Alþýðublaðið - 27.07.1944, Síða 2
2
ALjÞYÐUBLAÐIÐ
yimmtuðagu? 2T. Júií 1944
Gjaldeyrisráðsiefnan
í Bandaríkjunum.
FjármáíaráSSierra
iandaríkjanna held-
ur veizlu fyrir full-
trúána.
Fréttatilkynning frá ut-
anríkisráðuneytinu.
LAUGARDAGINN 22. júlí
hélt Henry Morgenthau,
fjármálaráðherra Bandaríkj-
axma veizlu fyrir fulltrúa og
starfsfólk ráðstefnunnar og að
henni lokinni var lokafundur
ráðstefnunnar settur, kl, tæp-
lega 10 um kvöldið. Við það
tækifæri 'hyllti fjármálaráðherr
ann Keynes lávarð, aðalfulltrúa
Breta og taldi hann aðaifrömuð
ráðstefnunnar. Var Keynes lá-
varði mjög innilega fagnað af
viðstöddum.
Þá tilkynnti Morgenthau
einnig að Rússar hefðu aukið
hlutafé sitt í alþjóðabankanum
um 300000 milljónir dollara,
og vakti það mikinn fögnuð.
Hlutafé bankans er nú 9,1
billjón dollara.
Hann kvað þetta mikilvæg-
ustu ráðstefnu, sem haldin hefði
verið, og hefði 44 þjóðum tek-
ist þrátt fyrir mismunandi sjón-
armið, að koma sér saman eft-
ir ýtarlegar samæður. Þetta
kvað hann hæfilegt svar til
möndulveldanna, og lýsti styrk
og eindregni hinna sameinuðu
þjóða.
Fór síðan fram undirskrift
samninga og var hver þjóð um
sig kölluð upp að háborði í
stafrófsröð til undirskriftar.
Síðan var fundi slitið með
hátíðlegri athöfn og leikinn
þjóðsöngur Bandaríkjanna.
Hjónaband.
Nýlega v-oru gefin saman í
hjónaband ungfrú Inga Ingölfs-
dóttir, Ránargötu 44 og Jón Ól-
afsson stýrimaður, Grænumýri,
Seltjarnarnesi.
Heyrir landsíminn undir verðlagseftirlitið?
• •
ðll venjuleg sémföl milli Suöurlands og NorÖur-
lands raunverulop afnumin.
Aöeins hægt ai ná sambandi mei hraðsam-
tölum eg forgangshraösamtöiuml
NauðsynSegt að afnema með öllu hraðsamtöl.
A LLT BENDIR til þess að fullkomin nauðsyn sé á því að
landsíminn afnemi öll hraðsamtöl millí Suðurlands og
Norðurlands að minnsta kosti á sumrum, og að sú regla verði
tekin upp að aðeins vérði hægt að fá venjuleg samtöl eða
forgangshraðsamtöl.
Ástæðan fyrir þessu er sú
að venjuleg samtöl eru nú
þegar raunverulega afnumin
og ómögulegt að fá samband
við Norðurland — Siglufjörð
og Akureyri, nema með því
að panta hraðsamtöl. Má
segja að öll samtöl séu nú
komin yfir í hraðsamtöl og
forgangshraðsamtöl, ef við-
komandi getur ekki beðið eft
ir samhandi í 1—2 og jafnvel
3 daga. /
Með þessu fyrirkomulagi er
alls ekki greitt fyrir samtölun-
um milli Norður- og Suður-
lands, því að þegar hraðsamtöl-
in eru orðin föst regla er
venjulegum samtölum útrýmt.
En það hlýtur í þessu sam-
bandi að vekja sérstaka at-
hygli, að með þessu fyrir-
komulagi eru tekjur land-
símans margfaldaðar á kostn-
að notendanna og virðfist það
algerlega óþarft. Venjuleg
samtöl milli Reykjavíkur og
Siglufjarðar kosta nú kr. 3,50;
hraðsamtöl kr. 10,50 og for-
gangshraðsamtöl kr. 35,00.
Venjul%g samtöl milli Reykja
Hörmulegt slp á bamaheimiH
hér í bænum á mánudaiinn
_____/ ____
Tæplega tveggja ára telpa h.eiö hana á harna-
heimilinu Suöurhorg viö Eiifíksgötu.
HÖRMULEGT slys varð í
fyrradag eftir hádegi, á
barnaheimilinu Suðurborg
við Eiríksgötu 37, er stúlku-
barn á öðru ári varð undir
leikfangaskáp, og beið þegar
bana af.
Eins og kunnugt er, rekur
Barnavinafélagið Sumargjöf
þarna barnaheimili, og eru þar
60 börn á dagheimili, 20 á vist-
arheimili og 16 í vöggustofu.
Börn þau, sem á vistarheim-
inu dvelja eru á aldrinum eins
til sex ára, og var barn það,
sem fyrir slysinu varð eitt
þeirra, sem á vistheimilinu
var.
Siys þetta vildi til í leik-
stofunni á vistheimilinu, sem
er á þriðju hæð hússins. Voru
þar 8 börn að leika sér um há-
degisbilið, er umsjónarkona
deildarinnar sér út um glugg-
ann. að börn frá heimilinu eru
að fara út úr garðinum og út á
götuna, en hliðið á garðinum
var opið sökum þess, að verið
var að. vinna í honum, og
hleypur hún því niður, til þess
að forða börnunum frá göt-
unni og var rétt augnablik
niðri, en er hún kemur upp
aftur, hat'ði leikfangaskápur,
sem stóð við einn vegginn í
leikstofunni fallið fram á gólf-
ið og eitt barnið orðið undir
honum. Hafði efsta hilla skáps-
ins lent á vinsM öxl og brjósti
bamsins, og var það örent, er
umsjónarkonan ásamt annarri
starfsstúlku við heimilið kom
inn í herbergið.
Er næsta erfitt að gera sér
grein fyrir hvernig þetta hef-
ur atvikazt, þar sem skápur
þessi má teljast stöðugur, og
virðist þurfa nokkurt átak til
þess að steypa honum, en í
herberginu voru eingöngu börn
á öðru ári. er slysið varð.
En þessi sviplegi atburður
ætti þó að verða til viðvörun-
ar um að hafa ekki lausa skápa
í herbergjum barnanna á dval-
arheimilum þeirra, eða aðra þá
hluti, sem þeim gæti stafað
hætta af. Enda munu forráða-
menn Suðurborgar gera víð-
tækar ráðstafanir til þess að
atburðir, sem þessi, endurtaki
sfif'ekld.
Barn þetta var hálfs annars
árs að aldri og hét Ágústa
Kolbrún. Móðir telpunnar heit-
ir Guðbjörg Helgadóttir og er
til heimilis á Hringbraut 33
hér í bænum.
víkur og Akureyrar kosta nú
kr. 4,00; hraðsamtöl kr. 12,00
og forgangshraðsamtö’i kr.
40, Q0.
Almenningur hefir ekki ráð
á því, jafnvel hversu nauðsyn-
legt, sem honum er að ná sam-
bandi, að kosta upp á hraðsam-
tal, enda gengur honum ekki
betur að ná sambandi með
því. Alþýðublaðið hringdi í
landsímann í gær og spurði
hvenær það myndi geta náð
sambandi við Siglufjörð með
venjulegu samtali. „Við vitum
það eklci,“ var svarið, „en von-
andi einhvern tíma á morg-
un.“ „En ef við pöntupi hrað-
samtal?“ „Líkast til í kvöld
— og ef ekki þá, þá fyrripart-
inn á morgun.“
Að þessu var spurt fyrri
hluta dags í gær.
Þetta er vitanlega óþolandi
ástand. Með þessu eru hin
venjulegu samtöl afnUmin og
hraðsamtölin, sem kosta þre-
falt gjald, orðin að venjulegum
samtölum, en þó með marg-
földu gjaldi. Það getur ekki
verið meining landsímans að
þetta verði áð algildri reglu.
Ef svo væri, þá er skylda hans
að tilkynna að almenn samtöl
væru afnumin og að framvegis
yrðu menn að greiða brefalt
gjald á við það, sem áður var
fyrir venjulegt viðtalsb’l: Með
því skipulagi, sem nú er, verð-
ur gjaldskrá landsímans að
skrítlu.
Almenningur getur ekki þol-
að það ástand, sem nú ríkir í
þessum málum. Landsíminn er
opinber stofnun — og þó að
hann heyri að líkindum ekki
undir verðlagseftirlitið, þá ber
honum að láta það ekki við-
gangast, að gjaldskrá hans sé
algerlega breytt að ástæðu-
lausu, svo að ekki sé komist
óvægara að orði.
N
ÆSTI leikur handknatt-
leiksmótsins, sem háð er
í Hafnarfirði, fer fram á sýslu
mannstúninu í kvöld kl. 8V2.
Keppa þá Haukar og Ármann
og Isfirðingar og K. R.
Aheit til Slysavarnafélags íslands.
Undanfarna daga hafa Slysa-
varnafélagi íslands borizt eftirtal-
in áheit: Frá N. N. kr. 100,00. Frá
Vilborgu Vigfúsdóttur kr. 30,00.
Frá E. Þ. kr. 20,00, Frá Jóni Guð-
mundssyni, Munaðarnesi kr. 15,00.
Frá Guðrúnu Þ. Jónsdóttur, Flat-
eyri kr. 20,00. Frá Gísla Guðna-
syni, Breiðdalsvík kr. 100,00. Frá
Fanney Sigurðardóttur kr. 80,00.
Samtals kr. 365,00.
í Moskva haföi hoS
17. júní.
BoSiS sátu ýmsir
fuSifráar Rússa ©g
margt aíinafS st©r»
menni.
A Ð tilhlutun ríkisstjórnar-
•*■*■ innar hélt herra Pétur
Benediktsson, sendiherra,
mannfagnað í tilefni af gildis-
töku lýðveldisstjórnarskrár og
embættistöku fyrsta forseta
íslands í Moskva 17. júní. Með-
al innlendra gesta voru herra
Vyshinsky,, varaforsætisráð-
herra meðifrú og dóttur, herra
Maisky, herra Dekanosov,
herra Litvinov, herra Kavta-
radze, herra Losovsky og herra
Aliev, aðstoðarutanríkisþjóð-
fulltrúar og frá þeirra. Utanrík
isþjóðfulltrúinn, herra Molo-
tov gat ekki komið því við að
mæta, sökum anna.
Frh. á 7. síðtj.
Nýft fíefU af Vinnunni
kofflfö úf.
XJ INNAN tímarit Alþýðu-
* sambands íslands júlí
—ágúst hefti er komin út fjöl
breytt að efni og fróðleg að
vanda.
Alf helzta efninu í ritinu má
nefna: Föðurland var mér gefið,
kvæði eftir Sigurð Einarsson
'kveðið ó Þingvelli 16.—17. júlí
síðastliðinn. Lýðveldi íslands
eftir Sæmund Ólafsson. Þættir
úr Ibarláttu elleftu aldar, eftir
Björn Sigfú-sson, þó er kvæði
sem nefnist Sumarmíál 1944, eft
ir Ei-nar Svein FrímiannsS-on, ■
Verkamaðurinn í siveitmnd, eftir
Gunn-ar Benediktss-on, ísland —
land alþýðusamtaka eftir Jón
Raifnsson, Gamall í hettunni,
saiga eftir Mikael Zostj-enkó,
Ba-karas-veinafélag íslands eftir
Ágúst H. Pétursson, grein þess
ari fylgir fjöldi mynd-a meðal
annars af formönnum félagsins
frá stofnun þess 1908. Þá er
grein, sem nefnist: Kjósið trún-
aðarmenn á hverju-m vinnustað
til lands og sjóvar, eftir Eggert
Þoríþjarn-arson, afmælisgrein um
Björn Jónsson frá Bala, umsagn
ir u-m b-ækur -eftir ritstjórann
Karl ísfeld, samibandstíðindi, frá
Samibandsskrifstof-unni og margt
fleira, auk þess er fjöldi
m-yn-da í ritkiu, fyrir utan þær,
sem áður eru taldar.
Miklar endurbælur á sundlaug
Keflavíkur
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
KEFLAVÍK, þriðjudag.
FYRIR nokkru bauð stjórn
og sundlaugarnefnd Ung-
mennafélags Keflavíkur hrepps
nefnd, fréttamönnum, kennur-
um og formönnum ýmissa fé-
laga í Keflavík að skoða þær
breytingar og endurbætur, sem
gerðar hafa verið á sundlaug
félagsins frá því á síðastliðnu
hau-sti.
Sundlaugarbyggingin er hið
glæsilegasta hús, ’aem mun, þeg-
ar fullger er, skera mjög af við
hið hrjóstruga umhverfi, þar
sem hún stendur á brimsorfn-
um klettum frammi við sjóinn.
Þegar komið er inn úr aðal-
dyrum byggingarinnar er til
vinetri' stigi, er liggur upp á
rúmgóða áhorfendapalla, þar
er- einnig herbergi sundkennar-
ans, en inn af aðaldyrum er
gangur, er opnast í búningsher-
hergi karla hægra megin og
kvenna vinstra megin. Úr bún-
ingsherbergjunum er farið í
böðin, en þau eru heit og köld
vatnsböð, þaðan er svo gengið
í laugina, er þannig fyrirbyggt
að óhreinindi berist í laugina,
og er þetta mikil bót frá því,
sem áður var. Allí er þarna
mjög snyrtilegt og vel frá
gengið eftir þvi sem kostur er
á nú á tímum.
Laugin er að stærð 10,33X
6,83 m. 1 'henni er sjór, sem er
hitaður upp með kolum og
koksi. í henni eru hreinsunar-
tæki, sem halda sjónum í laug-
inni hreinum. Er að þessu mik-
ill þrifnaður og hollu.sta, einn-
ig sparar þetta kyndingu, þar
sem sjaldnar þarf að skiptsi um
sjó í lauginni.
Byggingin er 23x15 m. &ð
stærð. Eru allir útveggir úr
steinsteypu og einangraðir með
vikri, nema norðurveggur, sem
er úr timbri vegna fyrirhugaðr-
ar stækkunar á lauginm og
gufuhaðs, sem er ætlaður stað-
ur við norðurenda lau^arinnar
Trésmíði alla við endurbaitur
laugarinnar vann Þorsteinn
Árnaeon & Co. Ingvi Loftsson
múrarameistari annaðist stein-
steypu og múr'húðun, H.f. Ham-
ar Reykjavík smíðaði hreinsi-
tækin og setti þau upp og Sig-
urður R. Guðmundsson setti
upp miðstöðina og lagði vatns-
lagnir.
Byggingarkostnaiur varð um
kr. 140 þús. á því, sem nú er
gert, en þegar byggingin er
fullgerð, er kostnaður áætlað-
ur um kr. 200 þús. Af áfölln-
um kostnaði hafa þegar verið
greiddar kr. 102 þús., sem hafa
safnazt þannig:
Almenn samskot 1943 kr.
21 500,00. Styrkur frá Kefla-
víkurhr. 6000,00. Styrkur frá
Keflavíkurhr., sem greiðist á
5 árum 18 000,00. Frá Ung-
mennafélagftiu 3000,00. Frá
Ungmennafélaginu, lán 25 000,-
00. Styrkur frá ríkinu 25 000.0J
Frá Kv®nnadeild Slysavarna-
fél. Keflavík 3000,00. Ágóði af
sjómannadegi 1944 13 000,00.
Styrkur frá sýslusjóði Gull-
bringusýslu 10 000,00.
Áður en breytingin var gerð
kostaði laugin úm kr. 32 þús.
og er því kostnaðarverð bygg-
ingarinnar nú um kr. 160 þús.
Árið 1931 er fyrst kennt
sund hér í Keflavík, kennt var
í sjónum véstur í „Gróf“ og
fór sú toennsla fram á vegum
U.M.F.K. Mun þarna hafa var-
ið kennt í þrjú sumur, einnig
var eitt sumar kennt í svo-
nefndum ,,íshústjörnum“. Jak-
oh Sigurðsson var fyrsti sund-
kennarinn. Voru skilyrði til
sundkennslu þarna mjög slæm
og lagðist þvi kennsla niður
aftur og er dauft yfir þessum
málum- hér, þar til Í937. Þá eru
hafin almenn samskot til bygg-
ingar sundlaugar hér í Kefla-
vík fyrir forgöngu U.M.F.K.
Sá maður, er ötulast beitii
sér fyrir samskotunum og á-
framhaldandi framkvæmdum
var Krístinn Hákonarson, er
hér var þá Qögregluþjónn.
Vsk. á 7. ríðu.