Alþýðublaðið - 26.07.1944, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 26.07.1944, Blaðsíða 2
MiSvikudagur 26. Júlí 1944 Í AU»TPUBLAÐK> Fáum við nýja ral mapið um aðra helgi! A að bíða eftir stérslysi? Björgunarskútusjóði Vesffjarða bætisi ein slórgjöíin til. ENNÞÁ standa yfir prófanir á nýju vélasamstæðunni við Ljósafoss, sem nýlega er lokið við uppsetningu á, og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu, og mun rafmagninu pkki verða hleypt á fyrr en síðast á næstu viku og er það síðar en gert hafði verið ráð fyrir, þegar blaðamennirnir voru eystra nýlega í boði tii að skoöa virkjunina. Stafar töfin af því, að vélin mun þurfa að ganga nokkurn tíma áður en álagið er sett á, en væntanlega verður það þó ekki síðar en undir aðra helgi, sem rafmagnið kemur, eins og áður er sagt. Málleysingjakennslan í grein Brands Jónssonar í blað inu í gær um málleysingjakennslu fyrr og síðar varð meinleg prent villa þar stóð: „Þegar kennarinn talar við nemandann, sýnir hann þau hljóð með vörunum, sem erf iðast er að lesa af þeim“ en átti að vera: Þegar kennarinn talar við nemandann, sýnir hann þau hljóð með hendinni, sem erfiðast er að lesa.af vörunum. • • Bráin svignar ©g þaé Israkar ©g lirestyr í keBini unctan þysiganum, sem eftir kenmi fer NauSsyoiegt að bfiar aki tómir eftir brúnoi SVO VIRÐIST, sem mjög sé teflt á tvær hættur með um- ferð um Ölfusárbrú og að þá og þegar geti brúin hrun- ið og valdið stórkostlegu slysi. Lengi undanfarið hefir brúin verið í því ásigkomulagi að stórhætta hefir stafað af og er þó erígrar varúðar gætt, svo að teljandi sé og vekur það stór- kostlega furðu. Síðastliðinn sunnudag var bönnuð umferð um brúna nokkrar klukkustundir, en opnuð síðan aftur, og hélt þá um- ferðin áfram, án breytinga, og eins og ekkert hefði í skorist, og geta menn þó skilið, að ekki hefir getað farið fram á henni mikil umbót á þeim stutta tíma, Sem hún var lokuð. Brúin svignar og sveigist undan hinum stóru fárartækjum hlöðnum af fólki og farangri, sem um hana fara og það brakar og brestur í henni. Iðnaðarverkafólk boðar verkfall frá 1. ágúsf næsfkemanii SamsiingaumBeitanir hafa reynst árangurs- lausar, en sáftasemjari reynir sættirH Knalfspyrnumót Reykjavíkur hefíl annað kvöld. NATTSPYRNUMÓT Rvík- ur hefst á íþróttavellin- um annað kvöld og hefst það með leik milli Vals og Vík- ings. Félögin verða fjögur, sem þátt taka í mótinu. Á föstudagskvöldið fer svo fram leikur milli Fram og KR. Dómari í leiknum annað kvöld verður Þráinn Sig., en á föstudagskvöld Guðm. Sig. Eins og kunnugt er, hafa j.élög þessi að undanförnu ver- ið mjög svipuð að styrkleik og oíc illt á milli að sjá með sig- urmöguleika þeirra, og er því alltaf nokkur áhugi fólks fyrir því, að sjá þessi gamalkunnu féiög, þreyta keppni sín á milli. tlérafsmól Snæíell- ; iga og Hnappdæia FELAG Snæfellinga- og Hnappdæla og héraðsnefnd in 4 efna til héraðsmóts á Leikskálavöllum við Búða- hraun, um verzlunarmanna- b dgina, 5.—7. ágúst. Verður þarna fjölbreytt skemmtun, og munu Snæ- fellingar fjölmenna á þetta hér- aðsmót sitt bæði fólk búsett í héraði og utan þess. Allur ágóði af héraðsmótinu rennur til héraðsgarðs Snæfell- inga og Hnappdæla í Búða- hrauni. ¥ÐJA, félag verksmiðju- fólks hér í bænum hefir boðað verkfall hjá meðlimum Félags íslenzkra iðnrekenda frá .1. ágúst næst komandi. Hafði Iðja reynt að ná samn- ingum við félag iðnrekenda en ekki tekist og mun málið nú vera komið í hendur sátta semjara. Aðalkrafa Iðju fyrir utan nokkrar kauphækkun er sú, að fólk vinni sig upp í full laun á einu ári í stað tveggja ára áð- ur. Hvað kaupkröfurnar snertir eru þetta aðalatriðin: í samningi þeim er nú gildir eru byrjendalaun karla, yngri en 18 ára, 160 kr. á mánuði, en hækka á 12 mánuðum upp í 225 kr. Byrjunarlaun kvenna eru þau sömu, 160 kr. á mánuði en hækka á tveim árum upp í 265 kr. í hinu nýja samnings- uppkasti Iðju er gert ráð fyrir að kaup karla yngri en 18 ára og kvenna verði sem hér segir: Byrjunarlaun, á mán. kr. 215.00 Eftir 3. mán. á mán. •— 250.00 Eftir 6 mán., á mán. — 275.00 Eftir 9 mán., á mán. — 300.00 Eftir 12 mán., á mán. — 325.00 ! Karlar eldri en 18 ára hafa nú í byrjunarlaun 280 kr. á mán., og hækkar kaupið á tveimur ár um upp í 440 kr. í samninp«un'- kasti Iðju er gert ráð fyrir að þetta breytist sem hér segír: Byrjunarlaun, á mán. kr. 300.00 Eftir 3 mán., á mán. — 350.00 Eftir 6 mán., á mán. — 400.00 Eftir 9 mán., á mán. — 450.00 Eftir 12 mán., á mátt. — 500.00 Núgildandi samningi er svo ákveðið að yfir-, nætur- og helgidagavinna greiðist með 50 % álagningu. í nýju samnings- uppkastinu er þessu ákvæði haldið um yfirvinnu, en nýtt á- kvæði sett um að nætur- og VMl « 7. Samkvæmt upplýsingum, sem Alþýðublaðið hefur fengið í skrifstofu vegamálastjóra er bannað að fara með meiri þimga en 5 smálestir um brúna. Það mun allt of mikill þungi, eins og nú er ástatt um brúna. Stóru bifreiðarnar, sem um brúna fara eru tómar frá 3,7 smálestir og upp í 4,2 smálest- ir. Þær taka 26—30 farþega, og ef reiknað er með að hyer farþegi sé að meðaltali 70 kg. þá eru þeir allir til samans 1,8 til 2,1 smálest. Verður þá þyngd ’hinna stóru bifreiða frá 5,8 smálestir og allt upp í 6,3 smálestir, en til viðbótar má alltaf bæta þyngd farangursins. Ma&iðsygiiefgar arráéstafanir* í fyrsta lagi er því svoköll- uðum reglum um þunga farar- tækjanna, sem um brúna fara alls ekki fylgt. En þó svo væri, þá er ekkert vit í því, eins og nú er komið að leyfa að 5 smá lesta þungi fari um hrúna í einu. Það á að þanna stóru hif- reiðunum að fara um hrúna hlöðnum farþegum. Allir far þegar eiga að ganga hrúna. A1 þýðublaðið hefir snúið sér til nokkurra bifreiðaeigenda, sem halda uppi áætlunarferð- um austur yfir brúna með stórum bifreiðum og þeir telja að það sé ekki lengur neitt vit í því að fara með bif reiðarnar hlaðnar farþegum. Þeir telja nauðsynlegt að hanna slíkt þegar í stað. Það er furðulegt að þetta skuli ekki hafa verið gert og lýsir svo dæmalausu kæruleysi að það er hrein og bein fífi- dyrfska. Enda getum við búist við þvi, ef 1 þessi regla verður ekki upptekin þegar í stað, að við fáum fregnir um að farþega bifreið hafi steypst í hringið- una og að stórkostlegt slys hafi orðið. En þá er of seint að verða vitur. Byggé fyrlr h©st- vageia. Ölfusárbrú var, eins og kunn ugt er byggð sumarið 1890 — ftfc. á 7. sSki. íslenzkur uppfinn- ingamaöir veslan hafí Hefnr fyaidlé npp nýfa geré á marg- földmiarvélum. — i A RNI ÁRNASON, eini ís- lenzki vélf ræðingurinn í Chicago hefur nýlega lokið við smíði á nýrri gerð margföldun- arvélar, sem er einfaldari og hagnýtari en eldri gerðir. Árni hefur starfað að smíði vélárinn ar í nokkur ár. Vel þekkt fyrirtæki í Cleve- land í Ohioríki, sem hefur alis kyns skrfistofuvélar á boð- stólum, hefur fest kaup á vél Árna. Árni, sem er 36 ára gamall, fæddist í Kanada, og er sonur Sigurðar Árnasonar, forseta ís- lendingafélagsins í Chicago. — Árni hefur starfað við vélfræði sl. 16 ár. Nýlega lauk hann við umbætur á vél, sem smíðar vír- kaðla. Tveir bræður Árna eru í Bandaríkjahernum. Þeir eru báðir í 'Nbnmandie. Hjónaband Nýlega voru gefin saman í hjóna band í Hafnarfirði af séra Jóni Thorarensen Anna Jóhannsdóttir, Austurgötu 32 og Ellert Hannes- son Gunnarssundi 8. NÝLEGA var formanni Slysavarnadeildarinnar á Þingeyri, Sigmundi Jónssyni, kaupmanni, afhent höfðingleg gjöf til Björgunarskútusjóðs fyrir Vestfirði. Gjöfin, sem er að upphæð 3000 kr. er frá konu og börnum Guðmundar heitins Gíslasonar, bónda frá Höfn í Dýrafirði. Eins og lesendum blaðsins er kunnugt, er ríkjandi mikill á- ,hugi á Vestfjörðum fyrir því, að koma upp björgunarskútu fyrir Vestfirði, og hafa ýmsir einstaklingar áður gefið stór- gajfir í björgunarskútusjóðinn, og ennfremur hefur verið efnt til happdrættis til ágóða fyrir hann, og verður dregið í því 1. sept. í haust. SL. sunnudag vildi það slys til við Haganesvík fyrir norðan, að þrír menn duttu af palli vörubifreiðar, sem var á allmikilli ferð og meiddust all- ir mennirnir nokkuð, en einn þó alvarlegast. Hann heitir Sig urjón Stefánsson, og er frá Skuggab j örgum. Var hann strax fluttur í flug vél til Siglufjarðar og lagður þar í sjúkrahús. Mun Sigurjón hafa meiðst innvortis og var líðan hans slæm í gær. Hinir höfðu ekki meiðst alvarlega. LaiidfeiiKaSiirisiii fæknlais ómögulegt a® fulliiægja eftirspurnlnni. T\J OTKUN alls konar búvéla færist nú mjög í vöxt í ís- ^' lenzkum landbúnaði og er ekki nærri hægt að fullnségj a eftirspurninni eftir þeim. Bendir þetta til þess að með batnandi afkomu bændastéttar innar og þeirri reynslu, sem fæst af þeim vélum, sem fengist hafa 'hingað, muni verða teknar upp nýjar og mikilvirkari tæki í landbúnaðinum en áður hafa verið notuð. Hvað heyvinnuvélar snertir skal þess getið, samkvæmt upp lýsingum Árna G. F.ylands for- stjóra /búnaðardeildar Sam- bands íslenzkra samvinnufé- laga, |þ(á ihefir íbúnaðard. ekki getað afgreitt nema helming þeirra heyvinnuvéla sem pant- aðar hafa verið hjá henni, Á þessu ári hafa verið fluttar inn 325 sláttuvélar og 250 raksturs vélar. Þá hafa verið fluttar inn svo kallaðar múgavélar, sem nota má bæði sem snúingsvélar og til að raka heyi í garða, en snúningsvélar af hentugri gerð fást alls ekki í Ameríku. Þá er og geysimikil eftir- spurn eftir dráttarvélum til jarðvinnslu og munu nú um 70 umsækjendur slíkra véla bíða eftir þeim, en engin von er til þess að hægt verði að uppfylla þarfirnar fyrir þessar vélar á þessu ári. Það sem af er árinu hafa dráttarvélarnar verið flutt ar inn, en enn er ekki öll von úti um það að hægt verði að fá 'hingað að vestan 10 stórar belt isdráttarvélar með jarðýturr og tilheyrandi verkfærum. en þessar vélar teljast nú til her- gagnaframleiðslu og er því mjög undir hælinn lagt að þær fáist. Véiasjóður á nú sex skurð- gröfur og eru þær allar í notk- un. Eftirspurnin eftir þessum tækjum er svo mikil að margir, sem beðið hafa um þær verða enn að bíða í mörg ár. Af þessu sést að mikil hreyf ing hefir orðið i Iþlá átt að land- búnaðurinn taki í þjónustu sína ný og mikilvirkari tæki, en áð- ur hafa verið notuð. Fyrh* stríð var ekki mikil eftirspurn eftir þessum tækjum. Mætti þetta verða til þess að ýta undir og auðvelda ræktun . landsíns, að gera jarðræktina léttari og land búnaðarstörfin betri. Það ætti. því að geta gert sveitirnar byggilegrí. Tæknin er rnikils- virði og það hefir lengi verið álitið að íslenzkum landbúnaði stæði mjög fyrir þryfum sá skortur á tækni, sem alltaf hef ir verið ríkjandi í sveitunum Frfe. á 7. sföa.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.