Alþýðublaðið - 25.07.1944, Qupperneq 6
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Mary Pickford og kjördéllir hennar.
Það er langt síðan nokkuð hefur heyrst um Mary Piekford,
kvikmyndastjörnuna, sem einu sinni var svo fræg áður en
talmyndirnar komu til skjalanna. En hér birtist aftur ein
mynd af henni, ásarpt manni hennar, Ruddy Rogers, liðsfor-
ingja, og tveggja ára gamalli telpu, Roxane, sem þau hafa
tekið sér fyrir kjördóttur. Hún hefur alizt upp hjá þeim síðan
hún var sex mánaða.
Þrir skipreikar
Frih. aí 5. siðiu
yrðu þeirra varir, og réru því
burtu hiðj skjótasta. Ég synti
einnig burtu, því að mér lék
engan veginn hugur á því að
verða tekinn til fanga af kaf-
bátsmönnunum.
Ég synti þarna fram og aft-
ur aðra klukkustund áður en
mér var bjargað. Þeirri klukku
stund gleymi ég aldrei. Þetta
var mesta hættustund lífs míns.
Ég var í þungum fötum og hafði
ekkert björgunarbelti. Ég var
til þess neyddur að synda hvíld
arlaust, því að annars sökk ég.
Ég gafst mörgum sinnum upp
og tók að sökkva, en þegar ég
var kominn dálítið í kaf, svall
mér jafnan móður og ég greip
sundtökin á nýjan leik. En ég
var vonlítill um það, að mér
yrði bjargað. Ég sá ekki handa
skil og gat ekkert hijóð greint
annað en sjávarniðinn. Eg vissi
að ég var staddur úti á Suður-
Atlantshafi nær hundrað og
fimmtíu mílur frá landi. Eigi
að síður hélt ég áfram að
þreyta sundið.
*
MÉR VA.R bjargað að lokum
eftir að ég hafði neytt
ítrustu krafta og fyllzt sárri
beiskju í garð mannanna en sér
í lagi þó Þjóðverjanna. Það
var sami björgunarbáturinn og
komið hafði í námunda við mig
klukkutíma áður, sem bjargaði
mér. Ég minnist þess, að ég gat
ekki haldið mér uppi lengur og
hrópaði til þeirra, að þeir yrðu
að taka mig upp, því að ella
myndi ég sökkva.
Ég vaknaði til .meðvitundar,
þar sem ég lá á botni björgun-
arbátsins, víð það að káetu-
þerna bar rommflösku að vör-
um mér. — Ég fékk mér væn-
an teyg og leið mun betur eft-
ir en áður. Þar eð ég var hold-
votur og kaldur, tók ég að róa.
En ég hafði hlotið áverka á
annað gagnaugað og sá því illa
til, svo að ég hætti að róa en
settist við stýrið í þess stað.
á áfða tímygn
Hálftíma áður hafði öðrum
manni af áhöfn björgunarbáts-
ins, sem sprengdur var í loft
upp, verið bjargað af þessum
sama björgunarbáti. Við vorum
hinir einu, sem komust lífs af
af áhöfn bátsins, en hún hafði
verið skipuð tuttugu og fjór-
um mönnum.
Þegar við höfðum þreytt róð
urinn í nær tíu mínútur, sáum
við kafbátinn á nýjan leik. Við
reyndum að róa brott frá hon-
um, en hann hafði orðið okk-
ar var og tók nú stefnu í átt-
ina til okkar. Þegar hann kom
nær, hrópaði kafbátsforinginn
til okkar og skipaði okkur að
koma tuttugu metrum nær.
Brátt lá björgunarbáturinn,
sem við vorum á, samsíða
kafbátnum. Kafbátsforinginn
spurði eins kurteislega og mað
ur getur frekast vænzt af Þjóð-
verja, hvað skipið héti, hver
hefði verið farmur þess og um
annað slíkt. Við svöruðum öll-
um spurningum hans og spurð
um hann, hversu langt væri í
land og hvaða stefnu við ætt-
um að taka, en þeim spurning-1
um svaraði hann að sjálfsögðu
ekki. Loks óskaði hann okkur
alls farnaöar og heilla og. hvarf
í djúpið.
Víð héldum áfram að róa
þarna fram og aftur í hálftíma,
en þar eð /við fundum enga
fleiri, undum við upp segl. Ég
ákvað stefnuna, og báturinn
stefndi hratt í áttina til lands.
Klukkan um sex næsta morg
un sáum við ljós á skipi á stjórn
borða við okkur. Við sendum
út neyðarmerki og gáfum skip-
inu til kynna, að óvinakafbát-
ur væri í námunda við okkur.
Skipið svaraði okkúr því til, að
við skyldum koma upp að bak-
borðshlið þess. Það tók okkur
þó klukkutíma, því að nú var
tekið að hvessa og sjór að
þyngjast.
Nú var mjög tekið að 'birta,
og tíu mínútum síðar varð vart
við annan björgunarbát með
Guðjön Á. Sigurðsson frá Kirkjubélis
núlifandi kynslóðar
OÓÐIR íslendinigar! Vér höf-
um nú istigið síðast'á og mik
ilvægasta sporið í frelsisbaráttu
vorri. Þann 17. júní var lokatak
markinu n)áð; 17. júní var há-
tíðisdagur allra íslendinga og í
framtíðinni ætti hann að vera
það. Þann dag rann sól frelsis
og hamingju upp á himinn ís-
lenzku þjóðarinnar eftir að hafa
legið niðri um sjö alda skeið.
Þann dag var það verk fullkomn
að, sem þjóðin hefir þráð og
barizt fyrir; þann daig var síð-
ustu viðjum erlendra yfirráða
kastað í haf hins örlagamikla
tíma og nýtt og frjálst tímabil
hafið í l'ítfi, sögu og starfi hinn-
ar íslenzku þjóðar. Þjóðin hefir
verið lengi á eyðimörk ófrels-
is og hörmunga og er nú síðasta
sporið stigið yfir til fyrirheitna
landsins. Þann dag bjarmaði eld
ur hinna fórnfúsu sona þjóð-
arinnar, þeirra sem lögðu vinnu
sína hug og lífsorku til að, skapa
frjálsa og fullvaldja þjóð að nýju.
Þjóðin er nú aftur orðin frjáls
eftir sjö alda yifirráð Noregs- og
Dana konunga og þjóðin hefir
fundið sjálfa sig að nýju og end-
urheimt isitt gamla frelsi að fullu
og öllu.
Kosningarnar sem fram fóru
þann 20.—23. maí síðastliðinn
sýndu bezt að ennþá, — ,,í sarna
landi 'hinn sanni lifir frelsis-
andi“, hinnar íslenzku þjóðar;
óskertur og lábrotinn hefir
kjarni þjóðarinnar staðið af sér
allar hörmungar áfrelsisáranna,
brotið af sér f jötra gamla sátt-
mála, ónýtt aðgerðir Kópavogs-
samningsins og öll Iþau höft, sem
erlent vald hefir lagt á hana svo
þær viðjar verða aldrei að eilífu
endurnýjaðar. — „Aldrei, aldrei
bindi þig bönd nema bláífjötur
ægis við. klettótta strönd“ fcvað
skáldið, og megi þær frelsis og
manndóms hugsjónir lifa í
hjarta og athöífnuim hvers ein-
asta íslendings á komandi tím-
um.
Þjóðin hetfir lílka átt við hér-
lenda ertfiðleika að stríða, nokkr
ir synir hennar hafa reynst
henni óþaríir eins og sagan bend
ir á, ekki aðeins þeir ,,sem brátt
við blóð og morð blettuðu sjálfs
síns frægðar orð“ eins og Matt-
hías Jocihumsson kveður um
Gissur jarl, fyrsta og síðasta jarl
ytfir íslandi, heldur hver sé, sem
reynist sjálfum sér og þjóð sinni
ótrúr, en sú iskáhnöld er liðin
hjá svo etftir eru aðeins dökk-
ir blettir sögunnar og daprar
endurminningar fortíðarinnar.
Gætu þeir þó ekki verið kom-
andi kyn'slóð til aðvörunar?
Þér, sem komuð saman þenn
an dag, hvort sem það heldur
var á Þinigvelli eða á fæðingar-
stað Jóns Sigurðssonar, eins
hins ibezta og fremsta frelsis
foringja íslenziku þjóðarinnar,
hljótið að eiga bjartar og ó-
gleymanlegar minningar eftir
hann og er ég viss um, að tár,
sam blikuðu á hvörumum sumra
þennan dag, er kirkjuklukkun-
um var hrimgt, hafa borið vott
um hreinan gróanda í íslenzku
þjóðtífi. Vér, sem erfum landið,
verðum að verja það, verja það
með drengskap og dáð; það á
að vera -manndómur vor, sem
kemur þar til greina sem vörn,
en e'kki istál og blý. Vér verð-
um að gæta þess, að það er ekki
aðeins vér, sem nú litfum, sem
eigum að erfa landið, heldur
sem meira er um vert, niðjar
vorir hljóta það, hljóta. þann
rétt og það frelsi, sem forfeður
vorir skópu fyrir þúsund árum,
það vou þeir, sem lögðu fyrstu
hornsteina undir lýðveldið. Þó
nokkrir ógæfusamir niðjar
þeirra reyndu að kasta og köst-
uðu þeim rétti fyrir fætur Nor-
egs konunga og síðar Dana, hefir
þriáðurinn haldist óslitinn, þó
oft hafi á hann teigst, og ef vér
Mtum yfir blöð sögunnar í heild
og reynuni að vera réttsýnir, I
þá sjáuim vér víti þau, sem eiga
að vera hi'nu nýja lýðveldi til
varnaðar. Það var ekki aðeins
fyrir ásælni og brögð Hákonar
gamla að máttarstoðir þjóðveld
hins forna hrundu og hin svarta
ófrelsisnótt lagðist yfir gamla
Island; það var líka fyrir þrá-
kelkni íslendinga sjálfra, að svo
fór, fyrir þorsta þeirra í auð
og völd, fyrir sundrung þeirra
og minnimáttarkennd; þeir van
treystu sjálfum sér og þjóðinni
um leið, þeir köstuðu þeim dýr
asta arfi, sem nokkur einstakl-
ingur og þjóð getur átt, frelsinu.
Það var dkki nema lítill hluti
landsmanna sem var svo veill,
en sá hluti réði þá, og ennþá lif-
ir þó lítið sé, etftir atf þeim ó-
heilla höggormium sem nöguðu
rætur þjóðSveldisins forna, þó
þeir reyndust nú máttvana.
Hverjum er þessi sigur að j
þakka? Er hann os-s, isem nú lif
um, einum að þakka? Nei! Síð-
ur en svo; þó landvættir væru
þessari kynslóð siVo hliðhollir, að
velja hana til að fullkomna þetta
venk, er það ölum þeim að þakka
sean á liðnum öldum hafa lagt
hlekki í frelisismenið með störf-
um sínum og fórnanvilja, þeim,
sem skráðu bókmenntir vorar,
því á þeim byggðu brautryðjend
ur vorir rétt vorn, án þeirra
hefði starfið orðið ókleift, án
þeirra hetfði sverð tungunnar
ekki getað höggvið þær viðjar
sem um oss voru hnýttar.
Er ekki ósérplægni þeirra
manna eftirtektarverð? Ekkert
hirtu þeir um að halda sér fram
settu ekki n'öfn sín hvað þá
meira, á þau verk, sem skapað
hafa þjóð þeirra þann heiðurs-
sess og þann 'frelsis krans, sem
krýndi Fjallkonuna 17. júní.
Þann dag hlutu allir að sjá
bjarma fiyrir nýju tímabili í þjóð
árætfinni.
Ætti það ekki að vera metn-
aður vor, sem lifum þessi merki
legustu tímiamót, að vinna að
því öll í bróðurhug, að tryggja
og styhkja þetta óska barn vort
— íýðveldið — svo því verði
aldrei að eilífu kollvarpað í urn
róti komandi alda? Jú vér ger-
um það ibezt með því að elska,
byggja og treysta á landið, auka
og tendra trúna á það; oig það
er verk hvers einasta íislendings
og ef einstaklingurinn er sjátí-
um sér og landinu trúr, er þjóð
in það öll i heild. Þjóð er vitan
anlega saimansafn margra ein-
staklinga.
Góðir íslendingar! Setjið þegn
skap yðar og trúna á landið ofar
öllu, þá mun nýja lýðveldinu
vegna vel, þá mun andi' Jóns Sig
urðssonar vaka, ríkja yfir hug-
um og athöfnum. manna á kom-
anidi tímum. Þá mun sól hins
nýja lýðveldis, sem upp rann 17.
júní, aldrei ganiga til viðar.
tuttugu og fjóra menn um borð.
Nokkrir ■ þeirra reyndust sárir
og voru bornir inn í. salinn, þar
sem ég lá, en þar var búið um
sár þeirra og þeim veitt sú
hjúkrun, sem auðið var.
Strax og sár mín höfðu ver-
ið hreinsuð og um þau búið,
var ég fluttur inn í klefa inn
af salnum og látinn vera í n^Ut,
fötum einum fata. Það kom f '
ljós, að tuttugu og þriggja
manna af hinni sextíu manna
áhötfn var saknað. Nl. á morgun.
Þnðjudagur 25. JaK 1944
. . . Það er það, sem þessi
kvikmyndadís, Janis Carter
heitir hún, er að hugsa um
að notfæra sér sem bezt í hin-
um létta baðbúningi sínum.
Og það er nóg af hvoru-
tveggja á strönd Kaliíorníu,
en þar á hún heima.
Gólfntði Íslands.
GOLFMÓT íslands hófst síð
astliðin laugardga með
undirbúningskeppni. Sextán
efstu keppendurnir í undirbún
ingskeppninni, keppa síðan í
meistaraflokki, en hinir í 1. fl.
Golfmótið er að þessu sinni
haldið í Skagafirði.
í undirbúnmgskeppninni á
laugardaginn varð Gunnar Hall
grímsson frá Akureyri stig
hæsti keppandinn, en næstur
honum var Gísli Ólafsson nú-
verandi Golfmeistari íslands.
Fyrsta' umferð meistaramóts
ins fór fram á sunnudaginn og
báru þá sigur yfir keppinaut-
um sírium eftirtaldir menn:
Gunnar Hallgrímsson, Frímann
Ólafsson, Jóhannes Helgason,
Þórður Sveinsson, Sigtryggur
Júlíusson, Sveinn Ársælsson,
Helgi H. Eiríksson og Gísli Ó-
lafsson,
í gær fór svo 2. umferð móts
ins i fram og kepptu, Gunnar
Hallgrímsson, Frímann Ólafs-
son, Jóh. Helgason, Þórður
Sveinsson, Sigtr. Júl. og Sveinn
Ársælsson og Helgi H. Eiríks-
son og Gísli Ólafsáon. Um úrslit
inn í gær er blaðinu ekki kunn
ugt.
Frh. af 4. síðu.
heyrnartæki og hljóðmagnar-
ar, hafa möguleikarnir aukizt
á því að nota heyrnarleifar
málleysingjanna við að kenna
þeim að tala.
Nú er svo komið, að í öllum
málleysingjaskólum Bandaríkj-
anna eru fullkomin tæki til að
nota til hins ýtrasta við kennsl-
una þær heyrnarleifar, sem
hjá málleysingjunum kunna að
finnast, og tæki til að mæla
nákvæmlegci, rive miklar þær
eru hjá hverjum einstaklingi.
i