Alþýðublaðið - 18.08.1944, Side 4
4
A8-$>ÝÐUBL&ÐIÐ
Föstudagur 18. ágúst 1944
Páll Kdstjánsson:
nm Hitaveitn Reykjaviknr.
Ötgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pétursson.
Ritstjórn og afgreiðsla í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Símar ritstjórnar: og 4902.
Símar afer-iðslu: 4900 og 4906.
Verð í lausasölu 40 aura.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Halda stjórnarvöldiD
verndarhendi yíir
ósómannffl ?
ÖGN stjórnarvaldanna varð
andi ófrémdarástand það,
sem skapazt hefir á Þingvelli er
almenningi hið mesta undrunar
efni. Blöðin hafa flett ofan af
því óþolandi ástandi, sem nú
ríkir á helgasta sögustað lands-
ins. Það hefir verið skorað á
ríkisstjórnina að skerast í málið
og fá því til vegar komið, að her
menn hafist ekki við ''á Þing-
velli. Almenningur vill, að
Þingvöllur sé hreinsaður. Kröf
urnar um það verða æ hávær-
ari. En ríkisstjórnin virðist ekk
ert af þessu heyra né sjá. Hún
forðast að láta málið til sín taka
eða gefa á nokkurn hátt til
kynna, að hún viti af því, sem
fram fer á Þingvelli.
*
Það hefir verið slegið her-
búðum á Þingvelli. Naumast hef
ir það verið gert nema í sam-
ráði við innlend stjórnarvöld.
Hefir ríkisstjórnin gefið leyfi
tij þess? Þeirri spurningu væri
fróðlegt að fá svarað.
Það er jafnframt vitað, að
hópar kvenna hefir tekið sér
fasta bækistöð á Þingvelli um
lengri og skemmri tíma til þess
að gera hermönnunum lífið bæri
legra á helgistað þjóðarinnar.
Aðrar fjölmenna á Þingvöll um
helgar og á frídögum til að leita
stundarkynna við menn í ein-
kennisbúningum. Allt fer þetta
fram með þeim hætti, að helzt
Virðist sem um fast ákveðið
skipulag sé að ræða. Hermenn-
irnir bíða þess að áætlunarbif-
reiðir komi með farma af kven-
fólki til afnota fyrir þá.
Hafa innlend stjórnarvöld
stuðlað að því að koma á þessu
skipulagi? Sú spurning liggur
mörgum á vörum og væri æski
legt, að henni fengist svarað.
Hafi ríkisstjórnin gefið leyfi
sitt til að herbúðir væri settar
upp á Þingvelli, er sök hennar
mikil í þessu efni. Hún hefir
þá óneitanlega stutt að því á á-
hrifaríkan hátt, að Þingvöllur
væri gerður að vændiskvenna-
markaði og öllu sómasamlegu
fólki byggt þaðan út.
*
Það ér hætt við, að margir ó-
mildir dómar verði felldir yfir
íslenzku þjóðinni og forráða-
mönnum hennar, þegar ljósi
sögunnar verður síðar meir
brugðið yfir/ hernámstímabilið:
Ríkisstjórnin, sem^ lagði nið-
ur ungmennadóminn og gerði
lögboðið eftirlit með ungmenn-
um að dauðum bókstaf, hefir
fyrir nóg að svara í þeim efn-
um, þó að það bætist ekki við
að hún afhendi umyrðalaust
helgasta sögustað landsins un$-
ir pútnahverfi. Það væri þess
vegna ekki úr vegi fyrir núver
andi ráðuneyti að sýna í þess
um efnum snefil af sómatilfínn
ingu, meðan það enn hefir tæki
færi til þess.
Nokknr orð
IMORGUNBLAÐINU 23.
júlí þ. á.’, stendur eftirfar-
' andi: „í nýgerðri skýrslu um
hitaveituna eftir Helga Sigurðs
son forstjóra hennar segir m. a.:
að fastagjöldin hafi reynzt á-
kaflega nálægt helmingur af
gjöldum þeim, sem bæjarbúar
hafa greitt fyrir hitann, en svo
var til ætlast í upphafi, að
helmingur kostnaðarins yrði
fastagjald.
Eftir þessu hefir það komið í
ljós, að verkfræðingarnir hafa
reiknað hitaþörf húsanna og
væntanlega eyðslu á vatninu
alveg rétt‘..
Hér að ofan er því raunveru-
lega slegið föstu, að fastagjald-
ið sé helmingur hitakostnaðar-
ins og hafi átt að vera það, en
því miður er ég hræddur um
að fjöldi bæjarbúa hafi aðra
sögu að segja af hitaveitureikn-
ungunum en það, að fastagjald-
ið sé 50 '/< á móti eyðslu.
Þessu til sönnunar ætla ég að
setja hér nökkrar tölur er sýna
hið gagnstæða í þessu máli:
1. Húsið Njálsgata 6.
Fastagjald frá 27.
des. til 30. júní kr. 513.87
Notkun frá 27. des.
til 30. júní — 330.82
Hér er fastagjaldið 155% á
móti notkun.
2. Húsið Njálsgata 8 A.
Fastagjald frá 24.
marz til 30. júní kr. 146.11
Notkun frá sama
tíma — 39.28
Hér er fastagjaldið 372% á
/móti notkun.
3. Húsið Barónsstígur 18.
Fastagjald frá 14.
des. til 15. maí kr. 410.99
Notkun frá sama
tíma — 271.28
Hér er fastagjaldið 152% á
móti notkun.
4. Húsið Njálsgata 2.
Fastagjald frá 17.
des. til 30. júní kr. 354.98
Notkun frá sama
tíma — 215.90
Hér er fastagjaldið 174%' á
móti notkun.
5. Húsið Njálsgata 4 A.
Fastagjald frá 27.
. des. til 15. maí kr. 417.04
Eyðsla frá sama
tíma — 249.35
Hér er fastagjaldið 167% á
móti notkun.
Mælisleiga er hvergi talin
með fastagjaldi, sem þó ætti að
vera.
Á þessum fimm húsum, sem
hér eru tekin, af mörgum, sem
svipað er ástatt um, sýna tölurn
ar, að fastagjaldið er frá 152%
og upp i 372% á móti eyðslu.
og getur víst enginn sanngjarn
maður sagt að verkfræðingarnir
hafi reiknað hitaþörfina og fasta
gjaldið „nákvæmlega rétt“ á
þessum húsum og öllum þeim
sem svipað er ástatt fyrir.
Nú er það svo, að það virðist
að timburhúsin verði yfirleitt
miklu verr úti með fastagjaldið
en steinsteypu húsin. Mér er
sagt, að það komi til af því,
að þau séu kaldari en steinhús.
Ef svo væri, þá verður að eyða
miklu meira vatni ti-1 upphitun-
ar á þeim, en steinhúsunum og
þar af leiðandi borga miklu
meiri vatnseyðslu, virðist því
engin ástæða til að láta þau
hús borga meira fastagjald og
refsa þeim þannig sem eru svo
ólánssamir að húa í köldum hús
um.
En nú er það oft svo, að timb-
urhús eru alls ekki kaldari en
steinhús, t. d. get ég sagt það
um húsið Njálsgötu 6, að ég
. hefi aldrei búið í hlýrra húsi;
frá 1940 hefir kolaeyðsla þar
aldrei farið fram úr 800 kr. á
ári, en fastagjaldið eitt saman
er nú á húsinu um 960 krónur,
auk mælisleigu.
Það, sem ég og fleiri telja, að
gera beri nú þegar, er, að af-
nema fastagjaldið með öllu, en
hækka verðið á heita vatninu
um helming eða eftir því, sem
þörf þykir; með því móti kem-
ur eyðslan réttilega niður; þeir,
sem spara vatnið, borga lítið,
og þeir, sem eyða miklu, borga
mikið; og svo á það að vera. En
svo er mesti hagnaðurinn fyrir
hitaveituna sá, að menn myndu
frekar spara vatnið svo fleiri
gætu notið þess; því þegar vet-
urinn kemur, tel ég líklegt að
hitaveitan verði ekki aflögufær
nema menn gæti hófs í eyðslu.
Það eru takmörk fyrir því hvað
lengi menn borga ósanngjarna
reikninga. Gæti það ekki verið
hnekkur fyrir hitaveituna, ef
fjöldi manna neitar að borga
og lokar fyrir vatnið og tekur
upp kolakyndingu? Þetta er
ökki ósennilegt, ef lagfæring
ekjki fæ'st. Méii persónulega
þætti það miður farið, því ég
tel 'hitaveituna vera mikið
menningarfyrirtæki.
Svo að lokum langar mig að
minnast lítið eitt á heimtauga-
gjaldið. Eins og menn muna, er
það reiknað út eftir rúmmetr-
um húsanna og er heimtauga-
gjaldið kr. 2.50 á rúmmetra, er
ekkert við því að segja? Öll
hús, sem eru portbyggð skulu
reiknast á ytri brún súðar; en
svo hefir forráðamönnum hita-
veitunnar, þóknazt að láta mæl
ingamennina mæla 90 gráðu
vinkilhorn út frá súðinni; borga
því allir þeir, sem eiga port-
byggð hús, mikið af loftrúminu
fyrir utan húsið. Hér á Njáls-
götu 6 er loftrúmið reiknað fyr
ir utan súðina 20 teningsmetrar
á kr. 2,50 eða 50.00 kr. Ef allir
sem eiga portbyggð hús, greiða
þessa reikninga, þá ætti þetta
að vera nokkur fjárupphæð,
sem hitaveitan fær fyrir loft-
rúmið í Reykjavík! Þegar reikn
að er út portbyggt hús í rúm-
metra, getur þaksúð aldrei náð
lengra út en á ytri brún þak-
skífu eða bárujárns.
Páll Kritsjárisson.
Slysavarnafélagið
óskar eftir unglingum. Eins og
áður hefur verði frá sagt hér í
blaðinu, hefur verið efnt til happ-
drættis um sumarbústað í Dag-
verðardal við ísafjörð, til ágóða
fyrir björgunarskútu Vestfjarða.
Sala happdættismiðanna hefur ver
ið í fullum gangi, en nú fer að
líða að því að dregið verði, en
það verður 1. september. Óskar
því Slysavarnafélag íslands eftir
unglingum til þess að taka að sér
Tyj'ORGUNBLAÐIÐ birtir í
gær lýsingu á ástandinu á
Þingvelli eftir „fjóra Þingvalla
vini“. Er þar lýst noþkru af
því, sem bar fyrir aup" 1
manna, þegar þeir dvöldust
nokkra daga á Þingvelli í sið-
asta mánuði. — Héi- -p-~- '
ir kaflar úr þessari grein:
„Þriðjudagskvöld eitt í júlí-
mápuði lögðum við undirritaðir af
stað í skemmtiför til Þmgvaila í
áætlunarbíl frá B. S. í. Bíllinn
var þvínær fullskipaður og var
meirhlutinn ungar stúlkur.
Þegar til Þingvallar kom, stanz
aði bíllinn við tjaldbúðahverfi við
vegamótin á völlunum. Nokkrir
hermannabílar höfðu staðnæmst á
veginum og virtust hafa beðið eft
ir áætlunarbílnum. T,vær ungar
stúlkur fengu farangur sinn af-
hentan r sama mund og við. Þær
gengu með byrði sína nokkur spor
frá bílnum, en í Sömu svifum ók
einn heímannabíllinn upp að hlið
þeirra og hermennirnir gáfu sig
á tal við þær. Að vörmu spori
stigu stúlkurnar inn í hermanna-
bílinn og ók hann með þær eitt-
hvað út í búskann og höfum við
ekki séð þær síðan. Við lögðum
farangur olckar við veginn og nóp
ur ungra stúlkna lagði tjaldút-
búnað sinn og pjönkur á næstu
grös og gengu síðan út í liraunið
til þess að skyggnast eftir tjald-
stað. Hermenn, jafnmargir þéim,
komu í sömu svipan á vettvang
og héldu vörð um dótið þangað
til þær komu aftur. Buðust þeir
svo til að bera dótið og hjálpuðu
stúlkunum að tjalda.
í mörgum tjöldunum (í nágrenn-
inu við fjórmenningana) voru
hjón, en í öðrum lausafólk. í a. m.
k. 6 tjöldunum voru „ástands-
stúlkur“. Rétt hjá okkur voru þær
Aucflýsingar,
sem birtast eiga f
Alþýðubíaðicu,
verða að yera
komnar til Augiýa-
ingaskrifstofimnay
í Alþýðuhúsinu,
(gengið íl_ frá
Hverfisgötu)
ffyrir kl. 7 eð kvöidl.
| MaÖur í fastri stöðu, sem
j er að byggja, óskar eftir
sumarbústað, 2 herb. og
eldhúsi í vetur, sem næst
bænum. Ábyrgð tekin á
húsinu. Tilboð sendist
blaðinu strax merkt „X“.
sölu miða þar til dregið verður,
og eru þeir beðnir að gefa sig
fram við skrifstofu félagsins í
Hafnarhúsinu.
6 í tjaldi. Þær sáust ekki við
tjaldið fyrr en komið var fram
yfir miðnætti. Þá komu þær í her
mannabíl og óku burt í hermanna
bílum eftir hádegi. Þess á milli sá
um við þær stundum á daginn í
námunda við Valhöll, oftast með
hermönnum. í öðru tjaldi nálægt
okkur voru tvær stúlkur. Tveir
sjóliðar voru hjá þeim fyrsta
ikvöídið. Da^inn eftir sáum við
þær þrisvar sinnum fara inn í
tjaldið með hermenn, tvo og tvo
í einu, aldrei þá sömu. Um kvöld-
ið hurfu þær á brott úr tjaldinu
og stóð það síðan lokað á meðan
við dvöldum þarna. Uppi í hraun
inu nokkuð frá okkur stóðu tvö
tjöld, hermannatjald með tveimur
hermönnum og í hinu voru tvær
stúlkur. Þessar manneskjur fjór-
ar bjuggu áreiðanlega alveg sam-
an. Eina nóttina heyrðum við gól
mikil og háreisti frá tjaldinu og
voru þá hjúin mikið drukkin. Um
miðnætti nóttina eftir komu þau
akandi að tjaldinu í ærmmaa-
bíl og virtust stúlkurnar vera að
sækja þangað eitthvað smávegis,
en síðan var ekið áleiðis inn á
Leirur.
Eina barnunga stúlku, tæplega
meira en 14 óra gamla, «áum við
eitt sinn slangra sýnilega ólvaða
um vellina. Stúlku þessa sáum
við oftar, ýmist eina eða með her
mönnum. Við giskuðum á, að hún
héldi til í hermannatjaldborginni,
sem sögð var vera inni á Leirum.
En þangað komum við aldrei. í
áttina þangaö var stöðugur siraum
ur hermannabíla, en sár uítið
sást þar af íslenzkiim bílum.
Það, sem við sáum til hermanna
félagsskapar kvenfólksins, var á-
reiðanlega ekki nema lítið brot af
því, sem átti sér stað á Þingvöll-
um þessa daga. Fólk, sem lá í
Frh. «f C. sStku
Alþýðuflokkurinn
Skrifstofa flokksins á efstu hæð Alþýðuhússins
Sími 5020.
Skrifstofutími kl. 9—12 og 3—7 alla virka daga
nema laugardaga kl. 9-—12 f. h.
Alþýðuflokksfólk utan af landi, sem
til bæfarins kemur, er vinsamiega
beðið að koma til viðtals á flokks-
skrifstofuna.
AUGLÝSIÐ f ALÞÝDUBLAPINU