Alþýðublaðið - 15.08.1944, Síða 2
Þriðjadagur 15. ágúst. 1944.
Tekur Reykjavíkurbær rekstur
strælisva
Forseta ísiands vel
fagnað í Yedmauna
eyjum og á Ausfur-
landi
FORSETI ÍSLANDS hefur
nú heimsótt Vestmanna-
eyjar, Neskaupstað og Seyðis-
fjörð. — í gær mun hann hafa
verið að Egilsstöðum og á
Eskifirðj, en hann mun koma
til Reykjavíkur á fimmtudag.
Forseti íslands kom til
Vestmannaeyja s.l. laugardag
kl. 11 árd. Sigfús Johnsen
bæjarfógeti og Hinrik Jónsson
bæjarstjóri buðu forseta vel-
kominn, en hann svaraði með
stuttri ræðu. Forseti snæddi
hádegisverð í samkomuhúsi
bæjarins. Voru þar ræður
fluttar, en að borðhaldi loknu
hélt forseti ræðu af svölum
samkomuhússins fyrir miklum
mannfjölda, er þar hafði safn-
azt saman. Var þá haldið inn
í Herjólfsdal og þar sýnt
bjargsig.
Vestmannaeyjar voru fán-
um skrýddar, bæði hús og bát-
ar, en er forseti fór til skips
fylgdi honum mikill mann-
fjöldi og kvaddi hann með
söng og húrrahrópum.
Forseti íslands kom til
Norðfjarðar sunnudaginn 13.
ágúst kl. 14. Norðfjarðarbátar
höfðu siglt fánum skreyttir
móts við Ægi. Á bryggjunni
tók bæjarfógeti á móti forseta
með ræðu, og var síðan geng-
Frh. á 7. síðu.
Samningar sfanda yfir miili forráðamanna
bæjarins og Sfræfisvagnafélagsins
SAMNINGAR hafa undanfarið staðið milli borgarstjóra
annars vegar og forstjóra Strætisvagna Reykjavíkur
h. f. hins vegar um að Reykjavíkurbær yfirtaki eða kaupi
Strætisvagna Reykjavíkur h. f. og eignir félagsins og taki
við rekstri almenningsvagnanna.
Talið er Iíklegt að samningar takist innan skamms og mim
Reykjavikurbær taka við rekstri vagnanna innan ekki langs
tíma.
Fimm menn
fyrlr smáafbroi
\ -------------
SAKADÓM'ARI hefir nýlega
bveðið upp dóm ytfir nokkr-
um mönnum, sem framið höfðu
smáafbrot.
Einn var dæmdur í 8 mánaða
fan.gelsi og sviftur kosningarétti
og kjörgengi fyrir að stela úr
vasa ölvaðs manns, var þetta
ítrekað brot.
Annar var dæmdur í 60 daga
fangelsi fyrir að stela fatnaði úr
stoífu.
íÞriðji var dæmdur í 40 daga
Jangelsi fyrir að stela peningum
frá manni á veitingastað.
Fjórði var dæmdur í 60 daga
varðhald Æyrir að stela hjóibarða
og felgu úr óluktri kistu á bif-
reið. Sá fimmti var dæmdur í
60 daga fangelsi fyrir að stela
drifi úr bifreið.
Allir voru og sviftir kosninga
rétti og kjörgengi.
Við fáum ekki nærri nóg af gúmmí-
skófatnaði til aðjjppfylla þarfirnar
Þröng og ólæfi við dyr skóverzlananna, sem
fá aðeins mjög lítfð af þessari nauðsynjavöru
“*C /
VarEa mögulegt aS taka upp skömmtun
SVO MIKIL vandræði eru orðin út úr skorti á gúmmí-
skófatnaði á börn og kvenfólk að fjöldi heimila eru
í mestu neyð út úr þessu. Hefir þetta komið áþreifanlega í
ljós undanfarna daga, en undanfarið hefir komið svolítið
af slíkum skófatnaði í skóverzlanir.
Það hafði vitnazt út um bæ-
inn að þessi skófatnaður væri
væntanlegur 1 búðirnar og kon-
ur hafa því flykkzt að dyrum
þeirra löngu fyrir opnunartíma
á morgnana. Svo mikil þröng
hefur verið að lestin' hefur stað-
ið langt út á götur og kveðja
hefur orðið lögregluþjóna til að
stoðar og hjálpar við dyr verzl-
ananna og inni í þeim, en það
hefur lítið stoðað og margir
hafa fallið í yfirlið og orðið
veikir á annan hátt.
Fólk talar mikið um þetta
um þessar mundir og telja all-
ir nauðsyn á þvi að tekin sé
upp skömmtun á öllum skófatn
aði.
Alþýðublaðið sneri sér í gær
til forstöðúmanns skömmtunar-
skrifstofu ríkisins og ræddi við
hann um þetta mál.
Hann sagði: Okkur er þetta
mál Ij'óst, en við sjáúm ekki
möguleika til þess að taka upp
skömmtun á þessum skófatn-
aði, en skömmtun er á stærri
gúmmístígvélum, til dæmis fyr-
ir sjómenn. Ástæðan fyrir þess-
um vandræðum er sú, að við
getum ekki fengið keypt erlend
is nándar nærri nóg til þess að
uppfylla þarfir fólksins. Það,
sem fæst er aðeins örlítill hluti
af því sem við þurfum. Ef t-ek-
in væri upp skömmtun yrði
mikill hluti skömmtunarseðl-
anna eða leyfanna algerlega ó-
merkur. Fólk fengi ekki út á
leyfin, eingöngu vegna þess að
varan er ekki til. Við vitum að
sagt er, að einstaka maður geti
kannske komist að og náð í jafn
vel meira en hann hefur bein-
línis þörf fyrir, en við sjáum
ekki lausn á þessu. Þetta sagði
forstöðumaðurinn.
Það er rétt, að konur, sem
Prh. 6 7. sí®u.
Fyrir alllöngu ritaði stjórn
Strætisvagnafélagsins bæjar-
ráði bréf, þar sem hún fór
fram á að fá yfirlýsingu frá
hendi bæjarins um að bærinn
myndi ekki yfirtaka rekstur
almenningsvagnanna í bæn-
um í næstu 10 ár. Taldi félag-
ið nauðsynlegt fvrir sig að fá
þessa yfirlýsingu vegna margs
konar framkvæmda, sem það
hefði í hyggju, pantana á nýj-
um vögnum, húsabygginga og
fleiru. Að öðrum kosti taldi fé-
lagið sig fúst til að semja við
Reykjavíkurbæ um sölu á
vögnunum og öðrum eignum
félagsins.
Bæjarráð gaf lengi engin
svör — og ítrekaði félagið þó
málaleitun sína.
En fyrir tæpum mánuði
munu viðræður hafa, byrjað um
málið milli forustumanna fé-
lagsins og bæjarins og bæjar-
ráð mun hafa rætt um málið á
tveimur síðustu fundum sín-
um, en án þess þó að nokkrar
ákvarðanir væru teknar.
Nú mun hins vegar hafa
komist nýr skriður á þetta
mál.
Eins og kunnugt er hafa
bifreiðastjórar Strætisvagnafé-
lagsins sagt upp störfum sín-
um hjá félaginu frá og með 20.
þessa mánaðar. Munu samn-
ingar um kaup þeirra og kjör
hafa staðið yfir í gær.
Það mun þykja miklum tíð-
indum sæta, ef Reykjavíkur-
bær tekur í sínar hendur
rekstur almenningsvagnanna.
Það er gamalt og nýtt bar-
áttumál Alþýðuflokksins, enda
mælir allt með því að’hann
geri það, ef hann kemst að
sæmilegum kjörum í samning-
unum um kaup á eignum
Strætisvagnafélagsins.
Maður ræðsf á
sextuga konu
Dæmdiusr í 4
fangeBsi éskilerðs-
bundið
FYRIR NOKKRU réðist ölv-
aður hér í bænum í eld-
hús, þar sem sextug kona stóð
við þvottabalann og var að þvo.
Maður þessi var tæplega fer-
tugur að aldri, þekkti konuna
ekki neitt og var allsendis ó-
kunnugur í húsinu.
Réðist hann á konuna, skellti
henni í gólfið og reif utan af
henni fötin. Konan fékk tauga-
áfall vegna þessarar hrottalegu'
árásar, en henni var bjargað
úr klóm hins ölvaða manns.
Sakadómari hefur kveðið
upp dómi yfir manninum. Var
hann dæmdur í 4 mánaða fang-
elsi óskilorðsbundið.
SÍLDVEIÐIN:
Hæsfu báfar hjá Ríkisverk-
smiðjunum hafa 7300 mál
En síldveiðin hefur verið Ireg
-----------------------
ASTÆDAN fyrir því að blöð hafa lítið skýrt frá síldar-
aflanum, er sá að af ýmsum ástæðum er talið að ekki
sé heppilegt að skýra frá síldarmagninu frá degi til dags.
í sumar hefir síldin verið allmiklu tregari en undanfarin
sumur, en þó er allmikil veiði komin á land. Hefir síldin
reynst vel feit, sérstaklega sú, sem veiðst hefir á Húnaflóa
og er síldarsöltun byrjuð fyrir nokkru. Hæstu skipin, sem Iagt
hafa afla sinn upp í Síldarverksmiðjur ríkisins eru „Sigur-
fari“ með 7.300 mál, Traústi (G. K.) með 7.200 mál og „Ás-
geir“ (R. E.) með 7000 mál. — Línuveiðarinn Freyja legg-
ur upp hjá Djúpavík og hefir Freyja fengið rúmlega 12500
mál.
Aftalhluti meistaramóts Í.S.Í.:
Ný Islandsmef voru sett í hástökki, lang
stökki og kringlukasti beggja handa
Mefhafarnir eru Skúll Guðmundsson, OJiver
Sfeinn og Gunnar Huseby
Einnig var sett tvöfalt drengjamet
í stangarstökki
AÐALHLUTI meistaramóts í. S. í. var haldinn á íþrótta-
vellinum hér í Rvík á laugardag og sunnudag. Þrjú ný ís-
landsmet voru sett á mótinu, í hástökki, langstökki og beggja
handa kringlukasti, sva og tvöfalt drengjamet og tvö Aust-
fjarðamet. Skúli Guðmundsson, K. R. setti met í hástökki,
stökk 1.94 m., Oliver Steinn, F. H., í langstökki, stökk 7.08
m., Gunnar Huseby, K. R., í kringlukasti heggja handa,
kastaði 73.34 m. og Torfi Bryngeirsson, K. V. og ÞorkeH
Jóhannesson, F. H. í stangarstökki, stukku 3.40 metra
Skráðir voru til leiks á móti þessu 67 keppendur frá sjö
íþróttafélölgum og samböndum og voru 20 þeirra utan af'
landi.
Úrslit í einstökum fþrótta- Steinarr Þorfinnss. 17:12.6 mín.
greinum urðu sem hér segir: Indriði Jónss., K.R. 17:35.0 mínv
800 metra hlaup-.
Kjartan Jóhss., í. R. 2:2.5 mín.
Brynj. Ingólfss., K. R. 2:5.5 mín.
Hörður Hafliðas., Á. 2:7.3 mín.
200 metra hlaup.
Finnbj. Þorvaldss. Í.R. 23.5 sek.
G. Þormar, U. í. A. 24.4 sek.
Árni Kjartansson, Á. 24.6 sek.
Kúluvarp.
Gunnar Huseby, K. R. 15.40 m.
Jóel Kr. Sig., í. R. 13.55 m.
Þorv. Árnason, U. I. A. 13.01 m.
Hástökk.
Slcúli Guðm., K. R. 1.94 m.
Jón Ólafsson, U. í. A. 1.75 m.
Jón Kjartar, K. R. 1.65 m.
É
Afrek Skúla Guðmund----------
er nýtt ísiandsmet, en hið fyrra,
sem var 1.93 metrar átti hann
sjálfur, hafði sett það hinn 18.
júní s. 1.
5000 metra hlaup.
Óskar Jónss., í. R. 17:3.$ mín.
Lanqstökk. >
Oliver Steinn, F. H. 7.08. m.
Skúli Guðmundss., K. R. 6.63 m.
Magnús Baldvinss., í. R. 6.54 m.
Afrek Olivers Steins er nýtt
íslandsmet, hið fyrra, sem var
6.86 m. átti hann sjálfur, hafðí
sett það á allsherjarmótmu
hinn 10. júlí s. 1.
Spjótkast.
Jón Hjartar, K. R. 50.95 m..
Tómas Árnas., U. í. A. 49,68 m.
Jóel Kr. Sig., í. R. 48.83 m.
1500 metra hlaup.
Óskar Jónss,, í. R. 4:20.2 mín.
Hörður Iiafliðas., Á. 4:21.2 m„
Indriði Jónss., K. R. 4.29.2 mín.
Kringlukast.
Gunnar Huseby, K. R. 43.20 m.
Ólafur Guðm., í. R. 38.81 m.
Bragi Friðrikss., K. R. 37.89 m.
Gunnar setti met í kringlu-
kasti beggja handa, kastaðí
Fsh. á 7. sfitau