Alþýðublaðið - 11.08.1944, Side 2
2 ______ ALÞYOUBLAÐIg_________________________• Föstudagtir 11. ágúst 1^4íS-
Norður- og vesturför forsetans.
^ Á myndinni sést, þegar forsetinn kemur til Sauðárkróks.
Forsetinn í hópi bama í Listigarðintim á Akureyri.
Frá komu forsetans til ísafjarðar. Försetinn ávarpar mannfjöld-
ann af svölunum á Ihúsi Jónasar Tómassonar íbóksala við Hafnarstr.
*
Sundflokkur Ægis sýn-
ir á Norður- og Aust-
urlandi.
SUNDFLOKKUR Ægis hef-
ur ferðast að undanförnu
um Norður- og Austurland og
haft sýningar á nokkrum
stöðum.
Á Akureyri sýndi flokkurinn
fyrra miðvikudag, á Litluá í
Kelduhverfi á sunnudag, í
Neskaupstað í fyrrakvöld og á
Fáskrúðsfirði í gærkveldi.
Flokkurinn hefur alls staðar
sýnt við góða aðsókn og ágæt-
ar viðtökur. Er alls staðar þar,
sem flokkurinn hefur sýnt
mikill áhugi ríkjandi fyrir
sundíþróttinni.
Sendiherra Bandaríkjanna gengur
á fund Forseta Islands
..»ii
Og afhendir honum ný embættisskilríki sín
frá Bandaríkjastjórn.
Fulltrúar íslands á
gjaldeyrisráðsfefn-
unni komnir heim.
Gefa ríkisstjórn-
inni skýrslu í dag.
Eftirfarandi tilkynning
barzt Alþýðublaðinu í
gær frá utanríkisráðu-
neytinu.
IDAG tók forseti íslands á
móti sendiherra Banda-
ríkjanna, herra Louis G. Dreyf-
us jr., í hátíðarsgl Besststaða, og
afhenti sendiherra forseta emb-
ættisskjöl sín.
Við þetta tækifæri fórust
sendiherra orð á þessa leið:
„Mér er það sérstakur heið-
ur að færa yður í dag, herra
forseti, bréf forseta Bandaríkja
Ameríku, en með því er ég
gerður sérstakur sendimaður
og ráðherra með stjórnarum-
boði hjá yður, herra forseti ís-
lands.
Þótt ég hafi eigi dvalið lengi
hér á landi, hef ég tekið eftir
hinum mikla áhuga þjóðarinn-
ar fyrir landi mínu og orðið
var þeirra óska hennar, að
lönd vor megi lifa í andrúms-
lofti eindrægni og góðvilja.
Þessi vináttuhugur er mér
mikið gleðiefni, og ég mun hlúa
að honum eftir beztu getu.
Eg vil fullvissa yður, herra
forseti, um það, að meðan ég
leysi af hendi skyldustörf emb-
ættis míns, mun ég reyna af
fremsta mætti að viðhalda og
auka á þau bönd einlægrar vin-
áttu, sem hingað til hafa ein-
kennt svo mjög samskipti landa
okkar beggja. Myndi ég telja
mér það mikið lán, ef ég gæti
á einhvern hátt átt tækifæri til
að vera til aðstoðar landi yðar
og landi mínu, þegar leysa
verður úr ótal vandamálum,
sem allar þjóðir verða að horf
!ast í augu við að stríðinu
loknu, og aftur þarf að taka |
upp friðsamleg störf. Eg trúi
því, og hygg, að þar gæti eigi
um of bjartsýni, að brátt muni
þeir tímar hefjast og að þeir 1
verði til hágsælda og farsældar
fyrir lýðveldið ísland.“
Forseti svaraði ræðu sendi-
herra með þessum orðum:
„Mér er það mikil ánægja að
veita viðtöku frá yður bréfi því
frá hæstvirtum forseta Banda-
ríkjanna, þar sem hann skipar
yður sérstakan sendimann og
ráðherra með stjórnarumboði
hjá mér sem forseta lýðveldis-
ins íslands.
Eg met mikils þessa nýju
staðfestingu á vináttu Banda-
ríkjaþjóðarinnar á þessum
merku tímamótum, er vér höf-
um endurreist lýðveldi á ís-
landi. Sú vinátta milli þjóða
vorra, sem skapast hefur og
aukist á síðustu árum, er öll-
um íslendingum mikið gleði-
| efni.
Eg get fullvissað yður um, að
sú samvinna, sem íslenzka
stjórnin hefur átt við yður
þann tíma, sem liðinn er frá
því er þér komuð hingað, hefur
verið mjög geðfelld. íslenzka
stjórnin er þess albúin að gera
það, sem í hennar valdi stend-
ur, til þess að eiga einnig fram
vegis sem bezta samvinnu við
yður og metur mikils þá hugs-
un yðar, að yður gefist tæki-
færi til að vera til aðstoðar
þjóð minni og þjóð yðar við að
mæta erfiðleikum þeim, sem
allar þjóðir hljóta að mæta í
nánustu framtíð.
Eg vona einnig, að vér get-
um innan skamms litið bjartari
tíma, og ég flyt yður beztu
ámaðaróskir til handa Banda
Ftfc. á 7. «íöa
íslendingurinn í inn-
rásinni „varð fyrir
happi!"
INS og kunnugt er, er
Þorsteinn, sonur Snæ-
bjarnar Jónssonar bóksala í
brezka flughemum.
Berst hann nú með innrás-
arflughernum í Frakklandi.
I bréfi, sem hann sendi ný-
lega heim segir hann meðal
annars:
„. . . . Ég varð fyrir dá-
litlu happi núna á dögunum.
Einn af þessum fágætu hóp-
um af þýzkum orrustuflug-
vélum varð á leið minni, og
eftir nokkra viðureign tókst
mér að ráða niðurlögum
tvéggja þeirra...“
U ULLTRÚAR ÍSLANDS
á gjaldeyrisráðstefnunní
í Bandaríkjunum, Magnús
Sigurðsson, bankastjóri, sem
var förmaður' íslenzku nefnd-
arinnar, Ásgeir Ásgeirsson,
barikastjóri og Sveinbjöm
Frímannsson formaður Við-
skiptaráðs komu hingað heim.
í fyrrinótt.
Ennfremur komu heim ung-
frú Marta Thors, sem var ritari
nefndarinnar og Jóhannes
Bjarnason landbúnaðarverk-
fræðingur.
Ásgeir Ásgeirsson sagði í við
tali við Alþýðublaðið. í gær.
,,Ég get ekki gefið upplýsing
atr um störf gjaldeyrisráðstefn-
unnar að svo stöddu. Við mun-
um að likindum ræða við ríkis-
stjórnina á morgun um störf
ráðstef nunnar.
Ráðstefnan var haldin í Brett
on Woods í New Hampshire-
fylgi. Sátu hana rúmlega 600
fulltrúar frá 44 ríkjum og stoð
hún í rúmár 3 vikur. Gott sam-'
Frs. á 7. sfðu.
Kommúnisfar viðurkenna Falkur-
úfgerð sína
Lestum skipsins var breytt hér, til þess að
auka lestarrúmið fram yfir raunverulegt
burðarmagn skipsins.
LAÐ KOMMÚNISTA
. viðurkennir í fyrra dag
„Falkur“-útgerðina, er skýrt
var frá hér í blaðinu á sunnu
dag. Vill blaðið þó ekki viður-
kenna að það sé sjálfur flokk
urinn, sem gerir skipið út og
hirðir gróðann af siglingum
þess, en segir að það séu að-
eins þeir þingmennirnir Sig-
urður Thoroddsen og' Áki
Jakobsson að viðbættum
, Steinþóri Guðmundssyni, for
manni húsbrasksfirmans Mið
garðs og bæjarfullirúa komm
únista, sem beri allan veg og
vanda af þessari fyrirmynd-
arútgerð.
Það er rétt hjá blaðinu, að
þessir þrír menn skipa stjórn
þessarar fyrirmyndarútgerðar,
en þeir ísleifur Högnason for-
stjóri KRON og Björn Bjarna-
son bæjarfulltrúi taka þátt í
henni. Það er hins vegar með
ráðum gert að þvo flokkinn
sjálfan af útgerðinni, enda þann
ig til stofnað og ástæðan fyrir
því að ísleifur er sagður hvergi
nærri koma og Björn vera al-
veg hreinn, er sú, að ísleifur er
forstjóri stærsta neytendafélags
skaparins í Reykjavík, en Björn
formaður félags iðnverkafólks.
Hinir þrír eru þekktir af margs
konar braski, setuliðsspekúla-
sjónum, húsabraski, síldarmál-
um og útgerðarbraski.
Þjóðviljinn fullyrðir að „Falk
ur“ sé mjög fullkomið skip, en
sjómenn, sem hafa skoðað það
segja annað, og það, sem Þjóð-
viljinn hefir til þessa sagt um
þessi mál, gefur ekki ástæðu til
þess að taka tal hans alvarlegar
en reyndra sjómanna. Það er
auðfundið á Þjóðviljar>lim aö
kommúnistum er illa við þetta
mál. Þeir hafa allt í einu orðið
fyrir því að þeir væru teknir á
orðinu eftir allt geypið um ör-
iggismál sjómanna, bæði í
bundnu og ó'bundnu máli, og þá
ekki siður um hinn svívirðilega
gróða útgerðarmanna, sem rök
uðu að sér f émeð því að reka
sjómennina út á hripleka dalla.
„Falkur,“ hinn færeyski,
eign kommúnistaflokksins og
mjólkurkýr hans og brauðgjafi,
er nú einhvers staðar úti í
hafsauga með 10 færeyska sjó
menn og fullar lestar, sem voru
stækkaðar hér í Hafnarfirði tií
þess að hægt væri að hlaða.
hann enn meira en burðarmagn,
hans í raun og veru leyfir. En
hér heima sitja þeir Brynjólfur
og Thoroddsen, Áki og aðrir og
bíða eftir gróðanum. Það er
gott að láta aðra vinna fyrir
sér, því að ekki munu færeysku
sjómennirnir fá hærra kaup en
íslenzkir sjómenn fá hjá 'hin-
um slæmu útgerðarburgeisum
ihaldsins. Þessir höfuðpaurar
hafa líka svo mikið að gera í
landi! Þeir ætla sér að bjarga
þjuðinni! Það er billegra að
bjarga fienni með þeirri aðferð
inni sem þessir herrar hafa en
sjómennirnir, er sigla um höfin
með sprungna ulnliði og
færa þjóðinni björgina. Sjó-
mennirnir bafa heldur ekki ráð
á því að steyta sig eins óg þessir
herrar gera. Þeir hafa öðruna
hnöppum að hneppa.
Frb. á 7. úðw.