Alþýðublaðið - 18.08.1944, Side 7
Föstudagur 18. ágúst 1944
, w
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
n IT-I rrnrw
t
Iðja fapar máli fyrir Félagsdómi
Hér með tilkynnist að hjartkær sonur minn og bróðir okkar,
Hatlgrímur Pétur Helgason, Stórhotti 26,
andaðist í sjúkrahúsi 15. þ. m.
\ Karólína Káradóttir og systkini.
Til farþega á E.s. Þór
frá Akranesi sunnudagskvöld
\
Einhver ykkar hefir í misgi-ipum tekið ferða-
tösku um borð í Þór er hann kom til Reykja-
víkur. Taskan er merkt ,,Nína Jóhannesdóttir,
Akureyri“. Vinsamlegast skilist á Hringbraut
145 eða tilkynnist í síma 2066.
Sóknin í liormandie
Frh. af 3. síðu.
Bœrinn í dan
Næturlæknir er í Læknavarð-
sfcofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
ar»óteki.
Næturakstur annast B. S. R.,
sími 1720.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19A5 Hljómplötur: Harmoniku-
20.00 Fréttir.
20.30 íþróttaþáttur í. S. í.
210.50 Strokkvartett útvarpsins:
Kvartett nr. 17 í F-dúr
eftir Mozart.
21.05 Upplestiir; „Leikhús og
helgidómur“, bókarkafli
eftir Önnu Larsen-Björner
(séra Sigurður Einarsson).
21,35 Hljómplötur: Amelita Calli
Curci syngur.
21J»0 Fréttir.
22.00 Symfóníutónleikar (plöt-
ur): a) ítalskur konsert
ftir Baeh. b) Cello-konsert
eftir Boccherini. c) Harpsi
cord eftir Haydn.
23.00 Dagskrárlok.
Fertngur ««
varð í gær Kristinn Þorkelsson,
bifreiðstjóri hjá Kol og salt.
i
Kona biur bana af
brunasárum
AÐ slys vildi til að Bakka-
bæ í Ólafsvík í fyrradag,,
að kona skaðbrenndist svo er
hún var að kveikja upp í elda-
vél, að hún beið bana af.
Kona þessi hét María Guð-
mundsdóttir. Var hún að
' kveikja upp í eldavél og not-
aði olíu við uppkveikjuna, en
sprenging varð í olíunni, og
læsti eldurinn sig í föt kon-
unnar. Sængurkona, sem alið
hafði barn fyrir þrem dögum,
þegar þetta varð, og María var
hjá, fór til og gat slökkt eld-
inn í fötum hennar, en þá var
líkami Maríu orðinn mjög
brenndur.
Læknis var strax vitjað til
Stykkishólms, og var María
flutt þangað sjóleiðis, en þar
andaðist hún í sjúkrahúsinu
um hádegi í gær. Sængurkon-
unni líður vel eftir ástæðum.
KappreiSar Fáks á
sunnudaginn kemur
NÆSTKOMANDI sunnudag
efnir Hestamannafélagið
Fákur til síðari kappreiða
sinná á skeiðvellinum við
Elliðaár kl. 3 e. h.
Keppt verður í 350 m og 300
m stökki og 250 m skeiði.
I 350 m stökki keppa 5
hestar. Margir þeirra eru gam-
alkunnir á vellinum, svo sem
Kolbakur frá Gufunesi, Hörð-
ur frá Melum á Kjalarnesi o.
fl.
I 300 m stökki keppa einnig
5 hestar, flestir nýir hér á vell
inum, eru það mjög efnilegir
hlaupagarpar.
Þá verður og keppt i skeiði,
250 m, og munu 5 hestar verða
í þeirri keppni. Þeirra á meðal
ér Randver frá Varmadal og
Roði frá Gufunesi.
Eftir að keppnin hefur farið
fram milli. hestanna í hverju
hlaupi: keppa fyrstu hestarnir
til úrslita eins og venjulega.
Þarf ekki að efa að þarna verði
' skemmtileg keppni.
Frh. af 2. síöu.
hefur boðað verkfall, þar sem
þær vinni á starfssviði Iðju, og
með því að gera slíkt hafi
stefndi gerzt brotlegur við
nefnda lagagrein, því Fram-
sókn sé í Alþýðusambandinu,
en það standi að verkfallinu.
Heldur stefnandi samkvæmt
framansögðu því fram, að tak-
mörk verkfalLsins eigi að mið-
ast við það, sem kalla megi
starfssvið Iðju, en sé ekki að-
eins bundið við félagsmenn
þess félags.
Stefndi krefst sýknu á þeim
grundvelli að umrætt verkfall
nái ekki ' til annarrar vinnu í
umræddri verksmiðju S.Í.F.
en þeirrar, sem áðurnefndir
tveir menn unnu, en hún sé nú
unnin af ófélagsbundnum
mönnum, og sé slík fram-
kvæmd ekki refsiverð. Hins
vegar hafi, er verkfallið hófst,
önnur almenn störf þar veríð
unnin af konum úr verka-
kvennafélaginu Framsókn. Þær
vinni samkvæmt samningi
milli þess félags og Vinnuveit-
endafélags íslands frá 14. sept.
1942 og viðbótarsamningi frá
10. maí 1944, svo og samningi
milli Framsóknar og Niður-
suðuverksmiðjunnar frá 9. okt.
1942 og hafi Iðju verið kunn-
ugt um samninga þessa. Hann
kveður að verkfall Iðju sé
stúlkum þessum algerlega óvið
komandi. Þær fari ekki á neinn
hétt inn á starfsvið þeirra
tveggja manna úr Iðju, er lagt
hafi niður vinnu. Telur hann
að ekki verði að þessu leyti
byggt neitt á ákv. framan-
nefndrar 24. gr. áðurgildandi
samnings, því Iðju hafi verið
fullkunnugf um, að konur úr
öðru félagi unnu í verksmiðj-
unni og hún samþykkt það
með þögninni. Verkfallsákvörð-
un Iðju, segir hann, nær að-
eins til félagsfólks í því félagi,
en getur ekki náð til fólks í
öðrum verkalýðsfélögum, að
því er varðar venjulega vinnu-
þess. Forráðamönnum niður-
suðuverksmiðjúnnar hafi því
verið fullkomlega heimilt að
halda áfram' rekstri hennar á
þann hátt, sem gert var, og
ekki með því á neinn hátt
gerzt brotlegir vði 18. gr. laga
nr. 80/1938.
Starfskonur þær, er nú vinna
í niður suðuverksmið j u S.Í.F.
og um ræðir í máli þessu, eru
félagskonur í Verkakvennafé-
laginu Framsókn og taka laun
samkvæmt samningi við það
félag. Þær eru ekki félagskon-
ur í Iðju og hafa ekki tekið
þátt í ákvörðun þess félags um
að hefja verkfall það, er nú
stendur yfir. Það er upp komið
í málinu, að sú regla hefur að
staðaldri viðgengizt í niður-
suðuverksmiðjunni, að þar
ynnu aðallega félagskonur úr
Framsókn. Hefur þetta verið
með vitund og þegjandi sam-
þykki forráðamanna Iðju og
höfðu þeir ekki meðan enn
var í gildi samningur milli
þess félags og Félags ísl. iðn-
rekenda heimt sér rétt þann,
er þeir byggja á 24. gr. þess
samnings, að allt verksmiðju-
fólk í niðursuðuverksmiðjunni
væri félagsfólk í Iðju. Að þessu
athuguðu verður ekki talið að
verkfalísboðun Iðju hafi eins
og á .stóð átt að leiða til verk-
falls hjá þeirn félagskonum
Framsóknar, er unnu í verk-
smiðjunni, er verkfallið hófst.
Var forráðamönnum hennar
því vítalaust að láta þær halda
áfram sömu störfum og þær
áður unnu og hafa ekki með
því gerzt brotlegir við 12. gr.
1. nr. 80/1938. Ber því að
sýkna stefnda af kröfum stefn-
anda í máli þessu.
Eftir þessum úrslitum þykir
rétt, að stefnandi greiði stefnda
málskostnað, er þykir hæfilega
ákveðinn kr. 300,00,.
Því dæmist rétt vera:
Stefndi, Vinnuveitendafélag
íslands f. h. Félags ísl. iðnrek-
enda vegna Niðursuðuverk-
smiðju S.I.F., á að vera sýkn
af kröfum stefnanda, Alþýðu-
sambands íslands f. h. Iðju, fé-
lags verksmiðjufólks í Reykja-
vík, í máli þessu.
Stefnandi greiði stefnda kr.
300,00 í málskostnað innan 15
daga frá birtingu dóms þessa
að viðlagðri aðför að lögum.“
Rannsóknarieiðangur
á Mýrdalsjökul
Q UMARIÐ 1943 hófu þeir
^ Jón Eyþórsson og Stein
þ)ór Sigurðsson rannsóknir á
Mýrdalsjökli, Tilgangur rann
sóknanna er sérstaklega sá,
að finna orsakir jökulhlaup-
anna og samband þeirra við
eldsumbrot.
í fyrra voru settar um 20
merkisstenigur á ‘hjarnjökulinn,
sem hefir afrensli í Höfða-
brekkujökul. Var stöngunum
dredft um 60 ferkílómetra svæði.
Staðarákvarðanir voru gerðar á
stöngunum 'og ætlunin að mæla
hreyfingar þeirra og snjódýpt.
Ókunnugt er um hreyfingar á
hjarnjökli og munu þær ekki
hafa verið mældar.
Fyrsta ágúst fór sex manna
leiðangur af’stað héðan úr Rvík
til þess að halda rannsóknunum
áfram. Þátttakendur voru þeir
Jón Eýþórsson, Steinþór Sigurðs
hon, Einar B. Pálsson, Franz
Pálsson, Árni Þ. Árnason og
Árni Stefánsson. 4. ágúst var
farið á jökulánn. Sá Sigurður
Högnason í Sól-heiimakoti um
ílutninginn upp. Var farangur
fluttur á 8 hestum allt upp að
stað þeim, þar sem Kötlugjá
er undir jöklinum. Dvalið var
á jöklinum til 13. ágúst. Veður
var stiilt og hlýtt allann tímann
og oft sólskin.
Aðaltilgangur leiðangursins
var að mæla hreyfingar mæli-
stanganna frá s. 1. ári og snjó-
dýptina. En við' athugun kom
það í ljós, að stengurnar, sem
verið höfðu 5 m. upp úr snjó
(og ein 7 m.) voru allar í kafi
nema ein, sem stóð á hrygg.
Lengd stanganna hafði verið
miðuð við snjólagið veturinn
1942—43, en það var um 4 metr
ar. Við gröft kom það í ljós, að
snjólag s. 1. vetur var um 8
metrar að þykkt og mun óvíða
snjóa meira. Var því horfði að
því riáði að reyna að byggja
nógu há og sterk merki. Byggð
ar voru tvær gerðir, annað þrí-
strendur turn, sem stóð lllú
m. upp’úr snjónum og var hann
grafinn 2V2 metra niður og stag
aður vandlega. Hitt merkið var
nokkuð lægra, einföld stöng vel
stöguð. Var mikið verk að ganga
frá merkjum þesum og á'kveða
stað þeirar nákvæimlega. Þá var
hallamœkl um 8 'km. löng lína
yifir upptök Höfðabrekkujökuls.
Síðari mælingar geta þá leitt
í Ijós, 'hvort jökulldnn hefir
hækkað eða lækkað. Nokkrar
athiiganir voru og gerðar á
bráðnun og vatnsgildi og vatns
magni í snjónum.
Á Mýrdal'sjökli má heita að
allt sé undir jökli. Á einum stað
sér á fast berg í miðjum jöklin
um. Kötlugjá sjálf er undir
jökii og eru þar aðeins lægðir í
jökulinn þar sem gosstöðvarnar
munu vera.
Föstudagskvöldið 11. ágúst
en sókn Pattons varð þeim of-
viða. í Orléans höfðu ekki
orðið mjög mikil spjöll, meðal
annars er hin víðfræga dóm-
kirkja óskemmd með öllu.
I
MANNTJÓN ÞJÓÐVERJA
Bandaríkjamenn tilkynna, að
í sókninni undanfarna daga
hafi Þjóðverjar misst um 100
þús. hermenn, fallna, særða og
fanga. Af þeim léllu 11 þús-
und menn, 47 þúsund særðust,
en 41 þúsund voru teknir
höndum. Auk þess féll mikið
herfang í hendur Bandaríkja-
mönnum.
VIÐSJÁR í PARÍS
Neðanjarðarlestir í París eru
hættar að ganga. Rafmagns-
straumur er aðeins IV2 klukku-
stund á kvöldin og víða er ekk-
ert gas. Víða hafa verkamenn
lagt niður vinnu, svo og lög-
reglumenn borgarinnar. Þeir
eru í verkfalli vegna iþess, að
maður nokkur, sem þeim líkar
ekki við, hefur verið settur í
þýðingarmikla stöðu í löggæzl-
unni. Þá hafa járnbrautar-
starfsmenn við norður- og
austurbrautarstöðina lagt nið-
ur vinnu. Um þessar stöðvar
fara lestir til Þýzkalands og
svæðið frá Belgíu til Calais.
Lóðir fyrir bæjarspíi-
afa og ftelfurvemdar-
stöð
¥ ANDLÆKNIR hefir skrii-
•®-1 að bæjarráði og farið fram
á að bærinn mæli lóðir und-
ir bæjarispítala og heilsuvernd-
airstöð. Vill hann að heilsuvernd
arstöðin fái lóð í Gróðarstöð-
inni, en bæjarspítalinn í Daug-
arnesi, þar sem áður var Laug-
arnesspítali.
var bjart veður á jöklinum, en
Ijósagangur nokkur í suðri og
mun það valda sögum þeim sem.
upp hafa komið um Kötlugos
nú.
Rannsóknirnar 1943 voru
kostaðar af rannsóknaráði ríkis-
ins en nú af menntamálaráði.
Þátttakendur í leiðangrunum
hafa unnið kauplaust.
Bandaríkjaf lugherinn
færisf í aukana
T GÆR voru Iiðin 2 ár frá því
að amerískar flugvélar gerðu
fyrstu loftárásina á stöðvar
Þjóðverja. Þá var ráðizt á
stöðvar við Rouen í Frakklandi
og varpað niður 16 smálestum
sprengna. Síðan hafa amerisk-
ar flugvélar varpað niður samt
tals 267 þúsund smálestum
sprengna á Þýzkaland og her-
teknu löndin.. Nú fara amerísk-
ar flugvélar svo þúsundum
skiptir á degi hverjum til árása
á stöðvar Þjóðverja hvar sem
er í Evrópu.
Rússland
Frh. af 3. aíðu.
leg gagnáhlaup Þjóðverja, sem
tefldu fram miklu liði og
•mörgum skriðdrekum. Rússar
eýðilögðu í gær 30 skriðdreka
Þjóðverja á þessum slóðum,
en urðu sjálfir fyrir litlu tjóni.
í Lithauen geisa harðar orr-
ustur og gera Þjóðverjar hörð
gagnáhlaup. Rússar halda stöðv
um sínum. Á landamærum
Eistlands og Lettlands verður
Russum vel ágengt og þar tóku
þeir 150 þorp og hyggð ból í
fyrradag. Þeir éru nú aðeins 40
km. frá Tartu (Dorpat), sem
er mikilvæg járnbrautarmið-
stöð í Eistlandi.
Rússar hafa brotizt inn í borg
ina Sandomir í Suður-Póllandi
og geisa þar nú götubardagar.
Sú borg stendur við Weiehsel
og var þýðingarmikil varnar-
stöð Þjóðverja.
Suður-Frakkland
Framh. af 3. síðu.
minntist hann á, að brátt yrði
samið við de Gaulle um inn-
anlandsmálefni Frakklands,
hvernig stjórnað yrði þar í
landi er Þjóðverjar væru
hraktir úr landi.
Maquihersveitir láta mjög
til sín taka og veita Þjóðverj-
um þungar búsifjar. Meðal
annars er sagt, að þeir séu
einna skæðastir í héraðinu
Haute Savoie, en þar hafa þeir
borginni Annecy á sitt vald. Sú
borg er skammt frá landamær-
um Sviss.