Alþýðublaðið - 09.08.1944, Síða 7
'IfeYÐUBLAÐIÐ
Miðvikudagur 3. ágúst 1944
Ferðalag forsela Islands
Frh. af 2. siðu
úr höfn, en skemmtun hélt á-
Jéhanns B. Ágysts Jénssofiar,
fer fram frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 10. ágúst. — Athöfnin
hefst mðe húskveðju á heimili hans, Háteigsvegi 19, klukkan
^30 e-h- ' Jli
Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Fanny Friðriksdóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför
Haliberu Jónsdéttur, SélvaSSagötu 56.
Vandamenn.
JBcerirm í da$.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturakstur annast B. S. í., sími
1540.
ÚTVARPIÐ: '
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur.
20.00 Fréttir.
.20.30 Útvarpssagan: „Silfurnæl-
an“, III., eftir Þórunni
Magnúsdóttur. (Höfundur
les).
21.00 Hljómplötur: íslenzkir ein-
söngvarar og kórar.
21.10 Útvarpssagan:
21.10 Tónverk eftir Chopin og
Lizst.
21.35 Hljómplötur: Lyrisk svíta
eftir Grieg.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Ferðafélag íslands
ráðgerir að fara tvær skemmti-
ferðir um næstu helgi. Önnur ferð
in er gönguferð á Mýrdalsjökul.
Verður lagt af stað kl. 2 e. h. á
laugardaginn og ekið austur að
’Vík og gist þar. Á sunnudagsmorg-
un ekið austur undir Léreftshöfuð,
en gengið þaðan upp á jökul og að
Kötlugjá. Komið niður af jöklinum
■seinnihluta dags og ekið til Reykja
víkur um kvöldið. Hin ferðin er
hringferð um Árnessýslu. Ekið
austur Mosfellsheiði um Þing-
völl, austur með Þingvallavatni,
niður með Sogsfossum, yfir Gríms
nes að Geysi og gist þar. Á sunnu
•daginn farið að Gullfossi, Brúar-
Möð, niður Hreppa og Skeið. Upp
lýsingar og farmiðar seldir á skrif
stofu Kr. Ó. Skagfjörðs, Túngötu 5
og séu teknir fyrir kl. 6 n. k.
rfimmtudag.
Hjónaband.
Annan þessa mánaðar voru gefin
■saman í hjónaband af séra Garðari
Þorsteinssyni, ungfrú Valgerður
Jónsdóttir Öldugötu 7 Hafnarfirði
og Larry Lalaguma lögregluþjónn
1 ameríska hernum.
Kveðjuhljómleikar
Eggerts Stefánssonar siö'ngvara ,
verða 20. þ. m. Fara þeir fram í
Tripólileikhúsinu og hefjast kl.
3,15 síðdegis. Má það teljast til
.nýlundu nú orðið, að hljómleikar
séu haldnir á venjulegum tíma. —
Aðgöngumiðar að hljómleikunum
eru seldir í bókabúðum Sigfúsar
.Eymundsen, Lárusar Blöndal og
.Helgafells.
Séra Jón Thorarensen
verður fjarverandi næstu 3
vikur.
Uppsögn kaupsamn-
inga í Hainariirði.
Clrsiéf aiisfierjarat-
kvædagreBésiu Hiífar
UNDANFARNA daga hefur
staðið yfir allherjarat-
kvæðagreiðsla í Verkamanna-
félaginu Hlíf í Hafnarfirði um
uppsögn kaupsamninga. Fóru
leikar svo, að samþykkt var
uppsögn samninganna með
yfirgnæfandi meirihluta atkv.
Allsher j aratkvæðagreiðslu
Hlífar lauk í gærkveldi og voru
atkvæði talin þegar að henni
lokinni. í atkvæðagreiðslunni
tóku þátt 283 meðlimir félags-
ins. Af þeim sögðu 231 já, en
51 nei. Einn seðill var ógildur.
Samkvæmt úrslitum þessar-
ar atkvæðagreiðslu verður því
samningum sagt upp í Hafnar-
firði, en þeir renna út 10. sept.
næstkomandi.
með fánakveðju og stóðu heið-
ursvörð, er hann gekk upp
bryggjuna. Var forseta síðan
fylgt í hús Jónasar Tóm?="
bóksala og gekk hann fram á
svalir þess. Var þar framundan
mikill mannfjöldi saman kom-
inn, sem hyllti forseta ákaft.
Er hann hafði ávarpað mann-
fjöldann söng Sunnukórinn. Að
þessu loknu ók forseti, ásamt
bæjarstjórn og sýslunefndar-
mönnunum til Birkihlíðar,
skólasels Gagnfræðaskóla ísa-
fjarðar í Tungudal. Þar voru
veitingar fram 'bornár, ræður
fluttar og ættjarðarljóð sungin.
Hannibal Valdimarsson, vara-
forseti bæjarstjórnar ávarpaði
forseta fyrir hönd bæjarstjórn-
ar, séra Jónmundur Halldórs-
son fyrir hönd Norður-ísfirð-
inga og Ólafur Ólafsson skóla-
stjóri fyrir hönd Vestur-ísfirð
inga, en Halldór Kristjánss'—>
frá Kirkjubóli flutti forseta
ljóð. fAð þessu loknu skoðaði
forseti sumarbústaðahverfi ís-
firðinga í Tunguskógi.
Mikill mannfjöldi var saman
kominn er forseti fór um borð
en þar afhentu skipasmiðir í
skipasmíðastöð Markúsar Bern
harðssonar forseta að gjöf mál-
verk af Rafnseyri, fæðingarstað
Jóns ' Sigurðssonar, eftir Jón
Hróbjartsson.
PATREKSFJÖRÐUR
Forseti sté á land á Patreks-
firði kl. 8 á mánudagskvöld.
Var kauptúnið allt fánum
skreytt er Ægir lagðist að
bryggjunni og mikill mann-
fjöldi var þar saman kominn.
Höfðu börn og skátar skipað sér
í raðir beggja vegna á bryggj-
unni, en hún var og fánum
skrýdd.
Sýslumaður Barðstrendinga,
Jóhann Skaftason ávarpaði for-
seta og bauð hann velkominn,
en mannfjöldinn heilsaði for-
seta með margföldu húrrahrópi.
Lítil frænka forsetans gekk því
næst fram og afhenti honum
blómvönd. Gekk forseti því
næst heim til sýslumanns og
hafði þar skamma viðdvöl, en
síðan hélt hann að nýju gisti-
húsi, sem verið er að reisa í
þorpinu og lagði hornstein þess.
Er það fyrsti hornsteinninn,
sem forseti íslends leggur. En
áður en forseti framkvæmdi at-
höfnina talaði sýslumaður nokk
ur orð og las m. a. það, sem
letrað hafði verið á skjal það,
sem lagt var í hornsteininn, en
þar var þess getið, að forseti
íslands hefði gert það. Er for-
seti hafði lagt hornsteininn tal-
aði hann til fólksins, en sýslu-
maður þakkaði honum. Voru
síðan ýmsir forystumenn í sýslu
og héraðsmálum kynntir for-
seta, en síðan gisti forseti heim-
ili sýslumanns enn um stund.
Að því loknu fór hann um þorp
ið og skoðaði byggingar og fyr-
ir.tæki. Heimsótti hann þá og
föðursystur sína, Júlíönu Jóns-
dóttur, sem býr á Patreksfirði
og er hún orðin 83 ára gömul.
Dvaidi hann hjá henni Um
stund, en fór svo til boðs er
sýslunefndir beggja sýslnanna
efndu til fyrir hann. Þarna sat
föðursystir forseta honum til
■ hægri handar og var hann
kypntur öllum boðsgestum.
Varaoddviti Patreksfjarðar-
hrepps, Friðþjófur Ó. Jóhanns-
son bauð forseta velkominn, en
auk hans og forseta, sem þakk-
aði, töluðu séra Sigurður Hauk-
dal prófastur í Barðastranda-
prófastsdæmi og séra Einar
Sturluson á Patreksfirði.
Klúkkan 11.30 um kvöldið
fór forseti um borð í skip sitt,
en mannfjldi fylgdi honum á
bryggju og árnaði honum allra
. heilla. Að því loknu sigldi Ægir
fram í samkomuhúsinu fram á
nótt.
Veður var dásamlega gott
glaða sólskin og steikjandi hiti.
STYKKISHÓLMUR
Forseti kom til Stykkishólms
kl. 14 í gær. Bauð sýslumaður
hann velkominn með ræðu en
forseti þakkaði.
Kl. 16 ávarpaði sýslumaður
forsetann fyrir utan sýsluskrif-
stofuna að viðstöddu miklu fjöl
menni, en síðan hélt forseti
ræðu. Um kvöldið héldu hrepps
nefnd Stykkishólmshrepps og
sýslunefndin forseta kvöld-
verðarveizlu í barnaskolanum.
Eins og áður getur varð há-
tíðahöldunum í Stykkishólmi
ekki hagað eins og ætlað var,
sökum óhagstæðs veðurs.
Skemmliför templara
Frh. af 2. síðu.
Klukkan 5 var skemmtun í
Alþýðuhúsinu með hljómleik-
um, kórsöng og upplestri
Brynjólfs Jóhannessonar. Um
kvöldið, klukkan 8 var svo
sameiginlegur þingstúkufundur
haldinn, með templurum af
Vestfjörðum og Suðurlandi. —
t Þar talaði Helgi Helgason. Á-
lyktanir í áfengismálunum
voru þar gerðar.
Klukkan 11.30 hófust dans-
skemmtanir í Alþýðuhúsinu og
í Uppsölum.
Um morguninn klukkan 5 var
lagt af stað í ágætu veðri og
haldið til Þingeyrar. Þangað
var komið klukkan 8.30, um
morguninn (á mánudág). Var
gengið um þorpið fylktu liði
með Lúðrasveit í broddi fylk-
ingar og staðnæmst við sam-
komuhúsið og haldinn þar úti-
fundur. Bauð Nathanael Móeses
son gestina velkomna, en Ein-
ar Björnsson flutti ræðu.
Frá Þingeyri var haldið af
stað klukkan 11 f. h.'áleiðis til
Reykjavíkur og var blæja logn
og glaða sólskin alla leið. T. d.
var veðrið það gott, að dansað
var mikið, þegar farin var
Látraröst. Hér úti í flóanum,
kl. 8.30 um kvöldið, söfnuðust
þátttakendurnir í förinni og
skipshöfnin saman frammi á
skipinu og ávarpaði þingtempl-
ar' skipstjóra og skipshöfn og
þakkaði þeim fyrir ágæta að-
búð og gleðiríkar samveru-
stundir. Stórtemplar þakkaði
fyrir hönd þátttakendanná
ferðanefndinni fyrir undirbún-
ing fararinnar og loks svaraði
skipstjórinn, Ásgeir Sigurðsson,
með hlýjum orðum þátttakend-
unum og kvað sér hafa verið
mikil ánægja að flytja þá — og
óskaði að lokum góðtemplurun-
um góðs gengis í störfum sín-
um.
Klukkan 9 um kvöldið hélt
Brynjólfur Jóhannesson mikla
skemmtun í reyksal skipsins
með svipuðu sniði og áður — og
var hann, að henni lokinni, á-
kaft hylltur af áheyrendum. —
Lúðrasveitin lék annað slagið
inn flóann og lauk leik sínum
með þjóðsöngnum um leið og
lagst var að bryggju klukkan
10,30, en þar var fjöldi fólks
saman kominn, til þess að taka
á móti Vesturförunum.
Þá vil ég ennfremur geta
þess, að Sigurður Guðmunds-
son ljósmyndari, sem var með
í förinni, tók kvikmynd af öllu
því markverðasta, sem í för
þessari gerðist, bæði á sjó og
landi.
Að lokum vil ég biðja Al-
þýðublaðið að flytja ferðafélög-
unum minum, samherjunum
vestra, skipstjóra og skips-
höfn kærar þakkir fyrir
ánægjulegar samverustundir í
þessari ógleymanlegu för, og
síðast en ekki sízt forstjóra
Ríkisskips, Pálma Loftssyni.
því án hans velvilja og aðstoðar
hefði þessi ágætisför ekki verið
farin.“
Oruslan m Frakkland
Frh. af 3. síðu.
sveitir Breta, Bandaríkjamanna
og Kanadamanna haldið uppi
harðri sókn og þokað Þjóðverj-
um þar aftur á bak skref fyrir
skref. Er Vire nú alveg á valdi
bandamanna og Bretar búnir að
ná austurbakka Ornéárinnar á
sitt vald á stóru svæði sunnan
við Caen.
Enn norðar og austar, suður
og suðaustur af Caen, hófu
Kanadamenn í fyrrinótt hina
grimmilegustu sókn, að undan-
genginni hrikalegri loftárás
1000 Halifax- og Lancasterflug
Harðar loftárásir ha 'a verið
gerðar á landamæralhéruð Aust
ur-.Prússlands og standa mörg
þorp þar í björtu báli; en. unn-
ið er að 'því af iÞjóðverjum nótt
og dag, að víggirða landið gegn
'hinni yfirvofandi innrás Rússa.
Inni í Varsjá berjast Pólverj-
ar og Þjóðverjar .af vaxandi
heipt, og segir í fregnum frá
herstjórn Pólverja, að Iþeir 'hafi
enn náð nýjum borgailhlutum
Frúin á leynivopnin
Frh. af 3. stðu.
í London og á Suður-Engiandi,
að þess gæti ekki orðið nema
skammt að bíða, að Bretar bæð
ust friðar!
Þá höfðu sumir þeirra enn-
fremur þá sögu að segja, að
þýzka herstjórnin hefði í fórum
sínum enn aimað leynivopn —
ósýnilegar flugvélar, sem farið
gætu árásarferðir alla leið til
Ameríku og myndu þá og þegar
hefja þær!
véla á varnarlínu Þjóðverja.
Var 6000 smálestum af sprengi
efni varpað niður á stöðvar
þeirra þar, en því næst brun-
uðu skriðdrekahersveitir Kan-
adamanna fram. Tókst þeim
þegar í gær, að komast 4—5
km. inn í virkjabelti Þjóðverja
á þessum slóðum, þótt við jarð
sprengjur og ótal hættur væri
að eiga á hverju strái.
á sitt vald, og .beiti nú fyrir sig
skriðdrekum, sem iþeir hafi
tekið herfangi af Þjóðverjum.
Suður í Galizíu og Karpata-
fjöllum gengur sókn Rússa enn
sem fyrr greiðlega. Hafa þeir
tekið bæina Saimbor og Bori-
slav suður við rætur Karpata-
fjalla, en fyrir vestan Weichsel
eiga þeir aðeins 50 km. ófarna
til Krakow.
AjjstisrvsgstöSvarnar;
Misheppnuð fiiraun Þjóðverja
v N
al brfótasl í gep frá Leltlandi
Sékn Hússa Siefur i bifii sföðvast við landa-
mæri Austur-Prússlands.
FREGNIR FRÁ MOSKVA í gærkveldi hermdu, að þýzki her-
inn, sem innlokaður er í Lettlandi og Eistlandi, hefði fyrir
tveimur dögum, byrjað áköf áhlaup um 90 km. vegarlengd suð-
austur af Riga í því skyni, nð rjúfa herkvína og' brjótast í gegn
til Austur-Prússlands. En hann hefði nú orðið frá að hverfa eftir
gífurlegt mannfall og hergagnatjón og hefðu Rússar nú hafið sókn
á þessurn slóðum og tekið Krustpils við Dvina, um það bil miðja
vegu milli Dvinsk og Riga.
Frá vígstöðvunum við landamæri Austur-Prússlands bárust
litlar fréttir í gærkveldi. Hefir Rússum lítið miðað áfram þar um
helgina. En af orustunni um Varsjá bárust þær fregnir síðast í
gærkveldi, að Rússar væru mi í úthverfum borgarmnar að austan.