Alþýðublaðið - 29.07.1944, Page 6
6
ALÞYPUBlAÐiÐ
Laugardagnr 29. Júlí 1944
Richard Beck prófessor
Skrýfileg flugvél.
Þetta ‘á að vera nýjasta þýzka flugvélartegundin skriokkurinn
er ekki ú miðiu, en til hinnar handarinnar er klefi flugnaanns-
ins og vegur hann upp á móti þunga ihreyfilsins.
Vinnubókin
/
er nauðsynleg öllum þeim er
vinna tímavinnu.
Fæst í skrifstofu verkalýðs
félaganna, í bókaverslunum
og hjá útgefanda.
FULLTRÚARÁÐ
FERKALÝÐSFÉLAGANNA
Hverfisgötu 21.
Svar Eimskfpafélagslns
Frh. á 4. síðu.
unnar, að þau geti lítil sem
engin áhrif haft á dýrtíðina
innanlands, og er þeirri stað-
hæfingu til stuðnings bent á,
að vísitalan hafi ekki lækkað
nema um rúmlega 2 stig við
hina stórkostlegu farmgjalda-
lækkun.
*
Engin af þessum mótbárum
mun af óvilhöllum mönnum
verða tekin sem fullgild af-
sökun fyrir stjórn Eimsk’pafé-
lagsins.
Þó að nokkur hluti af reikn-
ingshaldi félagsins fari fram
vestan hafs, er það að minnsta
kosti mjög ótrúlegt, að henni
hafi ekki þegar um áramót
verið nægilega vel kunnugt um
hinn ævintýralega gróða félags-
ins til þess, að viðskiptaráð
hefðí þá þegar getað lækkað
farmgjöldin stórkostlega, ef
það hefði fengið refjalaus svör
við fyrirspurnum sínum. Þá er
það og ekkert annað en vísvit-
andi blekking, að hin háu farm
gjöld og hinn ævintýralegi
gróði Eimskipafélagsins hafi
ekiki átt meiri þátt í 'því, að aufca
dýrtíðina innanlands, en sem
svari einuim tveimur vísitölustig
um. Er þá fyrst á það að benda,
að ekki nema sumar þeirra
vörutegunda, sem til landsins
eru fluttar, koma fram í vísitöl-
unr i, og einmitt á þeim hafa
flutningsgjöldin verið miklum
mun lægri en á hinum. Gefur
hin óverulega lækkun vísiiöl-
unnar við farmgjaldalækkunira
því enga hugmynd nm, bve
gífurlegan þátt hin háu farrn-
gjöld og gróði Eimskipafélags-
ins hafa átt í vexti dýrtíðarinn-
ar irmanlands.
*
Það er alrangt, að halda því
fram, eins og Morgunblaðið
gerir, að menn sjái ofsjónum
yfir velgengni Eimskipafélags-
ins svo að ekki sé nú talað um
svo smekklegan mlálflutning, að
stimpla alla gagnrýni á
því, sem „skítleg skrif“ eins og
Morguniblaðið toomst að orði ein
hvern undianfarinna daga. Það
er áreiðanlega enginn íslend-
ingur, sem ekki er hlýtt til
Eimskipafélagsins og vill vel-
gengni þess, og aUir vita, að
það þarf að geta endurnýjað
skipastól sinn. En þetta „óska-
barn“ verður að hafa aðhald
ekki síður en önnur börn, ef
það á að verða þjóðinni að því
gagni og til þeirrar gleði, sem
af því hefur verið vænzt. Og
fyrr má græða og búa í haginn
fyrir framtíðina, en að 24 millj-
ónum sé rakað saman á einu
ári á flutningsgjöldum til
landsins, meðan þjóðin sjálf
berst í bökkum til að verjast
vaxandi flóði dýrtíðarinnar.
llallgTÍinssókn.
Messað á morgun í Austurbæjar-
barnaskóla kl. 11 f. h. Dr. Richard
Beck heldur ræðu, en séra Jakob
Jónsson þjónar fyrir altari.
Ólafsvökumessa.
verður haldin í dómkirkjunni í
dag (laugardag) kl. 2 e. h. Séra
Jakob Jónsson prédikar. Allir
velkomnir.
Frh. á 4. síðu.
svo góða dóma og öðlaðist tals-
verðar vinsældir. Árið 1943
kom síðan út í New York —
á kostnað fræðafélagsins The
American Scandinavian Foun-
dation — Icelandic Poems and
Stories (íslenzk Ijóð og sögur).
Safnaði Beck þýðingum þeirra
sagna og ljóða, sem eru í þess-
ari bók, skrifaði inngangsrit-
gerð um íslenzkar bókmemítir
almennt og greinar um ævi og
ritverk höfundanna. Bera þess-
ar greinar vott um sérlega
heilbrigðan skilning á skáld-
ritum af hvers konar gerð, og
ágæta hæfileika til að segja
það í stuttu máli, sem gefi
nokkurn veginn glögga hug-
mynd um höfundana og gildi
þeirra. Þessi bók hefir vakið
mikla athygli og mikið verið
um hana skrifað vestra í merk
blöð og tímarit, en þó að
hennar hafi raunar verið getið
hér á landi, þá hefir það ennþá
varla verið gert svo sem vert
væri. Um mörg undaníarin ár
hafa þeir próíessor Beck og
hinn ágæti og sístai'fandi
fræðimaður, prófessor Stefán
Einai’sson við John Hopkins
University í Baltimore, unnið
að allstórri sögu íslenzkra bók-
mennta, og er ætlazt til, að
hún komi út á ensku innan
fárra ára. Hafa þeir skipt
þannig með sér verkum, pró-
fessorarnir, að Beck skrifar
einkanlega um ljóðskáldin, en
Stefán um þá höfunda, sem að
mestu eða öllu leyti hafa helg-
að sig hinu óbundna máli. Bók-
menntasagan nær eingöngu til
nýíslenzkra bókmennta.
Greinar Richards Becks um
íslenzkar, enskar og norskar
bókmenntir skipta hundruðum,
og eiu sumar þeirra allstórár.
Af tímaritum, sem hann hefir
skrifað í á íslenzku, rná nefna
Eimreiðina, Skírni, Tímarit
Þjóðræknisfélagsins og Al-
nanak Óleifs Thorgeirssonar
Má t. d. nefna grein um vest-
ur-íslenzkar bókmenntir, mjög
ýtarlega og fróðlega, grein um
íslenzk fornrit og enskar bók-
menntir, ritgerðir um Huldu
skáldkonu, Örn Arnarson og
Jón Þorláksson á Bægisá, langa
og nákvæma sögu Þjóðræknis-
félagsins - út af 25 ára afmæli
þess — og &ögu vikublaðsins
Lögbergs, sem skrifuð var í
sérstakt afmælisblað, sem út
vai gefið, þegar blaðið var
orðið hálfrar aldar gamalt. Af
greinum hans á ensku má t, d-
benda á langa grein um Jón
skáld Þorláksson, og var hún
birt í hinu merka fræðilega
tímariti, The Joumal of Eng-
lish and Germanic Philologi,
en það rit gefur út ríkisháskól-
inn í Illinois. Þá er Beck var
á ferð í Noregi 1930, kynntist
hann verkum norska skáldsins
Johan Falkberget, sem Beck
hafði þá lengi haft hug á að
kynixa sér, og skrifaði síðan
um hann bæði\á norsku og
ensku í Ameríku, þar sem bæk-
ur Falkbergets voru einmitt
þá áð ryðja sér til rúms.
Fyrirlestra og ræður um ís-
lenzk og norsk, en einnig
dönsk, sænsk, finnsk — og svo
auðvitað amerísk efni hefir
Beck flutt í hundraðatali í fé-
lögum, á mannfundum, í há-
skólum og í útvarp.
Beck hefir alltaf starfað í fé-
lagsskap bindindismanna og
gerir það enn þann dag í dag,
og í öðrum alþjóðlegum félags-
skap, sem á rætur sínar í
Bandaríkjunum, hefir hann
einnig innt af hendi allmikið
starf í borg þeirri, sem hann á
heima í. Hann hefir og haft
forustu um samband Norð-
manna á þessum stöðvum við
heimalandið, starfað mikið í
átthagafélögum þeirra. Hann
hefir verið og er formaður
Leifs Eiríkssonar félagsins í
Norður-Dakota, en það félag
er stofnað af Norðmönnum og
kynnir Ameríkumönnum landa
fundi Norðimanna og íslendingia
í gamla daga, og þá fyrst og
fremst fund Ameríku — og má
nærri geta, að ekki hentar það
illa hróðri okkar íslendinga, að
Richard Beck skuli hafa túlk-
að þessi mál fyrir hönd félags-
' ins. Þá hefir hann og mikið
starfað að kirkjumálum lút-
erskra manna í Norður-Dakota,
en eins og öllum þorra fólks
mun kunnugt á landi hér, er
fríkirkja í Banclaríkjunum, svo
sem og í Car.ada, og er hinn
mesti fjöldi alls konar afbrigða
af mótmælendasöfnuðum þar
starfandi.
Þá er þess ennþá ógetið, að
Beck hefir unnið geipimikið
starf í þágu Þjóðræknisfélags
íslendinga í Yesturheimi. Hann
hefir haldið fjölda fyrirlestra
víðs vegar um íslendingabyggð-
ir, hann hann hefir með upp-
lýsingum, sem hafa kostað
hann bréfaskriftir og ærna
fyrirhöfn, tengt saman á ný
slitin tengsl • milli vestur-ís-
lenzkra einstaklinga og ætt-
ingja þeirra hér heima, og
hann hefir verið formaður
Þjóðræknisfélagsins nú um
fjögurra ára skeið, en hafði
áður verið varaformaður þess
í sex ár samfleytt. Sækir hann
stjórnarfundi um 160 enskra
mílna vegalengd frá Grand
Forks til Winnipeg og heim-
sækir deildirnar víðs vegar á
ári hverju. Þá hefir hann og
tíðum umsjón og fyrirgreiðslur
fyrir hönd félagsins, þá er það
hebrisækja valdir menn héðan
frá íslandi. Loks er hann rit-
stjóri hins gamla og merka
ársrits Almanaks Ólafs S.
Thorgeirssonar.
Beck hefir verið margs kon-
ar sómi sýndur fyrir störf sín
í þágu Islendinga og Norð-
manna í Ameríku. Hann var
sæmdur riddarakrossi S. Olafs
orðunnar norsku árið 1939, og
sama arið riddarakrossi Fálka-
orðunnar —' og nix í febrúar s.l.
varð hann stórriddari Fálkaorð-
unnar. Þá er hann heiðursfé-
lagi fjölmargra menningar- og
þjóðræknisfélaga Norðmanna í
Ameríku.
Prófessor Beck kvæntist hér
heima Ólöfu Daníelsdóttud frá
Helgustöðum í Reyðarfirði,
ágætri konu, en missti hana
eftir stutta sambúð árið 1921
-— nokkru áður en hann fór til
Ameríku. Þau voru barnlaus.
Árið 1925 kvæntist Beck í
íþöku í Bandaríkjunum Berthu
Samson, hjúkrunarkonu frá
Winnipeg. Rún er fædd í Norð-
ur-Dakota í Bandaríkjunum,
og voru foreldrar hennar ís-
lenzkir. í fyrri heimsstyrjöld
—- 19Í4 til 1918 — gegndi hún
kornung hjúkrunarstörfum í
Canadahernum í Frakklandi,
en var síðan hjúkrunarkona
við almenna sjúkrahúsið í
Winnipeg. Þaxi Richard Beck
eiga tvö börn, Margféti 14 ára
og Richard 11 ára. Á seinni ár-
um hefir frú Beck tekið mik-
inn þátt í ýmsum félags- og
mannúðarmálum í Grand
Forks. Hún er kona vel íslenzk
í anda, og hún talar íslenzku
mætavel.
Það er augljóst af því, sem
hér hefir verið frá skýrt, að
prófessor Beck er enginn með-
almaður að dugnaði, starfs-
þreki og áhuga. Þar á ofan
bætist sitthvað, sem styour að
því, að hann hafi meiri áhrif
meðal alls þorra manna en
flestir aðrir. Þegar hann flyt-
ur alþýðu manna eitthvert
áhugamál sitt í riti, skrifar
hann þannig, að mjög auðvelt
er að fylgjast með hugsunum
hans og rökum, málið létt og
lipurt, en þrátt fydr þetta er
allmikil ýtni í öllum hans
málflutningi. Sem ræðumaður
— ekki sízt á mannfundum og
samkomum, þar sem áheyrend-
ur sjá ræðumanninn, er hann
mjög álhrifamikill. Hann er
bráðmælskur, kann mætavel
að haga svipbrigðum, augna-
ráði og málhreim í samræmi
við efni, án þess að nokkuð sé
þar að gert um skör fram. Þá
er hann í dagfari glaðvær og
skemtinn og kann vel að haga
máli sínu eftir þeim skilyrðum
þekkingar og skilnings, sem sá,
hefir, sem við hann talar, og
loks finnur það hver og einn,
að þarna fer maður, sem er
fullur velvildar og fúsastur
manna til að styðja hvert gott
málefni og gera hVerjum og
einum góðum dreng þann
greiða, er hann má. Er það
því deginum ljósara, að heppi-
legri mann en próíessor Beck
getur vart til þess að vekja
áhuga vestan hafs og áustan
fyrir kynningu og samstarfi
íslendinga hér og í Vestur-
heimi. Hefi ég og greinilega
orðið þess var, að hann hefir
hér á landi tendrað áhuga fyr-
ir því málefni, þar sem áður
var allt dautt og dofið. Og auð-
vitað hefir hann að sama
skapi meðal íslendinga vestan
hafs blásið að gömlum glæð-
um ræktarsemi og samstarfs
vilja, ,auk þess sem hann hefir
með ræðum og ritgerðum á
ensku og kennslu sinni í ís- !
lenzkum fræðum kynnt ísland
og íslenzka menningu meðal
Bandaríkjamanna og Canada-
búa yfirleitt. Loks hefir hann
eílt samhug og samstarf nor-
rænna þjóðarbrota í Canada
og Bandaríkjunum.
En nú eru sjálfsagt þeir
menn til, sem segja — og það'
í fyllstu alvöru:
Til hvers á að efla samstarf
íslendinga vestan hafs og aust-
an? Er Vestur-íslendingum
það ekki einungis fjötur um
fót að halda sambanai við
heimalandið, i — er þeim það
ekki frekar til ills eix góðs að
samlag;así ekki að fullu sínu
nýja fósturlandi og þeirri
þjóð, s'ern það byggiy ? Og
hvaða gagn getum við, sem bú-
um hér á þessu landi, haft ’af
kanadiskum eða bandarískum
þegnum af íslenzkum uppruna,
búahdi í Norður-Dakota, V/in-
nipeg, Albérta — eða jafnvel
vesíur við Kyrrahaf?v
Það er ekki svo fráleitt ar
spyrja svona, því að, sá r. n
spyr, hann er viss raeð að viíja
fá svar — en hinn tómláti
spyr ekki og verður einskis
vísari. Gagnvart Vestur-ís-
lendingum — eigi síður ,en öðr-
um — ber þess að gæta, að
maðurinn lifir ekki á einu sam-
an brauði. Honum er ekki nóg
— til þess að fá notið mögu- -
leika sinna til þi’oska — að
hann hafi nægilegt að bíta og
brenna. En í landi því, sem
hann eða foreldrar hans eiga
sér engar menningarlegar erfð-
ir og saman ægir öllum þjóð-
um og kynþáttum, alls konar
trúarbrögðum og þjóðfélags-
legum og siðferðilegum hug-
myndum, hefir hann ekki á
bjargi að byggja, jafnvel þó að
stórfelld og athyglisverð menn-
ingarleg nýsköpun sé þar ým-
ist sköpuð eða í deiglunni. Það
er mjög hætt við að liann verði
þar „rótarslitinn vísir“ og ef
ekki þáð, þá að minnsta kosti
gróðrarmeiður, sem ekki verði
svo beinn og blaðríkur sem
ella. Og Vestur-íslendingar
eiga að góðu að hverfa, þar
sem er hin þúsund ára gamla
og sanntigna íslenzka menn-
ing. Hún á að geta orðið þeim
sá grundvöllur menriiixgar-
legrar mótunar og þroska, sem
grísk og rómversk menning
varð vestrænum þjóðum -— og
þó ætti hún að verða þeim
heldur meira,. því að „hjartað
er með, sem undir slær.“
Um okkur liér austan hafs-
ins er það að segja, að af
ræktarseminni einni má okkur
gagn verða — svo sem hverri
annarri tilfinningu, sem á sér
djúpar rætur í rnoldu lífsstríðs
okkar og rnenningarlegrar
mótunar. En svo er og hift, að
auðsætt virðist það, að 120—
130 þúsunda þjóð — nú á
vegamótum, þar sexn um
liggja leiðir þeirra, sem mestu
munu ráða um framtíð ein-
staklinga og þjóða — geti' um
margt verið ærinn styrkur að
30—40 þúsundum hollvina og
frænda í þeim ríkjrm verald-
ar, þar sem fram fer nú hiix
furðulegasta óg sé ítæðasta til-
raun forsjónarinnar um sam-
steypu þjóðerria og kynþátta —
og gnægð ef möguleika til
hvers, sem vrra skal.
Prófessor F .chard Beck skil-
ur til hlítar þau viðhorf, sem
hér hefir verið vikio að, og
harin- hefir tii að bera það at-
gérvi, sem til þess • irf að
koma þarna miklu ti: ieiðar.
Vel sé honum og öilum þeim,
er eiírhvað vilja á sig leggja
við sð jstyðja ajð sem mestúm
og béztúm árangri starfs þeirra
vestan hafs og austar^ sem
skilja: að ber er hver að baki
reiha sér bróður eigi. Megi
Fdchard Beck snúa að heiman
heirn stj/rktur til starfs af
skilningi og velvild, megi hann
fljúga héðan eigi aðeins á
vængjum hinna furöulegu
flugvéla, heldur einnig á
vængjum þeirrar sannfæring-
ar, að ísland og íslendingar
megi 1 verða alheimsmenningu
og alheimsbræðralagi til mik-
illa og farsælla nytja.
Guðm. Gíslasoxx Hagalín.