Alþýðublaðið - 11.08.1944, Blaðsíða 3
FRANC
Brest
\-Qjf
Mans
Rennes
Lorient
^,st. m
Nazaire
ours
Nante
j Poiíier
Rochefort,
Limöges
ordeaux
Bayotine'
Santander
Toulouso;
Bilbao!
SPAIN'
ofiístudagur 11. ágúst 1944
Sdknln I Frakktandi:
Hvað skyldu þeir vera að brugga!
Myndin sýnir Mac Arthur, yfirhershöfðingja Roosevelts í stríð-
inu gegn Japönum, og Nimitz, yfirmann Kyrrahafsflotans amer-
íska með Kyrrahafskortið fyrir framan sig.
Roosevelt á mikilvægri herforingja-
ráðsíefnu í Pearl Harbor á Hawai.
• i — i
Sóknin gegn Japönum heldur áfram þar til
þesr gefasf upp skilyrðislausf, segir hann.
----—-♦*-------
í-j AÐ var tilkynnt í Washington í gær, að Roosevélt hefði
^ 'þrjá undanfama daga verið á ráðstefnu í Pearl Har-
bor á Hawai með herforingjum sínum og flotaforingjum
á Kyrrahafi.
Meðal þeirra, sem þátt tókú í ráðstefnunni, eru nefndir Mac-
Arthur yfirmaður Bandaríkjahersins í Kyrrahafsstyrjöldinni,
flotaforingjamir Nimitz og Halsey, og Leahy flotaforingi,
yfirmaður herforingjaráðs Roosevelts. i
inn í Nanfes og Angers.
fai Brest og Lorient og
iiorður í Mérmandie.
O KRIÐDREKASVEITIR BANDARÍKJAHERSINS voru
Ls síðdegis í gær komnar suður að Loirfefljóti í Frakk-
landi á breiðu svæði milli borganna Nantes, sem stendur
um 45 km. frá Loireósum, og Angers, sem er um 50 km.
lengra inni í landi. Seint í gærkveldi var sagt í fregnum
frá London, að Bandaríkjaherinn væri kominn inn í báðar
bessar borgir,
Frá sókn þeirra brynvagnasveita Bandaríkjamanna,
sem tóku Le Mans á leiðinni til Parisar í fyrradag, bárust
engar fréttir í gær,1 en talið var víst, að þær héldu sókninni
þaðan áfram í austurátt af fullum krafti, þó að ekkert væri
látið uppi um hana i ’bili.
SFrækilegl afrek norskr
ar flugsveitar.
Skaut EiiSur þrjár
þýzkar flugvélar,
missti sjálf enga.
FREGN frá London í gær til
norska blaðafulltrúans í
Reykjavík segir, að sam-
kvæmt opinberri tilkynningu
hafi hin fræga, norska orustu-
flugvélasveit, sem starfar í
sambandi við Royal Air For-
ce, skotið niður þrjár þýzkai
orustuflugvélar í lok vikunn-
ar, sem leið, án þess að missa
nokkra flugvél sjálf. Þar með
©r þessi flugsveit Norðmanna
búin að skjpta niður samtals
94 þýzkra flugvélar.
Hin opinbera tilkynning' seg-
ir þannig frá viðureigninni við
hinar þýzku flugvélar: Norsku
fkigvélarnar voru í fylgd með
brezkum Lancasterflugvélum,
sem ætluðu að gera árás á um-
hverfi Parísar, en lentu í þykk-
um skýjabakka á leiðinni. For-
fngi nonsku flúgsveitarinnar
segir: Ég var hér um bil búinn
að ráða það við mig að snúa
við, en hugsaði, að réttara væri
að sjá, hverju fram yndi. Sum
ir okkar böfðu ekki séð þýzkar
orustuflugvélar síðan í lok
fyrra mánaðar, og okkur lang-
aði til að komast í kast við
þær. Og þá skipti það ekki
nokkrum togum, að við lcom-
um auga á 40—50 þýzkar flug-
vélar, ,sem voru í skjóli skýja-
bakkahs í þann veginn að ráðast
á sprengjuflugvélar Breta. Vit
anlega lögðum við þegar til
orustu og tókst að koma Þjóð
verjunum alveg á óvart; og þó
að þýzku fiugvélarnar væru fer
fallt fleiri en okkar tókst okkur
að skjóta þrjár þeirra niður.
Allar norsku flugvélarnar komu
:úr orustunni heilar á húfi.
Þrálálir bardagar við
laadamæri Austur-
Prússlands.
'Sékn Hússa til Riga
miðar veS áfram.
Oagnáhlaup Þjóðverja
halda áfram við landa-
Anæri Austur-I*rdsslands að
aústan, samkvæmt fregnum frá
London í gærkveldi, en þeim
hefur verið hrundið af Rússum
Norður í Lettlandi hefur
Rússum miðað vel áfram niður
með Dvinafljóíi og þteir tekið
Jakohsstadt, sem er um það bi
miðja vegu milli Krustpils og
Riga.
Sókn Rússa í Póllandi, milli
Siedlce og Bialystok heldur á-
fram, en við Varsjá virðist í
foili vera kyrrstaða. Og frá Pól
verjum, sem berjast inni í
borginni berast þær fréttir, að
]>eir hafi sums staðar orðið að
liörfa úr borgarhlutum, sem
þeir voru búnir að taka;; þó
hafa þeir enn ráðhús borgar-
innar á valdi sínu.
Talið er að ráðstefna þess
hafi tekið hinar mikilvægustu
ákvarðanir um hernaðinn gegn
Japan og er það meðal annars
látið opinberlega uppi, að áætl-
anir hafi verið gerðar um það
hvernig ná skuli Filippeyjum
aftur úr höndum Japana.
Roosevelt sagði við blaða-
menn á eftir ráðstefnunni, * að
ekki myndi verða staðar num-
ið í sókninni gegn Japönum
fyrr en þeir hefðu gefizt upp
skilyrðislaust.
Ný amerísk loftárás
á Japan í gær.
Ráöist á Nagasaki
/A.TÓR amerísk flugvirki af
nýjustu gerð gerðu mikla
loftárás á iðnaðarhorgina Na-
gasaki í Japan í gær. Fóru þau,
til árásarinnar frá flugvölliun í
Kína.
Er þetta önnur loftárás
Bandaríkjamanna á Japan á '
þessu sumrí; sú fyrri var gerð
á stáliðnaðarborgina Yawata.
Kveðja irá norsku
heimavígsWSvunum
til danska frelsis-
ráðsins.
C5 REGN frá London til
norska blaðafulltrúans í
Reykjavík hermir, að Trygve
Lie utanríkismálaráðherra
norsku stjórnarinnar hafi í
bréfi til Christmas Möllers, for
rnann danska frelsisráðsins, til
kynnt honum, að yfirstjórnin
á heimavígstöðvunum í Noregi
hefði beðið norsku stjórnina að
færa danska frelsisráðinu svo-
fellda kveðju:
„Yfirstjórnin á norsku heima
vígstöðvunum sendir danska
frelsisráðinu- hlýjar hamingju-
óskir í tilefni af þeim sigri, sem
danska þjóðin hefir unnið í bar
áttunni við hinn sameiginlega ó
vin. Ein® og danska þjóðin bíð-
um vér, í hinum hertekna Nor-
egi, þess dags með óþreyju, en
Frh. á 7. síðu
Nantes er langstærsta horg-
in, sem innrásarher banda-
V
manna hefur hrotizt inn í
hingað til; hún hafði um 200-
000 íbúa fyrir stríðið. Hún er
líka hernaðarlega mjög mikil-
væg, hergagnaiðnaður þar mik
Íll og jámbrautir í allar áttir:
til St. Nazaire niðri við ósa
Loire, suður alla Atlantshafs-
strönd Frakklands, upp með
Loire til Angers, Tours og Or-
leans, norðaustur til Parísar,
um Le Mans, og norður til
Rennes.
Vestur á Bretagneskaga er
harizt enn um Brest og Lori-
ent, en báðar borgirnar er nú
algérlega umkringdar með því,
að Bandaríkjamenn eru komn-
ir til sjávar háðum megin við
þær. Sama er að segja um
St. Nazaire; en þessar þrjár
horgir hafa verið þýðingar-
mestu kafhátabækistöðvar
Þjóðverja við Atlantshaf.
f St. Malo hafa Bandaríkja-
menn tekið 3000 Þjóðverja til
fanga. Er sagt, að þýzku her-
Prh. á 7. síðu.
Atlantshatsslrönd Frakfclands.
Efst a myndinni sést Bretagneskaginn meö St. Malo, sem Banda-
, t
ríkjamenn toku í fyrradag, og Brest og Lorient, sem enn er bar-
izt.um. Ofarlega til hægri sést Loirefljót, sem Bandaríkjamenn
> eru komnir suður að á á breiðu svæði mil'li Angers og Nantes,
seim þeir burtust inní í gær, og kafbátahöfnina 'St. Nazaire, sem
þeir eru á næstu grösum við. Efst til Íiægri sést Le Mans, sem
Bandaríkjamenn tóku í fyrradag, en þar eru þeir komnir lengst
í sókninni inn í land, til Parísar.