Alþýðublaðið - 22.08.1944, Qupperneq 7
Þriðjudagur 22. ágúst 1944.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
f
Bœrinn í da?t
Naéiurlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
Næturakstur annast B. S. í.,
sími 1540.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Lög úr óper-
ettum og tónfilmum.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Barátta Germana og
Slava um Evrópu, III.
(Sverrir Kristjánsson sagn-
fræðingur).
20.55 Hljómplötur: a) Dumky-
tríóið eftir Dvorspak. b)
21.20 Kirkjutónlist.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Þakkarorð.
Fyrir nokkru síðan komst
minkur inn í hænsnakofa minn
og drap 12 hænur af 14 sem ég
átti. Þar sem ég er mjög biluð á
heilsu, er einstæðingsekkja og
hafði þetta litla hænsnabú mér til
mikils stuðnings, þá bakað þetta
mér mikið tjón. Nú hafa ýmsir
góðkunningjar mínir og velunn-
arar bætt mér þetta upp með mjög
myndarlegum peningagjöfum og
vildi ég hér með færa þeim mínar
innilegustu þakkir og bið guð að
launa þeim þessa hjálp og góðvild
mér til handa.
Hafnaarfirði 21. ágúst 1944.
María Sveinsdóttir
Suðurgötu 85.
Anna Z. Osterman:
SpámaÖur í sauöargæru.
Veðreiðar Fáks í
fyrradag
Randver vann skeið-
■■IS, en Ör og Hörður
stökkin
VEÐREIÐAJR Hestamanna
félagsins Fáks fóru fram á
Skeiðvellinum við Elliðaár í
fyrradag kl. 3 e. h. Keppt var í
250 m skeiði og 300 og 350 m
stökki.
Á skeiðinu i undanrás stukku
allir hestarnir upp nema Rand-
ver frá Varmadal og rann hann
skeiðið á 26.2 sek. í úrslitum
var hann einn og rann þá vega
lengdina á 25. 8 sek. Metið á
þessari vegalengd er 24.2 sék.
og var það Sjúss frá Hafnar-
firði sem setti það árið 1928,
en síðan, eða 1934, rann Fluga
frá Varmadal skéiðið á met-
,tíma.
í 300 m. 'stökkinu urðu úr-
slit þau að fljótust varð Ör úr
Dalasýslu, á 23.2 sek., mjög
efnilegt veðhlaupahross. Metið
í þessari vegalengd er 22.2 sek.
sett af Sleipni árið 1938. Annar
í þessu hlaupi varð Þröstur á'
24.3 sek., og þriðji Sindri á
24.9 sek. Báðir þessir hestar eru
ættaðir úr Borgarfirði.
í 350 m. stökkinu'varð'fyrst
ur Hörður frá Melum á Kjal-
arnesi á 26.7 sek. Aimar Kol-
bakur á 27.0 sek. og þriðji Létt
ir frá Gufunesi á 27.0 sek. Met
ið í þessari vegalengd er 25.6
sek., sett af Drottningu frá
Gufunesi árið 1938.
r,<>» , "y
Frh. af 2. síðu
Sigurður Guðmundsson, skóla
meistari, kom frá Akureyri til
þess að sitja nokkra fundi með
nefndinni og bar fram ýmsar
merkar tillögur.
Nefndin iheldur áfram dag-
legu starfi hér í Reykjavík að
svo miklu leyti, sem því verð-
ur við komið.
TILEFNI eftirfarandi athuga
semda er sú heimsstyrjöld,
sem nokkur undanfarin ár hef-
ur staðið milli lækna og tals-
manna hinna svo kölluðu „nátt
úrulækninga". Hefur strið þetta
færrzt alla leið út til íslands,'
þannig að skothvellirnir endur
hljóma í eyrum blaðalesenda
hérlendis.
Ef til vill leyfist leikmanni
að leggja hér orð í belg, enda
þótt hann sé engan veginn af
þeim rétttrúuðu, sem fyK
Are Waeiiand að máli. En það
skrítna hefur gerzt i þessi’
stríði, bæði hérlendis og erlend
is, að þegar læknar leyfa sér
að gagnrýna kenningar og
lækningaaðferðir „náttúru-
lækna“, er þeim sí og æ nudd-
að um nasir, að þeir séu þar að
tala i sínum eigin hagsmuna-
málum, verja stéttarréttindi
sín, og þar fram eftir götunum.
Auk þess virðist það vera álit-
inn mjög alvarlegur gaiii á beim
að þeir skuli hafa gengið undir
háskólapróf í fræðigrein sinni.
nema þá að þeir vilji bæta ráð
sitt og aðhyllast hinar einu réttu
og sáluhjálplegu „náttúrulækn
ingar“.
Að háskólapróf í læknisfræð;
skuli ganga glæpi næst í aug-
um þeirra manna, sem hafa kos
ið Are Waerland fyrir aðalspá-
mann sinn og læriföður, er
næsta skiljanlegt þeim möntr
sem þekkja nokkuð til æviferils
þess manns, en hér skal þó að-
eins bent á þá staðreynd, að
ékki einu sinni nafn mannsins
er „ekta vara“, þar sem hvorki
er „Are“ skírnarnafn hans, né
Waerland ættarnafnið. Og þessi
staþreynd virðist því miður vera
táknræn fyrir manninn, og nóg
um það í bili. En hvernig er sú
stefna, sem hefur kosið hann
fyrir spámann sinn, ef hún er
nánar athuguð?
„Það þarf svei mér stáiit"-~
til að vera sjúklingur á bo----
spítala“, varð hermanni nokkr
um að orði, er hann lá veiv"
í hermannaspítala á -þeim tíma
sem amerísk olia var uppáhalds
lyfið við alls konar veikindi
hermanna, að meðtaldri- botn-
langabólgu, að því er sumir
herma, sem reynt hafa. En hvað
ætli hermaður sá hefði sagt, ef
hann hefði orðið að þola sum-
ar þær lækningaaðferðir „nátt
úrulækna“, sem eru nú í svo
mikilli tízku hjá mörgu góðu
fólki, ekki sízt hér í Reykjavík,
Ég ætla annars ekki að ræða
þessa lækningastefnu á heilsu-
fræðilegum grundvelli, enda
ekki fær um það, þar sem ég er
ekki meiri sérfræðingur i h-V ~
efnum en hver annar heimatil
búinn heilsusérfræðingur, til
dæmis Are Waerland. Hvað
sem skjaldsveinar þessa manns
hér og erlendis segja, þá er og
verður þessi svo kallaði heilsu
sérfræðingur heimatilbúinn, —
og það í meira lagi — þar sem
hann hefur alltaf skorazt und-
an opinberri gagnrýni, fyrst
með því að gangi ekki undir
þau löggiltu kunnáttupróf, sem
jafnvel hinir ömurlegustu-lækn
ar verða að sætta sig við, ýður
en þeir fá leyfi til að reyna
þekkingu sína á sjúkum sam-
ferðamönnum. Ef til vill er það
satt, að Are Waerland hafi ver-
ið of heilsuveill á æskuárum
tii þess að ljúka læknisprófi á
sómasamlegan og löglegan hátt.
En ef kenningar hans um lækn
ingar eru réttar, þá ættu þessi j
veikindi ekki að koma mannin ■
um að sök nú orðið. Hverju
sætir þá, að þessi sami Are
Waerland færðist rúmlega
tvéimuij áratugum seinna und-
an áskorun sænsks læknis um
að leggja fram kenningar sínar
og sannanir þær, sem hann
þykist hafa fyrir þeim, og ræða
þær eða verja opinberlega
andmælum sérfræðinga á l
sviðinu, við háskólann í Lundl?
Ef allt er með felldu, og sann-
anir þær, sem hann þykist
fært máli sínu til stuðnings,
eru á nægilega traustum yrund
velli reistar, á strangvísin^n-
légum mælikvarða að telja,
því færðist maðurinn þá
an, þegar á hann var skorað
að verja málstað sinn? Er hann
hræddur við gagnrýni visinda-
manna? Ef svo er, virðist eitt
hvað meira en lítið bogið við
hinar háttlofuðu kenningar 'hnr-s
mannkyninu til líkamslegs
hjálpræðis. En slík ljóshr'^ð-l-'
hefur all-taf verið einkenm'
myrkramanna með hve"”'
þjóð og á hverri öld. Eða skyldi
Are Waerland vera álitinn
ir það hafinn ao sæta gagnrýni
visindamanna í máli, sem snert
■iir þ’ó velferð mannkynsins? Ef
svo er, þá er hér sannarlega
ekki um að ræða vísindalegar
kenningar í læknisfræði af hans
hálfu eða lærisveina hans, held
eru þá ekki lengur málefni skvn
seminnar, heldur eiga þau ræt
ur sínar í tilfinningalífi átrú.-
enda sinna, sem verða vegna
tilfinninga sinna ónæmir fyrir
rökum skynseminnar í þéim
efnum, sem að þessum málr-
lúta. Það breytir engu, þó að
hér sé um að ræða trúarbrögð
er hafa í bókstaflegri merkingu
gert magann, eða meltingarfær
in yfirleitt, að guði, sem krefst
sífelldrar dýrkunar og um-
hyggju hinna trúuðu, og jafn-
3 vel þess, að útrýmingarstríð sé
háð á hendur hinum vantrú-
uðu, er vilja ekki snúa frá villu
síns vegar, sem sé í þessu til-
felli meirihluti læknastéttarinn
Þakka innilega alla hjálp og vináttu auðsýnda föðursystur
Antoníu iónsdóttur
nú síðast í veikindum hennar, við andlát hennar og jarðarför.
Sigríður Valdimarsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
móður okkar, systur og tengdamóður
Gwðríðar Lífiju Grímsdóttur
Guðrún Halldórsdóttir. Ágústa Gunnlaugsdóttir.
Guðmundur Halldórsson. Sveinbjöm Sæmundsson.
ar.
Að hér sé í rauninni ný trú-
arbrögð á ferli má sjá meðal
annars af hinum ofstækis-
kenndu árásum lærisveinanna í
garð hvers manns, sem leyfir
sér að gagnrýna lækningaað-
ferðir þessa trúarflokks eða
lætur í ljós minnsta snefil af
efa um almennt gildi þeirra.
Má vera, að það sé ekki af ein
skærri tilviljun, að einna mest
hefur borðið á dýrkun ,,náif
úrulækninga“ í föðurlandi naz
ismans. Ofstækið hafa þessar
stefnur sameiginlegt, og eins
má heita um hatur þeirra og
fyrirlitningu á hinum þrá-
kelnisle_gu háskólamönnum sem
eru svó frekir að vilja ekki
gagnrýnislaust gína við hverj-
um þeim kenningum, sem þeim
er fyrirskipað að gleypa eins
og pillur. Og auðvitað er það
leiðinlegt, að læknar skuli ein-
mitt vita manna bezt, að pillur
verður að gleypa með varúð.
Margur óbrjálaður maðurinn
mun einnig líta svo á, að ekki
hafi tilviljun ráðið því, að einn
helzti spitali ,náttúrulæknnga‘
í Þýzkalandi skuli hafa hlotið
heiðursnafnið „Rudolf Hess
Klinik“.
Ekki veldur sá er varar!
Reykjavík í áqúst 1944.
Anna Z. Osterman.
Verkalýðsráðsiefna á
Ausffjörðum
sept. næsikomandi
MIÐSTJÓRN Alþýðu-
sambands Austfjarða hef
ur boðað til verkalýðsráðstefnu
í Neskaupstað á komandi
hausti. Er gert ráð fyrir að ráð
stefnan standi yfir dagana 9. og
10. sept. n. k. og hafa öll verka
lýðsfélög á Austurlandi rétt til
að senda fulltrúa á ráðstefn-
una.
Aðalverkefni ráðstefnunnar
verður að ræða og taka ákvarð
anir u muppsögn kaupgjald%
samninga sambandsfélaga.
Úfbreiðið
Alþýðublaðið
leið fil ausfurvígsföðvanna
^áar myndir hafa borizt af he rflutningum Þjóðverja, en Þessi mynd, sem er úr þýzkri
fréttamynd og barst hingað yfir New York, sýnir Þjóðverja vera að aka brynvörðum her-
flutningavagni upp í geysistóra, sexhreyfla flutningaflugvél og fylgir það sögunni, að hún
eigi að fara til Rússlands.