Alþýðublaðið - 17.08.1944, Page 7
Fimmtudagur 17. ágúst 1944.
ALÞÝPUBLAÐIÐ
7
Sfríðið um hifaveifukrann
Konan mín og móðir okkar,
Guðrún Ágústa Rögnvaldsdóttir,
verður jarðsungin föstudaginn 18. ágúst. Athöfnin hefst kl. 1
með bæn að heimili hinnar látnu, Mýrargötu 5. Athöfninni í
Dómkirkjunni verður útvarpað.
Fyrir mína hönd og barna minna.
Ólafur Pétursson.
Leiðrétting.
1 Bœrinn í da<>
i_________________________i____
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofuni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki.
, Næturakstur annast Aðalstöðin,
sími 1383.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Söngdansar.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20.00 Fréttir.
20.00 Útvarpshljómsveitin (Þórar
inn Guðmundsson stjórnár):
a) Forleikur að „Töfraflaut
unni“ eftir Mozart. b) „Saga
úr Vínarskógi11 — vals eftir
Stráuss. e) Mansöngur eftir
Max Bruch.
20.50 Frá útlöndum (Björn Franz
son).
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á
cello.
21.15 Upplestur: Smásaga (Sig-
urður Magnússon kennari).
21.35 Hljómplötur: Spönsk þjóð-
lög og dansar.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Mæðrastyrksnefnd
býður konum eins og að undan-
förnu til vikudvalar á Laugarvatni
um mánaðamótin ágúst-september.
— Ronur, sem ekki hafa verið óð-
ur á vegum nefndarinnar verða
látnar ganga fyrir. — Þær konur,
sem vilja sinna þessu boði snúi sér
til skrifstofu Mæðrastyrksnefndar,
Þingholtsstræti 18, frá 14.—20 þ.
m. alla virka daga milli kl. 3 og 5.
Gólfklúbbur íslands.
Undirbúningskeppni um Olíu-
bikarinn (handicap-bikarinn) hefst
laugardaginn 19. ágúst kl. 2. síð-
degis. Þátttakendur skrifi nöfn
sín á lista í Gólfskálanum fyrir
hádegi sama dag.
Frá vitamálastjóra.
Kyeikt verður á ný á Hríseyjar
vita, Hjalteyrarvita, Grímseyjar-
vita, Brimnesvita og Hafnarnes-
vita 15 ágúst n. k. Ljósmagn og
ljóseinkenni óbreytt, eins og óður.
Breiðfirðingafélagið fer um
næstu helgi skemmtiför um
Borgarfjörð. Lagt verður af
stað kl. 14 frá Búnaðarfélags-
húsinu. Ekið verður um Kalda
dal og tjaldað í Húsafellsskógi.
Á sunudag verður ekið um
Hálsasveit, á Hvalfjarðarveg og
til Reykjavíkur. Farmiðar fást
í Hattabúð Reykjavíkur, Lauga
vegi 10.
Kveðjuhljómleikum
Eggerls Stefánssonar
freslaS.
HLJÓMLEIKUM Eggerts Stef
ánssonar og aðstoðarmanna
hans, sem ákrveðnir höfðu verið
á sunnudagskvöld næstkomandi
í Trípolileikhúsi ameríska hers
ins, verður frestað fram í sept-
emberbyrjun.
Margir vina Eggerts og hljóm
listarunnendur hafa undanfarið
komið að máli við undirbún-
ingsnefndina og óskað frestun-
ar, sakir þess að þeir yrðu fjar-
verandi úr bænum. Auk þess
hefur skipsferð hans tafizt og
fer hann ekki fyrr en undir
miðjan september.
Miðarnir sem út hafa verið
gefniir fyrir konsertinn, gilda
að sjálfsögðu áfram, en þeim,
sem eigi geta notfært sér þá á
hinum nýja tíma, er auðvitað
heimilt að skila þeim aftur.
Konsertinn verður nánar aug
lýstur innan skamms.
Framhald af 2. síðu.
H. K. L. byggir kröfur sínar
á því, að hann hafi. húsnæði
sitt á leigu með hitunartækjum,
en þau séu ekki önnur en hin
margnefnda miðstöð, sem fái
nú heitt vatn frá Hitaveitu
Reykjavíkur.
Telur hann sig samkvæmt
húsaleigusamningnum eiga þá
kröfu á hendur S. E., að hann
veiti sér aðstöðu til að nota
hitunartæki þau, sem húsnæð-
inu fylgja, svo sem honum
þóknast og hann þykist þurfa
við, en skilyrði þess sé, að hann
hafi frjálsan aðgang að hita-
vatnsstillum hússins. Er því
mótmælt af hálfu H. K. L. að
S. E. sé sem húseigandi rétt-
hærri til að ráða yfir hitaveitu
miðstöðvarkerfisins en aðrir af
notahafar þess. Eins sé vatn
það, sem í kerfið er veitt, ekki
eign húseiganda né fremur
undirorpið umráðum hans, en
annarra íbúa hússins.
H. K. L. hefir fyrir réttinum
tjáð sig fúsan til að greiða
allan hitakostnað hússins, sem
er umfram áætlaða meðal-
eyðslu í því, samkvæmt mati
Hitaveitu Reykjavíkur, gegn
því, að hann fái framgengt
þeirri kröfu sinni að hafa frjáls
an aðgang að hitaveitustillun-
um.
Mótmæli sín gegn framgangi
gerðarinnar byggir S. E. á því:
I fyrsta lagi, að grundvöllur-
inn fyrir kröfu H. K. L. sé
ekki nægilega skýr til að mál
þetta megi sæta úrlausn fógeta-
réttarins. í öðru lagi, að íbúð-
in sé leigð H. K. L. með mið-
stöðvartækjum, en það þýði
aðeins að honum sé veittur
möguleikar til að kaupa þann
hita af húseigenda sem hann vill
láta í té og notfæra sér hann.
í þriðja lagi, að þótt svo verði
litið á að H. K. L. eigi kröfu á
að fá heitt vatn í húsriæði sitt,
þá eigi hann engan rétt á að-
gangi að hitavatnsstillum alls
miðstöðvarkerfisins og geti
ekki krafizt að fá ótakmarkao
umráð þess, hve miklum hita
sé hleypt á það. Þau umráð
hljóti að vera í sínum höndum,
sem húseiganda. Þá telur S. E.
að samkvæmt húsaleigusamn-
ingi geti sér aldrei borið skylda
til að veita meiri hita til H. K.
’L. en sem svari venjulegum
hita í íbúðarherbergi.
Því er sérstaklega mótmælt
af S. E., að það gefi H. K. L.
rétt til að krefjast umráða yfir
hitavatnsstillunum, að hann
býðst til að greiða þann kostn-
að, sem ætla má að leiði af því
að hann geri kröfu til meiri hita
en aðrir íbúar hússins.
I áliti réttarins segir svo
meðal annars:
,,— Verður ekki fallist á
annað en fógetaréttur sé bær
að úrskurða um þessi atriði,
enda má telja að málsatvik séu
nægilega skýr. Verður því ekki
synjað um framgang gerðar-
innar af þeirri ástæðu, að rétt-
urinn sé ekki fær flm að skera
úr um kröfur gerðarbeiðanda.
Miðstöðvarofnarnir í íbúð
gerðarbeiðanda eru samtengdir
miðstöðvarkerfi alls hússins og
verður ekki hleypt á þá hita
með öðru móti en að opnað sé
fyrir allt miðstöðvarkerfið með
stillum þeim er áður getur.
Hinsvegar má ætla að aðrir í-
búar hússins geti lokað fyrir
hitann í herbergjum sínum
með því að loka fyrir ofnana,
þótt opið sé fyrir hitavatnið
til miðstöðvarkerfisins. Verður
því ekki séð að öðrum í húsinu
þurfi að vera það verulega tii.
baga þótt gerðarbeiðanda sé
veittur aðgangur til að nota
heita vatnið að vild sinni ef
full greiðsla kemur fyfir af hans
hálfu.
Gerðarþoli tókst á hendur
með leigusamningi 22. apríl
1940 að veita gerðarbeiðaanda
hitunartæki í íbúð hans, en
önnur tæki en miðstöð hefir
hann ekki lagt til. Er augljóst
mál, að fullt notagildi mið-
stöðvarinnar fyrir gerðarbeið-
anda er undir því komið að
hann eigi þess kost að fá af
henni þann hita, sem hann tel-
ur sig þarfnast. Þessu verður
því aðeins náð, að hann eigi
frjálsan aðgang að því að veita
heitu vatni á miðstöðvarkerfið.
Verður ekki fallist á að gerðar-
þoli hafi sem eigandi hússins
og þar með miðstöðvarkerf-
isins rétt til að ráða yfir
heitavatnsrennslinu um kerf-
ið fram yfir þá, sem hann
hefir leigt afnot þess og þar
sem ekki verður séð af því sem
að framan greinir, að frjáls af-
not gerðarbeiðanda af sínum
hluta miðstöðvarkerfisins þurfi
að valda gerðarþola sérstökum
baga, fells rétturinn á að leyfa
beri framgang hinnar umbeðnu
gerðar á ábyrgð gerðarbeið-
anda.
Rétt þykir að gerðarþoli
greiði geroarbeiðaanda kr. 130
í málskostnað.
Því úrskurðast:
Hin umbeðna fógetagerð skal
fram fara á ábyrgð gerðarbeið-
anda. Gerðarþoli Sigurgeir Ein-
arsson greiði gerðarbeiðanda
Halldóri Kiljan Laxness kr. 130
í málskostnað innan 15 daga frá
birtingu úrskurðar þessa að
viðlagðri aðför að lögum.
Ákurnesingar sigruðu
Víking meS 2:0
Kmattspyrnulandsmót
1. flokks hófst hér í bæn-
um sl. þriðjudagskvöld. Reykja
víkurfélögin öll, K. R., Fram,
Víkingur, Valur og í. R. taka
þátt í mótinu og auk þess tvö
félög úr nágrenninu, K. H., sem
er úrýal beggja knattspyrnufé-
laganna í Hafnarfirði og í. A.
(íþróttaráð Akraness), sem er
úrval úr báðum Akranessfélög-
unum. Er þetta því eitt hið fjöl-
sóttasta knattspyrnumót, sem
háð hefur verið.
Fyrsti leikur mótsins var
milli I. A. og Víkings, fóru svo
leikar að í. A. sigraði með 2:0,
voru bæði> mörkin sett í seinni
hluta síðari hálfleiks. Samkv.
skipulagi þessa landsmóts, er
þátttöku Víkings, með tapleik
þessum, lokið í mótinu, þar sem
þetta er útsláttarkeppni, þann-
ig að það félagið sem leik tap-
ar er úr sögunni. ,
Leikurinn var allfjörugur á
sprettum, átti í. A. ýmis góð
tækifæri í fyrri hálfleik, til að
skora mark, en vegna fums og
fljótræðis nýttist ekkert þeirra.
Yfirleitt var leikurinn drifinn
fram með löngum og ónákvæm-
um loftspyrnum, en þó brá ein-
stöku sinnum fyrir leiftrum af
samleik, en hraðinn var alltof
mikill og hvergi nærri í sam-
ræmi við leiiinina. Ýmsir leik-
menn í báðrim liðum sýndu all
góðan leik, t,d. markvörður, h.
bakv., miðh. og h. úth. í liði í.
A, léku oft laglega og með góð-
um skilningi, einn.g markvörð-
ur, miðfrv. og' miðh. í liöi yík-
ings.
Þetta landsmót 1. flokks er
siður en svo ómerkara en önn-
ur knattspyrnumót sem hér eru
háð. Ber því félögunum að und
urbúa þátttöku sína í mótinu
af fullri alvöru og tryr'^’a lið-
um þeim er þau senda fram‘ til
þátttöku nauðsynlega æfingu
og annan undirbúning, sem
þar til heyrir.
Ebé.
Landbúnaðarvélar
Frh. af 2. sí®u.
gaflinn á venjulegum vagni og
er snúið með keðju, sem er drif
in frá hjólinu.
Vél, sem herfar og sáir korni
um leið.
Vél til kornuppskeru og þresk
ingar.
Vél til að snúa og þurrka korn.
Fóðurmylla. Lítil mylla til að
mala hafra og annað kornmeti.
Mjaltavélar af nýrri gerð, sem
ég var beðinn að útrvega handa
nokkrum bændum.
^ Fyrir öllum þessum vélum
fékk ég aukaútflutningsleyfi,
svo að þessi vélakaup skerða á
engan hátt kaup á öðrurn land
búnaðarvélum, sem okkur voru
leyfð í Bandaríkjunum. En þau
var ekki hægt að fá aukin frá
því, sem nú er, þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir mínar.
Hins vegar mun möguleiki á,
að fá til viðbótar eitthvað af
vélum frá Kanada, þar sem
framleiddar eru flestar þær
tegundir véla, sem hér eru mest
notaðar og jafn góðar og jafnvel
sömu gerðir og hér þekkjast,
því að International Harvester
Oo. rekur einnig verksmiðjur
þar.
HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN
Frh. á 4. síðu.
irnar voru þær, sem ég sagSi og
vel það, og eins hitt, að skemmd-
irpar eru miklu meiri en ég upp-
haflega vissi, svo í hvorugu tilfell-
inu hef ég sagt of mikið. En hitt
skal ég játa, að mér finnst furðu-
legt margt sem þér segið, og eins
það yfir hverju þér þegið. T. d.
hvað verði gjört við þetta kjöt
þarna norður frá, sem að vísu var
selt, en ekki útflutningshæft, eða
það af því, sem ekki er útflutn-
ingshæft. Um þetta viljið þér ekk-
ert tala, en vaðið hins vegar elg-
inn um mig persónulega, sem ekk-
ert kemur þessu máli við.
Ég vil nú að lokum beina til
yðar þessum spurningum:
1. Var yður það ekki ljóst fyrir
nokkuð löngu, að ekki yrði úr
Englandssölunni nema á nokkrum
hlutá á Biönduósskjötinu?
2. Hvað mikill hluti af því kjöti
er talið skemmt?
3. Hvað mikið er talið alveg ó-
nýtt?
4. Hvað mikið nothæft?
5. Ilvar verður það nothæfa
selt?
6. Hver borgar tjónið?
\7. Hvaðan er það skemmda kjöt,
sem nokkuð hefur orðið vart við
hér í bænum í sumar?
Þér hljótið að viðurkenna, að
upplýsingar um þessa hluti séu
ekki síður fróðlegar og nauðsyn-
legar,'en af yður tilbúnar upplýs-
ingar um mig persónulega.“
Ingólfur ásakar Sigurð m. a.
fyrir það, að hann sé ,,að telja
Reykivíkingum trú um, að mjólk
in sé vond og óheilnæm“! Reyk-
víkingar þykjast nú víst ekki
þurtfa áð láta segja sér neitt um
ágæti neyzluimjólkurinnar, sem
hér er á markaði. Þeir munu
telja sig hafa reynsluna.
IKLAUFALEGA skrifaðri
orlofs- (eða grín-?) grein
um Óskar Halldórsson í síðasta
hefti ,,Víkingsins“ finnur Sveinn
Benediktsson ástæðu til að
kasta að mér nokkrum hnútum
og rangfærslum, sem ég sé
ekki ástæðu til að láta óleið-
rétt, þó um ómerkan höfund sé
að ræða, enda myndi ég nú,
eins og endranær hafa látið
heimildarfalsanir hans óleið
réttar, hefði hann ekki bland-
að inn í rangfærslur þessar
málefni, er snertir minningu
látins heiðursmanns, Magnús-
ar Kristjánssonar, alþingis-
manns, og afskipti hans af
byggingu síldarverksmiðju rík-
isins, sem Sveinn nú að öllu
leiti eignar Óskari Halldórs-
syni.
Það verður erfitt fyrir rit-
peð eins og Sv. B. að draga
þann heiður af Magnúsi Krist-
jánssyni, að hann sé höfundur
að síldarbræðslum ríkisins og
get ég vel um það borið, því
ég var eindreginn fylgismaður
Magnúsar í því máli, og átti
oft samræður við hann um það,
og það er einnig rétt, að Osk-
\ar Halldórsson fylgdli því
einnig fast eftir, að ríkið léti
byggja síldarbræðslur, en þar
skildu leiðir þeirra tveggja, —
eins og eðlilegt er, því Magnús
vildi láta starfrækja verk-
smiðjurnar á samvinnu grund-
velli, og greiða sannvirði síld-
arinnar í hlutfalli við afurða-
verðið, og taldi að með því
móti myndi verða hægast að
halda bræðslusíldarverðinu
sem hæstu.
Óskar Halldórsson aftur á
móti vildi láta ríkið leigja eða
selja útgerðarmönnum verk-
smiðjurnar, eða þá að öðrum
kosti kaupa síldina kostnaðar-
verði á hverjum tma.
Tilfærð ummæli um Óskar
Halldórsson eru því ranglega
eignuð mér, þar sem ég var
fylgismaður þeirra Magnúsar
og Óskars í þessu máli, en aft-
ur á móti minnist ég þess, að
Jón heitinn Ólafsson lét um-
mæli falla á umræddum fundi,
sem skilja mátti á þennan veg,
þó ég muni ekki nákvæmlega
nú hvernig vorU orðuð.
Með þökk fyrir birtinguna.
Kr. Bergsson.
Ferðafélag íslanðs
biður þátttakendur í Hagavatns
ferðinni er verður farin yfir næstu
helgi um að taka farmiða fyrir kl.
6 á föstudag. Farin verður göngu-
för um Heiðmörk á sunnudaginn
og lagt af stað kl. 10 árdegis frá
Lækjartorgi. Farmiðar sækist fyr-
ir kl. 12 á hádegi á laugardag.
XXXXXXXXXXXX
r
Alþýðublaðið
/