uim, íþar isem svo miargir ágætir
íiþróttamenn leggja fram krafta
sína.
Haifa undangenigin mót sýnt
það, að íþróttamenneruyfirleitt
í góðri æfingu, énda hafa líka
ágæt lílþróttaafrék verið unnin
t. d. á innanlfélagsmóti K.R,.
snemma á isuimar, þegar tvö ný
met voru isett.
í iþessu imióti verður keppt í
eftintöldum líþróttagreinum
fyrsta daginn, sem mótið stend-
ur:
100 metra ihlaup; þátttakend- !
ur í því verða 24. Síangastökk ;
í þivií verða 6 keppendur. 800 m. !
hlaup í því fetka 9 menn þátt. !
Kringlukast, keppendur 13. j
Langstökk, 14 keppendur, og að
endinigu 1000 m. hlaup. í því
verða tvær sveitir Æná Armanni
tvær eveitir frá Í.R., tvær frá
K. R. og ein isveit fná F.H.
Annan dag mótsins fara fram
keppnir í eftirtöldum íþrótta-
greinuim: Kúluvarpi, þátttafeend
ur 9. 200 m. Ihlaup þátttakendur
16. Hástölkk, þátttakendur 13,
og að endingu 10.000 m. hlaup,
þátttakendur 4.
Þriðja daginn verður keppt
í eftirt-öldum líþróttum:
4X100 im. boðlhlaupi. Frá Í.R.
verða tiva^r isveitir í ihlaupinu,
frá K.R. tvær og ein frá F.H.
Þiá ifer ifram ispjótkast, þátt-
takendiur í því verða 7. 400 m.
hlaup, þátttakendur 10. Þrí-
stökk, þátttalkendur 12. 5000 m.
hlaup, þátttakendur 7, og
sleggjukast í því tafea 7 menn
þátt.
Fjórða og síðasta dag rnóts-
ins fer svo ifram k-eppni í
Fimmtarþraut, 11 keppendur,
enníremur verður þá 10.000 m.
hlaup, þátt'takendur I því verða
6.
ÖM NÆSTU „HELGI fer 25
manna sundflokkur úr K.R.
til Siglufjarðar og Akureyrar og
mun keppa og sýna á báðum
þessum stöðum. Ennfremur mun
flokkurinn sýna á nokkrum fieiri
stöðum norðanlands í heimleið.
Fyrst mun flokkurinn keppa á
Akureyri næstkomandi mánu-
dagskvöld, en á Siglufirði á mið-
vikudagskvöld. Flokkurinn kem-
ur aftur úr för þessari um aðra
helgi.
Fararstjóri flokksins og stjórn-
Frh. á 7. sföu.
2 stigum iægri en í júní
AUPLAGSNEFND og
Hagstofan hafa nií reikn-
að út vísitölu framfærslu-
kostnaðar í júlímánuði. Reynd
ist hún vera 266 stig eða 2
stigum lægri en í næsta mán-
uði á undan.
Lækkunin stafar aðallega
af verðlækkun á tilbúnum
fatnaðí.
Vestmannaeyiflgar
sýna Leynimel 13 á
Siglufirði.
craar-TnaoEea^r jc r.zr- -mm . .„ .
Frá fréttaritara Al'þýðu
Iblaðisims á Siglufirði
gær.
EIKFLOKKUR frá Vest
mannaeyjum kom hingað
til Siglufjarðar á þriðjudags
kvöld og hefir sýnt hér gaman
leikinn „Leynimelur 13“.
Leikifiiokikurinn hefir haft sýn
ingar þrjú undanfarinin kvöld
alltaif við húsfyllir og mun hann
hatfa siíðuistu sýningu sína ann-
að kvöld.
Fararstjóri og _ leikstjóri
flokksins er Stefán Árnason frá
Vestmannaeyjum.
— VISS —
Þrir menn fara utan í
erindum landbúnað-
arins
Emil var sonur hinna kunnu
hjóna, Þórðar læknis Thorodd-
sen og Önnu Pétursdóttur Guð-
johnsen. Hann var 46 ára að'
aldri, er hann lézt, og var löngu
þjóðkunnur maður fyrir tónlist-
arstörf sín.
Úfför Guðmundar
skéids Friðjónssonar
yar hin yfrðulegasla
Frá fréttaritara Alþýðu-
blaðsins ó Akureyri í gær,.
ARÐARFÖR Guðmund-
arxá Sandi fór fram í gær.
Á sjötta hundrað manns var
viðstatt athöfnina. Heima
flutti séra Friðrik Friðriks-
son húsfcveðju og Júlíus Haf-
stein sýslumaður kveðju-
ræðu. Þá fluttu kvæði, Stein-
grímur Baldvinsson bóndi að
Nesi í Aðaldal, Heiðrekur
Guðmundsson og Arnfríður
Sigurgeirsdóttir ekkja á
Skútustöðum.
Atta synir Guðmundar báru
'kistuna að heiman.
Jarðað var að Nesi í Aðaldal.
Ungir bændur hófu kistuna í
kirkju en eldri bændur úr
kirlkjiu til grafar.
í kirkjunni fluttu ræður, Karl
Kristjánsson kau.pfélagsistjóri á
Iíúsa'vík og iséra Þorgrímur Sig-
urðsson. Kvæði fluttu, Sigurð-
ur Jónsison skálld á Arnarvatni,
Þóroiddur Guðmumdjsison og Kon
ráð Vilhjálmsison skáld. Kirkju-
kór Húsavíkur annaðist sönginn
af mikilli prýði bæði heima og
í kirkjunni.
Kransar ibárust frá ríkisstjúrn
íslands og Mienntaskóla Alkureyr
ar, iskeyti frá Rithiötfundatfélagi
íislands, Samlbandi íslenzkra
kvenfélaga og Samibamdi þing-
eyskra kvenfélaga og fjölmörg-
uim einstaklinguim.
Heima á Sandi var manmfjöld
anúm veitt af .mikilli^rausn.
Öill var jarðarförin hin virðu
legasta.
— HAFR —
HjP VEIR MENN eru nýlega
farnir utan í erindum land-
búnaðarins, þeir Halldór Páls-
son sauðfjárræktarráðúnautur
og Jóhannes Bjarnason vélaverk-
fræðingur. Þriðji maðurinn er
einnig á förum í sömu erindum.
Það er Runólfur Sveinsson
skólastjóri á Hvanneyri.
Halldór Pálsson er fyrir
nokkru síðan farinn til Bretlands
og Bandaríkj anna til þess að
kynnast nýjungum viðkomandi
starfi sínu. Þá mun hann og
reyna að kynna sér ýmsa mark-
aðsmöguleika íyrir íslenzkar
landbúnaðarafurðir.
Jóhannes Bjarnason véiaverk-
fræðingur er nýkominn til
Bandaríkjanna í erindum ís-
lenzkra stjórnarvalda til þess að
reyna að greiða fyrir innflutn-
ingi á landbúnaðarvélum.
Runólfur Sveinsson skólastjóri ,
á Hvanneyri er á förum til Am-
eríku. Mun hann dvelja þar ár- j
langt, aðallega í Bandaríkjunum,
til að kynna sér ýmsar nýjung-
ar og framfarir í búnaðarmálum,
einkum þó varðandi kynbætur
búpenings.
Kjósar- @tj Gullbringu-
!a
TVÖ sýslufélög, Kjósarsýsla
og Gullbringusýsla, hafa
stofnað raforkusjóði. Var þetta
nýmæli samþykkt á nýafstöðnum
sýslufundum í þessum sýslufé-
lö'gum. Var ákveðið að leggja í
þennan sjóð nokkurn hluta af
tekjum sýslufélagsins.
Kjósarsýsla ákvað að leggja í
þennan sjóð 30 þús. kr. og Gull-
bringusýsla stofnaði sinn sjóð
með 60 þús. kr. Er ráðgert að
bæta við sjóðina árlega. Ekki
hafa verið teknar ákvarðanir um
það, hvernig þessum sjóði skuli
varið, enda mun það að sjálf-
sögðu ráðast mjög eftir því,
hvernig framtíðarskipulagi þess-
ara mála verður hagað.
Þá er einnig ríkjandi áhugi
innan hreppsfélaganna í þessum
sýslum að stofna slíka sjóði.
Hefir einn þeirra, Kjalarmes-
hreppur, þegar framkvæmt þá
hugmynd.