Alþýðublaðið - 25.07.1944, Blaðsíða 3
Mðjudagor 25. Júlí 1944.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Rússar bruna áfram fil Varsjá:
k
Ófarfr Þjóðverja
FRETTIN UM banatilræðið við
Hitler hefir, að vonum, vak-
ið mesta athygli manna al-
" mennt undanfao'na daga.
Enda er það mál rakið nán-
ar á öðrum stað hér í blað-
inu í dag. Það er að vísu at-
hyglisvert mál, en þó tæpast
svo alvarlegt eins og sögur
fara af. Ekki virðist að svo
stöddu horfur á því, að hans
„regime“, stjórnarkerfi hans,
sem nú hefir þjakað almúga
manna í Þýzkalandi síðan
1933 sé að bila, enda þótt fjöl
margir hershöfðingjar hafi
tekið þátt í tilræðinu, ef
trúa má fréttum frá hlutlaus
um löndum.
A HINN BÓGINN hefir það
frekar farið fram hjá fólki,
hvernig Rússar hafa sótt fram
að undaförnu, hvernig út-
reið Þjóðverjar hafa fengið
á Ítalíu og í Normandie. Nú
er svo komið, að Þjóðverj-
ar munu ekki hafa eina ein-
ustu borg á rússneskri
grund á valdi sí,nu. Eftir
töku Pskov, sem svo mikið
hefir verið barizt um undan
fama mánuði og Ostraov,
hafa Þjóðverjar verið hrakt
ír öfugir út úr Rússlandi,
hvað sem Deutsches Nach-
richtenbureau hefir um það
mál að segja. Hætt er við að
raddir þeirra Ditrichs og
Göbbels reynist næsta hjá-
róma þegar þarf að telja
umheiminum trú um, að allt
sé í ,,fínu lagi hjá þýzka
hernum“ eftir hina síðustu
viðburði.
SAMTÍMIS þessum óförum í
Rússlandi berast þær fregn-
ir, að nú séu bandamenn
innan skotmáls við Flórens
og meira að segja í hafnar-
horgum á vestanverðum I-
talíuskaga. Raunar er þetta
of veikt sagt, þar eð fregnir
í gærkveldi hermdu, að
bandamenn hefðu suður-
hluta borgarinnar á valdi
sínu, en hins vegar væri
nörðurhlutinn. enn 1 ‘hönd-
um Þjóðverja.
í NORMANDIE fer einnig á
svipaða lund fyrir Þjóðveri-
um. Þar hafa þeir orðio að
hörfa úr einu varnarvíginu í
annað og hersveitir þeirra
Montgomerys hafa hrakið af
höndum sér hverja þá árás,
sem þeir von Kluge og Romm
el hafa reynt að hefja. í
lofti eru svo greinilegri yf-
irburðir bandamanna, að
tæpast tjóar að ræða um það.
Að vísu er sókn bandamanna
heldur hæg í Normandie, en
hún er örugg. Bæði á Cher-
bourgskaganum og eins við
Caen hafa Þjóðverjar farið
hrakfarir iyrir hersveitum
bandamanna. Þeir, sem bezt
hluta fullyrða, að héðan af
verði bandamenn ekki hrakt
En miiBi gi@ssara föcsrga eru Hússar kemnir
mikiu iengra vestur ©g hafa teki® Lublin @g
lareslav.
RÚSSAK gáfu í gær út dagskipan, þar sem þeir tiikynntu nýja
sigra, mjög mikilvæga, Þeir tóku í gær borgirnar Lublin,
sem er á leiðinni til Varsjá, svo og Jaroslaw, sem er um 90 km.
vestur af Lwow. Russar hafa þar með sniðgenðið Lwow á hraðri
sókn og virðist setulið Þjóðverja þar vera í miklum kröggum.
Samkvæmt síðustu fregnum er barizt þar í úthverfunum og einnig
í úthverfum Brest-Litovsk. Þá eru Rússar aðeins í 15 km. fjar
Iægð frá Bialistok. Þá herða Rússar einnig sóknina til Dvinsk.
Tekur viS af Wailace
Mynd þessi sýnir Harry S.
Truman, sem er öldungadeild-
arþingmaður frá Indepence í
Missouri. Hann er nú varafor-
setaefni Demokrata og mun
hann verða kjörinn, ef Roose-
velt nær kosningu. Hann er nú
sextugur.
Georg Brefakonungur
‘T' ILKYNNT var í London 1
gær, að Georg Bretakon-
ungur væri nú staddur á ítal-
íu. Kom hann í flugvél í fyrra-
dag og lenti á flugvelli skammt
frá Napoli. Þaðan ók-hann í bif-
reið í fylgd með Cunningham
flotaforingja. Hann er þarna í
heimsókn til hermanna Breta
Iiinir síðustu sigrar Rússa
þykja mjög mikilvægir, þar er
bersýnilegt er, að þeir hafa sótt
hratt framhjá Lwow og tekið
Jaroslav, sem er langt vestur
af borginni. Þjóðverjar hörfa
hratt undan og verða fyrir á-
köfu taugastríði Rússa, sem
varpa niður flugmiðum, sem
meðal annars hafa áletrunina
Rokossovsky er að koma. Hefir
miklum óhug slegið á fylking-
ar Þjóðverja að undanförnu við
hinar sífelldu hrakfarir.
í fregnum, sem útvarpað var
frá London í gær á norsku,
sagði Winterton, Iregnritari
blaðsins ,,News Chronicle” frá
því, að sókn Rússa væri með
ódæmum hröð. Þegar þeir
hefðu byrjað sumarsóknina í
ár, hefðu þeir verið yfir 800
km. frá landamærum þýzka rík
isins, en nú eiga aðeins um 200
km. ófarna á breiðu svæði. Er
Rússar tóku Lublin, tóku þeir
urn leið um 1470 þorp og byggð
ból. 172 þýzkir skriðdrekar
voru eyðilagðir í gær.
Flótti Þjóðverja er óskipu-
Jagður og tæpast er um að ræða
undanhald, heldur flótta, þar
sem hver reynir að bjarga sér,
sem betur getur. Víða halda
halda Þjóðverjar öflugum stein
steypuvirkj um, en yfirleitt
flýja þéir skipulagslítið.
og annarra bandamanna. Er
þetta í fjórða skiptið, sem kon-
ungurinn heimsækir hermenn
bandamanna síðan styrjöldin
hófst. Fyrst fór hann til Frakk-
lands árið 1939, síðan til N,-
Afríku, Möltu og nú síðast til
Ítalíu eins og fyrr getur.
í fjarveru hans var skipað
ríkisráð fjögurra manna og
meðal þeirra eru drottning
hans og Elisabet krónprinsessa.
ir í sjóinn, 'heldur sé von á
aukinni sókn þeirra nú næstu
daga, eða næstu vikur.
HVAÐ SEM GERAST KANN
á innri vígstöðvunum í
Þýzkalandi næstu daga, þar
sem blóðveldi Himmlers virð
ist ríkja í algleymingi þessa
dagana, er það nokkurn veg
inn víst, að nú er farið að
hrikta í húsi Hitlers. Það er
ekki sama virkið og áðui’
v~r. „Festung Europa“, eða
Evrópuvirkið er ekki eins
rammgert og áður var. Þjóð
in er tekin að ókyrrast, hún
er hætt að trúa á „styttingu
víglínunnar“ og annað það,
sem Göbbels finnst heppilegt
að hampa framan í þjóðina,
manninn á götunni, sem ber
hita og þunga dagsins.
FRITZ OG KARL, sem sitja
yfir bjórglasi við Unter den
Linden í Berlín eru farnir
að velta því fyrir sér, að ekki
sé allt heilagur sanrlcikur,
sem úi; er látinn ganga frá
aðalbækistöð foringjans. Það
mun stytta stríðið og jafn-
framt ánauðina, sem flest
lönd Evrópu hafa orðið að
þola nú allt of lengi.
enn saman.
Þessi mynd sýnir þá Hitler og Keitel, yifirmann herforingjaráðls
Þjóðverja. Samikvæmt fréttum í gærkveldi hefir Keitel verið einn
þeirra, sem ekki hefir tekið þátt í uppreisninni gegn Hitler. Fjöl-.
margir aðrir Ihershöfðingja hafa hins vegar séð þann ikost vænst-
an að snúast gegn þeim Hitler og Himmler.
Eftir samsærl^ gegn Hitler:
Fjöldaaffökur
Þýzkala
og fangelsanir í
iii Böndum
Nöfnum hinna Bífláfnu er leynt, en fuliyrt, að
Schacht ©g Neurath hafi ^eriö handteknir.
'jC* NDA þótt fregnir séu enn næsta óljósar af atburðunum í
•®—4 Þýzkalandi, er það bersýnilegt, að samsærið gegn Hitler er
engan veainn úr sögunni. Fregnir, sem borizt hafa bæði frá Sví-
bjóð og Svisslandi bera bað með sér, að nú fara fram f jölda hand- *
tökur, eftir að Himmler tók við völdmn. Hins vegar gera Þjóðverj
ar sem minnst úr bessu í fréttum sínum. Sumir segja, sem bezt
fylgjast með bessum málum, að blóðbaðið 1934 sé barnaleikur einn
á móts við bað. scm nú er að írerast í landinu. Meðal hinna eldri
stjómmálamanna, sem teknir hafa verið fastir, eru þeir Schacth,
fyrrverandi forseti ríkisbankans þýzka og von Neurath, sem áður
var ríkisstjóri í Tékkoslovakíu. Fullyrt er að fjölmargir menn
hafi verið teknir áf lífi í hernumdu löndunum en mörgum þeirra
er haldið leyndum.
Talið er, að þetta sé gert til
þess að sannfæra almenning
um, að herinn sé enn hliðhollur
Hitler og andvígur hershöfð-
ingjunum og jafnframt til þess,
að koma því inn hjá þjóðinni,
að Hitler hafi enn fullkonið
traust hennar.
Franskir föðurlandsvinir
hafa gert tilraun til þess að
ráða. vcn Stulpnagel, yfirmann
setulifs Þjóðverja í Frakklandi
af dögum. 1
Annars eru fregnir af at-
burðunum í Þýzkalandi enn
næsta óljósar og erfitt að átta
sig á því, sem þar er gerast.
„Svéþska Dagbladet“ segir frá
því, að því fari fjarri, að
Himmler, sem nú hafi æðstu
herstjórn heima fyrir, hafi tögl-
in og hagldirnar og séu enn
miklar viðsjár á heimavíg-
stöðvunum.
Eden, utanríkismálaráðherra
Breta hefur látið svo ummælt,
að nú hafi Hitler og þýzka
þjóðin jafnframt séð skriftina
á veggnum og það, sem gerzt
hafi sé táknrænt um það, sem
koma skuli. Hins vegar leggur
Eden áherzlu á, að Hitler sé að
eins tákri þess yfirgangs- og á-
rásaranda, sem nú ríki í Þýzka-
landí, og því verði hinar sam-
einuðu þjóðir að vera á verði
einnig eftir styrjöldina og ekki
megi gera árásaröflum kleift að
ráðast á nágrannana á nýjan
leik.
ÞeU hershöfðingjarnir Linde-
mann, sem stjórnar þýzku herj-
unum í Eystrasaltslöndunum
og Kesselring marskálkur, sem
stjórnar vörnum Þjóðverja á ít-
alíu, hafa ekki vottað Hitler
hollustu sína, og þykir það bera
vott um, að óánægjan með hc-r-
stjórn hans sé orðin næsta út-
breidd.