Alþýðublaðið - 08.07.1944, Blaðsíða 5
Laugardagur 8. júlí 1944.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
ANNgfú
.Ui»i
Rétt að fela einstökum félögum ýmsar framkvæmdir
bæjarins — en bó ekki allar. Gatnagerð og sorphreins-
Bréf frá tveimur Reykvíkingum.
un
ORPHREINSUN í Reykjavík hefur
um fjölda mörg ár verið eitt
helzta umræðuefni bæjarbúa, enda
hefur margt farið betur úr hendi í
höfuðstað landsins en sorp- og gatna-
hreinsun. Upp á síðkástið hafa orðið
töluverð*ar framfarir í þessu efni og til
dæmis í sumar hefur verið settur
miklu meiri kraftur á alla sorphreins-
un en nokkru sinni áður, enda lat-
ínulærðir menn fengnir til að vinna
að hreinsupinni í stórhópum um nætur
ásamt verkamönnunum!
EN ÞAÐ ER ÞÓ langt frá því að
þetta sé að verða nálægt því komið í
gott horf. Þörfin fyrir mikilvirka og
fljótvirka sorphreinsun margfaldaðist
við hitaveituna, þar sem hún útilokaði
að hægt væri að brenna sorpi í húsun-
um, enda sá þetta á fyrst í vor, þó að
nú sé orðið mikið til bóta.
FYRIR NOKKRU gerði félagsskapur
tilboð í sorphreinsunina. Bauðst hann
til þess að taka að sér hreinsunina um
vissan tíma gegn ákveðnu gjaldi. Um
þetta efni fekk ég bréf frá kunnum
Reykvíkingi í fyrradag og ræðir hann
þetta mál af skynsemi. — Hér er bréf
hans:
„ÉG SÉ AÐ NOKKRIR MENN hafa
' boðist til að taka að sér sorphreinsun-
ina í Reykjavík. Þetta er alger nýjung,
sem vert er að veita athygh. Það var
nýjung, er Almenna byggingafélagið
gerði tilboð í gatnagerðir fyrir bæinn
og borgarbúum yfirleitt mun lítast vel
á verk félagsins og hyggja gott til
samstarfs við það um gatnagerðir og
viðgerðir á götum.“
„EINS MÁ SEGJA um þetta tilboð
sorphreinsunarmannanna. Mér finnst
að bæjaryfirvöldin eigi að athuga til-
boð þetta mjög vel og ég hygg að
heppilegt muni reynast fyrir bæinn að
taka tilboðiou, ef samningar takast að
athuguðu máli. Hér er vitanlega í mik-
ið róðist fyrir bæinn og hér er um
algera nýjung að ræða og verður því
að hyggja vel að öllu.“
„EN AÐAUÁSTÆÐAN til þess að ég
skrifa þér þetta bréf, Hannes minn, er
sú, að ég vil leggja á móti því, að bær-
inn láti einstök félög yfirtaka allar þær
greinir, sem hér um ræðir. Eg vil að
verkfræðingafirmum sé gefinn kostur á
því að gera tilboð í viðgerð vissra
gatna, en ég vil ekki að bærinn hætti
alveg að gera við götur sjálfur. Eins
vil ég ekki, að einstöku félagi sé feng-
in í hendur öll sorphreinsun í bænum,
en ég vil láta það taka að sér megin-
hluta hennar, en að bærinn haldi á-
fram einhverjum hluta þessa nauðsyn-
lega verks.“
„ÁSTÆÐAN FYRIR þessari af-
stöðu minni er sú, að ég vil láta mynd-
ast samkeppni i verkhyggni og vinnu-
afköstum í þessum greinum. Eg full-
yrði, að síðan Almenna byggingafélag-
ið byrjaði að vinna, hafa gatnavið-
gerðir, sem bærinn sér um, gengið
betur. Annars er og 'skylt að geta þess,
að í vor, strax og hinn nýi bæjarverk-
fræðingur tók við kom meira fiör í
þessar framkvæmdir bæjarins, hverju
sem það er að þakka, — og þú hef-
ur einmitt fyrstur manna bent á þetta,
Hannes minn.“
„EINS HYGG ég að muni fara um
sorphreinsunina. Eg vil, eins og ég
sagði áðan, að félaginu sé falinn meg-
inhluti sorphreinsunarinnar, en ekki
alveg allur. Verða svo ráðamenn bæj-
arins að skipta starfinu skilmerkilega
— og hef ég ekki næga kunnáttu til
þess að gera tillögur í því efni.“
ÞETTA SEGIR þessi Reykvíkingur.
Finnst mér margt rétt athugað í bréfi
hans og vona, að bæjaryfirvöldin at-
hugi að minnsta kosti tillögu hans. —
Annað bréf fékk ég frá B. St. um göt-
urnar í bænum og er bezt að taka það
með í þennan pistil, fyrst ég er farinn
að tala um framkvæmdir bæjarins.
Hann segir:
„HINN 'NÝI bæjarverkfræðingur
hefur tekið upp þá lofsamlegu ný-
breytni að láta steypa viss götuhorn,
þar sem umferð er mjög mikil. Eg
skal strax taka það fram, að þó að
þarna sé' steypt á allstóru svæði, þá
óttast ég, að holur vilji myndast við
samskeytin, en það á nú eftir að sýna
sig og ekki vil ég vera með hrakspár,
því að hugmyndin er ágæt og mjög
lofsverð."
„EN ÉG VIL fastlega mælast til
þess að nú verði farið að steypa göt-
urnar í Reykjavík. Malbikun þeirra ár
eftir ár er Kleppsvinna og hreint ekk-
ert annað. Ég vil láta taká eina til tvær
götur á ári og láta steypa þær. Við
skulum til dæmis taka Ingólfsstræti
milli feankastrætis og Hverfisgötu. Og
ég vil líka nefna Fríkirkjuveginn. —
Þetta eru ekki stórar götur, og það er
sjálfsagt að fikra sig áfram og taka
þá litlar fjölfarnar götur fyrst.“
„MALBIKHD, sem nú er notað, er
handónýtt og það er því hin mesta fá-
sinna að vera að nota þaS Auk þess
er reynsla okkar af malbiki mjög
slæm, eins og ég hef drepið á áður.
Steyptar götur hafa þegar reynst mjög
vel — og við Reykvíkingar verðum að
eignast steinsteypt stræti. Eg vona, að
þú viljir flytja bæjaryfirvöldunum
þessa hugvekju mína.‘
Hannes á horninu.
ítölsk borg í rústum.
vantar okkur nú þegar t§l a$ bera
blaðið á BaEcKursgötu og
Miðbæinn.
AlhýSublaðíð. - Simi 4990.
Á mynd þessari sjást rústir í ítölsku borginni Castellonorato, sem er suður af Cassino,
eftir að hersveitir bandamanna höfðu náð henni á vald sitt. Borg þessi var fyrruon eitt af
styrkustu vígjum Þjóðverja á þessum slóðum.
anrchlH.
ENN GETA BRETAR engan
veginn gert sér fulla grein
fyrir því, hvað þeir eiga að
þakka forsjá og dómgreind for
sætisráðherra síns. Það mun
sagan sanna. Hins vegar er
Bretum vel um það kunnugt,
hvað ræður hans hafa haft að
þýða fyrir þá sem einstaklinga
og þjóð.
Þess eru dæmi, að skáld og
rithöfundar hafi heillað svo
hugi manna með orðsnilld sinni,
að nöfn þeirra munu aldrei
gleymast, meðan menningarþjóð
ir byggja þessa jörð. Eitthvað
svipað er að segja um mælsku-
list Winstons Churchills og áhrif
þau, er hún hefir haft á brezku
þjóðina á öllum stigum styrjald
ar þeirrar, sem nú er háð, hvort
heldiur hún hefir unað ósigri
eða sigri, svartsýni eða bjart-
sýni. Og það, sem ég bíð ó-
þreyjufyllstur eftir, er það, að
stríðsræður Churchills verði
gefnar út að ráðnum úrslitum
hildarleiksins.
Við getum gert okkur í hug
grlund, hver hefði orðið hlutur
brezku þjóðarinnar á hörmung-
artímum þeim, sem yfir hana
hafa dunið síðustu ár, ef hún
hefði ekki átt slíkan leiðtoga og
málsvara sem forsætisráðherra
hennar er.
Fátt væri mér kærara en
benda hér á það, hvílíkur snill-
ingur Churchill er á látlaust en
áhrifaríkt mál, hversu bragðfim
ur ræðuskörungur hann er,
skemmtinn og markviss, en allt
þetta veldur þeirri almennings-
hylli, er hann nýtur sem ræðu-
maður. En þessa er enginn kost
ur að þessu sinni. Ég verð að
sætta mig við það eitt að lýsa
nokktað hæfni hans sem 'sagn-
fræðings og því, hversu honum J
tekst ávallt frábærlega vel að {
koma henni við, er hann lýsir f
mikilvægum atburðum.
En á tímum sem þessum má
með sanni kveða þannig að orði,
að atburðirnir lýsi sér raunveru
lega sjálfir. Enda þótt óvenju-
lega örlagaríkir atburðir gerist,
gleymast þeir mönnum brátt,
því að hafsjór atburðanna bylt-
ir feiknhrönnum að strönd end-
urminninganna svo að segja dag
lega. Það leikur því ekki á
G1
REIN ÞESSI,, sem er
eftir Desmond Mac-
Carthy og hér þýdd úr tíma-
ritinu English Digest, fjallar
um Winston Churchill sem
mælskumann, en hann er tal
inn einhver mesti ræðusnill-
ingur, sem nú er uppi. Grein
arhöfundur vitnar til nokk-
urra ræðna hinsj hrezka for-
sætisráðherra til þess að
sanna lesendunum ýmis ein-
kenni hans sem ræðumans.
tveim tungum, að það.er næsta
mikils um það vert að hafa á
að skipa málsvara, sem er sér-
stakur snillingur í því að lýsa
hinum daglegu atburðum og
skilgreina þá þannig, að mönn-
um verði ríkt í minni og skiln-
ingur þeirra á mikilvægi þeirra
skerpist.
Ég hefi hér fyrir framan mig
fjölmargar ræður eftir forsætis
ráðherrann, sem lýsa glögglega
þessari þjónustu hans við þjóð
sína, og það, sem einkennir þær
allar, er ekki aðeins það, að
hann leggi áherzlu á það að
skerpa skilning þjóðarinnar á at
burðum þeim, sem gerzt hafa á
hverjum tíma, heldur og að
hvetja haná til þess að taka
þeim eins og hugdjarfri og mik
ilhæfri þjóð sæmir. 4
Ég tek hér til dæmis ræðu þá,
er hann hélt hinn 18. júní 1940.
Orrustunni um Dunkirk var lok
ið, og þennan sama dag hittust
þeir Hitler og Mussolini tdl þess
að ræða friðarskilmála þá, er
Frakklandi skyldu settir. Þá
mæltist honum á þessa lund:
„Því, sem Weygand hershöfð
ingi hefir nefnt orrustuna um
Frakkland, er lokið. Ég hygg,
að orrustan um Bretland sé nú
í þann veginn að hefjast. Hin
kristna mennáng er undir því
komin, hver úrslit þeirrar orr-
ustu verða. Tilvera Breta og
heimsveldi þeirra er undir
Jjeim úrslitum kornin. Óvinur-
inn mun beina öllum mætti sín
um og æði gegn okkur. Hitler er
um það kunnugt, að annaðhvort
er fyrir hann .að bera Breta
ofurliði eða tapa styrj-
öldinni. Ef okkur tekst að veita
honum viðnám, mun Evrópu
verða bjargað og mannkynið
geta hafið sókn til nýrra áfanga.
En ef við bíðum lægra hlut,
mun gervallur heimurinn, þar
á meðal Bandaríkin og allt það,
sem við þekkjum og unnum,
sökkva niður í hyldýpi nýrra
skuggaalda, sem verða enn öm-
urlegri og hryggilegri vegna
þess, að við höfum haft af ljósi
menningarinnar að segja. Við
skulum því bindast fast í
bræðralag og gera skyldu okk-
ar minnug þess, að ef Bretland
og brezka samveldið stenzt
þessa raun munu menn að þús-
und árum liðnum komast að
orði á þessa lund: „Þetta var
örlagaríkasta stund sögu Breta
veldis“.
Þá mun ég höfða til kafla úr
annarri ræðu, sem haldin var
nær mánuði síðar, þegar við-
horfin voru orðin enn ískyggi-
legri og stjórn Pétains hafði rof
ið öll tengsl við Bretland.
„En allt er nú komið undir
lífsmætti hins brezka kyn-
stofns, hvar sem hann dvelst í
heiminum, og allra hinna sam-
einuðu þjóða og vina okkar í
sérhverju landi, sem leggja sig
alla fram, dag og nótt, sem
láta allt af mörkum, þora allt,
standast allt, þrauka til þraut-
ar. Þetta er ekki styrjöld um
höfðingja eða konungssyni, kon
ungaættir eða metorðagirnd
þjóða, þetta er styrjöld um
þjóðir og málefni. Það er mikill
fjöldi manna hér á landi og í
öllum löndum, sem veita hinum
góða málstað ómetanlega þjón-
ustu í þessari styrjöld, en aldrei
verður að nokkru getið. Dáðir
þeirra munu liggja í þagnar-
gildi. Þetta er styrjöld óþekktra
hermanna. En við skulum al-
drei láta tryggð okkar og rækt-
arsemi bregðast, og þá mun
i okkur auðnast að hrista hina
illu martröð Hitlers af okkur“.
Næst mun ég höfða til kafla
úr ræðu, sem er óvenjuleg jafn
vel af Churchill að vera. Hún
sýnir þann þátt ræðusnilldar,
Framhald á 6. síðu.
/