Alþýðublaðið - 22.08.1944, Qupperneq 2
ALMTÐUBLAÐBD
Þriðjudagxir 22. ágúst 1944»
Verkfall hefst í dag hjá olíu
Ekkert flutt til bensíntankanna en það
sem í jþeim er selt meöan endist
VERKFALL hefst í dag hjá olíufélögunum þremur, Olíu-
verzlun íslands h.f., Hf. Shell á íslandi og Hinu íslenzka
steinolíuhlutafélagi. Nær verkfallið til allra verkamanna sem
vinna hjá olíufélögum þessum svo og bifreiðastjóra, en bensín-
sala í smásölu mun halda áfram meðan þær byrgðir endast
sem eru nú á tönkum, en bensín til viðbótar verður ekki flutt
til tankanna meðan verkfallið stendur.
Samnngar þeir, sem Dagsbrún hefur haft við olíufélögin
eru útrunnir í dag. Hafa samkomulagstilraunir staðið undan-
fama daga með aðstoð sáttasemjara ríkisins, en upp úr þeim
slitnaði í gærkveldi. Kröfur Dagsbrúnar voru þær að grunn-
kaup verkamanna hækkaði um 25 krónur á mánuði og hif-
reiðastjóra um 40 krónur á mánuði og auk þess að hlunnindi
þau sem verkamenn hafa notið og ekki hafa verið samnings-
bundin yrðu bxmdin í hinum nýju samningum. Olíufélögin
neituðu þessu. — Það skal tekið fram að Nafta h.f. hefir gert
samning við Dagsbrún og gengið að kröfunum. Nær því verk-
fallið ekki til þess félags.
Börnin koma af sumardvalarheim
ilunum fyrsfu vikuna í sepfember
Börnin frá Reykholti koma fyrsf og börnin
frá Silingapolli siöasf
SUMARDVALANEFND
hefir nú ákveðið heim-
flutningsdaga fyrir þau böm,
er dvalið hafa á barnaheimil-
um nefndarinnar í sumar.
Að öllu forfallalausu koma
bömi í bæinn eins og hér segir:
1. sept. Börnin frá Reykholti,
Borgarfirði.
3. sept. Börnin frá Staðarfelli,
Dalasýslu.
4. sept. Börnin frá Mennta-
skólaselinu.
4. sept. Börnin frá Löngu-
mýri, Skagafirði.
5. sept. Börnin frá Brautar-
holti, Skeiðum.
6. sept. Börnin frá Sælings-
dalslaug, Dalasýslu.
7. sept. Börnin frá Silunga-
pollli.
Bifreiðarnar, sem flytja börn
in og farangur þeirra, nema
staðar við Iðnskólann. Nauð-
synlegt er að aðstandendur
barnanna taki þar á móti börn-
um sínum og farangri þeirra,
sem mun koma samtímis þeim.
Nefndin hefur ekkert húsnæði
til þess að geyma þann farang-
ur, sem skilinn verður eftir, og
lekur því enga ábyrgð á bon-
um.
Skrifstofan mun reyna að
gefa upplýsingar um komutíma
bifreiðanna í bæimi, eftir því
sem hægt verður, að hafa sam-
band við þá, komudaginn. Sími
skrifstofunnar er 2648.
Nefndin óskar þess, að þeir
aðstandendur, sem enn hafa
ekki sótt stofna af skömmtun-
arseðlum barna sinna, vitji
þeirra sem fyrst til skrifstof-
unnar í Kirkjustræti 10, opið
frá kl. 2 til 6 e. h.
Þar sem dvalartími barn-
anna er nú fullráðinn, er þess
vinsamlega óskað, að aðstand-
endur hafi lokið greiðslu á Um
sömdum dvalarkos'tnaði barna
sínna, þegar þau koma heim.
Heilsufar barnanna hefur
verið mjög gott í sumar, að því
er framkvæmdarstjóri sumar-
dvalarnefndrainnar, Gísli Jón-
asson, sagði Alþýðublaðinu í
gær. Kostnaðurinn við dvöl
barnanna hefur verið mjög mik
ill, og er þegar séð að hann fer
fram úr hámarksgjaldinn.
úSpphaflega var ákveðið fyrir.
hvert barn, en það var 200 kr.
á mánuði.
Valur vann handknafl-
lelksmótið í 3. sinn
Handknattleiksmótinu lauk í
fyrrakvöld með því að
Valur vann mótið.
Úrslitaleikirnir hófust kl. 8
með leik milli Vikings og
Hauka. Fór leikurinn svo að
Víkingur vann með 10 mörkum
gegn 4.
Að þessum leik loknum hófst
leikur milli Vals og Ármanns.
Vann Valur þann leik með 8
mörku mgegn 4 og vann þar
með mótið og hlaut bikar þann
sem Ármann hafði gefið til að
keppa um.
Valur vann þennan bikar í
fyrstu tvö skiptin, sem keppt
var um hann, Víkingur vann
hann í fyrra og Valur vann
hann nú.
Engiti lausn í löjudeitunnis
Sagf er að 40 prósenf af verkafólki í iðnað-
inum sé að slarfi hjá. fyrirfækjum sínum
Mörg stór fyrirtæki eru rekin af fullum krafti y
og önnur að nokkru ieyti
VERKFALL IÐJU, félags verksmiðjufólks hefir nú staðið
í rúmar þrjár vikur og engin lausn hefir fengizt í mál-
inu, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir sáttasemjara ríkisins til
þess að koma á sáttum. — Iðja stendur að minsta kosti ekki
betur að vígi nú en hún stóð er verkfallið hófst.
Ástæðan fyrir því er sú að fjöldi atvinnufyrirtækja í
iðnaðinum er í rekstri og sum í fullum rekstri. Báðar,ölgerð-
irnar eru reknar, báðar kexveksmiðjurnar, Niðursuðuverk-
smiðja SÍF, tvær smjörlíkisgerðir, Ljómi og Smári, Blikk-
smiðjan og f jölda mörg önnum smærri fyrirtæki, sem annað
hvort eru í fullum rekstri eða að nokkru leyti.
Það hafir komið •áþreifanlega
í Ijós í Iþessari deilu hversu ó-
heppilegt það er fyrir alla aðila
að félögin skuli vera mörg, sn
lástœðan fyrir því er hins vegar
sú að á sínum tíma reyndu
kommúnistar að ná yfirráðum
yfir hópum verkafól'ks með 'því
að kljúfa félög og stöfna mörg
ný til þess að auka fulltrúatölu
sína á þingum Alþýðusam-
bandsins.
Verkakvennafélagið Fram-
sókn ihefir hærri samninga en
Iðja hafði. Verkamannafélagið
Dag'sbrún hefur einnig hærri
samninga fyrir verkamenn en
Iðja ihafði fyrir sína félaga.
Menn úr báðum þessum félög-
um, konur úr Framsókn og karl-
menn úr Dagsbrún vinma nú
samkvæmt isamningum félaga
sinna í iðnfyrirtækjum sem
Iðja hefir gert verkfall hjá fyrir
hönd sirina félaga.
Þetta er vitanlega óþolandi á-
stand tfiyrir félagsfólkið í Iðju —
og það verður að segjast af því
að það er rétt, þó að forystu-
menn Iðju sumir hverjir að
minnsta kosti, kunni við það að
þjóta upp á nef sér, að heppileg-
ast væri fyrir iðnverkafólkið að
Iðja væri lögð niður, að félag-
arnir gengju í Dagsbrún og
Framsókn- og síðan hafið vinnu
að riýju samkvæmt samningum
þessara stóru félaga.
En það er ekki líklegt að f or-
ystumenn Iðju, sem að lang-
mestu leyti eru kommúnistar,
enda sést það á skipulagi þess-
arar deilu, muni taka þessa
skynsamlegu leið. Þar stendur
persóna þeirra í vegi — og jafn
vel pólitískir hagsmunir þess
flobks sem þeir starfa fyrir og
hugsa meira um en láfk'omiu
heimila iðnaðarverkafólksins. Ef
það á að takast að leysa iðnað-
arverkafólkið úr þeirri sjálf-
heldu, sem hinir kommúnistísku
foringjar þess hafa sett það í,
verður það ’sjálft að taka í taum-
ana. Það er eina lausninl
Nokkrar konur
geta komizt á ín :t ðraheimilið í
Þingborg í Flóa síð» ta starfstíma
bilið í ágúst. Konur snúi sér nú
þegar til skrifstofu Mæðrastyrks-
nefndar, Þingholtsstræti 18, kl. 3
til 5.
Séra Árni Sigurðsson
Fríkirkjuprestur er kominn
heim úr sumarleyfi sínu.
dokfor í lögunt vi
háskóla í Banda-
ríkjimum
Tilkynning frá xdanríkis-
ráðuneyíinu.
HERRA THOR THORS sendi
herra íslands í Washing-
ton var á laugerdaginn útnefnd
ur heiðursdoktor í lögum við
Rider College, Trenton, ásamt
herra Walter Edge, ríkisstjóra
New Jersey.
Það sjá það allir sjálfir að það
er erfitt að leysa deilu, sem er
byggð upp frá upphafi eins o,g
þessi deila. Fjöldi manna vinnur
fyrir hærra kaup annara stétt-
arfélaga og gert er ráð fyrir að
•allt að 40% af því verkafólki,
sem hefur atvinnu í iðnaðinum,
sé við vinnu sína samkvæmt
samningum stéttarifélaganna
Dagsbiúnar og Framsólknar.
Verkafólkið þarf nauðsynlega
að skipuleggja samtök. sín ibet-
ur — og það verður að gerast
•nú, síðar verður það erfiðara.
Dæmið um aðstöðu iðnaðar-
verkfólksins ætti að vera nægi-
leg lexía.
Mikill mannfjöldi fók
þált í guðsþjónust-
unni á Skólavörðu-
hæð á sunnudaglnR
UTIGUÐSÞ J ÓNUSTAN á
Skólavörðúhæð á sunmi-,
dag var mjög fjölsótt. Var
holtið þéttskipað fólki, allt frá
Frakkastíg og Njarðargötu upp
fyrir Leifstyttu, en þar hafði
verið komið fyrir ræðustól, þar
sem báðir prestar Hallgríms-
prestakalls, þeir Sigurbjöm
Einarsson og Jakob Jónssoa
fluttu ræður, og minntust þrjú
hundruð ára prestvígsluafmæl-
is sér Hallgríms Péturssonar, og
þeirrar þakkarskuldar, sem ís-
lenzka kirkjan stæði í við hann.
Lúðrasveit Reykjavikur und
ir stjórn Albert Klahn lék und-
ir söngnum, en kór Hallgríms-
sóknar söng, en mannfjöldinn
tók undir. Sungnir voru sálm-
ar eftir Hallgrím Pétursson.
Fór athöfnin fram með mikl
um helgiblæ og ágætri þátttöku
hins mikla mannfjölda.
Milliþ.nefnd í skólamálum undir-
býr framlíðarskipan fræðslumála
Starfaði í sumar að Laugarvatni ©g mun
halda störfum áfram hér í bænum
MILLIÞINGANEFND í
skólamálum er nýkomin
aftur til bæjarins frá Laugar-
vatni, þar sem hvin hefir starf-
að undanfarnar sex vikur. Gat
hún fengið þar húsnæði út af
fyrir sig og tryggt ágæt starfs-
skilyrði og fullan vinnufrið.
Nefndin hélt sameiginlega
fundi flesta dagana, en skifti að
öðru leyti með sér störfum.
Var það mikið verk að fara
yfir öll þau svör, er nefndinni
höfðu borizt. Að vísu voru þau
færri en hún hefði kosið, en
skifía þó mörgum hundruðum.
Og enn eru svör að koma.
Nefndin hefir þegar samið
drög' að nokkurum frumvörpum
til laga, og eru þessi hin helztu:
I. Um skólakerfi og fræðslu-
skyldxx.
II. Um fræðslu barna.
III Um gagnfræðanám.
IV. Um mejnníaskóla.
Mun nefndin væníanlega
ganga til fulls frá þessum frum-
vörpum nxi í haust.
Enn er of snemmt að rekja
tillögur nefndarinnar, en þeíss
má ge.ta, að hún hefur í ýmsu
stuðst við fræðslulöggjöf Breta
frá þessu sumri.
Höfuðverkefni, sem nefndinni
var falið, var að samræma skóla
kerfi íslands og gjöra það hag-
felldara. Hyggst nefndin að
leggja til,»að skólar þeir, sem.
kostaðir eru eða styrktir af al-
! mannafé, myndi samfellt skóla
kerfi, er skiptist í þessi fjögur
sig: 1. barnafræðslustig, 2,
gagnfræðastig, 3. menntaskóla-
og sérskólastig, 4. háskólastig.
Fræðsluskyld séu börn og ung
lingar á aldrinum frá 7 til 15
ára.
Barnafræðslunni er ætlað að
ljúka ári fyrr en nú er, eða á
því almanaksári, er barnið verð
ur 13 ára. Fræðsluskylda barna
hefjist á sama aldri og verið
hefur.
Gagnfræðaskólanám á að
taka við að loknu fullnaðar-
prófi barna, en skólar gagn-
fræðastigsins greinist í tvenns
konar deildir, bókanámsdeild
og verknáms eftir því, á hvort
námið sé lögð meiri áherzla.
Tvö fyrstu árin á nám þetta
að vera skyldunám unglinga á
aldrinum 13 til 15 ára. Þriggja
ára gagnfræðanámi í bóknáms
deild ljúki með landsprófi, er
veiti rétt til inngöngu í mennta
skóla og ýmsa sérskóla.
Enn er gjört ráð fyrir gagn-
fræðanámi hið fjórða ár.
Aðalbreytingin á menntaskól
unum á að verða sú, að þeir
verði semfelldir fjögurra ára
skólar og gangfræðanámið
greint frá þeim. Aðstöðumun-
ur til inngöngu í þá á að verða
minni en verið hefur ujidanfar
ið, en þó í engu slakað á náms
krþfunum við þá.
Nefndin þakkar mörg ágæt
svör og tillögur og biður þá,
sem enn eiga ósvarað spurning
um hennar, að láta það ekki
dragast lengur að senda svör.
FrtSi. á 7.