Alþýðublaðið - 20.07.1944, Side 2
2
ALJÞYHUBLAfMf?
Fimmtudagur 20. júlí 1944.
AÞJ ÓÐIIÁTÍÐABDAGINOSr. 17. júni síðastliðinn héldu íslendingar í New York fjölmenna
hátíð að ,,Hiotel Henry Hudson“ í iNew York. Var Helgi P. Briem, aðalræðism. íslands
|>ar í 'borginni aðalræðuimaðurinn. Myndin er tekin 'á samkomu þesisari. Frá 'vinstri til hægri:
Frú ICristín lllioroddsen, Halldór Hermannsson, prófessor (iflytur ræðu), kona Helga P. Briem,
aðalræðismanns, Vilfhjálmur Steifánsson, kona Hjörvarðar Árnasonar og Ólalfur Jobnson
stórkaupmaður.
Ráðsfafanir fil að þrifa til í höf-
uðstaðnurti og fegra úflit hans
Frásögn Bolla Ihoroddsen bæjarverkðræðings
um þessi og ílsiri mál
GAGNGERÐAR umbætur eru nú hafnar í bænum varð-
ándi þrifnað og útlit bæjarins; rneðal annars verður
hreinsað í burtu allt skran af lóðum og auðum blettum hér
og þar í bænum, sem safnast hefir upp síðustu árin. — Enn-
fremur verður sorphreinsun bæjarins færð til betri vegar,
frá því, sem verið hefir, öskuhaugarnir afgirtir og vörður
settur við þá til að gæta þess, að ekki séu bornir inn í bæinn
aftur fánýtir munir, eins og nökkur brögð hafa verið að
undanfarið. Þá er og ýmislegt á prjónunum hjá bsenum
varðandi gatnagerð og viðhald þeirra.
IngéBis Caðé opnar
aftur í dag
INGÓHFSCAFÉ opnar sam-
komuisali sína aftur í dag,
eftir að þeir hafa verið lokaðir
í 17 daga.
Á þessum tíma hafa verið
gerðar ýmsar laigfæringar á'söl-
unum og hafa salirnir niðri t.
d. allir verið málaðir.
Starfsfólk IngólfscaÆé för allt
í sumarleyífi meðan á þessum
viðgerðum stóð. — Tekur það
nú til startfa í dag og mun það
gleðja hina mörgu gesti að geta
nú aiftur íengið mat og veitinig
ar á þessum vinsæla greiðasölu
stað.
Bruni í fyrrinótt
LAUiST eftir' miðnætti í
fyrrinótt var slökkviliðið
kallað að Laugavegi 53. Hafði
þar komið upp eldur í einlyftri
viðbyggingu- við húsið, sem í
eru 4 íbúðir, var éldurinn í
nyrstu íbúð viðbyggingarinnar.
Slökkviliðinu tókst að verja
frekari úthreiðsiu eldsins, en
hins vegar urðu mjög miklar
skemmdir á íbúð og innbúi, í-
búðar þeirrar, sem eldurinn
kom upp á, en þar bjó maður
að nafni Jóhann Sigurðsson
með konu og einu barni. Brend
ist Jóhann svo að flytja varð
hann á sjúkrahús.
Ekki er enn vitað um upptök
eldsins, en Iþað mun vera í rann
sókn.
Félag Vestur-íslendinga
heldur fund í Oddfellowhúsinu
n. k. föstudagskvöld kl. 8.30.
Heiðursgestur fundarins verður
prófessor Richard Beck. Vestur-
fslendingar, sem hér eru staddir
eru sérstaklega boðnir. Aðgöngu-
miða sé vitjað í verzlunina Kjöt
og Fiskur, Baldursgötu, fyrir
fimm fadagskvöld-
í gær boðaði Bolli Thörodd-
sen bæjarverkfræðingur blaða-
menn á sinn fund og skýrði
þeim ítar.lega frá þessum mál-
um. Fér hér á eftir úrdráttur
úr skýrislú hans:
Þrifnaðurinn
„Bærinn er nú 'hættur að
nota hestvagnana við götu-
hreinsunina. I stað þeirra eru
komnir bílar. Unnið verður að
því að halda bænum sem
hreinustum á þeim stöðum,
sem við eigum að sjá um,
götum og torgum. Vonandi
koma þá lóðaeigendur og
leigjendur á eftir.
í samráði við lögregluna er
verið að koma upp vinnu-
flokki, sem losa á bæinn við
ýmsa óskilamuni, verðmæta
og óverðmæta, sem liggja á
götum úti. Verða tekin fyrir
viss hverfi í einu, og er mikið
verkefni til fyrir 'slíkan flbkk.
Er hörmulegt að sjá hvernig
verðmæti, skilin eftir á al-
mannafæri, hafa eyðilagzt
vegná þess, að eigendurnir
hafa ekkert hirt um þau. Sem
dæmi má nefna verðmæta
járnbita, stór tré, báta, vélar
og önnur áhöld til ýmissa
hluta. Verðmætu hlutirnir
verða fluttir á nýtt svæði, sem
lögreglan hefir fengið til um-
ráða inni við Elliðaárvog, hinu
verður hent.
Sorphreinsunin: Hún er
mesta vandamál fyrir bæinn.
1 sumar hefir verið hreinsað
dag og nótt, og við nætur-
hreinsunina unníð ungir stúd-
entar, sem buðu mér vinnuafl
sitt í vor. Hafa þeir staðið sig
prýðilega. Inni við Viðeyjar-
sund er verið að byggja til-
raunastöð til rannsóknar á
sorpi, sorteringar, brennslu,
gerjunar o. fl. Ekki er rétt
hermt hjá Vísi fyrir nokkrum
dögum, að þar eigi að fara að
framleiða áburð úr sorpi.
Stöðin er eingöngu ætluð til
tilraunar. Nýskeð er búið að
loka sorphaugunum fyrir óvið-
komandi. Tekur þá vonandi
fyrir þann ljóta sið hjá fólki
að ganga á haugana, tína þar
einskis nýtt 'rusl úr, sem hvergi
er geymsla fyrir nema á al-
mannafæri. Sóðaskapurinn vest
ast í bænum er mikið þesSari
tínslu að kenna. Annars er
sorphreinsunar spursmálið
Frh. á 7. síöu.
EsmarcEi sendiherra Noregs gekk
á furtd forseta fslands í gær
Lagl fram ný embætUsskilriki sín stíluð fil for-
P ORSETI ÍSLANDS tók
í gær-kl. 12,30 á móti
-sendiherra Norðmanna, herra
August Esmarch, í hátíðasal
Bessastaða. Afhenti sendi-
herrann ný embættisskilríki
frá Hákoni VII. Noregskon-
ungi, stíluð til forseta ís-
lands. Utanríkisráðherra Vil
hjálmur Þór var viðstaddur
athöfnina.
Sendiherrann hélt við þetta
tækifæri þessa ræðu:
„Herra forseti! Mér veitist
sá heiður að afhenda yður bréf
Noregskonungs. í bréfi b0"
biður ;hann yður að veita mér
viðtöku sem sérstökum sendi-
manni og ráðherra með stjórn
arumboði hjá ríkisstjórn ís-
lands.
Ég vil gjarnan taka það fram,
að sú ósk Hans Hátignar Há-
konar konungs um að efla og
styrkja hin góðu og vinsamlegu
samskipti, sem verið hafa milli
Noregs og íslands, byggjast
ekki eingöngu á þeim aldagömlu
tengslum, sem tengt hafa Nor-
eg og íslands, heldur lýsir hún
einnig þakklæti þjóðar vorrar
fyrir hina miklu ramúð, sem
komið hefir fram frá allri ís-
lenzku þjóðinni í garð vor
Norðmanna á þeim undanföm
um árum, er vér höfum barizt
fyrir frelsi voru og sjálfstæði.
Samúðin hefir meðal annars
komið fram í hinni hughiýju
viðleitni til að veita oss efna-
lega aðstoð að svo miklu leyti
sem unnt hefir verið.
Persómulega er ég þeirrar
skoðunar, að ef ég í áframhald
andi starfi mínu hér, mæti
sama velvilja og hjálpfýsi, sem
mér hefir verið sýnt hingað til,
muni það starf að hnýta æ fast
ar vináttúböndin milli þjóða
vorra og ríkja veitast mér mjög
auðvelt.“
Svarræða forseta var á þessa
leið:
„Sendiherra! Mér er ánægia
að því að taka við bréfi Hans
Hátignar Noregskonungs, sem
staðfestir, að þér séuð sérstak-
ur sendimaður og ráðherra með
stjórnarumboði hér á landi.
Það gladdi mig og marga
landa rnína að verða var þeirr-
ar samúðar með hinni norsku
bræðraþjóð vorri, sem látin var
í ljós í tilefni framkomu yðar
að Lögbergi 17. júní. Ég hygg
að vart muni hugsast betri tján
ing á tilfinningum vorum en þá
var í ljós látin af þeim fimmta
hluta íslenzku þjóðarinnar, sem
þar var saman kominn. Þar
var 'í ljós látið þakklæti til kon
ungs Noregs og ríkisstjórnar
fyrir afstöðu þeirra til. endur-
stofnunar hins íslenzka lýð-
veldis og jafnfram þær hiýju
tilfinningar í garð norsku þjóð-
arinnar, sem vér höfum ávallt
í brjósti borið, ekki hvað sízt
á ihinum langa þjáningartíma
hennar meðan hún hefir sýnt
slíka hreysti og frelsisást.
Þess verður vonahdi ekki
langt að bíða að norska þjóðin
öðlist aftur frjáls umráð yfir
landi sínu, gamla Noregi, og
vonum við þá og treystum, að
nánari samvinna en nokkru
sinni áður megi takast til gagns
fyrir báðar þjóðirnar.
Persónulega er ég á sama
máli og þér, að framtíðarstarf
yðar hér muni verða heillaríkt.
Meir en 20 ára persónuleg kynni
August Esmarch, sendiherra
af yður styrkja þá sannfæringu
mína.
ÉG bið yður að flytja Hans
Hátign Hákoni konungf. Hans
Konunglegu Tign Ólafi ríkiserf
ingja og stjórn yðar alúðar
þakkir mínar og íslenzku þjóð
arinnar með beztu óskum um
framtíð norsku þjóðarinnar sem
frjálsra manna.“
Að athöfninni lokinni höí'ðu
forsetahjónin hádegisboð fyrir
Esmarch sendiherra og frú
hans; en auk þeirra voru boðin
Vilhjálmur Þór utanríkismála-
ráðherra og kona hans, Otto
Kildal, settur ræðismaður Norð
manna hér, frú Jenny Bay,
kona aðalræðismannsins norska
hér, yfirmenn hers og flota
Norðmánna hér og forsetarit-
arinn.
EVierk béh
r
Ur byggðum Borgar-
fjarðar, efttr Kristbi!
Þorsteinsson á Stóra-
Kroppf
■p YRIR nokkru er komin út
á vegum ísafoldarprent-
smiðju stór og vönduð bók eft
ir einn mikilvirkasta alþýðurit
höfund landsins, Kristleif Þor-
steinsson á Stóra-Kroppi, er það
„Ur byggðum Borgarfjarða.r“.
Eru þetta sumpart ritgerðir,
um ýmis efni, sem birzt hafa
eftir Kristleif áður á við
og dreif í blöðum og tímarit-
um. Hefir Þórður sonur Krisl-
leifs í samráði við föður sinn
safnað ritgerðúnum saman og
búið þær til prentunar. •
En auk grein'a þeirra sem áð
ur hafa 'birzt á prenti, er í bók
'þessari mikið af nýrra efni og
sumt af því er með lengstu
köflum bókarinnar.
Er I ritgerðum þessum bjaig
aði frá glötun ýmsum þjóðleg-
um fróðleik, og lýst hinum gagn
gerðu breytingum, sem orðið
hafa í íslenzku þjóðlífi á hinni
löngu ævi höfundarins.
í bókinni er mikill fjöldi
mynda og hefir Þorsteinn Jós-
efsson blaðamaður lagt til
margar myndir, er hann hefir
tekið af ýmsum stöðum í Borg
arfirði. Bókin er öll hin vand-
aðasta að frágangi.