Alþýðublaðið - 15.08.1944, Qupperneq 7
Þriðjudagur 15. ágúst. 1944.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Bœrinn í daft
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki
Næturakstur annast Litla bíla-
stöðin, sími 1380.
ÚTVARPIÐ:
12.10-—13.00 Hádegisútvarp .
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Lög úr óper-
ettum og tónfilmum.
20.00 Préttir.
20.30 Erindi: Barátta Germana og
Slava um Evrópu, II. (Sverr
ir Kristjánsson sagnfræðing
ur).
20.55 Einsöngur (frú Sigríður Sig
urðardöttir frá Akranesi):
a) Dalvísur eftir Árna Thor
steinsson. b) „Ljúfur óm-
ur“ eftir Bortniansky. (c
,,Þú ert móðir vor kær“ eft-
ir Lange-Möller. d) Lof-
söngur eftir Beethoven.
21.10 Hljómplötur: a) Klarinett-
kvintett eftir Holbrook. b)
kirkjutónlist.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Leikir þriðja flokksmótsins,
sem byrja áttu í gærkveldi, var
frestað af sérstökum ástæðum, en
fara fram á fimmtudagskvöldið kl.
7.30. Leika þá Fram og Víkingur
og KR ogiValur.
Lagfæring.
Eins og prófarkalestur á íslenzk
um bllöðum gerist nú á dögum,
væri fráleitt sanngjarnt að fást um
prentvillurnar í grein minni hér í
blaðinu á laugardaginn. En marg-
ar voru þær. Tvær eru svo þkað-
legar að ég get ekki látið þær ó-
lagfærðar. I Ameríku er bókaút-
gáfa ennþá svo mikil að varla væri
umkvörtunarefni þó að við fengj-
um ekki nema aðra hvora bók, er
prentuð er. Ég hafði skrifað
pöntuð, ekki prentuð. Líka hafði
ég skrifað, að það væri ekki ólík-
legt, að Ameríka sæi brýnni þörf
annars staðar en hér, þegar loks
verður unnt að hjálpa hinum kúg-
uðu þjóðum. Þessu var snúið við,
og ég látinn segja hið gagnstæða.
Sn. J.
Sextíu ára afmæli
á í dag, 15. ágúst, Árni Magnús-
son, Fríkirkjuvörður, Freyjugötu
25 E.
Agúsf Jósefsson sjöfugur
Kominn heim
Karl Jónsson
læknir.
I
Plastic-vörur:
Ávaxtahnífar 1,25
Smjörhnífar 1,25
Kökuhnífar 3,25
Tertuspaðar 4,00
Kökuspaðar 3,25
Salatsett 1 ; 3,25
Tesíur 1,25
K. Einarsson
& Björnsson ■
AGÚST .J ÓSEFSSCXN heil
brigðisfulltrúi varð sjö-
tugur í gær. Hami er einn af
þekktustu hrautryðjenduni
alþýðuthreyfingarinnar hér í
bænum og var um áratuga
skeið'í fremstu röð forystu-
manna hennar. Sat hann í
bæjarstjórn Reykjavíkur sem
fulítnúi Aiþýðuflokksins í 16
ár og var kosinn bæjarfuli-
trúi fyrstur ailra Alþýðu-
flokksmahna. Hann gekk í
prentarafélagið árið 1905 er
hann kom heim að afloknu
prentnámi í Danmörku, 1907
gekk hann í Dagsbrún og í
báðum. þessum félögum var
hann í fremstu röð í fjölda
ár og gengdi í þeim báðum
belstu trúnaðarstöðum. Hann
átti sæti á sambandslþingum
frá því fyrsta og þar til fyrir
nokkrum lárum, í Fulitrúaróði
verikálýðsfélagan.na var hann
Dg í stjórn Allþýðusamibands-
ins átti hann sæti mjög lengi.
Ágúst Jósefsson er fæddur að
Belgstöðum á Akranesi, en ár-
ið 1880 fluttist hann hingað til»
Reykjavíkur og vann ihér al-
genga verkamannavinnu. Um
skeið starfaði hánn við Hótel ís-
land, en 1890 byrjaði hann að
læra prentiðn. 5 árum síðar fór ,
hann svo til framíhaldsnáms til !
KaUpimannahafnar og þar drakk I
hann í sig hugsjónir jafnaðar- !
stefnunnar, sem þá voru að
ryðja sér til rúms í Danmörku,
en prentarastéttin ihefir alla tíð
verið ein af helstu forvígisstétt-
um þeirra hugsjóna. Árið 1918
lét hann af störfum sem prent-
ari og var þá skipaður heilbrigð
-isfulltrúi í Reýkjavík og því
starfi gegnir hann enn. Það ár
vann hann störf sem lengi eru
í minnum höfð, en þá var hanh
bjargvættur og hjálparhella
mikils fjölda sjúklinga, sem
tóku spönsku veikina.
Eins 'Og að líkum lætur hefir
Ágúst Jósefsson komið mjög við
sögu allra þeirra mála sem snert
hafa alþýðuhreyfinguna. Hefir
hann til dæmis næstum frá
fyrstu tíð átt sæti í stjórn Al-
þýðuíbrauðgerðarinnar og einn-
ig í stjórn Stórafejóðs, .slysasjóðs
verkalýðsféiaganná, sem þús-
undir verkamanna hér í ,bænum
hafa notið góðs af.
Það getur engum til hugar
komið, se'm sér Agúst Jósefsson
að þar sé á ferðinni sj'ötugur
maður, gvo léttur er hann á fæti
og unglegur. Hann er og allt af
glaður og kátur og hróku-r alls.
fagnaðar, en slíkir menn eldast
oftast vel. Hann er enn i fullu
fjöri og prýðilega starfshæfur,
enda gengur hann daglega að
störfum sínum eins og ungur
væri.
Það mun og vera óhætt að
segja að leitun mun vera á
manni sem nýtur jafn óskoraðs
trausts og álits samverkamanna
sin'na og hann og hefir hann þó
til dæmis haft samstarf við mik
inn f jölda verkamanna á úrnliðn
um áruim. Það var og einmitt
þetta sem á sínum tíma, iþegar
alþýðuhreyfingin átti erfiðast
uppdráttar, gerði ’hann að sjálf-
kjörnuim forystumanni -— og þó
að gagnrýni dyndi oft í þá daga
á forystúmönnunum ekki síður
en nú, iþá tók Ágúst henni með
glöðu 'brosi og vinsemd, svo að
gagnrýnin Ihjaðnaði eins og dögg
fyrir sólu.
Allþýðan í Reykjavik á Ágústi
Jósefssyni mikið að Iþakka —
Hún er heldur ekki búin að
gleyma því.
Allir vinir Ágústs Jósefsson-
ar og samverkaimenn óska hon-
um ihjartanlega til hamingju
með afmæli hans og þakka hon-
um allf sem hann hefir unnið
fyrir samferðamenn sína.
VSV.
Ágúst Jósefsson.
Meisfsramóf f.S.L
Framhald af 2. síðu
kringlunni þannig 73.34 m.
Fyrra metið, sem Gunnar átti
einnig, var 71.11 m., sett í fyrra.
100 metra hlaup.
Finnbjörn Þorv., í. R. 11:3 sek.
Oliver Steinn, F. IJ. 11.4 sek.
110 metra grindahlaup.
Skúli Guðm., K. R. 17.4 sek.
Brynj. Jónss., K. R. 19.7 sek.
' . . " '\ : • • ' ' ;
Sleggjukast. ’
Gunnar Huseby, K. R. 36.83 m.
Símon Waagf jörð K. V. 35.31 m.
Helgi Guðm., K. R. 35.10 m.
Stangarstökk.
Guðjón Magnúss., K. V. 3.40 m.
Torfi Bryngeirss., K. V. 3.40 m.
Þork. Jóhanness., F. H. 3.40 m.
Afrek þeirra Torfa og Þorr
kels eru nýtt drengjamet.
Fyrra drengjametið var 3.33
m., sett af Torfa á þjóðhátíð
Vestmannaeyja í byrjun þessa
mánaðar.
400 metra hlaup.
Kjartan Jöh.„ Í. R. 52.3 sek.
Brynj. Ingólfss., K. R. 53.5 sek.
Árni Kjartansson, Á. 54.9 sek.
Tími Kjartans er hinn sami
og mettimi hans frá því á alls-
herjarmótinu 12. júlí s. 1.
Þrístökk.
Skúli Guðm., K. R' 13.61 m.
Jón Hjartar,' K. R. 13.39 m.
Halld. Sigurgeirss., Á. 12.62 m.
Áður hafði verið keppt í boð-
hlaupum og fimmtarbraut. K.
R. vann boðhlaupin og Jón
Hjartar, K. R. firnm+—
ina. Éftir er að keppa í tíu kíló-
metra hlaupi og tugþraut, en
þær keppnir fara fram n. k.
mánudagskvöld og þriðiudass-
kvöld. K. R. hefir að loknum
þessuin aðalhluta meist?’--
ins fengið tíu meistara, í. R.
sex, og F. II. og K. V. einn
hvort. GJímuíelagið Ármann
hafði stjórn mótsins á hendi.
Mikill fjöldi áhorfenda sótti
mótið báða dagana.
Feiðafélag: fslands
biður pátttakendur í 8 daga ferð
inni vestur á Breiðafjörð og Barða
strandasýslu um að taka farmiða
fyrir kl. 6 þriðjudaginn 15. þ. m.
í skrifstofunni Túngötu 5, verða
annars seldir þeim næstu á bið-
lista.
Föðursystir mín,
Ænbnía Jónsdóttir,
sem' lézt 7. þ. m., verður jarðsungin fimmtudaginn 17. þ. m.
Jarðarförin hefst kl. 1 frá heimili hennar, Njálsgötu 76. Athöfn-
inni í kirkjunni verður útvarpað.
F. h. ættingja.
Sigríður Valdemarsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
öiafs Pétyrs Svelnssonar.
Vandamenn.
verða Þvottalaugarnar lokaðar frá miðvikudeginum
16. ágúst og út vikuna.
‘ \ ' 'v ' ' ’’ w ’ '"’W* *”"**''*• '
BæJarverkfræÓingur
För forsetans
1
Frh. af 2. síðu.
ið heim til bæjarfógeta. í
barnaskólahúsinu hélt bæjar-
stjórnin forseta kaffisamsæti,
og héldu meðal annarra ræð-
ur bæjarstjóri, forseti bæjar-
stjórnar og alþingismenn sýsl-
unnar. í skrúðgarði bæjarins
ávarpaði forseti síðan mann-
fjöldann. Lítil stúlka afhenti
honum blómvönd, og söngkór
söng. Kl. 17 steig forseti á
skipsfjöl og var kvaddur með
söng og húrrahróum.
Til Seyðisfjarðar kom for-
seti á sunnudagskvöld kl. 19.
Var gengið undir fánum að
húsi bæjarfógeta. Þar hélt
bæjarstjóri ræðu, en forseti
svaraði. Söngkór söng. Síðan
heimsótti forseti bæjarfógeta,
en að því loknu var gengið til
kvöldverðarveizlu, er bæjar-
.stjórn og sýslunefnd héldu í
barnaskólahúsinu. Ræður héldu
bæjarstjóri, bæjarfógeti, Karl
Finnbogason, Vilhelmína Ingi-
mundardóttir, Björn Hallsson
að Rangá, Gunnar (funnarsson
rithöiundur, Gísli Helgason í
Skógargerði, Halldór Jónsson,
og Gunnl. Jónasson, forseti
bæjarstjórnar. Hófinu var lok-
ið um miðnætti, og gekk þá
forseti til skips.
Skoriur á skófafnaði
Frh. af 2. síðu.
hafa staðið svo klukkustundum
skiþtir við dyr verzlananna, en
orðið að fara heim án þess að
ná í nol^kuð, halda því fram, að
sumar konur komi með fullt
fangið af þessari nauðsynja-
vöru. Og það er vitanlega illt.
En það er heldur ekki hægt að
áfellast verzlunarfóllcið eða skó
kaupmennina. Er þó alveg brýn
nauðsyn á því, að þeir seni þess
um málum ráða athugi alla
möguleika á því að finna ein-
hverja lausn, því að ástandið
er bókstaflega óþolandi.
Sundkeppni milli Péf-
urs Eirékssonar og
átta Siglfirðinga
Frá fréttaritara Alþýðu-
iblaðsins á Siglufirði í
gær.
ITILEFNI af því, að átta ár
eru liðin frá því að Pétur
Eiríksson syniti frá Drangey til
lands, var efnt til sundkeppni
í sundlaug Siglufjarðar. Synti
Pétur þar 1500 metra á móti
átta Siglfirðingum. Sveit Sigl-
firðinganna synti vegarlengd-
ina á 27 mínútum og 44 sekúnd
um, en Pétur varð 28 mín. og
52,3 sek., sem er góður tími.
Ahorfendur munu hafa verið
um sex ihundruð.
Að afloknu sundinu, hylltu
áhorfendur sundkappann o.g
sundmennina með ferföldu
húrrahrópi. í gærdag var ’haft
orð á þrví við Pétur Eiríksson,
hvort hann mundi ekki fáanleg-
ur til þess að synda yfir Siglu-
fjörð einhverntíma í sumar, og
tók hann vel í það. Pétur hefir
einnig fullan Ihug á því að mæta
áttmennin'gunum aftur innan
skamms. Mikill áhugi hefir ver-
ið fyrir sundi í sumar á Siglu-
firði.
Viss.
flvítar
BLÚSSUR
úr Satini og prjónasilki
koranar áftur.
H. Toff.
SkólavörOustíg 5. Sími 1035.
Alþýðublaðið